Dagur - 31.03.1965, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Á SUNNUDAGINN var fjöldi fólks á ismim á Akureyrarpolli, m. a. til að veiða upp um ís
og sjá fyrstu keppni í þeirri grein, sem fram hefur farið. (Ljósmynd: G. P. K.)
Akureyri hafnar aðild að landsvirkjun að sinni
Á SÍÐASTA bæjarstjórnar-
fundi urðu allmiklar umræður
um virkjunarmál. Tilefni um-
ræðnanna var að bæjarráð (að
tillögu bæjarstjóra) lagði til,
að bæjarstjórn tæki afstöðu til
aðildar Akureyrarbæjar að fyr-
irhugaðri landsvirkjun, ef Al-
þingi og ríkisstjórn ákvæðu að
stofna til hennar.
f framsöguræðu rakti bæjar-
stjóri aðdraganda þessa máls.
Sagði hann raforkumálaráð-
herra hafa skipað svokallaða
Samvinnunefnd í virkjunarmál-
um 9. júní s.l., er kanna átti
möguleika á samvinnu ríkisins,
Sogsvirkjunar og Laxárvirkjun
ar um stórvirkjun til vinnslu
raforku. Væri þetta 10 manna
nefnd og ættu í henni sæti a.
m. k. þrír Akureyringar, Jakob
Frímannsson kaupfélagsstjóri,
Jónar Rafnar alþingismaður og
Magnús E. Guðjónsson bæjar-
stjóri. Benti hann á að enginn
þeirra sæti þar sem fulltrúi Ak-
ureyrarbæjar og þeir því ekki
borið fram sjónarmið bæjar-
stjórnar, heldur eingöngu per-
sónuleg afstaða ráðið tillögu-
gerð þeirra.
Samdi nefnd þessi á sl.
sumri uppkast að tillögum um
þessa samsteypu, sem nefnd er
landsvirkjun. Tilgangur henn-
ar átti að vera að framleiða raf-
orku í eigin orkuverum og
vinna að samtengingu orkuver-
anna. Áætlað var að ríkið ætti
Góð kvöldskemmtun
AKUREYRARDEILD KEA hélt
kvöldskemmtun á mánudags-
kvöldið að Hótel KEA (aðalsal).
Fræðslufulltrúi SÍS, Páll H.
Jónsson, flutti erindi og sýndi
kvikmyndimar Hönd veitir
hendi og Bú er landstólpi. Að
því loknu var efnt til spurninga
keppni og hlutu sigurvegarar
góð verðlaun. — Ármann Dal-
mannson deildarstjóri, stjórn-
aði samkomunni, sem var mjög
ánægjuleg og vel sótt. □
54—56%, Reykjavík 35—37%
og Akureyri 8—10%. Stjórnin
skyldi skipuð 15 mönnum, 8 frá
ríki, 5 frá Reykjavík og 2 frá
Akureyri.
Sagði bæjarstjóri, að síðan
hefði lítið gerzt og hann búizt
við, að leitað yrði umsagnar
bæjarstjórnar um málið, en
engin slík beiðni komið fram
og því hefði ekki verið ástæða
til að hafast neitt að. En nú, 15.
marz, hefði nefnd þessi aftur
komið til fundar í Reykjavík og
gert eftirfarandi ályktun:
„Stjórn Laxárvirkjunar hefur
á fundi sínum 10. febrúar þ. á.
rætt samanburð á virkjunum í
Laxá og línu frá Búrfellsvirkj-
un við Þjórsá. Að gerðum þess-
um samanburði lýsti Laxár-
virkjunarstjórn þeim eindregn-
um vilja sínum, að raforkumál
Laxárvirkjunarsvæðisins verði
leyst með nýrri virkjun Laxár
og varmaaflstöðvum með þeim
hætti sem hagkvæmast reynist.
Jafnframt að gerð verði ítar-
lég rannsókn á, hvort ekki
reynist hagkvæmast að Austur-
land verði tengt við Laxár-
virkjun samtímis aukinni orku-
framieiðslu í Laxá.
