Dagur - 19.12.1964, Blaðsíða 8
8
t' ílSlíStí:íi*?I
iililfiH****!
Illlfllllillil
ííiimniinM
* **
fllll
* *»
i'iIIIIIOIff#
OÍII i i filill lii 11111 ip 111
liiHHaBaHBilil iiiiiaiaiiiill
•>
SMÁTT OG STÓRT
VÖXTURINN ER MIKILL
ÞAR
Samkvœmt ríkisreikningi 1958
voru útgjöld samkvæmt 10.
grein, þ. e. til ríkisstjórnar,
ráðuneyta og utanríkisþiónust-
unnar 27 millj. kr. samtals. Nú
er gert ráo fyrir því í fjárlögum
fyrir næsta ár, að þessi upphæð
verði 74 millj- kr. (Enda er hér
uin að ræða eitt af nær sextíu
st jórnarlof orðum!)
m. a- þetta að segja: „Eins og að
undanförnu hafa endurskoðun-
armenn fengið skýrslu frá „End
urskoð'unardeild fjármálaráðu-
neytisins“ um það, hve langt
endurskoðun hennar cr komið.
Samkvæmt þessari skýrslu, sem
hér fylgir, er ástandið í þessum
efnum engan veginn gott og hef
ur því miður gengið í öfuga átt
vað það, sem yfirskoðunarmenn
hafa gert sér von um“.
Flest virðist nú á eina lund
efnt á þeim bæ.
Fyrir skömmu fluttu síðustu starfsmenn bændas imtakanna í Bændahöllina. Eru þau: Búnaðarfé-
lagið, Stéttarsambandið, Framleiðsluráð, Sauðf á veikivamir o. fl. og hafa 3ju liæði byggingarinnar
til afnota. Bændahöllin kostar 130 millj. kr- með öllu, fösiu og lausu.
í sérmálum
Stórmerk þingsályktunartillaga Iíarls Krist-
jánssonar og Gísla Guðimindssonar
Niðurlag.
SÁÐ í SAND SEM FÝKUR
Nú er einn og hálfur áratugur
liðinn. Ofugþróunin í byggða-
jafnvæginu hefur haldið áfram
og stórlega aukizt. Starfsliði rík
isins hefur fjölgað, þó að vinnu-
stöðum þess hafi ekki verið
dreift um landið með fylkjaskip
an. Sogkraftur þéttbýlisins við
Faxaflóa hefur dregið fólkið að
sér til búsetu með sjálfvirkum
hættL Snortrar fjárveitingar
aukreitis úr ríkiskassa eða lána
útveganir til uppbyggingar og
útvegunar atvinnutækja eða
annað því um líkt á einstökum
stöðum, sem eiga í vök að verj
ast, skal ekki meta lítils- En
stundum er þetta samt eins og
að sá í sand, sem fýkur, sé ekki
meira gert. Það þarf að girða
fyrir fokið með skjólgörðum.
Slíkir skjólgarðar ættu valda-
stöðvar fylkjanna að geta orðið.
Reynslan af þjóðfélagsþróun-
inni, síðan Fjórðungssambönd-
in komu fram með tillögurnar
um skiptingu landsins í fylki,
■mælir sterklega með því, að
fylkjaskipun verði tekin upp,
að dómi okkar flutningsmanna
þessarar tillögu, — og einkenni
legt teldum við, af nokkur risi
gegn því, að Alþingi kveðji
menn til athugunar á því sér-
staklega.
EKKI STJÓRNARSKRÁE
BREYTING
í tillögum sínum gerðu fjórð-
ungsþingin ráð fyrir því, að
fylkisþingin kysu menn þá, er
skipa efri deild Alþingis, en til
neðri deildar væri kosið í ein-
menningskjördæmum, og hefði
því þurft stjórnarskrárbreyt-
ingu við lögtök þeirra. Þetta
Baguk
kemur næst út á þriðjudags-
kvöldið. Verzlunarauglýsing-
ar þurfa að berast sem fyrst.
felst alls ekki í tillögu okkar.
Hún snertir ekki skipun Alþing
is og gæti að okkar áliti orðið
fi’amkvæmd með einföldum lög
um.
Við leggjum heldur ekki til
um það, hve fylkin eigi að vera
mörg. Það er matsatriði.
Fleira var og í tillögum Fjórð
ungssambandanna, er við tök-
um ekki upp-
Að öðru leyti er þessi tillaga
efnislega, það sem hún nær,
sams konar tillaga og Fjórðungs
samböndin báru fram, enda
fyrri flutningsmaður hennar
einn þeirra, er stóðu að tillögu
gerð Fjórðungssambandanna.
