Dagur - 10.07.1965, Blaðsíða 2
■ ■ If
Minningaleikur Jakobs Jakobss.
Akureyringar sigruðu Akurnesinga 4:2
Á LAUGARDAGINN var fór
fram hér á íþróttavellinum
hinn árlegi minningarleikur um
Jakob Jakobsson. Þá áttust við.
Akurnesingar og Akureyring-
ar í annað sinn á þessu vori. —
Haraldur Sigurðsson banka-
gjaldkeri kynnti leikmenn lið-
anna, bauð þá og gesti velkomna
og sagðist vona, að leikurinn
yrði leikinn af drengskap og
prúðmennsku í anda Jakobs
Jakobssonar.
Fyrri hálfleikur.
Akureyringar kusu að leika
undan dálítilli norðan golu. Þeir
byrjuðu af fjöri og áður en mín-
úta var af leik, fékk Skúli send
ingu frá Kára, rétt utan víta-
teigs og þrumaði hörkuskoti í
netið. Á 20. mín. kom annað
mark, sóknin hafði verið látlaus
og Skúli vippaði inn til Sævars
er lék framvörð, og afgreiddi
viðstöðulaust fram hjá Helga
Dan. í mark. Á næstu mínútum
átti Skúli gott skot rétt utan
við stöng og Steingrímur í þver
slá.
Er um 35 mín. voru af leik
yfirgáfu þeir völlinn Jón Leós-
son og Helgi Dan., en inn komu
Ingi markvörður og svo kemp-
an Þórður Þórðarson. En allt
kom fyrir ekki. Akureyringar
sóttu fast. Valsteinn sendi vel
fyrir, yfir til hægri, þar sem
hinn sívinnandi Skúli var, rétt
utan vítateigs. Hann gaf sér
góðan tíma, ekkert fum eða pat.
Skotið ríðui- af eins og úr fall-
byssu og knötturinn hafnaði í
netinu 3:0.
Segja má að Akureyringar
hafi verið alls ráðandi á vellin-
um fram að þessu. En nú náðu
Akurnesingar nokkrum upp-
hlaupum. Björn Lárusson átti
skot í stöng og Þórður skallaði
utanhjá. En Akureyringar voru
ekki af baki dottnir. Á 43. mín.
var misheppnuð markspyrna
hjá Akurnesingum. Knötturinn
lenti til Skúla, er sendi strax til
Valsteins, sem var ekki lengi
að paufast með hann og sendi
til Skúía- -aftur, er þá var kom-
inn inn að vítateig. Þá var ekki
.að .sökum .að spyrja. Þarna
-átoraði" Skúfi ‘sitt þriðja mark,
öll mjög glæsileg, með föstu
skoti, rétt eins og hjá Landhelg
isgæzlunni, utan vítateigs. 4:0
fyrir Akureyri.
Síðari hálfleikur.
Akurnesingar byrjuðu vel og
náðu nokkrum upphlaupum er
báru ekki árangur. En framlína
Akureyringa var á fullu gasi
ennþá. Á næstu 10 mín. átti
Kári tvö góð skot, en markvörð
ur Akumesinga sló naumlega
yfir í annað skiftið, en í hitt
var það markásinn, sem bjarg-
aði.
Akurnesingar sóttu nú í sig
veðrið og léku mun betur en í
fyrri hálfleiknum og á 24. mín.
bar það loks árangur, er Björn
Lárusson potaði knettinum í
mark Akureyringa. Og sex mín.
síðar missti Jón Friðriksson
knöttinn inn fyrir sig, og Þórð-
ur Þórðar brunaði á eftir og
vippaði honum lipurlega í mark.
Akurnesingar hertu nú sókn-
ina að mun og björguðu Akur-
eyringar tvívegis á línu. Leik-
urinn endaði 4:2 fyrir heima-
menn.
Liðin.
Akureyringar léku mjög vel
fyrri hálfleikinn, sérstaklega
framlínan, og var Skúli pottur-
inn og pannan í því öllu, enda
skoraði hann þrjú mörk í leikn
um, hvert öðru glæsilegra, og
illa hefði „hrossakaupanefndin“
(landsliðsnefndin) getað gengið
fram hjá Skúla í landsliðið, ef
hún hefði seð til hans í þessum
leik.
Annars var Akureyrarliðið
töluvert breytt frá venju, en
það virtist ekki gera mikið til,
því nóg er af varamönnum í
fullri þjálfun, og vandséð hver
a að vera með hverju sinni og
hver ekki. Einar lék í markinu
Færeyjameislarar í handknatlieik
leika tvo leiki á
HÉR á landi eru um þessar
mundir keppnislið í handknatt
leik frá Handknattleiksfélaginu
Kyndli í Þórshöfn í Færeyjum.