Þar sem Laxárvirkjunarstjórn
þannig telur ekki tímabært að
svo stöddu að gerast aðili að
landsvirkjun, vill nefndin mæla
með því við raforkumálaráð-
herra, að ákveði Alþingi og rík-
isstjórn að ráðast í stórvirkjun
í Þjórsá, þá verði ríkið og
Reykjavíkurborg sameignarað-
ilar að slíkri landsvirkjun, og
þessir aðilar taki upp beina
samninga sín á milli um fram-
kvæmd þess máls.
í væntanlegum lögum um
landsvirkjun sé gert ráð fyrir
að Laxárvirkjun geti síðar orð-
ið aðili að landsvirkjun.
Jafnframt mælir samvinnu-
nefndin með því að veitt verði
nauðsynleg lagaheimild til fram
haldsvirkjunar í Laxá.“
Taldi bæjarstjóri því eðlilegt,
að bæjarstjórn tæki afstöðu til
þessa máls.
Við umræður í bæjarstjórn á
eftir kom fram, hjá ræðumönn-
um allra flokka, sú skoðun (þó
ekki hjá Jóni G. Sólens), að
ekki væri ásíæða til að óska
eftir aðild að svo stöddu, þar
sem athuganir bentu til þess að
hagstæðara raforkuverð fengizt
með viðbótarvirkjun við Laxá,
en samtengingu við Suðurlands
virkjanir. Ennfremur töldu þeir
rangt ef Akureyrarbær afsal-
aði sér því ákvörðunax-valdi,
sem hann nú hefur, til að
markastefnu í virkjunarmálum
(Framhald á blaðsíðu 2).
ÖSKRA EÐA OSKRA EKKI
Upp er risin deila um það, hvort
bjarndýr öskri eða öskri ekki,
m. ö. o. hvort þau gefi frá sér
þau hljóð, sem nefnd hafa ver-
ið öskur, baul eða gól. Hið nýj-
asta í þessu efni er það, að
kvikindi þessi, sem nú eru svo
mjög umrædd vegna íssins, séu
þögul eins og gröfin nema
þvaðri svolítið um fengitímann.
AÐ „SKRIFA NIÐUR
BLAГ
Á miðstjórnarfundi Framsókn-
arflokksins um síðustu helgi
var Tíminn að sjálfsögðu á dag-
skrá og m. a. rætt um leiðir til
að breyta lionum. Ungur
menntamaður gerði um þeíta
mál tillögu utan fundar, og var
liún á þá leið, að dagblöð Iands-
ins, sem hefðu lagt áherzlu á
aukinn blaðsíðufjölda, mikið
lesefni og afkastamikla blaða-
menn, kynnu að eiga aðrar leið-
ir sem verðar væru íhugunar,
t. d. þá að fækka blaðsíðunum.
Blað ,sem þessa leið færi, færi
auðvitað á móti straumnum og
þyrfti góða menn til „að skrifa
það niður,“ þ. e. stytta og um-
skrifa greinar, henda einskis-
verðum greinum og greinaflokk
um og breyta meðferð fyrir-
sagnaleturs og umbrots og end-
urskoða mat á gildi frétta. Dá-
lítið nýstárleg er þessi hug-
mynd en kannski umhugsunar-
verð.
VÉLVÆÐING A HÚNA-
VÖKUNNI
Húnavakan á Blönduósi er haf-
in. Þær fréttir hafa þaðan bor-
izt, að Véladeild SÍS sýni þá
Minnlisf alþjóðadags faflaðra
Á SUNNUDAGINN minntist
Sjálfsbjörg á Akureyri alþjóða-
dags fatlaðra að Bjargi. For-
maður félagsins, Adólf Ingi-
marsson, bauð gesti, sem voru
á annað hundrað, velkomna og
kynnti síðan stefnu og störf
Sjálfsbjargarfélaganna og bar-
áttumál þeirra, í glöggri ræðu.
En helztu baráttumálin eru
tryggingamál, félagsmál og at-
vinnumál. Á þeim vettvangi
þarf mannfélagið að koma meir
til móts við fatlað fólk, en það
hingað til hefur gert.
