Dagur - 08.12.1965, Side 8
8
SMÁTT OG STÓRT
BÓNDI í nógrenni bæjarins ekur hér mjólk sinni til Samlagsins og seppi hefur slegist með í för.
’f * * 1 Í ’i { - -
EyfirSingar ræddu um sauðfjárrækfina
á bændaklúbbsfundi að Hótel KEA á mánudag-
inn. Framsögumaður var Helgi Haraldsson
EKKI VAR því spáð, að margir
bændur sæktu bændaklúbbs-
fundinn á mánudaginn, því þá
var þungfært um héraðið vegna
snjóa. En sauðkindin hefur jafn
an verið Ijúft umræðuefni og
SILDARKÖGGLAR
SAMKVÆMT útreikningum
Jóns Gunnarssonar verkfræð-
ings, hefði mátt spara tugmilljón
ir króna með því að flytja síld-
armjöl laust eins og kornvörur
eru fluttar landa í milli. En til
þess þarf að móta síldarmjölið
í köggla, eins og tilraun hefur
verið gerð með hjá síldarverk-
smiðju ríkisins á Siglufirði. Tel-
ur hann, að sparnaður flutnings-
kostnaðar gæti numið allt að 80
millj. kr. miðað við núverandi
framleiðslu. □
auk þess frummælandi fundar-
ins Hélgi Haraldsson á Hrafn-
kelsstöðum kunnur sauðfjár-
ræktarmaður,. ræðumaður góð-
ur og nýr gestur hjá eyfirzkum
bændum. Fiindarsókn var góð,
um eða yfir 70 manns. Ármann
Dalmanrisson formaður Búnað-
arsambands Eyjafjarðar bauð
gesti velkomna, en svo tók Jón
Hjálmarsson bóndi í Villingadal
við. fundarstjórn.
Helgi Haraldsson var léttur í
máli og fór m. a. með gaman-
brag eftir Gröndal, sem hann
lærði ungur — skopstælingu á
kvæði Matthíasar um Eyja-
fjörð. Síðan sneri hann sér að
málefni fundarins, sauðfjárrækt
inni og sagði frá 40 ára reynslu
sixmi í þeirri grein. M. a. greindi
hanri .' frá ' ýrhsum mistökum
manna við að flytja þingeyskt
fé til Suðurlands. Sjálfur reyndi
hann þetta með góðum árangri.
Hann sótti þá fé til Mývatns-
sveitar og hafði það heilræði
Sigurgeirs á Helluvaði suður,
að fara aldrei út í skyldleika-
rækt með þingeyska féð. Það
væri svo stutt í gallana á því.
Þetta hefur verið mitt fyrsta og
æðsta boðorð, sagði ræðumaður,
og hefur gefizt vel. Síðan hefi
ég haft þingeyskt fé með hönd-
um og gefizt vel, einnig eftir
fjárskiptin, en það tekur a. m. k.
áratug að rækta upp góða stofna
eftir niðurskurð.
Þá sagði ræðumaður frá til-
raunum, sem gerðar voru fyrir
áeggjan Páls Zophoníassonar og
voru í því fólgnar að vigta lömb
in nýfædd og aftur að hausti.
Kom í Ijós, að þau tífölduðu
þunga sinn til jafnaðar. Benti
þetta mjög til þess, að kapp-
kosta bæri að fóðra lambamæð-
ur vel fyrir burð svo lömbin
(Framhald á blaðsíðu 5.)
ENN EINN GÚMBÁTUR
ÓNÝTUR
Enn einu shnii hafa björgunar-
tæki brugðizt, þegar á reyndi.
Vélbáturimi Hanna RE 18 brann
og sökk út af Garðskaga á föstu
daginn. Tveggja manna áhöfn
var bjargað. En þegar mennim-
ir ætluðu að nota gúmbjörgunar
bátinn, reyndist hann ónýtur,
þ. e. blés sig ekki upp. Björg-
unartæki koma því aðeins að
liði, að þau séu í lagi, en því
miður virðist eftirlit með þeim,
bæði á sjó og landi oft nijög
ábótavant.
