Dagur - 16.06.1965, Blaðsíða 2
2
Heildarvelta SÍS
Ákureyringar unnu Keflvíkinga á Njarðvíkurvelli
Sl. sunnudag kl. 4 fór fram á
Njarðvíkurvelli leikur milli Ak
ureyringa og Keflvíkinga og sigr
uðu Akureyringar verðskuldað
með 1:0. Sýndu Akureyringar
nú mjög ákveðinn Ieik og gáfu
Keflvíkingum aldrei tækifæri
til að byggja upp samleik, mörg
tækifæri voru misnotuð hjá báð-
um liðum. — Leikur þessi var
spennandi frá upphafi til enda
og fjörlega leikinn. — Dómari
var Grétar Norðfjörð.
• Leikurinn.
Akureyringar unnu hlutkest
ið og kusu að leika undan dá-
lítilli golu. Strax í byrjun sýndu
Akureyringar ákveðinn leik,
mun ákveðnari en þeir hafa sýnt
áður í sumar og gáfu' Keflvík-
ingum aldrei tækifæri til að
byggja upp leik sinn. Á fyrstu
mínútunum komust Akureyr-.
eyringar í færi en skotið var
framhjá.
Um það bil um miðjan fyrri
hálfleik kom svo eina markið,
sem skorað var í leiknum. Að-
dragandi þess var sá að Högni
miðvörður Keflvíkinga ætlaði
að senda Kjartani, markverði,
knöttinn, en Valsteinn var þar
nálægur og eygði möguleikann á
að ná knettinum, markmaður
hikaði andartak að hlaupa út og
kostaði það mark. Það var lag-
lega af sér vikið hjá Valsteini,
að ná kenttinum og nýta þetta
tækifæri til fullnustu.
Akureyringar sýndu góðan
leik, það sem eftir var af fyrri
hálfleik, þótt ekki tækist að
skora og var það áberandi að
þeir voru fljótari á knöttinn og
ákveðnari í leik sínum. — Ekki
I STAÐAN í 1. deild, eftir 4 I
| umferðir, er þannig:
í Valur 4 3 1 0 10:5 7 i
| Akureyri 4 2 1 1 7:7 5 |
\ K.R. 4 12 1 7:7 4 1
I Keflavík 4 1 1 2 3:5 3 j
| Akranes 4 1 1 2 8:9 3 Í
| Fram 4 1 0 3 6:8 2 1
....
Kalskemmdir á Héraði
(Framhald af b'.aðsíðu 8).
þess hvað hann inniheldur lítið
kalk. Það hefur orðið reyndin,
að tún, sem ræktuð hafa verið
upp með húsdýraáburði, hafa
staðið af sér þessa raun að
mestu leyti, en hin, sem hafa
verið ræktuð með tilbúnum á-
burði, hafa farið illa. Reynt hef
ur verið að bera í skárstu blett
ina í von um að tún grói síðar í
sumar en ekki er víst að það
verði neitt nema vonbrigðin ein.
Búast má við mjög hörðurn
kröfum um rannsókn á þessu
kalmáli.
Þetta áfall telja bændur ívið
meira áfall heldur en nokkurn
tíma gamaveikifaraldurinn á
sínum tíma og raunar mesta á-
hefði verið ósangjarnt þó Akur
eyringar hefðu haft tvö mörk
yfir í hlé eftir gangi fyrri hálf-
leiks. :
Síðari hálfleikur var ekki eins
•vel leikinn og sá fyrri, Akureyr
ingar fóru í vöm, en Keflvíking
ar sóttu fast, þó ekki tækist
þéim' að skapa sér nema örfá
hættuleg'tóekifæri í þeim hálf-
leik. Akureyringar áttu nokkur
haéttuleg tækífæri í síðari hálf
leik, t.d. var Valsteinn kominn
einn inrrfyrir undir lok leiksins,
en hitti illa knöttinn og fór hann
framhjá markinu. — Þá tók
Högni aukaspyrnu á Akureyr-
inga rétt fyrir leikslok, en
Samúel varði mjög glæsilega.
