Dagur - 25.08.1965, Qupperneq 2
2
Ákureyringar unnu íslandsmeisfarana frá Keflavík
í annað sinn í sumar
Norðurlandsmótið í frjálsum íþróttum fór fram
á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu um sl. hclgi
Reynir Hjarfarson, Þór, varð
Norðurlandsmeisfari í 4 greinutn
Akureyringar sigursælir - Fengu 8 meistara
SÍÐASTI I. deildarleikurinn, er
fram fer hér á Akureyri á þessu
sumri, var háður hér sl. sunnu-
dag. Áttust þar við íslands-
meistaramir frá Keflavík og
Í.B.A.
Fyrri hálfleikur.
Sunnan strekkingur var á, er
leikurinn hófst. Akureyringar
áttu markval og kusu að leika
undan strekkingnum. Ekki er
hægt að segja að þessi fyrri
hálfleikur hafi verið viðburða-
ríkur. Mark Akureyringa komst
aldrei í liættu, en leikurinn fór
að mestu fram á vallarhelmingi
Keflvíkinga. Þeir vörðust vel og
komust Akureyringar ekki í
mörg færi til að skjóta. Einna
hættulegasta tækifærið var, er
Skúli tók á móti langri mark-
spyrnu frá Einari, knötturinn
hoppaði yfir varnarmann og
Skúli vippaði svo yfir úthlaup-
andi markmann, knötturinn
stefndi í mannlaust markið, en
Sigurvin kom æðandi og náði
að sparka afturfyrir sig og bjarg
aði. Mjög laglega gert. Fyrri
hálfleik lauk án þess mark væri
skorað.
Síðari hálfleikur.
Flestir áhorfendur bjuggust
við að Keflvíkingar næðu nú
undirtökum í leiknum með
strekkinginn i bakið. En Akur-
eyrarliðið hafði ekki sagt sitt
síðasta. Keflvíkingar byrja með
stórsókn, er snúið var við í gagn
sókn. Kári lék fram og út til
vinstri, gaf fyrir, rétt fyrir
framan markið, Skúli átti þar í
höggi við tvo varnarleikmenn,
sem sagt rétt við marklínu og
gat rutt knettinum í mark. 1:0
fyrir Akureyri og 5 mín. af leik.
„Tekst þeim að halda því“,
stundi gamall knattspyrnumað-
ur, er stóð fyrir aftan mig.
Keflvíkingar efldust við mark
ið og sóttu mjög fast. En vörn
heimamanna var með á nótun-
um. Það var hver maður pass-
aður og sjaldan gefið færi á að
skjóta. Þeir léku ekki aftarlega,
því þeir fundu strax að það
mátti treysta línuverðinum,
Baldri Þórðarsyni, til að sjá um
rangstöðurnar, enda var oft
flautað á rangstöðu í leiknum.
Það er ekki svo að skilja að
mark Akureyringa hafi aldrei
komist 'í hættu, sei sei nei. Kefl-
víkingar áttu nokkur góð mark-
skot, sem Einar varði oft af
snilld. Akureyringar áttu þó til-
tö.ulega mikið meira í þessum
síðari hálfleik en Keflvíkingar í
þeim fyrri og í sóknarlotu á 17.
mín. gaf Valsteinn vel fyrir og
hvað haldið þið að hafi þá skeð?
Páll Jónsson rekur hausinn í
knöttinn, sem hann gerir þó
sjaldan, og gerir mark 2:0.
Mér sýndist samherjar hans
rjúka á hann og kyssa hann
fyrir. Það var sótt, barist og
varist á víxl, mínúturnar liðu
og á síðustu mínútu fékk Akur-
eyri aukaspyrnu á vítateigslínu
Keflvíkinga. Magnús fram-
Kúnar Júlíusson frá Keflavík er
góður knattspyrnumaður og vel
liárprúður. (Ljósmynd: E. D.)
kvæmdi spyrnuna fast og vel,
en knötturinn lenti nokkrum
tommum utan við stöng.
Dómari var Grétar Norðfjörð
og dæmdi ágætlega.
Liðin: Segja má að liðin hafi
verið nokkuð jöfn þó Akureyr-
arliðið öllu beittara og þvi sann
gjarnt að það sigraði. Jón Stef.,
Einar og Magnús voru beztir.
Hjá Keflvíkingum var Rúnar
bítill einna hættulegastur.
