Dagur - 07.04.1965, Qupperneq 8
8
ÞINGEYJARSÝSLUBRAUT
SMÁTT OG STÓRT
ÞEGAR vegaáætlunin fyrir
tímabilið 1965—1968 kom til 2.
umræðu á Alþingi eftir athug-
un í nefnd, fluttu þeir Karl
Kristjánsson, Gísli Guðmunds-
son, Ingvar Gíslason og Björn
Jónsson breytingartillögu þess
efnis, að teknar væru inn á
vegaáætlunina á árunum 1965
til 1967 12 millj. kr. eða 4 millj.
kr. ár hvert til nýbyggingar á
Þingeyjarsýslubraut, auk hinna
almennu fjárveitinga úr vega-
sjóði, og gerðu þeir ráð fyrir,
að ríkissjóður tæki þessar 12
milljónir að láni.
Þingeyjarsýslubraut heitir
samkvæmt vegalögunum þjóð-
brautin frá Breiðumýri um
Reykjadal, Aðaldal, Tjörnes,
Kelduhverfi, Öxarfjörð, Núpa-
ESJA SNERIVIÐ
Vopnafirði 6. apríl. Á sunnudags
kvöldið fylltist fjörðurinn af ís
alveg inn á sand. Er það mest
lagnaðarís, en allþykkir jakar
með. í dag sér aðeins í auðan
sjó á stöku stað. — Esjan var á
leið hingað á mánudag með vör-
ur en varð að snúa við á Seyð-
isfirði og skilja vörurnar eftir
þar. Við erum þó þolanlega
birgir af olíu, fóðurvörum og al-
gengum matvörum.'— Jeppabif
reiðum er fært héðan Stranda-
leið til Akureyrar. K. V.
Nýtt sveinafélag járn-
iðnaðarmanna
NÝSTOFNAÐ er á Húsavík fé-
lag járniðnaðarmanna: Sveina-
félag járniðnaðarmanna á Húsa
vik og S-Þingeyjarsýslu. Stjórn
þess skipa: Árni B. Þorvaldsson
form., Sigurður Þórarinsson og
Björn Líndal.
Allir starfandi sveinar í þess
ari iðngrein, sem ekki eru at-
vinnurekendur, eru í hinu nýja
félagi.
Snorri Jónsson form., Málm-
og skipasmíðasambandsins að-
stoðaði við félagsstofnunina.
sveit og Sléttu austur um Hálsa,
Þistilfjörð og innanvert Langa-
nes til Þórshafnar.
Hér er um langa leið að ræða
og fjölfarna en mjög mikið af
henni er aðeins ruddur vegur,
sem nauðsynlegt er að byggja
upp til þess að hún geti talizt
fær á viðunandi hátt. Er hér
víða um langa vegakafla að
ræða en samtals um 130 km. eða
því sem næst, en uppbyggingar
kostnaðurinn í heild mun vera
lauslega áætlaður nokkuð yfir
40 millj. kr. á núverandi verð-
lagi. Þar á meðal eru „milli-
byggðavegirnir" um Tjörnes og
Hálsa.
Fjárveitingar, sem veittar eru
úr ríkissjóði á næstu fjórum ár
um nema ekki nema svo sem
fimmta eða sjöíta hluta af hinni
áætluðu kostnaðarupphæð við
uppbyggingu Þingeyjarsýslu-
brautar. Vantar þá enn, eftir að
4. ára fjárveiting er til komin
nokkuð á fjórða tug milljóna til
uppbyggingarinnar, og ætti hún
samkvæmt þessu að taka fast
að aldarfjórðungi. Ur þessu
vilja þeir flutningsmer.n láta
bæta nokkuð með fyrmefndu
12 millj. kr. lántöku á þrem ár-
um.
Þegar litið er á það, sem á
að gerast á þessu sviði annars
staðar á landinu, verður ekki
sagt, að hér sé freklega í sakirn
ar farið. í vegaáætluninni er
nú gert ráð fyrir, að teknar
verði á áætlunartímabilinu 274
millj. kr. að láni til hraðbraut-
anná í nágrefini höfuðborgarinn
ar og áætlað lán til nokkurra
annarra vega eru þó nokkur.
Vestfirðingar eiga að fá vegalán
úr flóttamannasjóði Vestur-
Evrcpu, 34 millj. kr. með 6%
vöxtum, sem ríkið greiðir. Það
hefur verið almennt viðurkennt,
að ástand vega væri einna verst
á Austurlandi og Vestfjörðum.
