Dagur - 18.09.1965, Síða 8

Dagur - 18.09.1965, Síða 8
8 Kaupa 70 milljón tonn af hveiti SMÁTT OG STÓRT RÚSSAR sjá enn einu sinni íram á kornhungur og eru nú að kaupa kom, einkum hveiti, í stórum stíl, m. a. í Kanada. — Þeir þurfa 70 milljón tonn, að því er fréttir herma, og ekki íara slík viðskifti fram án þess að eftir því sé tekið. Fyrir tveim árum stóð líkt á og var ekki unnt að leyna því fremur en nú, hve landbúnaðar- stefna Rússanna hafði mistekist stórkostlega. Talið er, að mis- tökin í landbúnaðarmálum hafi átt sinn þátt í falli Krustjoffs á sínum tíma og frávikningu fjölda manns, sem ábyrgð voru taldir bera á hinum alvarlegu mistökum. Hin frjóa mold gefur litla upp- skeru. Loks eru að heyrast raddir að austan, sem opinberlega krefj- ast þess, að landbúnaðurinn verði leystur undan oki ríkis- rekstursins og að bændur fái tækifæri til þess að eignast sjálfir land til að rækta, svo sem tíðkast í lýðfrjálsum lönd- um. Landbúnaðarstefna Rússa hefur verið vörðuð mistökum, þrátt fyrir tækni og vísindi, sem tekin hefur verið í þjón- NYR LANDGRÆÐSLU STJÓRI PÁLL SVEINSSON í Gunnars- holti á Rangárvöllum hefur ver ið skipaður landgræðslustjóri af landbúnaðarráðherra, frá og með 1. þ. m. Er Páll því yfir- maður Landgræðslu ríkisins, en hún skal vera starfrækt sem sjálfstæð stofnun samkvæmt lögum, sem samþykkt voru um landgræðslu í apríl s.l. Landgræðsla ríkisins skal hafa aðsetur í Gunnarsholti á Rangórvöllum og greinist starf- semi hennar í tvo þætti, þ. e.. annars vegar sandgræðslu (upp græðslu), sem er hefting jarð- og sandfoks og græðsla gróður- lítilla og gróðurlausra land- svæða, og hins vegar gróður- vernd, sem kemur í veg fyrir ofnotkun gróðurs, hindra hvers konar skemmdir á gróðurlendi og bætir gróið land til að auka mótstöðuafl þess gegn eyðingu. Þá hefur landbúnaðarráð- herra sett Ingva Þorsteinsson, magister, fulltrúa landgræðslu- stjóra frá 1. þ. m. □ ustu þessa atvinnuvegar. En þeir, sem að landbúnaði vinna, eiga hvorki landið eða búin. Þeir eru aðeins verkamenn ríkisins á stórum ríkisbú- um, en hafa, þegar bezt lætur, örlítið land sjálfir til umráða. Þessir örlitlu reitir gefa ótrúlega mikla og verðmæta uppskeru. Þar sýna Rússar hæfni sína og ást á hinni frægu gróðurmold lands síns, og moldin svarar þeim með hundraðföldum ávexti. Þessi sannindi verða væntanlega leiðarljós valdhaf- anna í landbúnaðarmálunum. □ ÚR Akúreyrarrétt á Iaugardaginn. (Ljósmynd: E. D.) HJAKKAK í SAMA FARINU Þegar forráðamenn íslendings stöðvuðu útgáfu hans og sögðu upp starfsfólkinu, var tilkynnt, að stöðvunin væri vegna sum- arleyfa og fyrirhugaðrar skipu- lagsbreytingar, Þetta var fyrir- sláttur hjá blaðinu, þvf sumar- leyfum var lokið og skipulags- breytingar hafa engar orðið. — Blaðstjórnin gat ekki einu sinni losað sig við ritstjórann. AI- þýðumaðurinn tilkynnti nýlega ó tveim stöðum í sama tölublaði að Sigurjón Jóhannsson hætti þar störfum og færi til Hríe- eyjar. í síðasta blaði eru