Að loknum leik: Jón Stef.
fyrirliði ÍBA: „Ég er mjög
KNATTSPYRNUMÓT Norður-
lands er hafið fyrir nokkru. —
Var sú breyting tekin upp í
framkvæmd þess, að þátttak-
endum er skift í tvær deildir,
og leiknar tvær umferðir í
hvorri þeirra. í fyrstu deild
leika: Siglfirðingar, Þór og KA,
en í annarri deild: Völsungar,
Ungmennasamband Skagafjarð-
ar, Héraðssamband Suður-Þing-
eyinga og Ungmennasamband
Eyjafjarðar. — Það lið, sem
vinnur annai'rar deildarkeppn-
ina, flyzt upp í fyrstu deild og
leikur þar næsta ár, en það lið,
sem neðst verður í fyrstu deild,
fellur í aðra deild.
Keppni í fyrstu deild er ekki
hafin, en fjórir leikir hafa ver-
ið leiknir í annarri deild og
hefur Völsungur unnið UMSE
4:1 og HSÞ 4:1, en tapað fyrir
UMSS 1:3. UMSE vann HSÞ
7:3.
ánægður með úrslitin, það var
engin „nervös" fyrir leikinn og
samvinnan í liðinu ágæt. Kefl-
víkingar eru harðir, en mér
fannst þetta ekkert sérlega er-
viður leikur."
Hafsteinn fararstj. Keflvík-
inga: „Tel að okkar menn hafi
leikið frekar linlega, enda vant-
aði okkur tvo menn í aðalliðið
vegna meiðsla úr fyrri leikj-
um.“
Óli B. Jónsson þjálfari Kefl-
víkinga: „O, það skiftast á skin
og skúrir, ég er ekki ánægður
með frammistöðu okkar manna,
þeir geta gert betur.“
Grétar dómari: Hvernig
fannst þér leikurinn? Það voru
töluverð tilþrif í honum, mér
fannst vera meiri baráttuvilji í
Akureyrarliðinu, sérstaklega í
síðari hálfleik, og því sann-
gjarnt að sigurinn varð þeirra.
Nokkuð um leikmennina sjálfa?
Mér fannst Jón Stefánsson vera
áberandi bezti maður vallarins,
svo og Einar í markinu. Rúnar
fannst mér vera beztur hjá Kefl
víkingum.
Finnst þér þessi framlína vera
sú sterkasta sem þú hefir séð
hjá Akureyringum? Ég veit það
ekki, en það má vera góð fram-
lína, sem hefir efni á því að
láta Steingrím Björnsson sitja á
varamannabekk.
Liðin voru þannig skipuð:
'Keflavík: Kjartan, Sigurvin,
Magnús, Guðni, Högni, Sig.
Alb., Jón Ól., Einar M., Jón Jóh.,
Karl og Rúnar.
Akureyri: Einar, Jón Friðr.,
Ævar, Guðni, Jón Stef., Magnús,
Páll, Skúli, Kári, Sævar og Val-
steinn. S. B.
Leikirnir í annarri deild fara
fram sem hér segir:
Fimmtudag 26 ágúst leika
UMSE og UMSS á Laugalandi
kl. 19,30.
Laugardag 28. ágúst leika
Völsungur og UMSS á Húsa-
vík kl. 16,00.
Sunnudag 29. ágúst leika
UMSE og HSÞ á Laugalandi kl.
17,00.
Miðvikudag 1. september leika
HSÞ og Völsungur á Laugum
ld. 19,00.
Fimmtudag 2. september leika
UMSS og UMSE á Sauðárkróki
kl. 19,00.
Laugardag 4. september leika
Völsungur og UMSE á Húsa-
vík kl. 17,00.
Sunnudag 5. september leika
UMSS og HSÞ á Sauðárkróki
kl. 17,00.
Laugardag 11. september leika
HSÞ og UMSS á Laugum kl.
16,00. □
UM síðustu helgi fór fram á
Laugum í Suður-Þingeyjar-
sýslu Norðurlandsmót í frjáls-
um íþróttum. Héraðssamband
Suður-Þingeyinga sá um undir-
búning og framkvæmd mótsins,
en formaður þess er Óskar
Ágústsson íþróttakennari og
var hann einnig mótstjóri. HSÞ
sigraði mót þetta með yfirburð-
um.
Urslit fyrri dag mótsins urðu
þessi:
KARLAGREINAR: 100 m hlaup. sek.
Reynir Hjartarson Þór 10,9
Ragnar Guðmundss. UMSS 11,0 Höskuldur Þráinsson HSÞ 11,0
400 m Iilaup. sek.
Höskuldur Þráinsson HSÞ 55,9
Reynir Hjartarson Þór 58,2
Páll Dagbjartsson HSÞ 58,6
1500 m hlaup. mín.