Um.leikinn í heild má segja
það, að hann var vel leikinn og
sþennandi fyrir áhorfendur,
eins og allir leikir eru, þar sem
allt veltur á einu marki.
Um 50 Akureyringar voru
þarna staddir og horfðu á leik-
inn og hvöttu þeir óspart sína
menn. Margir Akureyringar,
sem búsettir eru fyrir sunnan,
voru þarna mættir og er ánægju
legt að þeir skuli fylgjast með
leikjum Akureyringa syðra og
hvetja þá.
• Liðin.
Um leik Keflvíkinga er það
að segja, að hann var ekki eins
beittur og búast hefði mátt við.
Þeir virtust ekki hafa roð við
þessari leikaðferð Akureyringa,
sem mætti kalla maður á mann
Þeir náðu aldrei að byggja upp
góðan samleik og virtist einhver
deyfð vera yfir liðinu. Þá not-
uðu þeir kantana lítið og skap-
aðist því ekki veruleg hætta í
upphlaupum þeirra.
Um leik Akureyringa er það
að segja, að óhætt er að full-
yrða, að þeir hafa ekki mætt
ákveðnari til leiks í sumar, börð
ust vel allan leikinn og er von-
andi, að þeir leiki þá leiki, sem
þeir eiga eftir í sumar, af sömu
snerpu og þennan leik.
Jón Stefánsson lék ekki með
vegna meiðsla og kom Jón Frið-
riksson í hans stað og átti hann
að mínu viti mjög góðan leik.
Þá lék Þormóður Einarsson á
kantinum í stað Páls Jónsson-
ar. Ágætt er að gefa varamönn-
um tækifæri á að leika. Það
hlýtur að nást betri árangur, ef
margir eru um hverja stöðu í
liðinu.
Á sunnudaginn kemur mæt-
ast Akureyringar og KR hér á
íþróttavellinum og verður þar
eflaust um skemmtilega viður-
eign að ræða, ekki sízt ef Akur
eyringar mæta eins ákveðnir til
leiks þá, og er þeir mættu Kefl-
víkingum s.l. sunnudag.
Á mánudagskvöldið sigruðu
Akurnesingar KR á Laugardals
vellinum, með 3:2, og voru það
all-óvænt úrslit, en það sýnir
vel, að ómögulegt er að spá fyr-
irfram um úrslit leikja í fyrstu
deild. Sv. O.
Tvö þýðingarmikil stig fyrir Akureyri
ÞEIR voru glaðir í bragði knatt
spyrnumennirnir okkar, er þeir
stigu út úr Fokkemum, hér á
Akureyrarflugvelli á sunnudags
kvöldið, eftir að hafa unnið
Keflavík með 1 marki gegn
engu. Fyrstur kemur inn í flug-
stöðina Ævar Jónsson.
Hvemir gekk?
Ágætlegá, við komum með
bæði stigin og það var takmark
ið.
Hreínn’Óskarsson, fararstjóri
„kemur röltandi í kvellinum" á
eftir .hinum.
Jæja Hreinn, ég óska ykkur
til hamingju með sigurinn.
Hvað um leikinn?
Okkar strákar léku undan
hægri golu fyrri hálfleik, vpru
strax ákveðnir og fljótari á bolt
ann er Keflvíkingar, léku sem
sagt ágætan leik.
En markið, hvemig kom það?
Varnarleikmaður ætlaði að
gefa markverði knöttinn, en Val
steinn hljóp inn í sendingu,
mjög laglega og renndi knettin
um framhjá markverðinum. —
Þetta var um miðjan fyrri hálf
leik.
Var þetta eina tækifærið í
leiknum?
Nei, við áttum fleiri, ég var
óánægður að vinna ekki þennan
hálfleik með minnst tveggja
marka mun.
Að mínum dómi léku okkar
strákar mun betri knattspyrnu
þennan hálfleik og náðu vel
saman.
En seinni hálfleikur?
Þá léku okkar strákar varnar-
leik, drógu innherjana aftur.
Var þá ekki ykkar mark oft
í hættu?