En athuganir sýna, að hlutfalls
leg uppbyggingarþörf á Þingeyj
arsýslubraut í heild muni vera
mjög álíka og í umræddum
Vandshlutum.
Þegar fjárlögin voru til um-
ræðu fyrr í vetur, fluttu þeir
Karl Kristjánsson, Gísli Guð-
mundsson og Ingvar Gíslason til
lögu um lántöku vegna Tjörnes
vegar og Hálsavegar. Þegar
vegamálaráðherra lýsti yfir því,
að ríkisstjórnin myndi i sam-
bandi við vegaáætlunina taka
til athugunar lántöku til vega á
breiðum grundvelli, tóku þre-
menningarnir tillögu sína aftur
og vildu bíða áíekta.
En vonir um úrlausn af hálfu
stjórnarinnar, að því er Þing-
eyjarsýslubraut snertir, rættust
ekki. Nú er stjórnarliðið á Al-
þingi búið að fella áðurnefnda
tillögu um 12. millj. kr. lántök-
una. Niðurstaðan er þá þessi:
274 millj. kr. lán í hraðbrautir
syðra — ekkert í Þingeyjarsýslu
braut. Er þetta aðferðin til þess
að stuðla að jafnvægi milli Iands
hlutanna?
LEIKFÉLAG Öngulsstaða-
hrepps frumsýndi sjónleikinn
Dúnungann eftir Selmu Lager-
löf í félagsheimilinu Freyvangi
á sunnudagskvöldið. Leikstjóri
er Guðmundur Gunnarsson frá
Akureyri. Jón heitinn Norð-
fjörð íslenzkaði leikinn. Sjón-
leikur þessi er hverju góðu leik
félagi verðugt viðfangsefni. —
Skraut, ást og rómantík eru
helztu ytri einkenni hans og
skáldlegt innsæi höfundarins,
þótt það sé hvergi stórbrotið,
ber verkið uppi.
Frumsýningin var ágætlega
sótt, enda mikill leiklistaráhugi
í sveitinni og aðstaða slík, að
unnt er að taka góða sjónleiki
til meðferðar og skila þeim með
prýði, þegar fólkið vill.
Guðmundur Gunnarsson,
kunnur leikari og leikstjóri,
annaðist leikstjórnina og gerði
leiksviðste;>rin,gar. Allt var
KONURNAR KOMU
Síðasti Bændaklúbbsfundurinn
á Hótel KEA tók skrúðgarða-
og matjurtaræktina til meðferð-
ar. Framsöguerindi höfðu frú
Ragna Sigurðardóttir og OIi
Valur Hansson. Konur voru
hvattar til að koma, þær gerðu
það og fjölmenntu á fundinum.
Var það ánægjaleg tilbreyting
og án efa hefur fundurinn, sem
var hinn fróðlegasti, og umræð-
ur fjörugar, verið konunum
nokkurs virði. Mætti Bænda-
klúbburinn oftar efna til funda,
þar sem sérstaklega væru rædd
hugðarefni kvenna.
HIN SAMÞYKKJANDI ÞÖGN
Fyrir skömmu fullyrti skóla-
piltur í greinarkorni hér í blað-
inu, að það heyrði undantekn-
ingum til, ef fólki innan 21 árs
aldurs væri synjað um vín á
vínveitingastöðum bæjarins. Ef
ósatt væri, hefðu vínveitinga-
húsin þvegið hendur sínar, en
þau hafa ekki látið frá sér
heyra. Vegna ásakana skóla-
piltsins hefðu lögregluyfirvöld
bæjarins átt að ganga úr skugga
um sannleiksgildi svo alvarlegr-
ar umsagnar. Ekki er blaðinu
kunnugt um rannsókn í því sam
bandi.
FUGLAR BERA í HREIÐ-
UR SÍN
Auðnutittlingar og þrestir eru
þegar byrjaðir hreiðurgerð í
trjágörðum á Akureyri. Grá-
spör hefur haldið til á Ytri
brekkunni. Hann er á stærð við
auðnutittling, en svo „harður í
hom að taka,“ að hann hrekur
þresti frá mat sínum.
