Dagur - 25.08.1965, Blaðsíða 7

Dagur - 25.08.1965, Blaðsíða 7
7 í Golfklúbbur Ákureyrar 30 ára GOLFKLÚBBUR AKUREYR- AR varð þrítugur þann 19. ágúst sl. og verður þess minnzt með veglegu hófi síðar í haust. Fyrir 30 árum tóku nokkrir menn hér í bæ saman höndum með Gunnar Schram, símstöðv- arstjóra, í broddi fylkingar og stofnuðu Golfklúbb Akureyrar. Heiður sé þeim. Á þeim tíma leit almenningur á golfið sem sport en ekki íþrótt og að það' væri eingöngu fyrir auðkýfinga og stórlaxa. Þetta er mikill misskilningur, og því betur er almenningsálitið mjög að breytast gagnvart þess- ari íþrótt, enda stunda hana menn úr öllum stéttum, ríkir og fátækir, allt frá 10 ára aldri að áttræðu. Hefur golfið það fram yfir aðrar íþróttir, að raunveru- ]ega geta allir stundað það. En því miður eru énn allt of fáir, sem kunna að meta þessa hollu og ánægjulegu íþrótt. Greinar- höfundur getur með góðri sam- vizku sagt þetta, því að hann heíur verið heilsuveill í mörg ár (kransæðastífla), en stundað golf. Það hefur oft verið erfitt, - Náðu ekki fiskinum (Framhald af blaðsíðu 8). lítið eitt með línu og fengist góður afli af smáýsu. Annars er það þorskur, sem fæst á hand- færin. Það eru um 3 ár síðan hefur verið svona góð fiskveiði hér um slóðir. Það hefur venju- lega verið þannig, að ef síldveiði hefur verið góð, hefur lítið veiðst af fiski og svo aftur öf- ugt. H. H. GÓÐ AUGLÝSING - GEFUR GÓÐAN ARÐ en mikill vafi er á að hann væri vinnufær, ef hann hefði ekki stundað golfið. Það er ekki nóg að læknarnir segi „gangið, gang- ið“, menn nenna ekki að ganga nógu mikið nema stefnt sé að einhverju ákveðnu marki. Óvíða hefur verið meiri áhugi fyrir golfi en hér á Akureyri hjá þeim mönnum, er það stunda. Þess má geta m. a., að á þessum 30 árum hefur G. A. 10 sinnum eignazt íslandsmeistara og 5 sinnum unnið bæjarkeppni á ís- landsmóti. Nú á næsta ári verður senni- lega byrjað á að byggja nýjan golfvöll, en bærinn þarf á næstu árum að fá það land, þar sem golfvöllurinn er nú og verð- ur hinum nýja velli að öllu óbreyttu ætlaður staður hér of- an við bæinn (á Jaðri og landi þar í kring). Hafa þeir Magnús Guðmundsson og Júlíus Sólnes unnið að skipulagningu hins nýja vallar og er Júlíus búinn að gera uppdrátt af 18 holu velli. Ekki verður þó nú á næstu árum hugsað um nema 9 holu völl, þar sem golfklúbbur- inn hefur svo fáa meðlimi eins og er, að hann rís ekki undir rekstri 18 holu vallar. Þetta stendur þó allt til bóta, þar sem félagatalan fer ört vaxandi. Þetta er stórræði, sem tiltölu- lega fámennur hópur er að ráð- ast í, en bæði er það, að stjórn- endur bæjarins eru þessu h]ynntir og svo vita þeir háu herrar, að þeim peningum, sem í þetta er eytt, er ekki á glæ kastað. - Góðir Akureyringar, eflið golfíþróttina, fjölmennið í Golf- klúbb Akureyrar. Með fyrirfram þökk fyrir góða aðstoð. Er jörðin að hitna? MIKLAR og kerfisbundnar at- huganir benda til, að yfirborð jarðarinnar sé smátt og smátt að hitna. í Alaska minnka jöklarn ir á hverju ári, og það sama er að gerast í Alpafjöllunum. Ef að i'ýrnunin heldur áfram með sama hraða, verða þau íslaus eftir u. þ. bil 100 ár. í Norður- Atlantshafi, er ísinn orðinn helmingi þynnri en hann var í byrjun nítjándu aldar. Hafnir á Svalbarða (Spitsbergen) eru helmingi lengur opnar en árið 1912 og í finnska Lapplandi hef ur skógarjaðarinn færzt 3 Ví til 5 km norður á bóginn. Hitaaukningin nær þó aðeins 1 til 1% gráðu á öld og er þar af leiðandi ekki hættuleg. Fróð- ir menn eru ekki á einu máli um orsakirnar. Sumir álíta, að þetta sé vegna aukningu