Dagur - 19.03.1966, Qupperneq 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
ðg kcstar kr. 30.00 á
mán. í lausasölu kr. 5;00
1.--------------------
BJARTSÝNIR MENN A DALVÍK
Dalvík 18. marz. Nú er hláka,
vegurinn til Akureyrar öllum
bílum fær og þrjár ýtur ryðja
snjó af vegura í Svarfaðardal.
Grásleppan er komin á miðin
og fengust 150 stk. í einni lögn
í gær. Sú vertíð byrjar hálfum
mánuði fyrr en venja er. Björg-
vin kom með 65 tonn af fiski
eftir 4 daga en Bjarmi II. er far-
inn til Noregs til lengingar.
Hinn 7. þ. m. hélt æskulýðs-
ráð og miðskólinn grímuball fyr
ir 12—18 ára unglinga og tókst
það vel. Ingimar Eydal, sem hér
kennir í vetur við Tónlistarskól
ann og barna- og unglingaskól-
ann lék hér með hljómsveit
sinni á grímuballinu og þótti
það skemmtilegt. Árshátíð verð-
ur haldin í barna- og unglinga-
skólanum um helgina. Verður
til hennar vandað. Ágóðinn
rennur í ferðasjóð. J. H.
BÆRINN SÝNIR MÁLVERK SÍN
MENNINGARSJÓÐUR Akur-
eyrarkaupstaðar keypti á sl.
ári nokkur málverk, sem nú
eru sýnd í einum verzlunar-
Kolkrabbi á ferðinni
FYRIR nokkrum dögum rak
ofurlítið af vænum kolkrabba á
fjörur Akureyrar. Muna sjó-
menn þeir, sem blaðið hefur um
þetta spurt, ekki eftir því, að
slikt hafi áður gerzt á þessum
árstíma. f þorski þeim, sem nú
er genginn hér inn, hefur einnig
fundizt kolkrabbi. Undanfarið
hefur aflazt allvel víða í Eyja-
firði, bæði á færi og línu. □
glugga KEA. Ekki hefur stjórn
sjóðs þessa, sem stofnaður var
á 100 ára afmæli kaupstaðar-
ins, séð ástæðu til að senda blöð
unum þessar fréttir, en eftirfar
andi er skráð við málverkin:
„Málverkin eru eftir eftir-
talda menn: Jóhannes S. Kjar-
val, Öxarárfoss 1930. Höskuld
Björnsson, Svanir 1938, Kára
Eiríksson, Málverk 1965. Eyjólf
J. Eyfells, Vatnsdalshólar.
Þetta eru fyrstu málverkakaup
Menningarsjóðs Akureyrarbæj-
ar, keypt 1965 og birt hér bæj-
arbúum til sýnis og yndisauka".
En hver verður nú staður
þeirra listaverka, sem bærinn
á nú og eignast í framtíðinni?
Vara við erlendum áhrifum
FUNDUR var haldinn í Full-
trúaráði verkalýðsfélaganna á
Akureyri hinn 8. þ. m. Var þar
m. a. rætt um hina fyrirhuguðu
aluminverksmiðju, og var eftir-
farandi tillaga samþykkt með
samhljóða atkvæðum:
„Fundur haldinn í Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna á Akur
eyri 8. marz 1966 lýsir yfir
stuðningi sínum við ályktun
miðstjórnar A.S.Í. varðandi fyr-
irhugaða samninga um alumin-
vinnslu við Straumsvík.
Fundurinn vill alvarlega vara
allan almenning við þeim fyrir-
ætlunum stjórnarvaldanna að
leyfa erlendum auðfélögum að
ná tangarhaldi á atvinnurekstri
og atvinnulífi í landinu."
Þá var og samþykkt með
þorra atkvæða svofelld tillaga:
„Fundur í Fulltrúaráði verka
lýðsfélaganna á Akureyri hald-
inn 8. marz 1966 mótmælir harð
lega framkomnu frumvarpi á
Alþingi um bruggun og sölu á
(Framhald á blaðsíðu 2.)
FRÁ BRIDGEKLÖBB
TVÍMENNINGSKEPPNI sú í
bridge, sem lauk fyrir skömmu
á vegum F.U.F., tókst mjög vel.
Efnt verður nú til hraðkeppni
(sveitakeppni) n. k. fimmtudag
Meðan snjóar og frost herja á norðurhjara, bakar fólk sig í sumarsól á öðrum breiddargráðum.
Innflutningur íbúðarhúsa frá Svíþjðð
Líklegt að hann geti lækkað byggingarkostnað
UM SÍÐUSTU HELGI gerði
Sæmundur Óskarsson heildsali
í Reykjavík fréttamönnum grein
fyrir því, að fyrirtæki hans
hefði fengið einkaumboð á Is-
landi fyrir innflutningi sænskra
húsa. Hann sagði m. a.:
„HSB, sem er langstærsta hús
byggingafélag á Norðurlöndum,
er raunverulega fjöldasamtök
húsbyggjenda og leigjenda í Sví
þjóð. Það er rekið á samvinnu-
félagsgrundvelli og allt hús-
næði, sem byggt er á þess veg-
um, er selt á kostnaðarverði,
þannig að ekki er gert ráð fyrir
hagnaði til félagsins. Hefur
HSB á þennan hátt tekizt að
lækka byggingakostnað.
