Dagur - 26.05.1965, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Hraktir út fyrir túiigarð
Á AKUREYRI eru hundruð
manna, sem stunda einhvern
tómstundabóskap. Þeir eru á
stöðugum hrakningi, mega helzt
hvergi vera með fjárhús sín eða
hesthús. Þessir hrakningsmenn
verða að flytja sig á fárra ára
fresti.
Bærinn vex og þá verða hús-
dýraeigendur að taka sig upp
og færa sig utar. Nú má eflaust
halda því fram og færa að því
sterk rök, að búskapur henti
betur í sveit en bæ og eigi þar
einvörðungu að vera, og þeir
menn líka sem eiga vilja hús-
dýr til gagns og gamans. Raun
ar staðfesta mörg kofaræksni
hrakninsmanna sem höfð eru
fyrir hesthús eða kindahús hér
í bæ, þá skoðun, að slíkt væri
betur við jörðu jafnað. Myndi
sú ráðstöfun allmikil bæjar-
snyrting og tiltölulega lítil at-
vinnuskerðing.
En þetta mál hefur fleiri hiið
ar. Það er fjölda þéttbýlismanna
mikil sálubót að eiga sér kindur
í kofa, gefa þeim vel hirða þær
vel, gefa sjálfum sér góðan
tíma til alls þessa eftir venju-
legan vinnudag. Vera má að ein
hversstaðar beri út af en hitt
dylst engum, að víðast er hirð-
ingin til fyrirmyndar.
Um hesthúskofana í bænum
er svipaða sögu að segja. Hundr
uð vel hirtra gæðinga og gæð-
ingsefna standa við stall á vetr
um .Þar una hestamenn löng-
um stundum og stunda svo út-
reiðar og tamningar. Slíkt er
holl skemmtun og góð, raunar
hreint uppeldisatriði, ef rétt er
á haldið. Með nokkrum undan-
BRÆÐSLAN TILBÚIN
Vopnafirði 25. maí. Héðan kom
umst við ekki á sjó vegna íss né
á landi vegna aurbleytu. En okk
ur líður samt þolanlega. Verst
þegar skipin sigla hjá hvert af
öðru með vörumar okkar. Ár-
vakur kom reyndar hér að
bryggju í morgun og gekk sæmi
lega vel gegnum ísinn.
Síldai'verksmiðjan mun filbú
in að taka á móti síld, þegar for
sjóninni þóknast að færa okkur
hana, og að losa okkur við ísinn.
Sauðburður gengur sæmilega
þrátt fyrir gróðurleysið og fóð
urskortur er ekki hér. K. V.
t'ekningum mikill gleðigjafi.
Nautgripirnir eru aðeins á bú
um hinna eiginlegu bænda og
ekki ágreiningsefni í sambandi
við búfjárhald í bænum.
En hvernig á nú að ráða fram
úr því, að gera sem flestum til
hæfis hér á Akureyri varðandi
kofabúskapinn ?
Það væri illt verk að banna
mönr.um að eiga kindur og hesta
raunar svo illa þokkað, að shkt
kemur vart til greina. Er þá um
tvennt að ræða. Hið fyrra er að
leyfa búfjárhús inni í bænum
ef sérstökum skilyrðum væri
fullnægt. Af því þarf hvorki að
stafa óþrifnaður eða neinn ljót
leiki. Ef ekki, þarf að skipu-
leggja ný svæði og gefa búfjár-
UNNIÐ er nú kappsamlega við
stækkun síldarverksmiðjunnar
á Seyðisfirði. Blaðið leitaði upp
lýsinga um það mál í gær hjá
verksmiðjustjóranum. — Hann
sagði, að margmennir vinnu-
flokkar störfuðu að hinni mlklu
stækkun verksmiðjunnar, sem
eftir stækkunina á að bræða
7500 mál á sólarhring. Ennfrem-
ur verður þróarrýmið stækkað
að miklum mun og á staðinn er
komið efni í mikla mjölskemmu
eigendum kost á að byggja þar
yfir hús og hey og girða — eftir
fyrirfram gerðum teikningum —
Gætu það orðið hin snyrtileg-
ustu hverfi, og til enn meiri á-
nægju en hin ófullkomnu hús,
sem víða eru notuð nú og hljóta
að hverfa. En í þessu efni má
auðvitað ekki tjalda til einnar
nætur þ. e. búfjárhverfin þurfa
að hafa frið um nokkra fram-
tíð, gagnstætt því, sem nú er.
Að undanförnu hefur mátt sjá
kassahrúgur og dót á auðum
svæðum, er síðan hafa verið að
ummyndast í kinda- eða hest-
hús. Ekki veit ég hvort leyfi eru
til bygginga. Óhklegt er það, og
Ijótt er það. En þetta sýnir
(Framhald á blaðsíðu 5).
og verða einnig lýsisgeymar
byggðir. Aht er gert, sem hægt
er til að flýta verkinu. Aðspurð-
ur kvaðst hann ekki geta sagt
um, hvenær síldarverksmiðjan
gæti tekið á móti síldinni. Hinn
17. júní í fyrra tók síldarverk-
smiðjan á Seyðisfirði á móti
fyrstu síldinni.
Jón Kjartansson er á leið til
Eskifjarðar með fyrsta síldar-
farm sinn, en Þorsteinn mun
landa afla sínum í Neskaupstað.
