Dagur - 10.11.1965, Page 2
2
Rðfveiiuskemman á Ákureyri leigð í veiur fyrir
æfinpr cg keppni í íþróifum
Mikill f jöldi, cldri og yngri, æfir handknattleik
ÞEIR ánægjulegu atburðir hafa nú gerzt, að Rafveituskemman hef-
ur fengizt leigð í vetur fyrir æfingar og keppni í íþróttum, og fagn-
ar íþróttafólkið því af heilum hug og færir Rafveitu Akureyrar og
þó sérstaklega rafveitustjóra, Knúti Otterstedt, kærar þakkir fyrir
skilning þeirra á íþróttamálum. — Sú stáðreynd blasir þó við, að
ekki er hægt að níðast á góðsemi RafveitUhnar oftar en í vetur, því
hún þarf að sjálfsögðu að nota húsið fyrir starfsemi sína.
Oheillaþróun, sem þarf að sföðva
FLESTIR ÆFA HAND-
KNATTLEIK
Æfingar verða frá kl. 6—10
alla daga, nema laugardaga og
sunnudaga, og má því segja að
hver tími sé setinn á kvöldin.
Þeir aðilar, sem leigt hafa
tíma í vetur eru: HRA (þriðjud.
og föstud. kl. 9) fyrir æfingar í
meistarafl. karla, KA fyrir æf-
ingar í yngri fl. karla og kvenna,
og meistarafl. kvenna, Þór fyrir
yngri flokka karla og kvenna,
MA fyrir karlafl. og Frjáls-
íþróttaráð hefur þar einnig
tíma. — Þá munu knattspyrnu-
menn einnig vilja fá tíma í hús-
inu eftir áramót, og eitthvað hef
ur verið talaða um körfuknatt-
leiksmenn líka.
Húsvörður hefur verið ráðinn
Baldur Árnason.
Það er greinilegt af þessari
upptalningu, að ekki er vanþörf
á, að komið verði upp boðlegu
iþróttahúsi í bænum og er von-
andi, að eitthvað gerist í þeim
málum fyrir næsta vetur, því
annars skapast algjört vand-
ræðaástand í sambandi við æf-
ingar og keppni í hópíþróttum
hér í bæ.
Þó Rafveituskemman sé ekki
I. fl. húsnæði fyrir íþróttaiðkan-
ir, þá er það þó fyrst með til-
komu hennar í fyrravetur, að
handknattleiksíþróttin vaknaði
af þeim dvala, sem hún var í
á Akureyri. Það sýnir bezt sá
fjöldi fólks, sem ætlar sér að
stunda handknattleiksæfingar í
vetur.
Það er vonandi, að handknatt
leikurinn nái sömu vinsældum
SUNDMÓT
SUNDMÓT Oddeyrarskólans
fór fram í Sundlaug Akureyrar
laugardaginn 6. nóv. síðastlið-
inn. Fimm 8 manna sveitir tóku
þátt í keppninni.
Keppt var um farandbikar er
Snorri Sigfússon fyrrum skóla-
stjóri gaf Oddeyrarskólanum
árið 1962.
Sigurvegarar að þessu sinní
var sundsveit 6. bekkjar í 3ju
stofu, en hana skipuðu: Brynja
Eggertsdóttir, Eiríkur Eiríks-
son, Baldvin Sigurðsson, Stein-
dór Steindórsson, Hólmfríður
Jóhannesdóttir, Aðalgeir Péturs
son, Júlíus Snorrason, og Guð-
mundur Karlsson.
Samanlagður tími sveitarinn-
ar var 7 mín. 29,5 sek. Verð-
launabikarinn var afhentur í
skólanum mánudaginn 8. nóv.,
og fá börnin að hafa hann í stof-
unni sinnj þetta skólaár.
Síðar verður tekin mynd af
sundsveitinni, er geymist í
skólanum.
hér og aniiars staðar, og íþrótta-
unnendur fjölmenni á þau mót,
sem fyrirhuguð eru í vetur. —
Mjög takmarkaður fjöldi áhorf-
enda kemst inn í liúsið, og ekki
véitti af, að hafa rúm fyrir 1000
áhorfendur, er nýít hús verður
byg#- £ £■ £■
MÓT OG HEIMSÓKNIR
,Ekki , hefúx - éridanlega verið
gengið frá því, hvaða mót verða
haldin í handknattleik á keppn-
istimabiíinu, en rætt hefur ver-
ið um Haustmót 'í öllum fl., Ak-
ureyrarmót í öllum fl., Norður-
landsmót í öllum fl. og Hraðmót
í .meistarafl. karla.