FÖF
á Hótel KEA. Mun það verða
þriggja kvölda keppni. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að ber-
ast Karli Steingrímssyni fyrir
miðvikudagskvöld. □
Sú deild HSB, sem annast
framleiðslu tilbúinna húsa, nefn
ist BORO-hús, sem er skamm-
stöfun dregin af kjororðinu „Bo
i ro i eget bo“. Hefur þessi deild
nú starfað í meir en 40 ár og
byggt eða lagt til efni í meira
en 50.000 einbýlishús. í dag býr
í húsum þessum mannfjöldi sem
svarar til % hluta allra íslend-
inga.
BORO-hús framleiðir margar
tegundir tilbúinna húsa svo sem
einbýlishús, raðhús, keðjuhús,
sumarbústaði, bamaheimili,
skóla, o. s. frv.
Nýlega hefur fyrirtækið S.
Óskarsson & Co. h.f. Garða-
stræti 8, fengið einkaumboð fyr
ir HSB:s Industrier A/B BORO
HUS á íslandi. Þar sem gera
má ráð fyrir, að áhugi manna
hér beinist einkum að innflutn-
ingi tilbúinna einbýlishúsa, hef-
ir fyrirtækið lagt áherzlu á að
fá ýtarlegar upplýsingar um
fyrirkomulag, verð og gæði
slíkra húsa. Samkvæmt þeim
gögnum, sem fyrir liggja, má
gera róð fyrir, að hægt sé að
koma hér upp vönduðum ein-
býlishúsum fyrir mun lægra
verð en hér hefur áður þekkzt
og jafnvel lægra verð en sam-
svarandi íbúðir kosta nú í blokk
um. Er þá miðað við það, að toll
ur lækki verulega eins og ríkis-
stjómin hefur lofað.
Um margar tegundir einbýlis
húsa ér að velja frá BOROHUS
og eru þau flest af stærðinni
90—125 ferm. ýmist með eða án
(Framhald á blaðsíðu 2.)
ENSKUR SJÓMAÐUR
HANDTEKINN
FYRR í vikunni varð háseti af
enskum togara uppvís að þjófn-
aði á Akureyri. Hafði hann kom
izt inn í nokkur nemendaher-
bergi MA og stolið 800 krónum.
Lögreglan handtók hann og
þjófnaðurinn var bættur. Mað-
urinn var sendur suður og síð-
an út, því hann átti ekki aftur-
kvæmt á skip sitt. □
SÆLUVIKA 0G
SJÓKINDUR Á REYÐARFIRÐI
Reyðarfirði 18. marz. Laust
fyrir hádegi á þriðjudaginn
sáust torkennilegar skepnur
koma upp úr sjónum skammt
undan bænum Flateyri, sem
er um 7 km. utan við Reyðar-
fjarðarkauptún. Við þetta varð
vart, er böm voru að leik nið-
ur við sjó og sáu þau þá skepn
ur þessar um 15 faðma frá
landi. En er þau gerðu heima-
fólki aðvart var þeim naum-
ast trúað. Þó var farið að að-
gæta þetta betur.
Er bóndinn gekk niður að
sjónum gaf á að líta skepnu
allstóra nálægt landi, og skaut
bóndi á hana með kúluriffli
og hæfði í öðru skoti.
Skepnan lét sig þá síga rólega
í kaf og kom upp eftir nálega
6 mínútur. Hitt dýrið var fjær
og margfalt stærra.
Lýsing bóndans á sjókind-
um þessum er á þessa leið:
Lögun ferköntuð, séð að fram-
an, 50 cm. í þvermál en 70 cm.
upp úr sjó, með tvö stór eyru
sitt hvoru megin. Eyrun virt-
ust gulbrún innan og náði sá
litur nokkuð niður af þeim.
Ekki sást munnur eða augu,
hveljan var dökk efst en Ijós-
ari neðar.
Stærri skepnan var öll Ijós-
ari, en hún sást ekki eins
greinilega. Bóndinn sá aðeins
beint framan á þessar skepn-
ur, en börnin sögðust hafa séð
þær fró hlið og væri löng og
mjó trjóna fram úr því.
Dýrin voru þarna 2—2I4
klukkustund. V. G.
HUNAVAKA
SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst
á sunnudaginn og verður þar
um fjölbreyttar skemmtanir að
ræða, eins og jafnan áður. Sýnd
verða tvö Ieikrit, þrír karlakór-
ar syngja, sýndar verða kvik-
myndir og dansleikir verða 5
kvöld Sæluvikunnar.
Sæluvikan er haldin á Sauð-
árkróki.
HÚNAVAKAN hefst svo ann
an páskadag og verður haldin í
hinu mikla félagsheimili á
Blönduósi. □