Formaðurinn gerði einnig að
umtalsefni hið nauðsynlega
stórmál Sjálfsbjargarfélaganna
í landinu, að koma upp vist-
heimili fyrir fatlað fólk. En
undirbúningur að því máli er
kominn ofurlítið á veg.
Til máls tóku á þessari sam-
komu Magnús E. Guðjónsson
bæjarstjóri og Jóhann Þorkels-
son héraðslæknir. Piltar úr MA
skemmtu með söng, hljómsveit
Ingimars Eydal skemmti og
Bjarni Baldursson fór með gam
anmál. - Veitingar voru hinar
rausnarlegustu, svo sem vant
er á þeim bæ. □
Adolf Inginrarsson flytur ræðu sína að Bjargi á sunnudaginn. —
Honum til vinstri handar sitja bæjarstjórinn og héraðslæknir-
inn. (Ljósmynd: N. Hansson.)
daga vélar margar og góðar og
mun þetta nýjung. Vélar þær,
sem sýndar eru, eru m.a. þess-
ar: B-414 og B-275 dráttarvél-
ar með ámoksturstækjum og
sláttuvél. Geta menn kynnst
þar ýmsum endurbótum.
ÍSINN SEIG UNDAN
MANNMERGÐINNI
Veiðikeppnin á Akureyrarpolli
um helgina var hin skenuntileg
asta og auk þess alger nýjung.
Þangað kom fjöldi manns í
ágætu veðri. fsinn var traustur
eftir langvinn frost — og þó. —
Þar sem fólk hópaðist saman
tók ísinn að síga. Jafnskjótt og
sjór tók að bulla upp um vakir
þær, sem veiðimenn stóðu við,
tvístraðist fólkið. Slys urðu
engin, en hins vegar hljóta
menn að velta því fyrir sér
hver áhætta fylgir slíku ,sporti‘
ERU ÞAR TIEITAR UPP-
SPRETTUR?
Svo hafa menn sagt, sem um
þessar mundir fara um ísinn á
Pollinum og dorga, að nálægt
austurlandinu, þar sem þó er
alldjúpt, sé ísinn mjög veikur
á parti, eftir allar frosthörkum-
ar, eða rúmlega þumlungsþykk
ur í stað 10—12 þumlunga, sem
hann er víða annars staðar.
Vera má, að þetta stafi af jarð-
hita, sem rannsaka þyrfti.
STERKUR LEIKUR!
Morgunblaðið sagði nýlega í
sambandi við mikilvægi alum-
iníumverksmiðju, að hennar
vegna yrði „að draga úr öðrum
verkefnum, ef hin mikla fjölg-
un manna á vinnumarkaðinum
næstu ár nægir ekki.“ Af þess-
um orðum skilst glöggt hvert
stefna á vinnuaflinu á næst-
unni, og að ekki verði grátið á
íhaldsbænum þótt minna verði
um atvinnu og framkvæmdir t.
d. hér á Norðurlandi. □
HNISUR I VÖKUM
Þistilfirði 30. marz. ísinn er að
lóna sundur á firðinum og auðir
blettir að myndast við lönd.
Þar er æðafuglinn kominn og
ennfremur hnísur. í Krossavík
hafa 12 hnísur verið skotnar og
nokkrar á öðrum bæjum, því
hnísurnar eru hér og hvar í
vökum. Tugir af hnísum voru
í gær í Hjálmsvík en enginn
maður gerði þeim mein. Snjúr
er hér mjög lítill og munu þrir
vörubílar héðan á leið til Akur
eyrar til að sækja byggingar-
efni í nýju mjólkurstöðina á
Þórshöfn. Ó.H.
* Z
| Skrifstofur brenna 1
{ SKRIFSTOFUR Siglufjarð-1
I arkaupstaðar eyðilögðust í 1
I eldi s.I. föstudag, en mestu I
| af skjölum og skrifstofuvél- 1
1 um var bjargað. Var hér um I
| gamalt, tveggja hæða timb- 1
í urhús að ræða, byggt fyrir =
| 1920 og stóð við Tjarnar- I
§ götu, og er það talið ónýtt, |
| þótt það standi uppi. □ i
••'•MMMMIMMmMMMMMMIMMMMMMMMMIMMMMMMM*