koldí- oxýðs (kolsýru) í andrúmsloft- inu, og þess vegna heftist hita- geislun jarðarinnar út í geim- inn. Aðrir benda á aukna geisl- un frá sólinni. V. V. (Þýtt úr Teknik for alle). SJÓSTANGVEIÐIMÓT (Framhald af blaðsíðu 1). inu, úrslitum lýst, verðlaunum úthlutað og mótinu slitið. Þátttaka tilkynnist til Ferða- skrifstofunnar SÖGU í Reykja- vík eða á Akureyri fyrir mánu- dagskvöldið 30. ágúst. Geta má þess, að dágóður afli á handfæri hefur verið í utan- verðum Eyjafirði sl. vikur. (Fréttatilkynning frá Sjó- stangveiðifélagi Akureyrar). - Mikil vinna á Dalvík (Framhald af blaðsíðu 1). hefur orðið að nota að nokkru. Atvinna hefur verið sæmilega góð á Dalvík í sumar, enda hef- ur frystihúsið stöðugt starfað síðan dragnótaveiðin hófst. — Hinsvegar hafa þrjú síldarplön- in okkar sáralitla söltunarsíld fengið. Þá eru fjögur íbúðarhús í smíðum og mikið unnið við eldri hús. Auk þess vinna marg ir við nýbygginguna á Húsa- bakka. Vegagerðin í Múlanum mun ganga fremur hægt síðasta tímann, enda er unnið við erf- iðasta kafla leiðarinnar um þessar mundir, sagði Aðalsteinn Óskarsson að lokum. □ TAPAÐ PÁFAGAUKUR tapaðist í Víðimýri sl. mánudagskvöld. Finnandi vinsamlegast láti mig vita. Bogi Pétursson, sími 1-22-38. úr JERSEY. Margir litir, margar stærðir MARKAÐURINN Sími 1-12-61 MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl. 10,30 f. h. á sunnudaginn kemur. Sálmar nr. 530, 365, 139, 537 og 684. — P. S. MÖÐRUVALLAKLAUSTURS- PRESTAKALL. — Messur á höfuðdag: Á Möðruvöllum kl. 11 f. h. og á Bakka kl. 2 e. h. ÆSKULÝÐSMÓTIÐ við Vestmannsvatn um næstu helgi. — Félagar eru beðnir að hafa með sér tjöld. Ein heit máltíð og mjólk á staðnum. Þeir, sem taka þátt í mótinu, eru beðnir að gefa sig fram við Guðmund Garðar Ant- onsson, simi 11318 eða Guð- rúnu Eggertsdóttur, sími 11741. SÖFN - HÚS DAVÍÐSHÚS er daglega opið kl. 3—5 e. h. MATTHÍ AS ARS AFN. — Opið sunnudaga kl. 2—4 e. h. — Sími safnvarðar 11747. NONNAHÚS er opið alla daga kl. 2—4 e. h. Sími safnvarðar er 1-27-77. NATTÚRUGKIPASAFNIÐ er opið alla daga frá kl. 2—3 e. h. Sími safnvarðar er 1-29-83 á kvöldin. MINJASAFNIÐ er opið alla daga kl. 1.30—4 e. h. Simi safnsins 1-11-62, en safnvarð- ar 1-12-72. AMTSBÓKASAFNIÐ. — Opið alla virka daga nema laugar- daga kl. 4—7 e.h. - IÐNSTEFNAN (Framhald af blaðsíðu 1). um. Flóra hefur breytt um ýmsar umbúðir, sem eru mjög smekklega gerðar. Mjólkursamlag KEA sýnir nýjar mjólkurumbúðir, bæði flöskur og pappakassa, ,en þeir þykja sérlega hentugir fyrir stór heimili. Fjölbreytni er mikil í ostaframleiðslu Mjólk- ursamlagsjns. Fataverksniiðjan Gefjun sýn- ir smekkelgt úrval af karl- mannafötum og Vör er með margar tegundir af sjófatnaði og regnkápum fyrir börn og unglinga. Einnig er nokkurt úr- val af skinna- og rúskinhs- jökkum. Rafvélaverksmiðja Jötuns er með margar tegundir af raf- mótorum, stórum og smáum. Iðnstefnan er opin í dag og á morgun, fyrir iðnstefnugesti, en laugardaginn 28. og sunnu- daginn 29. ágúst, fyrir almenn- ing, frá kl. 19,00 til kl. 18,00, báða dagana. Sýningin verður sett af Harry Frederiksen framkvstj. Iðnaðardeildar Sambandsins, í dag kl. 10,00. Uppsetningu sýningarinnar hafa annast þeir Kjartan Guð- jónsson teiknari, Reykjavík, og Haraldur Magnússon auglýs- inga- og útstillingastjóri, Akur- eyri. Verksmiðjurnar, sem nú sýna framleiðsluvörur sínar, eru: Ullarverksmiðjan Gefjun, Saumastofa Gefjunar, Skinna verksmiðjan Iðunn, Skóverk- smiðjan Iðunn, Fataverksmiðj- an Hekla, Efnaverksmiðjan Sjöfn, Kaffibrennsla Akureyr- ar, Smjörlíkisgerð KEA, Efna- gerðin