FJÖLDALEIT AÐ KRABBA-
MEINI
Eftir fyrsta starfsár Leitar-
stöðvar krabbameinsfélags
Reykjavíkur, er fram fór sem
leghálsskoðun meðal 8030
kvenna, reyndust fimmtíu kon-
ur hafa þörf fyrir ýtarlegri rann
sókn og 41 kona' með krabba-
mein, en flestar á byrjunarstigi.
Einnig fundust ýmsir hættu-
minni sjúkdómar við skoðun
þessa. Konur hafa sýnt mikinn
skilning á þýðingu þessara
rannsókna.
50 TONN AF JÓLATRJÁM
í fréttum er frá því sagt, að
komin séu til Iandsins 50 tonn
af jólatrjám, sem seld verða til
skrauts fyrir jólin. íslendingar
eru enn svo skammt konmir í
skógræktinni, að geta ekki mætt
eftirspum eftir jólatrjám að
neinu ráði.
ÞINGMENN EKKI MEÐ í
RÁÐUM
í stjómartilkynningu segir, að
„samkomulag hafi náðst um
meginatriði málsins“ við erlenda
aðila um aluminiumbræðsluna
við Straumsvík. Sagt er frá því
einnig, að eftir áramótin verði
fundir að nýju og þá gengið frá
samningsuppköstunum. Með
þessu er staðfest, að stjómin
ætlar að semja við erlendan
auðhring og erlendar peninga-
Nýr skóli fyrir sjúkraliðastarfaráAkureyri
Menntar hjálparfólk sjúkrahúsa í nýrri stétt
FRK. INGIBJÖRG MAGNÚS-
DÓTTIR yfirhjúkrunarkona
Fjórðungssjúkrahússins á Akur
eyri hefur góðfúslega svarað
Særðust í ryskingum
ALLMIKIL ölvun var á Akur-
eyri aðfararnótt sl. laugardags.
Maður einn, sem lenti í illind-
um við Sjálfstæðishúsið, skarst
á hendi og var fluttur í sjúkra-
hús. Sömu nótt skarst maður á
höfði í ryskingum við BSO og
þurfti einnig að gera að sárum
hans. Var á honum æði svo
beita þurfti hann valdi við
læknisaðgerð.
Tveir bifreiðaárekstrar urðu
á sunnudaginn og tveir í fyrra-
dag, en menn sakaði ekki.
(Samkv. uppl. lögreglunnar)
spurningum blaðsins um hjálp-
arfólk á sjúkrahúsum, sem nú
er að búa sig u'ndir störf og áð-
ur hefur verið rætt um hér í
blaðinu. — Samtalið fer hér á
eftir:
Et námskeið í hjúkmnarstörf-
um hafið hér á Akureyri?
•Við byrjuðum með fyrsta
'námskeiðið. í sjúkrahjálp þ. 1.
október s. J. og það eru 16 stúlk-
ur í þeim hóp. Stuttu síðar hóf-
ust námskeið í St. Josefsspítal-
anum að Landakoti og Klepps-
spítalanum og eru nemendur í
þessum 3 sjúkrahúsum samtals
42.
Hve rík er þörfin fyrir þetta
nýja hjálparfólk?
Ég álít þörfina afar mikla. Að
vísu má segja, að þetta leysi
ekki þau vandamál, er skapazt
hafa vegna skorts á hjúkrunar-
konum. En þetta fólk ætti að
auðvelda starf þeirra fáu hjúkr
unarkvenna, sem fyrir eru, og
vonandi verður hægt að skipu-
leggja störíin á sjúkrahúsinu
þannig, að störf hjúkrunar-
kvenna nýtist betur. Á hinum
Norðurlöndunum eru hlutfalls-
lega um það bil helmingi fleiri
hjúkrunarkonur í starfi, en hér
á landi, og öll hafa þau hjálpar-
fólk á siúkrahúsum svarandi til
þessa fólks, sem við erum nú
byrjuð að þjálfa.
Em karlmenn velkomnir á
þessi námskeið?
