Dagur - 19.03.1966, Síða 8
8
i
vörp um allt þetta fyrir þinginu
núna. Maður nokkur setti þá
framtíðarsýn, sem við blasir,
fram í eftirfarandi vísu:
Gæfusólin glaðast skín
á götu landsins barna
ef þau hafa alúmín
öl og mink og — Bjarna
FIMM ÞÚSUND VII.LJ-
MINKAR
Árin 1963 og 1964 voru drepnir
rúmlega 5000 villiminkar hér á
landi. Víða hefur verið vel
fram gengið á þessu sviði, en á
öðrum stöðum slælega. Barátt-
an við minkinn kostar árlega
stórfé og er öll sagan í sam-
bandi við innflutning þessa
dýrs og mistök fsléndinga á
mistök ofan, hin raunalegusta
og jafnvel háðuleg. Nú er inn-
flutningur minka og eldi þeirra
á dagskrá í söluin Alþingis. □
ERU RÖKIN ÞROTIN?
Ritstjóri íslendings tekur enn
til máls í aluminíumumræðun-
um í síðasta blaði sinu. Á það
að vera svar til Dags. En nú
bregður svo við, að rökin virð-
ast þrotin en í þeirra stað kom-
inn skætingur um ritstjóra
Dags. Má um það segja, að hver
heldur á málum eins og hann
er maður til.
MISSTU AF FRÉTTINNI
Alþýðumaðurinn er sár yfir því,
að Dagur skyldi segja frá
ákvörðun ÍSÍ um að gera Akur
eyri að landsmiðstöð vetrar-
íþrótta, of snemma! Þetta var
opinberlega tilkynnt á föstudag
hér á Akureyri, en Dagur flutti
fregnina í laugardagsblaðinu —
með upplýsingum og fullu sam-
þykki ábyrgra manna í þessu
máli. Hefði því verið vanræksla
í fréttaþjónustu, að birta ekki
fréttina, enda var hún þá þegar
og miklu fyrr á margra vörum.
Dagur getur hins vegar enga
ábyrgð á því borið þótt Alþýðu
maðurinn o. fl. bæjarblöð
misstu af fréttinni og birtu hana
fyrst viku síðar.
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGARNAR
ERU 22. MAf OG 26.
JÚNÍ NÆSTK.
f VOR fara fram sveitarstjórn-
arkosningar og eru kjördagar
ákveðnir með lögum. 22. maí
(„síðasta sunnudag í maímán-
uði, sem ekki ber upp á hvíta-
sunnudag“) verður kosið í öll-
um kaupstöðum og kauptúnum
sem eru sérstök sveitarfélög þar
sem % íbúanna eru búsettir í
kauptúni. Skulu kosningar á
þessum stöðum vera hlut-
bundnar.
26. júní („síðasta sunnudag í
júní“) verður svo kosið í öllum
öðrum sveitarfélögum en þeim
sem að framan voru talin og
skulu kosningar þar óhlufbundn
ar nema annars sé óskað sér-
staklega. □
NIÐURLAGNING ÞAR
OG HÉR
Þær fréttir berast samtímis, að
Norðurstjaman, hin nýja og full
komna síldamiðurlagningar-
verksmiðja syðra sé lokuð
vegna hráefnaskorts og fjár-
hagserfiðleika, en hér á Akur-
eyri auglýsir Niðursuðuverk-
smiðja Kr. Jónssonar & Co á
Akureyri eftir fólki til starfa
hjá sér.
ins, flytja erindi um mál fatl-
aðra og kynna starfsemi Sjálfs-
bjargar. Væri mjög æskilegt, að
bæði Sjálfsbjargarfélagar og
allir þeir, sem láta sig málefni
fatlaðra einhverju skipta,
hlýddu á þetta erindi.
Samkvæmt lögum Sjálfsbjarg
(Framhald á blaðsíðu 4.)
Leikendur og starfsfólk á Laugaborg.
(Ljósmyndirnar tók N. H.)
ALLT ER ÞÁ ÞRENNT ER
DUGLEGIR AD SMYGLA
SÍÐLA sunnudags hófst toll-
leit í b.v. Marz frá Reykja-
vík og fundu tollþjónar mik-
ið magn af áfengi og vindling
um eða 1308 flöskur og 40
þúsund vindlinga. Er þetta
einn af stærri smyglfundum
í togurum.
Ailt var þetta falið á ein-
um og sama stað í togaran-
um, en það var í tómarúmi
undir bræðslugólfi. Hafði
verið steypt yfir niðurgang-
inn niður í tómarúmið, þá
höfðu strámottur verið lagð-
ar yfir og loks makað grút
yfir allt saman til þess að
dylja felustaðinn betur og
gera hann fráhrindandi fyr-
ir fínt klædda embættis-
menn.
Þegar niður í tómarúmið
kom, þá voru þar heilu hlað-
arnir af áfengiskössum og
vindlingapökkum, — reynd-
ist vera mest af vodka eða
1104 flöskur, þá 144 flöskur
af þýzku gini og 60 flöskur
af genever. Vindlingarnir
reyndust 40 þúsund talsins.