enn tilkynningar, m. a. um að Sig- urjón starfi áfram við blaðið! Alþýðumaðurinn tilkynnti ný- lega „dásamlega“ breytingu á blaðinu. Hún er fram komin. Með fullri virðingu fyrir því að fataskifti séu nauðsynleg, hefði verið skemmtilegra að aðrir en ritstjórinn hefðu Iátið orð falla um hina „dásamlegu“ breyt- ingu.. ENGINN KENNARI NORÐUR Enginn nýútskrifaður kennari frá Kennaraskóla íslands hefur í sumar eða haust sótt um kennarastöðu á Norðurlandi. Hafa þó margar kennarastöður verið auglýstar til umsóknar hér um slóðir. Ekki verður annað séð, en að Norðlendingar verði sjálfir að leysa þetta mál að nokkru. — Menntaskólinn á Akureyri gæti e. t. v. gripið inn í öfugþróun þessa og snúið vörn í sókn til hagsbóta fyrir Norðurland og um leið landið allt. Hann getur með hægara móti en nokkur Kornið þroskast þótt annaS bregSist í ár Egilsstaðakauptún er hraðvaxandi tízkustaður, sem nú vill efla mjög iðnað sinn FRÉTTARITARI Dags á Hér- aði, Vilhjálmur Sigurbjörnsson á Egilsstöðum, leit inn á skrif- stofur blaðsins á mánudaginn, og var hann að sjálfsögðu spurð ur frétta að austan. Komið er þar að heyskaparlokum, sagði hann, en þó eru enn úti hey, t. d. þar sem háin var slegin. Og á stöku stað er heyjað á engjum en það hefur ekki verið gert, svo heitið geti, í fjölda mörg ár. Orlofshús Alþýðusambandsins Sýnilegt var fyrir löngu, að hey vantar í marga hreppa og víða mikið. Nú er verið að safna hey pöntunum og verið að vinna að heykaupum sunnanlands og vestan. Fyrsta heysendingin er þegar komin til Reyðarfjarðar. Ég held að bændur kaupi hey- hestinn, þangað kominn, á 150 krónur. Bjargráðasjóður hleyp- ur hér undir bagga, Bændur munu reyna að halda í bústofn sinn, einkum sauðféð, enda vill svo til, að í sumar hefur víða á landinu heyjast mjög vel, svo bænaur þar eru aílögufærir. Byggið er sá jarðargróði, sem einna bezt virðist ætla að þrosk ast hjá okkur í ár fyrir austan. í Fljótsdal mun kornskurðurinn vera í þann veginn að hefjast. En þar var lang-fyrst sáð, enda fór klaki snemma úr jörðu og fyrr en annarsstaðar. Egilsstaðakauptún er hrað- vaxandi, enda tízkustaður um þessar mundir og vilja mjög margir setjast þar að. í sumar eru 20—30 íbúðarhús í smíðum og íbúum fjölgar ört. En okkur vantar trygga atvinnu fyrir allt (Framhald á blaðsíðu 2). norðlenzk menntastofnun, koro- ið á fót hliðargrein, til að sér- mennta kennaraefni. Verður að taka mál þetta til ítarlegrar at- • hugunar. 'J UTFLUTNINGUR HROSSA Ekki má flytja hross til annarra landa á skipum eftir 30. sept. á haustin. Fyrir nokkrum dögum voru 70 hross flutt út, sjóleið- ina, og áttu flest þeirra að fara til Þýzkalands en nokkur til Sviss. fslendingar selja úr landi fylfullar hryssur og graðhesta, ásamt vönuðum hestum. Það þykir ýmsum ekki búmannlegt og sýnist skynsamlegra, að selja aðeins vanaða hesta og útiloka þannig kaupendur frá því að ala upp hjá sér íslenzkt hrossa- kyn. Bændur hafa selt útflutnings- hross fyrir 8 til 12 