Ekki svo mjög, Rúnar komst
í eitt hættulegt færi en missti af
knettinum og í annað sinn
skaut Högni mjög föstu skoti
úr aukaspyrnu á okkar mark,
en Samúel varði það mjög vel.
Og þið hafið náttúrulega
aldrei farið inn á vallarhelm-
ing Keflvíkinga síðari hálfleik?
Ekki yar það nú svo, við feng-
um nokkur marktækifæri þrátt
fyrir vamarleikinn, en mikill
hluti leiksins fór auðvitað fram
• á okkar vallarhelmingi, sem
eðlilegt er þegar svona leikað-
ferð er beitt.
Jæja, ég óska ykkur nú aftur
til hamingju með sigurinn, það
var mjög mikilvægt fyrir ykk-
ur að vinna þennan leik, þar
sem Keflvíkingar hafa verið
taldir einna sterkasía liðið í I.
deild.
Þakka þér fyrir, við erum líka
mjög ánægðir með þetta. S. B.
(Framhald af blaðsíðu 1).
áfanga kjötstöðvarinnar á
Kirkjusandi og íbúðarhús fyrir
forstöðumann verksmiðjunnar
Varar í Borgarnesi. Eina nýja
byggingaframkvæmdin, sem
byrjað var á árinu, er viðbygg-
ing við Skinnaverksmiðjuna Ið-
unni. Alls nam fjálfesting SÍS í
byggingaframkvæmdum á árinu
kr. 16.323.000,00. Á móti þessari
fjárfestingu fengust sérstök lán
til langs tíma að upphæð 10
millj. kr. Fjárfesting í m.s. Mæli
felli varð á árinu 27.815.000,00
kr. á móti þeirri upphæð kom
lán að upphæð nærri 23 millj.
kr. Kom Mælifell til landsins
16. apríl 1964.
Formaður kvað starfsmanna-
vandræði vera mjög mikil og
yrðu félögin að leita til Sam-
bandsins um aðstoð við endur-
skoðun og bókhald.
Síðan tók til máls Erlendur
Einarsson, forstjóri SÍS, og
flutti skýrslu um reksturinn á
árinu 1964.
Kvað hann tvennt hafa orðið
þess valdandi að reksturinn á
árinu hefði ekki skilað æskileg-
um tekjuafgangi. í fyrsta lagi
veruleg hækkun á reksturs-
kostnaði og í öðru lagi skortur
á rekstrarfé, sem olli lækkun á
umsetningu Innflutningsdeildar
og Véladeildar. Hin mikla
hækkun reksturskostnaðar und-
anfarin ár væri ekki í neinu hlut
falli við auknar tekjur. Heildar
launagreiðslur á s.l. ári námu
155 millj. kr. og er hækkunin
frá árinu áður kr. 26,6 millj.
eða um 20,7%. Hafa launa-
greiðslur SÍS til fastráðinna
starfsmanna hækkað á s.l. þrem
árum um 59,3 millj. en á s.l. ári
hækkuðu launagreiðslur til fast
ráðinna starfsmanna um 21,8%
en starfsmönnum fækkaði um
15 miðað við áramót.
Umsetning helztu deilda Sam
bandsins var sem hér segir á
árinu 1964:
Búvörudeild 547,1 millj., aukn
ing frá árinu áður 87,4 millj.
Sjávarafurðadeild 500,7 millj.,
aukning frá árinu áður 63 millj.
Innflutningsdeild 316,8 millj.,
lækkun frá árinu áður 16,4
millj. Véladeild 195,9 millj.,
lækkun frá árinu áður 36,4
millj. Skipadeild 97,6 millj.,
aukning frá árinu áður 3,2 millj.
Iðnaðardeild 217,8 millj., aukn-
ing frá árinu áður 31,4 millj. kr.
Að viðbættum ýmsum smærri
starfsgreinum verður heildar-
umsetningin á árinu 1964 kr.
■ 2.021.800.000,00 og ne'mur aúkn-
. ingin frá árinu áður-191,6 millj.
kr. eða 10,5%.
