Dagur - 19.03.1966, Blaðsíða 2
2
ÍR-ingar leika á Akureyri á laugardag og sunnud.
Búast má við spennandi keppni - Tekst Akureyringum að sigra ÍR-inga?
I DAG, laugardag, kl. 2 hefst
handknattleikskeppni í Raf-
veituskemmunni á Akureyri.
Fyrst leikur 3. fl. karla KA og
Þór, en á eftir leika ÍR og ÍBA
í meistarafl. karla. ÍR-ingar hafa
tekið forystu í Handknattleiks-
móti íslands, II. deild, og eru
þeir nú með 10 stig.
Búast má við mjög spennandi
keppni og verður fróðlegt að
vita hvernig Akureyringar
standa sig nú, en eins og menn
mima töpuðu þeir fyrir Hauk-
SKIÐAMOT YNGSTA
FÓLKSINS
UM SL. HELGI fór fram við
Skíðahótelið á vegum SRA
skíðamót fyrir börn og tókst
ágætlega. Voru þátttakendur 50
þrátt fyrir heldur óhagstætt
veður. Var þá ákveðið að halda
annað slíkt mót og fer það fram
nú um helgina, en einnig verð-
ur keppni fyrir unglinga. Hefst
mótið kl. 15 í dag, laugardag,
með keppni í stórsvigi 13—15
ára, en á sunnudag verður svig
í sama aldursflokki kl. 11 f. h.
og svig barna kl. 1.30. Verða
úrslit úr báðum þessum mótum
birt í næsta tölublaði. □
VARA VIÐ ERLEND-
LM ÁHRIFUM
(Framhald af blaðsíðu 1.)
áfengu öli, og skorar á hæstvirt
Alþingi að fella það.“
Og ennfremur:
„Fundur haldinn í Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna á Akur
eyri 8. marz 1966 leyfir sér að
mótmæla eindregið, framkomnu
frumvarpi á Alþingi um hægri
handar akstur.“ □
- Allt er þá þrennt er
(Framhald af blaðsíðu 8.)
brotum um gátur mannlífsins.
Með aðalhlutverkin fara þau
Helga Garðarsdóttir og Ólafur
Axelsson og bera þau leikinn
uppi með sóma. Alda Kristjáns-
dóttir leikur aldraða ráðskonu
og Þórey Helgadóttir málgefið
sóknarbarn og gera þær hlut-
verkum sínum góð skil. Þór
Aðalsteinsson, Jón Hallgríms-
son og Þorsteinn Eiríksson
leika skuggalega náunga, Lilja
Jónsdóttir „trúaða“ konu dálít-
ið freka, Guðlaugur Halldórs-
son leikur þjón og Pétur Helga-
son leikur ungling í vondum
félagsskap.
Allt leggur fólkið sig vel fram
og hefur trúlega að unnið. Hafi
það þökk fyrir skemmtilega
kvöldstimd. E. D.
um, sem léku hér fyrir skömmu,
með miklum mun. í fyrravetur
léku IR-ingar hér á Akureyri
tvo leiki við lið ÍBA og unnu
Akureyringar þá annan leikinn
með eins marks mun, en ÍR-ing-
ar hinn með sama markamun.
Handknattleiksmenn fagna því,
að tekizt hefur að fá tvö lið
hingað til keppni í vetur, og
vonandi vilja fleiri koma.
Á sunnudag hefst keppnin
kl. 1.15 og leika þá aftur ÍR og
ÍBA, en á eftir leikur 2. fl. karla
Þór og KA. — Dómari á laugar-
dag verður Arnar Einarsson, en
á sunnudag dæmir Árni Sverr-
isson. Q
Þeffa er orðinn harður vetur
Kasthvammi 11. marz. Það var
stórhríð seinni partinn í gær,
og í nótt, og fram á morgun.
Að öðru leyti sæmilegt veður í
dag. Það hefur bætt mikið á í
þessari hríð og snjór er orðinn
mjög mikill hér að austanverðu
í dalnum, því áttin hefur alltaf
verið norðaustan og austan.
Sem dæmi um snjóinn hér í
brúnunum, er það, að Hallur
bóndi í Árhólum var nýlega að
gera við símann í brekkunni,
ofan við bæinn hjá sér, og varð
að vera hálfboginn við aðgerð-
ina, því ekki stóð nema svo
sem meter upp úr snjónum, og
um tveir metrar af tveimum
næstu staurum upp úr. Það
hefur einu sinni blotað síðan
um nýár, og tvisvar orðið frost
laust smástundir. Hægt hefur
verið að komast á jeppum eft-
ir veginum öðru hvoru, en oft-
ast heldur erfitt og nú áreiðan-
lega alveg ófært. Vörubílar
hafa ekki komizt til Húsavíkur
síðan um miðjan janúar, og fer
ýmislegt að vanta, éinkum foð--
urvörur, sem nú mun þurfa að
fara að nota í auknum mæli, —
einnig er sums staðar að verða
olíulítið.