Þá er ætlunin að taka upp
samstarf við handknattleiks-
menn syðra og fá Iið að sunnan
til keppni eftir því sem hægt
verður.
Vonandi verður hægt að hefja
haustmótið síðast í þessum mán
uði, og svo hvert mótið af öðru.
KOSTAR MIKIÐ AÐ TAKA
ÞÁTT í ÍSLANDSMÓTINU
Mjög kostnaðarsamt ér fyrir
Akureyringg^" ftð , taka þátt í
HandkpftttleiksÉnóti íslands, þar
sem leika þarf tvo leiki fyrir
sunnan við hvert lið, og er
kannski varla tímabært, fyrr en
aðstaða er fengin hér i bæ til að
leika annan leikinn á Akureyri.
Það þætti áreiðanlega ófært, ef
knattspyrnumenn okkar þyrftu
að leika alla sína leiki í íslands-
mótinu annars staðar, og bæjar-
búar fengju örsjaldan að sjá þá
leika. Það er því álit margra, að
rétt sé fyrir handknattleiks-
menn, að reyna að fá lið norður
til keppni, og gefa þar með
íþróttaunnendum í bænum tæki
færi til að sjá sína beztu hand-
knattleiksmenn leika, og vonum
við að okkur takist að fá nokk-
ur lið til keppni hingað. Þá hef-
ur einnig verið rætt um að hand
knattleiksmenn fari 1—2 ferðir
suður til keppni, og leiki þá við
sömu lið, og tekst að fá norður.
MARGIR ÞJÁLFARAR
Margir menn munu að sjálf-
sögðu annast þjálfun allra þeirra
flokka, sem æfa í vetur. Meist-
araflokk karla þjálfa þeir Gísli
Biarnason oe Haraldur M. Sie-
urðsson, íþróttakennarar, og
skipta þeir með sér verkum. —
Frímann Gunnlaugsson, sem
unnið hefur gott starf fyrir hand
knattleikinn hér í bæ, þjálfar
meistarafl. kvenna K.A. — Þá
munu ýmsir annast þjálfun
yngri flokkanna fyrir KA og
Þór, og er þetta allt mikið starf.
Mjög hollt er fyrir unga fólkið,
að eyða sínum frístundum við
íþróttaiðkanir, með góðri tilsögn
hinna eldri.
VANTAR DÓMARA
Mikill skortur er hér á hand-
knattleiksdómurum,-,. og hefur
að koma á dómaranámskeiði,
eins fljótt og hægt er.
NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS
Eftir því sem mér er bezt
kunnugt er okkar gamla íþrótta
hús á brekkunni fullsetið öll
kvöld í vetur, og auðvitað alla
daga fyrir skólana, og fá þó
börn ekki þá íþróttakennslu sem
þeim ber, samkv. fræðslulög-
gjöfinni. Nú í vetur bætist Raf-
veituskemman við til æfinga og
keppni í íþróttum, og eru þar
allir tímar uppteknir á kvöldin,
og vantar raunar tíma fyrir
fleiri íþróttagreinar. Það hljóta
því allir að sjá, að útilokað er
að það dragist úr þessu að nýtt
íþróttahús verði byggt. — Nú á
næstunni taka Reykvíkingar
sína íþrótta- og sýningarhöll í
Laugardalnum í notkun og er
það mikið, en dýrt hús. Það verð
ur þó ekki notað eingöngu fyrir
íþróttir, því ætlunin er, að
þar verði alls konar sýningar,
þegar íþróttastarfsemi er ekki í
húsinu, og er gott að skipta
þannig kostnaðinum við bygg-
inguna. — Sennilega kæmi ekki
slíkt til mála hér í bæ, því hér
eru ekki haldnar stórar sýning-
ar nema með löngu millibili.
Það er ósk og von allra íþrótta
manna bæjarins, að nýtt íþrótta-
hús risi sem fyrst, enda greini-
legt, af því sem sagt hefur verið
hér á undan, að ekki er vanþörf
á því.
S. O.
- Norðurlandsáætlun
er á döfinni
(Framhald af blaðsíðu 1).
Undanfarið liafa stjórnarblöð-
in rætt töluvert um svonefnda
Vestfjarðaáætlun, er þau telja,
að hafi verið gerð, en aldrei
hefur verið birt. En sumir vest-
ur þar eru því farnir að kalla
ósýnilegu áætlunma.