BIFREIÐAEIGENDUR
ÓÁNÆGÐIR
Tryggingarfélögin lýstu því ný-
lega yfir, að skyldutryggingar-
gjöld bifreiða myndu hækka
mjög vegna aukinna tjóna. Eru
í þessu sambandi nefndar háar
það samvizkusamlega unnið,
sem hans var von. En án efa
má stytta sýninguna um hálfa
klukkustund, og myndi sú
hraðaaukning verða vinsæl.
Leikstjórinn fer með aðal-
hlutverkið, Theodor herragarðs
eiganda, og skilar því með
ágætum svo leikur hans ber af.
Engu að síður eru sum smærri
hlutverkin eftirtektarverð og
bregður þar ýmsu skemmtilegu
fyrir, þrátt fyrir ofurlítið hik.
Frú Ingveldur Hallmundsdótt
ir leikur móður herragarðseig-
andans af formfestu, Hallmund-
ur Kristinsson trúlofaðan upp-
skafning og ungfrú Guðríður
Eiríksdóttir hina fögru og
prúðu unnustu hans. Ungfrú
Sigurhelga Þórðardóttir leikur
ráðskonu á herragarðinum,
skilningsríka konu og skapríka
og Vignir Gunnarsson ráðs-
(Framhald á blaðsíðu 2).
tölur. Félag íslenzkra bifreiða-
eigenda hefur brugðizt þannig
við, að útlit er fyrir að stofnað
verði fyrir þess áhrif eða beint
á vegum þess nýtt tryggingafé-
lag til að bjóða félagsmönnum
sínum og öðrum ódýrari trygg-
ingar.
ÞEIR KALLA SJÓÐINN
„VIÐREISNARSJÓГ
Ríkisstjórn íslands hefur tekizt
að fá Ián úr Flóttamannasjóði
Evrópuráðs. En þeirri peninga-
stofnun er ætlað að aðstoða
hart Ieikna flóttamenn í heimin
um. Fénu á að verja til að bæta
vegaástand á Vestfjörðum. —
Nafn þessa ágæta sjóðs, sem að
þessu sinni hjálpar íslending-
um, þykir ekki við hæfi í stjórn
arblöðunum og er liann þar
kallaður „viðreisnarsjóður.“
FATAGERÐIN YLUR
Sauðárkróki 6. apríl.
Fatagerðin Ylur, sem starfað
hefir í Reykjavík, hefir opnað
saumastofu í gamla spítalanum,
en verður síðan flutt í Skógar
götu 1. Nú starfa sex saumakon
ur á stofunni, en verða síðar
um 30, þegar fullur skriður er
kominn á saumaskapinn. Sauma
stofa þessi framleiðir kvenkáp-
ur, herrabuxur o.fl. Klæðskeri
er Friðrik Ingþórsson, en fram-
kvæmdastjóri Helgi Scheving.
ÍSINN EINS OG
FJALLLENDI
Raufarliöfn 6. apríl. — Á laugar
daginn svifaði ísinn nokkuð frá,
en á sunnudag kom hann alveg
inn að hafnarmynni og hefir ver
ið að hrannast upp síðan. Vír
er strengdur fyrir framan höfn-
ina og hefir hann varnað því að
ísinn kæmizt þar inn. í dag er
ágætt skyggni hér, og svo langt
sem sér er samfelld isbreiða, er
líkist snævi þökktu fjalllendi.
Ekkert hefir orðið vart bjarn-
dýra.
Akvegir eru vel færir, svo
enginn skortur er í lífsnauðsynj
um, en samgönguleysið á sjó hef
ir eðlilega truflað framkvæmd-
ir hér t.d. í sambandi við endur
bætur á síldarbræðslunni og
undirbúning við söltunarplönin.
II.H.
HÖFRUNGADRÁP
Á SKJÁLFANDA
Húsavík 6. apríl. í fyrradag rak
nokkurn ís inn Skjálfanda vest-
anverðan og varð Flatey um-
flotin ís. í dag sjást héðan all-
stórir jakar á flóanum.
Mikil höfrungaveiði hefir ver
ið á Skjálfandaflóa að undan-
förnu og hafa Húsavíkurbátar
fengið allt upp í 15 höfrunga á
dag. Fiskiðjusamlag Húsavíkur
og Kaupfélag Þingeyinga hafa
keypt höfrungakjötið til þessa.
Þorskafli er tregur, bæði á línu
og í net, en einstaka sinnum
hefur veiðst sæmilega á hand-
færi. Þ. J.
LEIKFÉLAG ÖNGULSSTAÐAHREPPS:
DÚNUNGINN