Vissulega — bæði velkomnir
og kærkomnir, sérstaklega á
geðsjúkrahús eins og Klepps-
spítalann. Nafn var valið á stétt
ina með það fyrir augum, að
það gæti átt við bæði kynin, en
það er nafnið sjúkraliði. Starf-
4ð heitir sjúkrahjálp og starfs-
heitið er sjúkraliði.
Hver eru inntökuskilyrðin?
Nemandi skal hafa lokið
skyldunámi, vera á aldrinum 17
til 50 ára og sýna heilbrigðis- og
siðferðisvottorð.
(Framhald á blaðsíðu 5).
Frk. Ingibjörg Magnúsdóttir,
yfirhjúkrunarkona.
stofnanir um vafasama stór-
framkvæmd — án samráðs við
Alþingi — eða hefur þegar
gjört. Láta alþingismemi bjóða
sér þetta?
PUNTUDOKTOR
Meðal þeirra, sem tóku þátt í
umræðum um Hafnarfjarðar-
málið á Alþingi voru þeir Einar
Ágústsson, Ingvar Gíslason og
Jón Skaftason, sem allir eru lög
fræðingar að menntun, en í
þessu máli bar ýms lögfræðileg
atriði á góma. Síðan kvaddi for-
sætisráðherra sér liljóðs og var
mikið niðri fyrir. Veittist hann
að þessum þingmönnum og kall
aði þá „puntudrengi“ Framsókn
arflokksms. Þetta prentaði
Morgurblaðið upp og þótti gott!
En ekki fer hjá því að margir
glotti I kampinn og þyki það
koma úr hörðustu átt, því að
sjálfur er Bjami Bcnediktsson
forsætisráðherra doktor „upp á
punt“. Hami hefur aldrei varið
doktorsritgerð eða annað unnið
til doktorsnafnbótar en það, að
hafa verið útnefndur heiðurs-
doktor við erlendan háskóla,
þótt liann liins vegar sé eflaust
vel Iærður í lögum.
ÓVISSAN UM FJÁRLÖGIN
Fjárlögin fyrir árið 1966 eru nú
koniin í gegn um aðra umræðu
á Alþingi og verður væntanlega
afgreitt fyrir jól. Niðurstöðu-
tala tekna og útgjalda á sjóðs-
yfirliti er nálega 3800 millj. kr.
eða ca. 260 millj. kr. hærri en í
gildandi fjárlögum (1965). Gert
er ráð fyrir, að tekjur hrökkvi
fyrir útgjöldum, og er þá búið
að taka inn í frumvarpið nýja
skatta, sem enn er þó ekki
búið að Iögfesta og sumir hafa
ekki vérið lagðir fyrir þingið.
Einn af stjómarþingmönnum lét
þess getið við atkvæðagreiðslu
um fjárlögin, að hann væri á
móti farmiðaskattinum, og virð-
ist því sá skattur mjög í óvissu,
hvað sem í hans stað kann að
koma.
Þá Iét fjármálaráðherra þess
getið í ræðu, að hækkun kjara-
dóms á launum opinberra starfs
manna væri meiri en gert hefði
verið ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpinu.
FLUTTU AÐEINS EINA
BREYTINGARTILLÖGU
Sú skoðun virðist vera að festa
rætur meðal þingmanna, að fjár
hagur ríkisins sé nú kominn í
slíkt öngþveiti, að ekki þíði að
flytja breytingartillögur að
neinu ráði um hækkun fjárlaga
*úr ríkissjóði, enda lækkaði fjár-
málaráðherra á sl. sumri fram-
lög til verklegra framkvæmda
víðs vegar um land um 85 millj.
kr. samkvæmt heimild, sem
meirihluti þuigsnis veitti sl.
vetur. Það vekur athygli, að
fulltrúar Framsóknarflokksins í
fjárveitinganefnd fluttu aðeins
eina breytingartillögu af flokks
ins hálfu, að staðið væri við gef-
ið loforð um ríkisframlag til
vegasjóðs, enda óhæfa af stjóm
inni, að ætla sér að rifta sam-
komulagi, sem gert var milli
þingflokkanna.