Flóra, Mjólkursamlag KEA, Fataverksmiðjan Fífa, Fataverksmiðjan Gefjun, Verk- smiðjan Vör og Rafvélaverk- smiðja Jötuns. Q HJÚSKAPUR. Hinn 14 ágúst voru gefin saman í hjóna- band á Akureyri ungfrú Sig- ríður Margrét Hreiðarsdóttir og Hörður Jóhannsson. Heim ili þeirra verður að Garðsá í Öngulsstaðahreppi. HJÓNAEFNI. Hinn 1. ágúst op- inberuðu trúlofun sína ung- frú Lára Einarsdóttir, Vopna- firði, og Sigtryggur Jónsson, Lækjargötu 2, Akureyri. — Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Anna Lilja Valdi- marsdóttir, Syðra-Dalsgerði, og Hjálmar Jóhannesson, iðn nemi á Stíflu. FRAMSÓKNARFÓLK, AKUR EArRI! Sjáið auglýsingu um fé- lagsfund Framsóknarfélags- ins í Blaðinu í dag. — Fjöl- mehnið á fundinn. IIÉRAÐSMÓT í frjáls- iim íþróttum er á Lauga landi um helgina. Sjá auglýsingu í blaðinu. I.O.G.T. Stúkan Brynja nr. 99 heldur fund að Bjargi fimmtu dag 26. n. k. kl. 8,30. Félagar mætið stundvíslega. — Æ. t. - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). árskrá og fyrirmælum fræðslu- mála. Það þykir til mikils mælst að kennarar séu nemendum sín um til fyrirmyndar, jafnt utan skóla sem innan og rnargir kennarar þvemeita því, að þeim beri meiri skylda til sómasam- legri framkomu utan skólaveggj anna en t.d. sjómenn í landleg- um. En þessar kröfur verður þó að gera og era e. t. v. þær einu, sem breytt gætu verulega þeim lélega árangri skólavistar, sem svo mjög er um talað á síðustu tímum. Með því er þó ekki verið að draga fjöður yfir ábyrgð lieimilanna í uppeldismálum, þótt. uppcldishliðinni væri meira sinnt í skólunum. SUMIR EIGA ELDINN VfSAN! Vikurit eitt birtir um þessar mundir svör margra manna við spumingunni: „Bálför eða greftrun?“ Eitt sinn var þessari spurningu beint til hagyrðings á Húsavík, Karls Sigtryggsson- ar. Hann svaraði með þessari vísu: Minni ríku moldarþrá mundi bálið ama. En þeim, sem vísan eldinn á ætti að vera sama. JÖKLA-SMYGLIÐ Kaupmannasamtökin hafa nú mótmælt smygli við viðskipta- málaráðherra, í tilefni af hin- um nýju og mjög ræddu smygl- málum, sem kennd eru við Langjökul og Vatnajökul. Telja kaupmannasamtökin, að marg- víslegt smygl skaði verzlunar- stéttina um allt að 100 millj. í álagningu. Má af þessu ráða hve ýinis konar smygl íslendinga, auk áfengissmygls, er talið mik- ið. En áfengið er í sérflokki, sem smyglvara, og liklegt að hinir stærstu viðburðir á því sviði, sem upp komust nú, kalli á aukið eftirlit. H. G. -S-:',:- á- ö -tfsl&S'ö -c-© <-& "S.:1,:- -c- 5(f- O, -Y 'S Iiugheilar kveðjur og þakkir til fjölskyldu minnar £ og allra œttingja og vina, ncer og fjrer, fyrir heimsókn- t. ir, góðar gjafir, blóm, heillaskeyti og allt annað mér © sýnt á sextugsafmœli minu, 7. ágúst 1965, og gcrðu * mér daginn ógleymanlegan. © Guð og lukkan fylgi ykkur. * GUÐLAUG EGILSDÓTTIR frá Sveinsstöðum, Skagafirði. I 1 f f Innilegt þahklœt.i til ykkar allra, sem glöddu okk- f f ur með heimsöknum, góðum gjöfum og skeytum á 'f ý sextugsafmœlum okkar. — Lifið heil. f | RÓSA HALLDÓRSDÓ TTIR, 1 f GUNNAR JÓNSSON, Tjörnum. © é £ ^©-i-iiW-©'5-5!^©'i-5iS>-©'i-5&s-©'i-5;'cS-©'l-5!W-©'i-5;JS-©'i-5Ss-©'i-5!'íS'©'i-5l;-s-©'i-5&s-© I % Eigimnaður minn, ARI BJÖRNSSON FOSSDAL, ljósmyndari, Þingvallastræti 31, Akureyri, andaðist 23. ágúst sl. að Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri. — Jarðarförin fer frant frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. ágúst kl. 2 e. h. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna. Þorgerður Lilja Jóhannesdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.