Nú hefur verið frá því skýrt,
að vega- hafna- og flugvalla-
framkvæmdir, sem áformaðar
eru á Vestfjörðum fyrir fé úr
Flóttamannasjóði V.-Evrópu, sé
í Vestfiarðaáætluninni. Á Norð-
urlandi er einmitt víða mikil
þörf fyrir slík mannvirki og er
þess að vænta, að þeir sem að
áætlun vinna, geri sér það ljóst.
Hér í blaðinu hefur t. d. nýlega
verið rætt um þær hafnarfram-
kvæmdir í kjördæminu, sem að-
kallandi eru og um uppbygg-
ingu Þingeyjarsýslubrautar, svo
dæmi séu nefnd. Blaðið vill
hvetja bæjarstjómir, hrepps-
nefndir og sýslunefndir til að
koma sjónarmiðum sínum og til-
lögum á framfæri við Efnahags-
stofnunina. í því sambandi vill
það jafnframt minna á sam-
þykktir kjördæmisþings Fram-
sóknarmanna, er birtar hafa
verið hér í blaðinu, um upp-
hyggingu atvinnulífs og sam-
gangna liér norðanlands. □
MINNINGARSPJÖLD Iljarta-
og æðasjúkdómsvarnarfélags-
ins fást í öllum bókabúðum
hæjarins.
(Framhald af blaðsíðu 5.)
Aframhaldandi þróun í þessa
átt er engum til góðs, Hún stofn-
ar landsbyggð í hættu og hún er
Iíka varhugaverð fyrir ltið Jitla
landssvæði, sem aðallega tekur við
fólksfjölguninni. Höfuðborgin
óskar ekki eftir þessari þróun og
hefur heldur ekki ástæðu til þess.
En hin mörgu dreifðu byggðarlög
og heilir landshlutar, sem verjast
í vök, óttast hana. I>ar lamar hún
íramtíðarvonir og framkvæmda-
þrótt. Jafnvel höfuðstaður Norð-
urlands, Akureyri, liélt ekki sinni
eðlilegu fólksfjölgun á síðasta ára-
tug og ekki á árinu sem leið.
Okkur Islendingum þykir vænt
um hina fríðu höfuðborg. I>að er
mikilsvert, að liöfuðborginni og
þeint, sem hana byggja, vegni vel,
og að luin geti rækt hlutverk sitt
scm stjórnaraðsetur, menntamið-
stöð <)g aflvaki á ýmsum sviðum
þjóðlífsins. En íslendingar búsett-
ir að mestu eða öllu í einni stór-
borg, yrðu ckki sama þjöð og ís-
lendingar búsettir um allt ísland.
Landsbyggðin og tilvera hennar
heldur við áhuganum fyrir land-
inu, lándssiðum og þjóðlegri
menningu. Stórborg, sem ekki hef-
ur samband við trausta landsbyggð
í sínu eigin landi, hlýtur í vax-
andi mæli að tileinka sér viðhorf
]>eirra erlendu þjóða, sem þar
hafa greiðastan aðgang. Kynni
.borgarbúa af óbyggðu ættlandi
yerður svipur hjá sjón, saman-
borið við kynni hennar af byggðu
landi. Reynsla sannar líka, þótt
ég ræði Jjað ekki nánar hér, að
víða um hinar dreifðu byggðir ís-
lands nýtast náttúrugæði og
vinnuafl mjög vel þjöðarbúskapn-
um og líklega hvergi betur.
l>að cr ekki vert að loka augun-
um fyrir þeirn möguleika, að fram-
andi fólk, sem býr við landþrengsli
og takmarkaða atvinnu, kunni á
komandi árum að renna hýru
atiga til áiáttúrugæða og landrým-
is hér, ef stórir landshlutar yrðu
lítt eða' ekki byggðir landsins
börnum. En hvað sem Jjví líður,
verður varla um það deilt, að með
byggð og athafnasemi um land
allt styrkja Islendingar löglegan
og siðlerðilegan rétt sinn til lands-
ins — hvað sem fyrir kentur — en
veikja hann með Jjví að leggja
landið að meira eða minna leyti
í eyði.
Satt cr Jjað, að erfitt er að stríða
gcgn straumi. Og ]>ó láta rrienn
sér ekki í augum vaxa nú á tímum
að brcyta framrás fallvatna og
bcina Jjcim jafnvel inn á nýjar
leiðir. Máttur véltækninnar gerir
Jjetta mögulegt. Hví skyldi Jjá ekki
Jjjóðfélagstækni vorra tíma geta
stillt Jjatin straum, sem ógnar
landsbyggð Islendinga svo mjög,
að sjálf undirstaða sjálfstæðisins
skelfur.