Heildarsala kaupfélaganna á
aðkeyptum vörum varð á árinu
1964 kr. 1.708 millj. og hækkaði
um 12,8% en heildarumsetning
kaupfélaganna, þar með talin
sala innlendra afurða, varð
3.212 millj., jókst á árinu um
22,3%.
Tekjuafgangur á rekstrar-
reikningi Sambandsins varð kr.
1.635.000,00 á móti 2.522.000,00
kr. arið aður. Afskriftir námu
hins vegar nærri 23 millj. og
hækkuðu um tæpar 5 millj. kr.
frá árinu 1963. Þó varð um 6
millj. kr. hagnaður á sölu
Hvassafells.
Nokkrar broytingar urðu á
trúnaðarstöðum hjá Samband-
inu á árinu 1964. Valgarð J. Ól-
afsson lét af störfum sem fram-
kvæmdastjóri í Sjávarafurða-
deild af eigin ósk og var þá
Bjarni V. Magnússon ráðinn
framkvæmdastjóri allrar deild-
arinnar. Þá var um s.l. áramót
stofnuð ný deild, tæknideild, er
■ skal hafa með höndum hagræð-
ingar og skipulagsmál innan
Sambandsins og kaupfélaganna
og mun Teiknistofa SfS einnig
heyra undir hana. Framkvæmda
stjóri deildarinnar er Helgi
Bergs. Þá tók Harry Frederik-
sen, sem undanfarin þrjú ár
hefur veitt Hamborgarskrif-
stofu SÍS forstöðu, aftur við
framkvæmdastjórn Iðnaðar-
deildar en við Hamborgarskrif-
stofunni tók Sigurður Markúss-
son, sem áður stjórnaði Lundún
arskrifstofu. Við stjórn Lundún
arskrifstofu tók Guðjón B. Ól-
afsson, áður fulltrúi í Sjávaraf-
urðadeild. Þá var Oddur Sigur-
bergsson kaupfélagsstjóri í Vík
í Mýrdal, ráðinn forstöðumaður
Hagdeildar kaupfélaga.
Birgðastöð SÍS tók til starfa
í febrúar s.l. og var það seinna
en fyrirhugað hafði verið, olli
því hið mikla brunatjón í vöru-
geymslunum í nóvember. Við
stofnun Birgðastöðvarinnar var
stigið skref, sem telja má með
al hinna mikilvægustu í sögu
íslenzku samvinnuhreyfingar-
innar. Starfsemi stöðvarinnar
hefur þegar gefið góða raun og
sala hennar hraðvaxið með
hverjum mánuðinum.
Véladeild og Samvinnutrygg-
ingar fluttu í nýtt verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði við Ármúla
3.
Hagur kaupfélaganna gagn-
vart Sambandinu versnaði held
ur á árinu. Miklar framkvæmd-
ir einstaklinga og opinberra að-
ila báru ekki þann árangur sem
æskilegur hefði verið en for-
stjóri lét svo um mælt, að unn-
ið yrði að því að bæta hag félag-
anna sem mest mætti.
í niðurlagi skýrslu sinnar
sagði forstjóri, að miðað við
rekstur hefði árið 1964 verið
óhagstætt fyrir Sambandið.
Ástæðurnar væru: Hækkun
rekstrarkostnaðar og skortur á
fjármagni í verzlunina. Til
þessa hefði verðbólgan haft bet-
ur í baráttu, sem háð hefði ver-
ið, til þess að minnka reksturs-
kostnað og . ^auka.. . reksti-arfé..
Stærsta verkefni ; sa.mvinnu-
hreyfingarinnar væri að bæta
fjarhagsaðstöðuna og þess vegna
væri aukin verzlun þýðingar-
mesta atriðið í rekstrinum.
Annað mikilvægt verkefni
væri að bæta rekstur frystihúsa
og framleiðslustöðva kaupfélag-
anna.
Að lokinni skýrslu forstjóra
fluttu framkvæmdastjórar Sam
bandsins skýrslur um starfsemi
hinna ýmsu deilda þess. □
NONNAHÚS opið kl. 2—4 dag-
lega.