Á flestum bæjum hefur sama
og engin beit verið síðan um
nýár og lítil frá því tekið var
í hús um 20. nóvember, til ára-
móta.
Ekki urðu neinir skaðar hér
í janúaróveðrinu og ekki hefur
nema eitt snjóflóð fallið og var
það hér sunnan við bæinn.
Engin mjólk hefur verið flutt
síðan um nýár.
Þetta er orðinn harður vetur
og enn eru eftir 6 vikur. Hvað
menn þola hann langan á svo
reynslan eftir að sýna. ísinn
virðist ekki nærri landi enn
sem komið er, en nú er ekki
hægt að bjarga með flutning-
um á landi eins og í fyrra, ef
hann lokar flutningaleiðum á
sjó, og til fóðurbætisgjafar mun
nú þurfa að grípa, eins og vant
er til fóðurspamaðar, ef eitt-
hvað verulega harðnar. En
hvað h'ður forða af fóðurvör-
um á höfnum hér á Norður- og
Norðausturlandi? Það er ekki
heppilegt búskaparlag, að eiga
afkomu sína undir innfluttu
fóðri, en svo hefur löngum ver-
'ið, sem kunnugt er.
Ég held að við getum tekið
undir með Stefáni frá Hvítadal
— og sagt:
„Og vor mér fannst þú
vikaseint
og víða töf á þinni leið“.
G. Tr. G.
ALMANNATRYGGINGAÞÆTTIR
- 16 -
DÆMDUR FANGIMISSIR BÓTARÉTT
í 65. GR. laganna segir svo: „Ef stökum ákvæðum í 56. gr. Enn-
bótaþegi er dæmdur til fangels- fremur segir svo um fanga í
isvistar eða á annan hátt úr- 65. gr.: „Tryggingastofnunin get
skurðaður til dvalar á einhverri ur þó ákveðið að greiða bæturn
stofnun, skulu niður falla allar ar eða hluta af þeim konu hans
bætur til hans meðan hann og börnum eða einhverjum
dvelst þar“. Sé haim elli- eða þriðja aðila, sem sér um, að
örorkulífeyrisþegi, mega þó bætumar komi þeim að sem
fara fram greiðslur eftir sér- mestu gagni“.
MEÐLAGSGREIÐSLUR ALMANNA-
TRYGGINGANNA
I 79. gr. laganna segir svo: ákveðið hærra, en með óskil-
„Mæður, sem fá úrskurð yfir- getnum bömum mun það vera
valda um meðlag með börnum óþekkt. „Þegar Tryggingastofn-
sínum, geta snúið sér til Trygg- unin greiðir meðlag — á hún
ingastofnunar ríkisins með úr- endurkröfurétt á liendur bams
skurðinn og fengið meðlagið föður — og sama rétt á Iiendur
greitt þar til 16 ára aldurs, hvort framfærslusveit föður og dval-
sem þær ganga í hjónaband eða arsveit móður hefir“. — Sama
ekki. Aldrei greiðir Trygginga- gildir um úrskurð fyrir barns-
stofnunin þó liærri fjárliæð en fararkostnaði, ef ógift móðir
sem nemur barnalífeyri (nú kr. fellir niður vinnu og missir tekj
12.983.28 á ári). En upphæð með ur vegna barnsburðar — allt að
lags hverju sinni fer eftir ákvörð 1000 kr. á mánuði í 3 mánuði
un dómara. í skilnaðarmálum fyrir og eftir bamsburð.
mun algengt, að meðlag sé G. G. Framhald.
Fundurinn um æskulýðs- og íþrótfamál
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á
Akureyri efndu til fundar síð-
astliðið mánudagskvöld, að Hót-
el KEA, um mál sem mjög eru
á döfinni um þessar mundir, en
það eru æskulýðs- og íþrótta-
mál. Frummælandi var Her-
mann Sigtryggsson æskulýðs-
og íþróttafulltrúi bæjarins.
Hann ræddi starfsgrundvöll
og verkefni Æskulýðsráðs, og
sagði að mikið væri starfað í
formi ýmiskonar námskeiða, en
reýht væri að forðast að fara
beint inn á starfssvið hinna 30
æskulýðsfélaga, sem starfandi
væru í bænum.
