Dagur


Dagur - 02.06.1965, Qupperneq 8

Dagur - 02.06.1965, Qupperneq 8
8 i ) Norski kórinn gekk undir fána inn á hátíðasvæðið og er fiðluleikari í fararbroddi. (Ljósmynd E. D.) Fjölmenni á útiháfíS sjómannadagsins og þangað komu Norðmenn og skemmtu HITABYLGJA gekk yfir Norð- urland um helgina. Ar flæddu yfir bakka sína, aurskriður féllu, trén sprungu út og grasið gréri. í 20 stiga hita söfnuðust Akur eyringar saman við Sundlaug- ina, þar sem sjómannadagsráð undir stjórn Jónasar Þorsteins- sonar efndi til útihátíðahalda. Varð þar mikill mannfjöldi, er •muíi hafa skipt þúsundum. Helstu dagskrárliðir voru þessir: Lúðrasveit Akureyrar lék, séra Birgir Snæbjörnsson söng messu, Friðþjófur Gunn- laugsson skipstj. flutti ræðu og mælti fyrir minni sjómannskon ( H unnar, Jón Gunnlaugsson skemmti, heiðraðir voru tveir aldraðir sjómenn, þeir Arin- björn Árnason og Jóhann Jó- hannsson, afhent voru verðlaun fyrir bezt verkaðan fisk og 'keppt vor í stakkasundi og björgunarsundi. Þá bæítist við óvænt skemmtiatriði er bland- aði kórinn frá Songlaget í Bonds ungdomslaget í Osló gekk und ir fána og fiðluleik í fögrum þjóðbúningum inn á hátíðasvæð ið og söng undir stjórn Egils Norðsjö og sýndi einnig norska þjóðlansa, kvöldið áður hafði kappróður fram farið milli sex sveita. — Útihátíðin við sund- laugina var mjög ánægjuleg. Að venju fór fram keppni í stakkasundi. Keppendur voru 5 að þessu sinni og varð Björn Arason sigurvegari. Einnig fór fram björgunarsund og varð Símon Þorsteinsson sigurvegari í þeirri grein. — Atlastöngina hlaut Björn Arason. Sex róðrasveitir kepptu, og fór sú keppni fram á laugardag- inn. Sjómenn af Árskógsströnd gengu með sigur af hólmj eins og s.l. ár. Verðlaun fyrir bezt verkaða fiskin hlaut togarinn Harðbak- ur. □ Séra Birgir söng messu MOLÐARIIAUGARNIR VIÐ SUNDLAUGINA Eins og venja er safnaðist fjöldi fólks að sundlaug bæjarins á sjómannadaginn og naut skemmtiatriða í heitu veðri. En live lengi þurfa bæjarbúar að bíða eftir því, að moldarflög inn an sundlaugargirðingarinnar verði þakin eða í þau gáð gras- fræi? Hvers eigum við að gjalda að þurfa að vaða þurra og Iausa mold og standa í rykmekki á þessum skemmtistað? Náttúran hcfur Iagt til fagurt umhverfi við sundlaugina og það þarf lítið til að gera það sóma- samlegan samkomustað, miðað við sunnudagaklætt fólk. LÚÐRASVEITIN Lúðrasveitin lék á útihátíð sjó mannadagsms við sundlaugina, mönniun til mikillar ánægju, eins óg svo oft áður. Vel hefði farið á því, vegna komu liins norska kórs á þessa hátíð, að þjóðsöngur gestanna liefði ver ið leikinn. Hvers vegna var það ekki gert, spurðu menn. Og svo þráttuðu menn um, hvort lúðra sveitarmennirnir ættu að taka ofan liúfur sínar svo sem siður er, t.d. þegar viss sálmalög eru sungin eða þá þjóðsöngurinn. VEIÐIFÁLKAR Fálkar eru alfriðaðir á fslandi. Fyrruin voru þeir verðmæt út- flutningsvara og konugsgersemi taldir. V7oru tamdir til veiða. Hvað verður gerf hér 17. júní? NEFND sú, sem bærinn og íþróttabandalag Akureyrar skip uðu til að hafa á hendi undir- búning cg stjórn hátíðahald- anna hinn 17. júní, situr nú með sveittan skalla og hugleið- ir hin ýmsu framkvæmdaatriði undirbúnings. