Dagur - 08.12.1965, Síða 1
Viðskipfasamningur við Rússa
íslendingar kaupa af þeim benzín og olíur
UNDANFARNA daga hafa stað
ið yfir hér í Reykjavík samn-
ingaviðræður um innflutning á
bílabenzíni og olíum, sem kaupa
á á árinu 1966 samkvæmt við-
skiptasamningi íslends og Sovét
xíkjanna, sem undirx-itaður var
Ólafur Tryggvason.
í Moskvu 11. nóv. sl. Lauk við-
ræðum þessum í dag með und-
irskrift samnings um kaup á 50
þús. tonnum af bílabenzíni, 235
þús. tonnum af gasolíu og 110
þús. tonnum af fuel olíu. Heild-
arvei-ðmæti þessa innflutnings
er áætlað um ísl. kr. 350 milljón
ir.
Af hálfu íslands er viðskipta-
ráðuneytið aðili að þessum
samningi og undirritaði dr.
Oddur Guðjónsson hann af þess
hálfu. Hr. Albert Tjunis, for-
stjóri Sojuznefteexport undir-
ritaði fyrir hönd seljanda.
Samningaviðræður þessar önn
uðust fyrir íslands auk dr.
Odds, forstjórar íslenzku olíu-
félaganna þeir Hallgrímur Fr.
Hallgx-ímsson, Hreinn Pálsson
og Vilhjálmur Jónsson, en Árni
Þorsteinsson var ritari ísl.
nefndarinnar.
Með hr. Tjunis tóku þátt í
viðræðunum hr. A. P. Gratchev
viðskiptaráðunautur sovétsendi
ráðsins í Reykjavík og aðstoðar
menn hans.
r
Ný bók effir Olaf frá Hamraborg
i
BREZKA hafrannséknarskipið Hekla (Hecla) kom til Akureyrar á niánudagsmorguninn. Marg-
ir bæjarbúar hafa skoðað skipið, sem er nýtt og eign brezka flotáns, og ennfremur var þar boð
inni fyrir ýnisa borgara. (Ljósm.: E. D.)
SAMÍÐ VIÐ ALUMINIUMHRINGINN
Hvar er nú „tromp4< f jármálaráðherrans
og kærleika. Kristindóminn tel
ur höfundurinn felast í því fyrst
og fremst, að elska náungann,
hver sem hann er og hvei'nig
sem hann er.
Blaðið vill hvetja fullorðið
fólk til að lesa þessa séi-stæðu
bók. Hún mun verða því mikið
og verðugt umhugsunarefni,
og mikil hugvekja.
Ritdómur um „Hugsað upp-
hátt“ eftir séra Benjamín Krist-
jánsson, birtist væntanlega í
næsta tölublaði.
HUGLÆKNIRINN OLAFUR
TRYGGVASON frá Hamra-
borg hefur sent frá sér þriðju
bók sína. Utgefandi er Setberg
í Reykjavík. Bókin heitir „Hugs
að upphátt“. Þar segir höfund-
ur frá mjög merkri reynslu
sinni, sem er margþætt og bygg
ist meðal annars á áratuga þjálf
un þeirra eiginleika, sem hann
telur öllum vera gefna að ein-
hverju leyti.
Bók þessi er’ óður um lífs-
gildi djúprar vináttu og kær-
leika. Margar frásagnirnar eru
einfaldar og lifandi og fjalla um
atburði, sem geta komið fyrir
hvern sem er, og hversu þeim
ber að mæta. Höfundur telur
möguleika einstaklinganna, að
komast áfram á þroskabraut-
inni, litlum takmörkunum háða,
ef menn rækta með sér góðvild
SÍLDARAFLINN NÁL.
4 MILLJ. MÁL OG TN.
SÍLDARAFLINN norðan og
austan var sl. laugardag orðinn
395.751 niál og tunnur en var á
sama tírna í fyrra 2,9 millj. mál
og tunnur.
Vikuaflinn var 80.522 mál og
tunnur. Heildarafli síldar sumi-
an og vestan var sl. laugardag
orðinn 1.137.147 mál og tunnur.