þúsund kr. hvert og verður það að telj- ast lágt verð nema um úrkast sé að ræða. tet, ~ 1 MÖRG SJÚKRAFLUG Öðru hverju eru Norðlendingar minntir á það, hvers virði það er að hafa sjúkraflug á Akur- eyri. En Norðurflug Tryggva Iielgasonar flugmanns annast það, ásamt öðru flugi, á vélum sínum, auk flugskólans. Við hin erfiðustu skilyrði er stund- um flogið með sjúklangá, enda getur verið um lífið að tefla. í hvert sinn er sjúkraflug heppn- ast á þann veg, að vart hefðu sjúkir á annan hátt komizt í tæka tíð undir læknishendur, (Framhald á blaðsíðu 2). Þrjátíu og þrem þús. f jár lógað á Húsavík Húsavfk 17. september. Þessa viku hefur verið saltað dálítið af síld, á öllum söltunarstöðv- unum hér og er sem nýtt fjör færist yfir þegar síldin kemur. Slátrun sauðfjár er hafin hjá KÞ. Lógað verður 33 þúsund fjár, sem er heldur fleira en á sama tíma var áætlað í fyrra. Sláturhúsið tekur á móti 1200 fjár á dag, og er það gamla enn notað, því nýtt slátur- og frysti hús kaupfélagsins, sunnan við kaupstaðinn, er enn skammt á veg komið. Nú hefur ekki gefið á sjó og sneru bátar við í gær. En þeg- ar á sjó gefur, er aflinn mjög sæmilegur. Þ. J. Zontakonur eignast Nonnahúslóð Á SUNNUDAGINN voru hin nýju orlofshús Alþýðusambands íslands í Ölfusi vígð. Hér er um að ræða 22 lítil hús, og er þetta fyrsti áfangi slíkra húsa, sem verkalýðshreyfingin í landinu gengst fyrir. En sá áfangi, sem nú er náð, kostaði 18 milljónir króna, þar í framræzla á 12—15 ha. landi, sem var mjög blautt Hin litlu hús standa skipu- lega og eru smekkleg. Þegar í júlí var flutt í nokkur þeirra. Ætlunin er, að byggja orlofs- hús einnig á Norður-, Austur- og Vesturlandi. Orlofshúsin undir Reykjafjalli í Ölfusi heita Ölfusborgir. Þar verða fljótlega byggð 9 hús til viðbótar og síð- an aðrar byggingar til sameigin- legra nota. En þá skapast að- staða til fræðslustarfsemi, t. d. ■ í félaigsmálum, sem er nauðsyn- leg, og til ýmsrar menningar- starfsemi. □ Alþingi kvatt saman HANDHAFAR valds forseta ís- lands hafa að tillögu forsætis- ráðherra kvatt reg’ulegt Alþingi 1965 til fundar föstudaginn 8. október n. k. Fer þingsetning fram að lokinni guðsþjónustu, er hefst í Dómkirkjunni klukk- an 13.30. Forsætisráðuneytið, 13. sept. 1965. KONUR í Zonatklúbbnum á Akureyri unnu sér það til frægð ar fyrir nokkrum árum, að koma upp Nonna-húsi. Þar er myndarlegt minjasafn um skáld- ið og kennimanninn pater Jón Svemssön, sem notaði ritlröf- undarheitið Nonni. Safnhúsið gáfu þau hjónin Zophonían Árnason og Sigríð- ur Davíðsdóttir, en í því bjó Nonni í bamæsku. Nú eru Zonta-konur að kaupa húseignina Aðalstræti 54, íbúð nefndra hjóna, og með henni lóð þá, sem Nonnahús stendur á. Hinn fáménn'i, en starfsglaði hópur kvenna í Zontaklúbbn- um valdi sér verðugt viðfangs- efni og hefur valdið á þann veg, að bænum er sómi að. Með hús- kaupunum tryggja þær enn bet ur framtíð Nonnahúss á Akur- eyri. □

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.