Hún er studd sömu rökum og
þeirra, að viðbættri sterkri á-
herzlu frá reynzlu síðustu ára
og líðandi stundar.
BYGGÐAFESTUR
Augljóst er, að sú dreifing þjóð
félagsvaldsins, sem hér um ræð
ir, mundi, ef hún kemst í fram
kvæmd, skapa byggðafestu,
hafa sín áhrif á fjármagnsdreif
inguna innan þjóðfélagsins og
miða að því að tryggja not og
viðhald þeirra föstu verðmæta,
sem þegar er búið að staðsetja
víðs vegar um land.
í höfuðborginni, Reykjavík,
og umhverfi hennar mun fólk-
inu halda áfram að fjölga, þótt
landinu verði skipt í fylki. Það
skipulag hamlar aðeins gegn of
vextti hennar. Þjóðinni þykir
vænt um borgina fríðu við ,sund
in blá“, þar sem „fornar súlur
flutu á land“ og byggð hófst á
landi hér, og vill veg hennar
mikinn og gengi hennar traust.
En ofvöxtur er höfuðborginni
sjálfri ekki hollur. Hann veldur
því, að borgin verður ekki eins
vel úr garði gerð og vera þyrfti,
og á þetta yfirleitt við um bæi,
sem við hann eiga að stríða,
hvar sem er. Ráðamenn glíma
að jafnaði við óleysanlegan
van4a, og almenningur sýpur af
seyði.
Höfuðborgarbúum er eins og
öðrum landsmönnum bezt til
farsældar, að byggð eflist og
blómgist um land allt- Þetta er
líka höfuðborgarbúum ljóst,
eins og öðrum landsmönnum.
Þjóðinni í heild er það lífsnauð
syn, að landið allt sé byggt, þar
sem búsetuhæft er, ef hún vill
halda áfram að vera sjálfstæð
þjóð og eiga landið með fullum
rétti.
Skipting landsins í fylki
mundi tryggja sjálfstæði þjóðar
innar stórlega.
Til frekari áherzlu því, sem
áður er sagt um starfsmanna-
hald hins opinbera í sambandi
við fylkj askipunarfyrirkomulag
ið, skal fram tekið, að þegar fylk
in fengju sérmál sín til meðferð
ar að nokkru leyti, mætti ætla,
að Alþingi þyrfti skemmri tíma
en ella til sinna starfa ár hvert
og að starfsmönnum ríkisstjórn
ar og ríkisstofnana þyrfti ekki
að fjölga eins og ella mundi
verða, jafnframt því sem þjóðin
(Framhald á blaðsíðu 5).
HÆKKUN Á TOLLUM og
SKÖTTUM
Tolla- og skattheimta til ríkis-
sjóðs hefur liækkað í tíð núver-
andi stjórnar um 336% eða 2300
milljónir króna. Þessi upphæð
nam um 700 milj. árið 1958 en
verður 3000 millj. árið 1965.
Hver var að tala um skattpín-
ingu til rikissjóðs árið 1958?
Það skyldi þó aldrei hafa ver-
ið íhaldið, sem það gerði og lof-
aði að snúa við á þeirri óheilla-
braut!
BÚ ER LANDSTÓLPI
Þetta nafn ber nýja landbúnað-
arkvikmyndin, sem hér var
sýnd um daginn á bændaklúbbs
fundi. Margt var þar fallegt að
sjá, en margt fannst mönnum
vanta. Þar var á það bent, að
búið væri á Islandi að rækta 80
þús. hektara lands en 2 millj.
hektara ræktanlegs lands bíða
ræktunar. Með þetta í huga virð
ast verkefni töluverð hér á
landi, enda er landið sjálft, allt
liið ræktanlega land, mesti þjóð
arauður íslendinga, þótt of fá-
ir komi auga á það.
UMSÖGN YFIRSKOÐUNAR-
MANNA
Endurskoðunarmenn ríkisreikn
inga í fjármálaráðuneytinu liafa
Súsanna situr enn föst á Kotflúð
Raufarliöfn 18. desember. Þýzka
flutningaskipið Susanna Reith,
sem strandaði á Kotflúð hér í
höfninni 11. þ. m. situr enn sem
íastast. Varðskipin Þcr og Oð-
inn gerðu lokatilraunir með
björgun á miðvikudagsmorgun,
en skipið haggaðist ekki. Bæði
varðskipin eru farin héðan. —
Sjór hefur ekki náð að komast
að vélum skipsins, þar sem aft-
urendinn er upp á flúðinni og
hallast skipið því mikið fram-
Skipverjar eru allir um bovð en
einhverjir af þeim vildu fara til
Reykj avíkur, en fengu ekki
leyfi yfirmanna sinna. Ekki er
enn vitað hvað næst verður
gert í sambandi við hið strand-
aða skip, sem aðeins er sex ára
gamalt og því verðmætt.