Baldvin Þóroddson KA 4:30,9
Ármann Olgeirsson HSÞ 4:32,7
Marínó Eggertsson UNÞ 4:35,4
4x100 m boðhlaup. sek.
A-sveitUMSE 51,2
A-sveit-HSÞ 51,3
Langstökk. m
Gestur Þorsteinsson UMSS 6,82 Sigurður Friðriksson HSÞ 6,75 Ragnar Guðmundss. UMSS 6,71
Stangarstökk. m
Valgarður Sigurðsson KA 3,50 Sigurður Friðriksson HSÞ 3,5(f
Ófeigur Baldursson HSÞ 3,10
Spjótkast. m
Ingi Árnason KA 45,51
Gestur Þorsteinss. UMSS ! 43,15
Guðm. Hallgrímsson HSÞ 42,27
Kúluvarp. m
Guðm. Hallgrímsson HSÞ 13,61
Ingi Árnason KA 12,89
Þór Már Valtýsson HSÞ 12,78
KVENNAGREINAR: 100 m hlaup. sek.
Guðrún Benónýsdóttir HSÞ 13,1 Þorbjörg Aðalsteinsd. HSÞ 13,3
Ragna Pálsdóttir UMSE 13,5
Hástökk. m
Sigrún Sæmundsd. HSÞ 1,35
Soffía Sævarsdóttir KA 1,30
Hafdís Helgadóttir UMSE 1,30
Kringlukast. rrí
Sigrún Sæmundsd. HSÞ 29,16
Bergljót Jónsdóttir UMSE 26,36 Þorg. Guðmundsd. UMSE 24,56
Urslit seinni dags mótsins
urðu þessi:
KARLAGREINAR:
200 ni lilaup. sek.
Roynir Hjartarson Þór 23,8
Ragnar Guðmundss. UMSS 24,0
Höskuldur Þráinsson HSÞ 24,0
800 m hlaup. mín.
Baldvin Þóroddsson KA 2:07,3
Bergur Höskuldss. UMSE 2:10,1
Ólafur Ingimarss. UMSS 2:10,4
110 m grindahlaup. sek.
Reynir Hjartarson Þór 16,6
Sigurður Friðriksson HSÞ 18,4
Sig. V. Sigmundss. UMSE 18,7
Hástökk. m
Reynir Hjartarson Þór 1,75
Haukur Ingibergsson HSÞ 1,70
Páll Dagbjartsson HSÞ 1,65
3000 m hlaup. mín.
Marínó Eggertsson UNÞ 9:37,8
Baldvin Þóroddsson KA 9:37,8
Ármann Olgeirss. HSÞ 10:02,5
Kringlukast. m
Guðm. Hallgrímsson HSÞ 44,46
Ingi Árnason KA 42,01
Þór Már Valtýsson HSÞ 37,24
Þrístökk. m
Sigurður Friðriksson HSÞ 13,69
Gestur Þorsteinss. UMSS 13,61
Sig. V. Sigmundss. UMSE 12,91
1000 m hoðhlaup. mín.
A-sveit HSÞ 2:10,6
B-sveit UMSE 2:15,3
B-sveit HSÞ 2:15,7
KVENNAGREINAR:
Langstökk. m
Þorg. Guðmundsd. UMSE 4,83
/Þoi'björg- Aðalsteinsd. HSÞ 4,67
Sigrún Sæmundsd. HSÞ 4,57
Kúluvarp. m
Sóley Kristjánsd. UMSE 8,75
Gunnvör Björnsd. UMSE 8,49
Ragnh. Snorradóttir UMSE 7,85
4x100 m boðhlaup. sek.
A-sveit HSÞ 55J
A-sveit UMSE 55,7
B-sveit HSÞ 59,0
B-sveit UMSE 66,0
Stig félaga.
HSÞ hlaut 104 stig, UMSE 56,
KA 32, Þór 23, UMSS 21, UNÞ
7 og USAH 1 stig. □
FANNIR HVERFA
ÚR FJÖLLUM
í SUMAR hafa fannir horfið úr
fjöllum, þar sem þær hafa legið
sumarlangt um fjölda ára, jafn-
vel áratugi. í sambandi við það
rifjast upp vísa séra Friðriks
A. Friðrikssonar prests á Hálsi,
en hún er ort fyrir mörgum ár-
um og hljóðar svo:
Hopa gömul harðfenni
höfgum tárum gráta,
eins og þegar illmenni
iðrast fram úr máta.
Knattspymumóf Norðurlands
hafið með breyttu sniði