Mörg þessara félaga starfa af
- íbúðarhús flutt inn
(Framhald af blaðsíðu 1).
kjallara. Sem dæmi um verð og
gæði á einu slíku húsi má nefna,
að 100 ferm. hús 4 herbergi og
eldhús á einni hæð myndi hing-
að komið kosta ca: 460 þús. ísl.
kr. (miðað við 35% toll). Inni-
falið í því verði er m. a. máluð
eldhúsinnrétting með stálvaski
og stórum fjögurra dyra kæli-
og ísskápi, skápar í göngum og
svefnherbergjum, harðviðar-
hurðir, parketgólf á setustofu,
þurrkklefa fyrir þvott, með raf-
magnsblásara o. m. fl.
Sérstök áherzla er lögð á góða
einangrun húsanna og sýna mæl
ingar að einangrun veggja er
mun meiri en krafizt er hér.
Kemur í ljós, að með gatna-
gerðargjaldi (ca. 140 þús.) og
ríflega áætluðum kostnaði við
grunn, lagnir og annan frágang,
kostar húsið tilbúið um 900 þús.
Hægt er að- fá hús þetta mun
ódýrara með því að sleppa ýms-
um aukahlutum, sem eru inni-
faldir í þessu verði“. □
miklum krafti, og sjá fjölda
unglinga fyrir þörfum tóm-
stundaáhugamálum, og skoraði
Hermann á öll æskulýðsfélögin
í bænum að vinna að þessum
Ilermann Sigtryggsson.
málum í samvinnu við Æsku-
lýðsráðið. Aðstæður Æskulýðs-
ráðs til að sinna verkefni sínu
eru erfiðar vegna slæmra hús-
næðisskilyrða, en skilningur
væri hjá forráðamönnum bæjar
ins fyrir úrbótum í þeim efnum.
Síðan vék Hermann að íþrótta
málum í bænum. 5. marz verður
talinn mestur dagur í xþrótta-
sögu Akui-eyrar, en þann dag til
kynnti stjórn ÍSÍ um að hún
hefði ákveðið að Akureyri yrði
miðstöð vetraríþrótta á íslandi.
Hermann skýrði frá aðstöðunni
hér í bænum og nágrenni, sem
þessi ákvörðun ÍSÍ væri byggð
á, og hver væru næstu verkefn-
in, sem framkvæma þyrfti. Um
þær áætlanir var getið í síðasta
tölublaði Dags, og er því óþarfi
að endurtaka þær hér.
Þá vék hann að hinu uggvæn
lega ástandi í íþróttahúsmálum
bæjarins, og taldi að hér vant-
aði 700—800 m2 gólfflöt í
íþróttahúsnæði ef aðstæður okk
ar ættu að vera sambærilegar
því sem eðlilegt er talið hjá
nágrannaþjóðum okkai'. Hann
lýsti þeim vilja sínum að hér
yrði byggt gott og myndarlegt
íþróttahús, með samstöðu allra
þeirra aðila, sem þetta snertii-,
og hann var bjartsýnn um að
sú samstaða myndi nást.
Að lokinni ræðu Hermanns
Sigtryggssonar hófust almennar
umi-æður um fundarefnið og
tóku m. a. til máls Haraldur M.
Sigurðsson, Svavar Ottesen, Sig
urður Óli Brynjólfsson, og gerð
ar voru fjölmargar fyrirspumir
um ýmsa þætti æskulýðs- og
íþróttastarfsins í bænum.
Almenn ánægja vár með það
að hafa fengið tækifæri til að
hlusta á skoðanir Hermanns Sig
tryggssonar á þessum málum,
þar sem hann er þeim mjög
kunnugur, og hefur áhuga fyrir
framgangi þeirra. Q
- Tvær nýjar bækur
(Framhald af blaðsíðu 5)
eftir að bregða sér til annarra
hnatta, og svarað er spurning-
unni um það, hvað ætlunin er
að aðhafast, þegar maðurinn
kemst til tunglsins, en sá áfangi
virðist nú skammt undan.
í lokakafla bókaiúnnar er m.
a. fjallað um, hvort þróaðar líf-
verur finnist á öðrum hnöttum,
og hvort þær séu æðri eða lægri
en maðurinn.'
Bókina hafa íslenzkað Gísli
Halldórsson vei'kfræðingur og
Baldur Jónsson magister. Er
bókin 200 bls. að stærð með 110
myndasíðum, þar af um 70 í
litum. I bókinnj er atriðaorða-
skrá auk safns nýyrða um geim-
siglingar og könnun geimsins.