FULL TALA FÉKKST EKKí
Þegar undrskriftafrestur var út
runninn uni kröfu til þjóðarat-
kvæðagreiðslu í handritamálinu
vantaði þrjá þingmenn í fuila
tölu, eða 60. Er þjóðaratkvæða
greiðsla um afhendingu handrit
anna frá Danmörgu til íslands
þar með úr sögunni, og hafa
danskir andstæðingar afhending
arinnar opinberlega viðurkennt
ósigur sinn í málinu.
GÓÐAR GJAFIR
Eimskipafélagið gaf Hjarta-
vernd 200 þús kr. og Samvinnu
tryggingar 100 þús til handrita
stofnunarinnar. Eru þetta góð
ar gjafir og þarfar. Báðar þess
ar gjafir samþykktar á nýaf-
stöðnum aðalfundum félaganna.
SKÝR STEFNA í
FLUGMALUM
Forráðamenn Flugfélags ís-
lands hafa sett fram glögga á-
ætlun fyrir heildarflugstarfsem
ina inanlands. Hún er í fáum
orðum sú, að keppa að fullkomn
um flugvöllum, stórum og vönd
uðum flugvélum, sem hér nefn
ast svo, og koma upp kerfi áætl
unarferða bifreiða í sambandi
við flugferðimar. í skjóli þess-
arar stefnu hafa risið upp flug-
félög með minni flugvélar til
áætlunarflugs til hinna ýmsu
svokallaðri smærri staða.
FLOGIÐ TIL 10 STAÐA
Flugfélag íslands hefur í sum
ar 4—5 flugvélar í innanlands-
flugi milli 10 staða. Farþegasæti
Fí eru nú samtals 400. Nýja
„FokkervéIin“, Blikfaxi, hefur
verið í Iátlausu innanlandsflugi
síðan hún kom til Iandsins og
líkar hún vel. Með henni stytt-
ist flugtíminn verulega og er
það mjög vinsælt.
UNDIRSKRIFTASÖFNUN
1 GLERÁRHVERFI
Blaðið hefur frétt, að íbúar Gler
árhverfis safni nú undirskrift
um að áskorun til fræðsluráðs
bæjarins um úrbætur í skóla-
málum.
Glerárskólinn tekur 80—100
böm og næsta skólaár má bú-
ast við að um þriðjungur skóla
skyldra bama í hverfinu verði
að sækja skóla á öðrum stöðum.
Þessu vilja íbúarnir ekki una
og krefjast úrbóta.
TORGFEGURÐ
MOGGANS
í helgidagsútgáfu Morgunblaðs
ins er kvæðið „Fegurð“ og liefst
það svona:
„Hjá mannaskítsrústum
við Heilagsandatorg
stendur drifhvítur múr“
Sjöundu húsmæðravik-
unni í Bifröst lokið
NÝLEGA er lokið hinni 7. hús-
mæðraviku Sambandsins og
kaupfélaganna í Bifröst í Borg-
arfirði. Að þessu sinni dvöldust
þar 63 konur, þeirra á meðal a.
m. k. ein frá Akureyri. En alls
hafa um 350 konur sótt þessar
húsmæðravikur undanfarin ár.
Dagskrána undírbýr Fræðslu
deild SÍS undir stjórn Páls H.
Jónssonar, en heimilisstjórn á
Bifröst annast frú Guðlaug Ein-
arsdóttir. Að þessu sinni voru
flutt 10 fræðs’uerindi á hús-
mæðravikunni, um alls konar
efnj og á kvöldin voru skemmti
atriði. Ennfremur var sýni-
kennsla í matreiðslu og fræðsla
í andlitssnyrtingu. □
FRÁ LÖGREGLUNNI
UM HELGINA bar það helzt til
tíðinda, að maður einn var að
príla utan á húsinu Varðborg,
og var fjarlægður, maður slas-
aðist í ryskingum úti á götu og
var fluttur í sjúkrahús, ekið var
á kyrrstæðan bíl, skellinaðra
og reiðhjól rákust á í umferð-
inni og fékk piltur sá er á reið-
hjólinu var, vonda byltu og var
fluttur í sjúkrahús, en þó lítt
meiddur. -q
NORSKIR
SÖNGGESTIR
TIL Akureyrar koma góðir gest
ir frá Noregi þann 29. maí næst
komandi. Er það blandaður kór
frá Songlaget í Bondeungdoms-
laget í Osló, 60 kórfélagar og
fylgdarlið 30 manns, eða 90
frændur og söngsystkini frá
Noregi.
Hópurinn kemur með flugvél
til Akureyrar frá Reykjavík kl.
11 á laugardagsmorgun og fer
héðan aftur á sunnudag kl. 5
síðdegis beint til Osló.
Móttökur hér annast Stefán
Ág. Kristjánsson og formenn
karlakóranna tveggja „Geysis“
og Karlakórs Akureyrar, þeir
Kári Johansen og Jónas Jóns-
son.
Kórinn syngur í Akureyrar-
kirkju laugardagskvöld kl. 8,30
og verða aðgöngumiðar seldir í
Bókabúð HULD og við inngang
inn. Verður aðeins um þennan
eina konsert að ræða hér.
Söngstjóri er Egil Nordsjö, að
stoðarsöngstj. og organleikari
Kristoffer Kleive og einsöngvar
ar Randi Helseth og Marit Is-
Margir vinnuflokkar á Seyðisíirði
við sfækkun síldarverksmiðju
ene.