Eru þeir í boði Hafnfirðinga,
Keflvíkinga og Akureyringa, en
lið frá þessum stöðum hafa heim
sótt Kyndil til Færeyja og feng
ið hinar höfðinglegustu móttök
ur.
Síðastliðið þriðjudagskvöld
léku Kyndilsmenn sinn fyrsta
leik hér á landi við Hauka í
Hafnarfirði og var leikurinn
snarpur og skemmtilegur. Og
lauk með sigri Hauka- 21:19_
Ákoreyri
Gestirnir þóttu sýna mjög
góðan handknattleik og höfðu
yfirhöndina framan af leiknum,
enda hafa þeir verið Færeyja-
meistarar í þéssari íþróttagrein
rnörg undanfarin ár.
Hingað til Akureyrar koma
Kyndilsmenn næstkomandi
sunnudag og keppa við lið ÍBA
mánudags- og þriðjudagskvöld
kl. 20,30 á íþróttavellinum og
verða það eflaust spennandi leik
ir og skemmtilegir að horfa á.
Allir strákarnir í þessu fær-
eyska liði eru 'góðtemplarar og
stunda ekki aðrar íþróttagrein
ar en þessa, —
og var vel liðtækur þar sem
fyrr. Þá vantaði báða bakverð-
ina, Ævar og Núma, og fram-
verðina alla: Guðna, Jón Stef-
ánsson og Magnús. Steingrímur
lék á hægri kanti, hefði hann
allt að einu getað verið við raf-
lagnir úti í bæ, því sárasjaldan
var spilað á hann, og linur var
hann, fannst mér, að bera sig
eftir björginni. Kári lék mið-
herja og komst betur frá þess-
um leik en fyrr i sumar.
Akurnesinga vantaði Ríkharð
og Eyleif og bar fyrri hálfleik-
ur þess merki að eitthvað var
að, enda náðu þeir aldrei að
kyggja upp samleik. Svo fór
Jón Leósson út af vellinum
skömmu fyrir leikhlé.
Bjuggust þeir því við, að nú
væru þeir búnir að vera. En svo
fór ekki. Þeir sóttu mjög í sig
veðrið í seinni hálfleiknum, en
að sama skapi fór margt úr
reipunum hjá heimamönnum.
Þórður Þórðarson er sýnilega
ekki í þjálfun, en hugsunin er
sú sama og fyrr. Margt gerði
hann laglega, sem verða mætti
öðrum til eftirbreytni.
Björn Lárusson er vaxandi
leikmaður og var sívinnandi í
þessum leik.
Leikskrá var gefin út, þar
sem nöfn og stöður leikmanna
voru kynntar, en galli er það
á búningum þessara beggja liða,
að þeir skuli ekki tölusettir á
baki. Slíkum smámunum ættu
forráðamenn þeirra að kippa í
lag, áður en síðari hluti íslands
mótsins hefst.
Dómari var Frímann Gunn-
laugsson og dæmdi ágætlega.
Hafi Akurnesingar þökk fyr-
ir komuna svo og leikmenn all-
ir fyrir prúðan og skemmtileg-
an leik. i S. B.
Norðurlandsmót skáta
(Framhald af blaðsíðu 1).
Á sunnudag var morgunverð
ur snæddui' kl. 8 síðan var fána
hylling og morgunbæn. Þvínæst
var tjaldsvæðið skoðað og dæmt
um frágang og eftir það hófst
víðavangsleikur með þátttöku
flestra mótsgesta. Kl. 2 voru
heimsóknir foreldra og annara
gesta. Um fjögurleytið var farið
að taka saman og ganga frá tjald
svæðinu og mótinu slitið kl. 5.
Stjórn mótsins skipuðu: Gísli
Kristinn Lórenzson, mótsstjóri:
Brynjar Skaptason, aðst. 'mót-
stjóri; Tjaldbúðastjórar þau El-
ín Anna Kröyer og Tómas Búi
Böðvarsson. Aðrir í stjórn voru
Nils Gíslason, Hallgrímur Ind-
riðason, Þorsteinn Pétursson,
Kristbjörg Ólafsdóttir, Gunnar
Helgason og Valdimar Gunnars
son; allt skátar frá Akureyri.
Skipulagning og stjórn móts-
ins tókst með ágætum og staður
inn hafði yfir sér blæ hraustrar
og heilbrigðrar, íslenzkrar æsku
í náinni snertingu við náttúr-
una enda voru veðurguðirnir
mótinu eindæma hliðhollir.
V.V.
Múlðvegur nær saman
(Framhald af blaðsiðu 8).
eru ekki nema 18 km. eða rúm
lega það, Má af því ráða hver
samgöngubót verður að Múla-
vegi, í stað þeirrar löngu leiðar
sem nú þarf að fara.