Með þessum afla eru öll fyrri
aflamet slegin í síldveiðum. □ Jólasvipurinn er auðsær víða í bænum.
IÐNAÐARMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ skýrði frá því á föstudaglnn,
að náðst hefði samkomulag við
Alþjóðabankann uni byggingu
aluminiumbræðslu. Fréttaíil-
kynningin er á þessa leið:
„Dagana 1.—3. þessa mánað-
ar hafa farið fram samningavið-
ræður milli fulltrúa ríkisstjórn-
arinnar, Swiss Aluminum Ltd.
og Alþjóðabankans um bygg-
ingu aluminiumbræðlsu í
Síraumvík og er þetta framhald
fyrri viðræðna þessara aðila.
Eftir þessa fundi er nxálið
komið á það stig, að samkomu-
lag hefur náðst í viðræðunum
um öll meginatriði málsins.
Það sem næst liggur fyrir er
að ganga frá samningsuppkasti
með margháttuðum fylgiskjöl-
urn og munu lögfræðingar aðila
vinna að því í þessum mánuði.
Ráðgert er áð halda síðan
fund um málið eftir áramótin
til þess að ganga endanlega frá
samningauppköstunum“.
Eins og fréttin frá iðnaðar-
málaráðherra ber með sér, hef-
ur samkomulag náðst um meg-
inatriði alumíumverksmiðju og
að hún verður reist í Straums-
vík syðra. Hér stendur það svart
á hvítu frá sjálfri ríkisstjórn-
inni, að tillögur og röksemdir
Norðlendinga og þar á meðal
bæjarstjórnar Akureyrar, hafa
verið að engu hafðar og að
bollaleggingarnar um orkuveitu
norður yfir fjöll frá Búrfells-
(Framhald á blaðsíðu 5.)
1
Það^ sem máli skiptir
GERA má ráð fyrir, að þing-
nxenn Framsóknarflokksins
gi-eiði atkvæði gegn hinum
nýju sköítum, sem fjármála-
ráð'herra beitir sér fyrir. Þær
sköttunarleiðir orka tvímæl-
is. Hitt er samt meginatriði
í þessu máli, að Framsóknar
meim telja ekki rétt að veita
lið sitt til að leggja á þjóðina
nýjar byrðar, með það fyrir
augum að hægt sé að halda
áfram því stjórnleysisástandi,
sem nú er. Það mun líka sýna
sig, að hin hraðvaxandi dýr-
tíð verður fljót að gleypa
nýja skatta.
Það, sem máli skiptir, er
að Iosna við núverandi
ófremdarástand og skapa við
unandi þjóðarforystu. □
ÁYARP
frá Landssambandinu gegn áfengisbölinu
TÍMABIL jólanna nálgast, en
það eru dagar hraða, annríkis
og mikillar umfei'ðar. Þá þurfa
menn að vera gætnir, en um-
fram ailt alls gáðir. Hundrað
þúsundir manna farast ái'lega í
heiminum í umferðinni. í þessu
mikla mannfalli á áfengisneyzl-
an sinn drjúga þátt. Skýrsla að-
eins einnar þjóðar er á þessa
leið:
Áfengisneyzla átti þátt i því,
að 25.000 manns fórust í Banda-
í-íkjunum árið 1964, 10% fleiri
(Ljósm.: E. D.) en árið áður.
Um hvei-ja venjulega helgi
drepa þar ölvaðir menn við akst
ur fleiri en þá, sem fallið hafa
af Ameríkumönnum í stríðinu
í Vietnam á fimm árum.
Um tuttugu manns ferst á
hverjum degi í landinu sökum
ölvunar við akstur. Meira en 80
af hundi’.aði þeirra manna, sem
þannig aka, eru engir venjuleg-
ir glæpamenn, heldur aðeins
menn drykkjutízkunnar, sem fá
sér „liressingu“ með hádegis-
matnum eða í samkvæmum.
(Framhald á blaðsíðu 5).