Kaupstaða- og kauptúnaráð-
stefnan á Akureyri sl. vor bar vott
um vaxandi viðnám í Jjeim lands-
fjórðungi, sem Jjar átti hlut að
máli, gegn jafrivægisröskuninni.
Fundarsamþykktir víða um land
allt gefið hið sama til kynna. Blöð
og tímarit hafa nú undanfarið
rakið fordæmi annarra Jjjöða á
Jjessu sviði, og hví skyldum við
Íslendingar, sem eigum meira á
hættu vegna röskunar byggðajatn-
vægis en nokkur önnur [jjóð, ekki
telja Jjörf skipulegra og skjótra
aðgerða á sama hátt og Jjær? Full-
víst má telja, að sveitastjörnir og
sýslunefndir um land allt séu nú
reiðubúnar til samstarfs við rlkis-
valdið til verndar landsbyggð og
til að afstýra hættu. Landsbyggð-
in er landvörn Islendinga. Aðrar
Jjjóðir verja hlutfallslega miklu
rneira fé af ríkistekjum sínum til
hervarna, en hér cr gert ráð fyrir
í sambandi við hina friðsamlegu
landvörn okkar Islendinga.
Þegar Jjetta mál var til með-
ferðar hér í þessari háttv. deild
fyrir nál. 3 árum samjjykkti meiri
hluti hv. þingmanna rökstudda
dagskrá þess efnis, að frekari að-
gerðir til að stuðla að jafnvægi í
byggð landsins væru éjþarfar, því
að með lögum um atvinnubóta-
sjóð frá 1962 væri ákveðið að
verja 10 millj. kr. á ári til Ián-
veitinga í þessu skyni. I>á leit út
fyrir, að nefndar meiri hluti sá,
sent fyrir Jjeirri samjjykkt stöð,
hefði ekki kynnt sér efni frv. Ég
fjölyrði ekki um þá samjjykkt,
enda fer e. t. v. bezt á Jjví, að urn
hana sé lítið ráétt. Ég veit, að við-
horf til Jjessa 'ntáls hefur breyzt
nokkuð frá Jjví. sem Jjað var fyrir
2 árum og að myndarlegar aðgerð-
ir í þessum málum eiga stoð i
þjóðarvilja. Sumir hæstv. ráðherr-
ar eru nú byrjaðir að tala um að
stofna íramkvælndásjóð strjálbýl-
isins, sent þeir Viefna svo. Við flm.
Jjessa frv. erum að sjálfsögðu fúsir
til samstarfs um breytingar á Jjyí,
sem til bóta mætti verða — en lög-
gjöf á Jjessu sviði og fjármagn til
að lramkvæma hana veröui að
vera í viðun^idi ..siunécmj, við
þann mikla vá’nda, sém 'hér er á
ferðum.
Ég legg til Jierra forseti f. h.
okkar flm. að frv. verði að um-
ræðunni lokinni vísað til 3. umr.
og hv. íjárhagsnefndar.
SEXTUGUR
ÞÓRÓLFUR JÓNSSON bóndi í
Stórutungu í Bárðardal varð
sextugur 4. nóvember sl. Hann
er frá Mýri í Bárðardal ættað-
ur, einn úr stórum svstkinahópi,
sem við þann stað er kenndur.
En í Stórutungu hefur hann bú-
ið myndarbúi, ásamt Guðrúnu
Sveinsdóttur og eru sex börn
þeirra uppkomin og barnabörn
orðin mörg.
Þórólfur í Stórutungu hefur
alla ævi sína dvalið í Bárðardal,
þar sem Skjálfandafljót flýtir
för sinni og ekki alltaf hljóð-
lega, og hin víðfeðmu heiða-
lönd og öræfi tala sínu þagnar-
máli, fóstra lífgrös og ala upp
kjarnafólk.
Dagur sendir afmælisbarninu
beztu kveðjur og árnaðaróskir.
- ÞjÓÐVEGAKERFÍÐ
(Framhald af blaðsíðu 4).
nál. 3000 km og liafa þó
drjúgan afgang.
Er þá gengið út frá því, að
verulegir kaflar þurfi ekki
endurbætur utan viðhald.
□ - Handknattleiksráð hugsað sér,