Hér er suðvestan gola og 5
stiga hiti. í nótt rigndi mikið og
snjórinn hverfur óðfluga.
Símaklukkan
SÍMAKLUKKUNNI verður
breytt í kvöld, föstudagiun 18.
des. kl. 22, úr 03 í 04.
Ekkert hefur verið róið að
undanförnu vegna ógæfta og
engin síld borizt hingað. H. II.
Snjólétt á Austurlandi
Egilsstöðum 18- desember. Tíð-
arfar hefur verið mjög sæmi-
legt, það sem af er vetri. Frost
hafa þó verið allmikil, oft 8 til
12 stig, og er jörð því mikið
frosin.
Alltof mikið hefur verið- gert
úr snjóþyngslunum hér austan-
lands að undanförnu. Sama og
engar truflanir hafa orðið í
sambandi við mjólkurflutning-
ana hingað og t. d. hefir Fagri-
dalur alltaf verið fær. Færð hef
ur verið einna erfiðust á Eyjum
yzt í Hjaltastaðaþinghá. Fjarðar
heiði tepptist nokkra daga, en
er nú fær. Snarpa hláku gerði
í nótt og snjóa hefur tekið,
þannig, að aðeins eru eftir smá
snjódriftir í byggð,
Jólablær er kominn á kaup-
túnið og margir farnir að taka
lífinu með ró, eftir erilsamt
sumar og haust- V. S.
„HRAÐFRYST ÝSUFLÖK“
Kaffistofa sú, sem stundum er
nefnd kaffitería KEA, er oft
þétt setin og þar kunna menn
vel við sig. Þar er sjálfsaf-
greiðsla, sem margir eru farnir
að venjast, hóflegt verð, eftir
því sem menn eiga að venjast
og þar geta ferðamenn fengið
kaffi á vermiflöskur og brauð í
öskjum. Allt er nú þetta gott og
b'essað nema öskjurnar. Á þeim
stendur: Hraðfryst ýsuflök,
stórum stöfum. Lengi liefur sá,
er þessar línur ritað, vonað að
úr yrði bætt með smekklegri
umbúðum um kaffibrauð. En í
gær var þar engin breyting orð-
in-
UTANFARIR RÁÐIIERRA
Eftir því sem blaðið hefur frétt
vakti það undrun á Alþingi, að
fjármálaráðherra fór til útlanda
um það leyti, sem meðferð fjár
lagafrumvarpsins í fjárveitinga
nefnd hefði átt að vera í þann
veginn að komast á lokastig, og
mun liafa dvalist erlendir í 10
daga eða svo. Hann hefur því
ekki verið viðlátinn til að skýra
nefndinni frá því, sem stjórnin
hefur til málanna að leggja og
stjórnarmeirihlutinn hefur þá
heldur ekki getað liaft það sam
ráð við ráðherra sína, sem tíðk-
ast hefur. í þessu sambandi er
líka ástæða til að vekja athygli
á, að utanfarir ráðherra og lang
dvalir í útlöndum eru nú svo
tíðar orðnar hjá núverandi
stjórn, að mörgum blöskrar, og
telja, að þeir hljóti að hafa ann
að þarfara að vinna.
Þó að fjárlagafrumvarpið sé
orðið síðbúið, hefur blaðið heyrt
að enn sé gert ráð fyrir, að
reynt verði að afgreiða það fyr-
ir jólin. Sumir segja hinsvegar,
að stjórnin ætli sér að láta af-
greiðslu vegaáætlunarinnar
bíða fram yfir áramót. Slíta
liana þannig úr samhandi við
fiárlögin, sem vegalögin gera
ráð fyrir. En ólíklegt er, að því
verði vel tekið af alþingismönn
um.
LÁN TIL ÍBÚÐABYGGINGA
I SVEITUM
Framsóknarmenn á Alþingi
flytja frumvarp þess efnis, að
lán til íbúðarhúss í sveitum
verði hækkuð úr 150 þús. kr.
upp í 280 þús. kr. eins og önnur
íbúðarhús, og að vextirnir verði
lækkaðir úr 6% niður í 3,5%,
eins og þeir voru fyrir „við-
reisn“. Franisögumaður þessa
máls er Ásgeir Bjamason.