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem blaðið hefur fengið, verða hátíðahöldin með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hinsvegar hefur nefndin fullan hug á nýbrevtni og í samtali við formann hennar, Hermann Sigtryggsson, vill hún koma Friðþjófur skipstjóri mælti fyr- ir minni sjómannskonunnar. Stöðvarstjórar fengu kjarabót EINS og fyrr var frá sagt, stofnuðu stöðvarstjórar land- símans, sem II. fl. stöðvar ann- ast, félag til að knýja fram úr- bætur í kjaramálum. En þeir höfðu dregizt aftur úr lestinni í lagfæringum á kaupi. Eftir félagsstofnunina voru dyr ráðamanna knúðar mjög ákveðið og leiddi það til veru- legra lagfæringa og verkar hækkun kaupsins og orlof aftur fyrir sig til ársins 1963. Má eflaust þakka þessar rétt- látu kjarabætur félagsstofnun- inni. □ þeirri ósk á framfæri, að bæj- arbúar sjálfir geri tillögur um tilhögun hátíðahaldanna og ábendingar, sem nefndin svo tæki til athugunar. Ymsum finnst sem 17. júní- hátíðahöldin hafi ekki á undan- förnum árum borið nægilegan svip hins almenna hátíðisdags. Veldur því m. a. áhugaleysi hinna almennu borgara, sem þó hafa stundum nöldrað um til- breytingarleysi frá ári til árs, án þess þó að gera tillögur um úrbætur. En nú er hið bezta tækifæri fyrir áhugamenn að nota hug- kvæmni til að auka og bæta há- tíðina á afmælisdegi Jóns Sig- urðsonar forseta. □ Sagt er að allt að 200 fálkar Iiafi verið fluttir út á ári, þeg- ar flest var. Á síðustu árum er verð á Iif andi fálkum nijög liátt í Bret- landi og í Þýzkalandi. Fálkaþjóf ar erlendir liafa verið handsam aðir hér á landi og er þar skeninist að minnast aðgerða sýslumannsins á Húsavík í því efni, en liinsvegar er því haldið fram, að öðrum útlendingum hafi gengið betur og komið lif- andi fálkum út fyrir Iandstein- ana. ÞRIÐJA ROLLS ROYCE VÉLIN Loftleiðir eiga nú þrjár Rolls Royce flugvélar og kom sú síð asta til Iandsins fyrir nokkrum dögum og ber hún nafnið Guð ríður Þorbjarnardóttir. Vélin tekur 160 farþega eins og þær fyrri af þessari gerð en verður lengd um 15 fet og tekur þá 189 farþega. EKKI VAR ÞAÐ HAFÍSINN Eins og fréttir lierma, er sjór mjög kaldur norðan við land, svo munar allt að þreniur gráð um. Um það kenna meim hafísn um, a.m.k. yfirborðskulda sjáv ar. Hinsvegar er Pólstraumur- inn eða Austur-íslandsstraumur inn djúpt austur af Iandinu einn ig mun kaldari en áður, sem nemur 3—4 stigum og veldur ekki ís þeim kulda. Síldin gekk þó í hinn kalda sjó og sumir spá því að hún muni að þessu sinni heimsækja fornar veiði- slóðir við Norðurland. STRÍÐUR VERÐUR STRAUjMURINN Á þessu sumri verður mikil uni ferð á vegum Iandsins og mikil slysahætta — meiri umferð og meiri hættur en nokkru sinni fyrr. Ekki verður spornað við hinum mikla straumi ferðafólks á vegunum, en það er unnt að gera stórátak í öryggismálum umferðarinnar til að draga úr slysahæítu. Fræðslu og strangt eftirlit þarf að nota jöfnum hönd um. Ðónar þurfa hirtingu, tryllinga þarf að aga, fáfróða að fræða og slíta verður vinabönd ökumanna og Bakkusar án nokk urrar miskunnar. Útvarp og blöð þurfa að leggja sín lóð á vogarskálina í þessu efni. Þrymur í söngför um Vesffirði Formaður Sjómannadagsráðs, Jónas Þarsíeinsson heiðrar þá Jó- hann Jóhannsson og Arinbjörn Árnason og íærir þeim hamingju óskir og þakkir. (Ljósm.: E. D.) KARLAKÓRINN ÞRYMUR á Húsavík leggur af stað i söng- för til Vestfjarða n.k. föstudag og syngur á fimm stöðum: í Bol ungarvík kl. 14 á laugardaginn, ísafirði sama dag kl. 21, hvíta- sunnudag syngur hann á Þing- eyri kl. 21 og á Bíldudal kl. 16 annan hvítasunnudag og sama dag á Patreksfirði kl. 21. Kór- félagar eru um 40 og söngstjóri er Sigurður Sigurjónsson en undirleikari Ingibjörg Stein- grímsdóttir. Einsöngvarar eru Eysteinn Sigurjónsson og Ingv- ar Þórarinsson. Auk kórsins syngur kvartett á öllum kon- sertunum og eru það kórfélag- arnir Stefán Sörensson og Stefán Þórarinsson, auk áður- nefndra einsöngvara. Undirleik þeirra annast Björg Friðriks- dóttir. í þessari söngför verða eiginkonur flestra söngmann- anna. Stjórn kórsins skipa: Jóhann Hermannsson, formaður, Hall- dór Ingólfsson og Ingimundur Jónsson. Þ. J. SMÁTT OG STÖRT

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.