í sambandi við önnur vega-
gerðarstörf í sumar nefndi verk
stjórinn Skeifárgil á Tjörnesi,
sem er mjög aðkallandi fram-
kvæmd á Tjörnesvegi, ennfrem
ur óteljandi viðgerðir brúa og
ræsa og hinna lélegu vega, sem
víða skemmdust af vatnavöxt-
um í vor og alltaf eru að bila
undan hinni miklu umferð og
þungavöruflutningum.
Þá stendur til, sagði verkstjór
inn, að gera um þriggja km veg
í Aðaldal, á þeim stað, sem Laxá
hefur oft flætt yfir á vetrum.
Vegir eru harðir og holóttir
og víða þurrahvörf og mikið
ryk. Heflun ber lítinn árangur
á meðan svona þurrt er í veðri
Byrjað er að bleyta vegi nálægt
Akureyri með sjó og er til þess
hafður 20 tonna tankur á drátt-
arvagni. En sólin er heit og veg
irnir kalla á meira vatn. Sér-
fræðileg athugun fer um þessar
mundir fram á seltu sjávarins,
sem til þessa er notuð og áhrif
hennar á vegina.
Vegaverkstjórinn sagði, að
þótt vegirnir væru slæmir og
viðgerðirnar kák, hefðu ekki í
sumar orðið slys í umferðinni af
þeim sökum. Yfirleitt væri vega
kerfið gamallt og ónýtt, því mið
ur. Það er alltaf verið að skamm
- PEDRO-MYNDIR
(Framhald af blaðsíðu 1).
Kopiuvélin er rafeindaknúin
og að mestu leyti sjálfvirk. Út
úr henni koma myndirnar kilppt
ar í vissar stærðir og falla þá
niður í lokaða kasettu. Hægt er
að vinna við vélina í venjulegu
Ijósi. Hún getur afkastað 800 til
1000 myndum á klukkustund.
Vélin er af gerðinni AGFA
Variograd W 76/90. — Vélin
númerar myndirnar, þannig að
allar myndir af sömu filmu hafa
sama númer, svo ekki ruglist
þær saman, þegar teknar eru
margar í einu.
Framköllunarstofan PEDRO
hefur einnig stóran og fullkom-
inn stækkara, sem meðal ann-
ars stillir „fókusinn" sjálfur. —
Nýlega barst pöntun um mynd-
ir, sem eiga að vera 50x60 cm
og taldi eigandinn engin vand-
kvæði á að afgreiða þær.
Þrjár verzlanir hér í bæ taka
við filmum til framköllunar hjá
Pedro-myndum. Það eru: Hljóð
færaverzlunin, Gullsmiðavinnu
stofan og Jón Bjarnason úrsmið
ur. Einnig er tekið á móti film-
um á stofunni sjálfri í Hafnar-
stræti 85. V.V.
- Hæli fyrir vangefna
(Framhald af blaðsíðu 8).
ir einstaklingar. Sárstaklega
þakka ég 10 þús. kr. gjöf sem
verkamaður einn hér í bæ af-
henti mér um sl. áramót og ekki
vill láta nafns síns getið, segir
Jóhannes Óli Sæmundsson að
lokum og þakkar Dagur þessar
upplýsingar-. --- E. D.
ast út af veginum, sagði Guð-
mundur að lokum, og með réttu
Það þarf engan sérfræðing til
að gefa slæma lýsingu en þó
rétta af þessum málum, en það
er mikill vandi að láta vegaféð
endast til viðhalds og endur-
bóta og raunar hef ég ráðlagt
sumum ferðamönnum, sem verst
eru farnir af því að hristast á
fjalla- og heiðavegum hinna ís-
lenzku byggða, að leita sem
fyrst til taugalæknis. Það er svo
ótalmargt, sem getur hrists úr
sambandi á vondum vegum.
STÚLKU
vantar mig nú þegar til
innanhúss-starfa. Má vera
unglingsstúlka eða kona,
sem hefði mcð sér barn.
Snæbjörn Sigurðsson,
Grund í Eyjafirði.
BDXNABELTI
NÝKOMIN
Verð frá kr. 353.00.
Verzl. ÁSBYRGI
Nýkomnir:
HANZKAR
úr vaskaskinni,
brúnir og svartir.
VERZLUNIN HEBA
Sími 12772
SNYRTIVESKI
nýjar gerðir.
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
PRJÓNAKJÓLAR
brúnir, grænir, svartir
PEYSUR st. erm.
VERZLUNIN DRÍFA
Sírni 11521
SHANTUNG
SNYRTIVÖRUR:
PÚÐUR
MAKE
HREINSIKREM
NÆRINGARKREM
BÓLUKREM
ANDLITSVATN
AUGNSKUGGAR
VARALITIR
NAGLALAKlv
HÁRLAKK
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521