Tollgæzlan hefur lagt hald
allan varninginn. Q
EINAR 80 MILLJÓNIR
Ríkisstjórnin tilkynnir, að hún
þurfi að styrkja veiðiflotann
með „litlum“ 80 milljónum í
formi uppbóta. Þessari upphæð
hyggst stjórnin ná með því að
minnka niðurgreiðslur vissra
vara, og kemur því hækkun
þessi inn í verðlagið innan
skamnis. Með þessu er nýrri
verðhækkunarskriðu hleypt af
stað.
TARSIS KEMUR
Rússneski rithöfundurinn Val-
ery Tarsis, sem sviptur var borg
aralegum réttindum í heima-
landi sínu en sat áður lengi í
fangelsi þar (geðveikrahæli),
mun koma hingað til lands inn-
an skamms. Hafa ritstjórar Tím
ans og Morgunblaðsins gengizt
fyrir komu hans ásamt Stúdenta
félagi Reykjavíkur og Almenna
bókafélaginu. Tarsis hefur gagn
rýnt rússnesk stjómarvöld harð
lega.
NÝTT LEIKHÚS
Á næsta ári verður Leikfélag
Akureyrar 50 ára. Það heldur
uppi einum þætti menningar-
innar í höfuðstað Norðurlands.
Leikhús bæjarins er hins vegar
enn eldra, byggt af stórhug
bindindismanna og fleiri áhuga
manna á sinni tíð. Það færi
vel á því, að minnast á verðug-
an hátt hálfrar aldar afmælis
LA, annað hvort með því að
fyrsta skóflustunga nýs leik-
húss væri tekin þann dag, eða
aðstaða hefði þá verið bætt —
með gagngerðum endurbótum
á gamla leikhúsinu.
FRAMTÍÐARSÝN
f blöðum og á þingi hefur und-
anfarið verið mjög rætt um al-
úmínbræðslu, sterkt öl og
minkaeldi, enda liggja frum-
Helga Garðarsdóttir og Ólafur Axelsson í hlutverkum sínum. —
Alþjóðadagur fatlaðra á morgun
ÞAÐ, er ekki ýkjalangt síðan fatlað fólk tók að bindast samtökum
til.að vinna að framgangi sinna sérmála. Aðeins átta ár eru liðin
frá stofnun fyrstu Sjálfsbjargar-félaganna hér á landi og sjö ár
frá stofnun landssambands þeirra. Síðan hefur mörgu hagsmuna-
máli fatlaðra þokað áleiðis. og margt er í undirbúningi, sem til
þess er ætlað að veita þessu fólki bætta aðstöðu í framtíðinni,
einkum því, sem mjög hefur skerta starfsgetu og á því óhægt með
að starfa á hinum almenna vinnumarkaði.
Eldri eru hliðstæð félög hjá
frændþjóðum okkar á Norður-
löndum og í ýmsum fleiri lönd-
um Evrópu. Sjálfsbjörg gerðist
fyrir nokkru aðili að Norður-
landasambandi þessarra félaga
— Vanföra Nordiska Invalidor-
ganisation — og hefur þegar
haft margvíslegt gagn af því
samstarfi, sem þar hefur tekizt.
Foryztumenn Sjálfsbjargar hafa
ferðazt til þessarra landa og
kynnt sér starfsemina þar og
séð með eigin augum fyrirmynd
ir margs þess, sem hér væri
hægt að gera og ætlunin er að
framkvæma eftir því sem sam-
tökunum vex fiskur um hrygg.
Þá gerðist Sjálfsbjörg á síð-
asta ári aðili að alþjóðasam-
bandi fatlaðra — FIMITIC —
en aðalbækistöðvar þess eru í
Rómaborg. Var þá einnig í
fyrsta skipti minnzt hér á landi
alþjóðadags fatlaðra, og verður
það gert öðru sinni nú í ár. Al-
þjóðadagurinn er hinn 20. marz.
Munu þá hin einstöku félög
minnast hans með almennum
fundum, skemmtifundum eða
kynningarstarfsemi. Þá fær
landssambandið aðild að dag-
skrá útvarpsins næstkomandi
fimmtudagskvöld í tilefni af al-
þjóðadeginum, en þar mun Ólöf
Rikarðsdóttir, ritari sambands-
LEIKFÉLAGIÐ IÐUNN í
Hrafnagilshreppi frumsýndi
gamanleik í þrem þáítum í
Laugaborg sl. fimmtudag. Leik-
ritið samdi Amold Ridley en
þýðingu gerði Emil Thor-
oddsen. , Leikstjórn annaðist
Ágúst Kvaran. Leikendur eru
tíu.
Það er orðinn fastur siður
víða í sveitum, þar sem góð
húsakynni eru fyrir hendi, að
setja árlega á svið einn eða jafn
vel fleiri sjónleiki, og jafnan
með aðstoð æfðra leikhús-
manna. Undir handleiðslu góðra
leikstjóra er þetta góður skóli
fyrir leikfólkið, og gildir slíkt
að sjálfsögðu jafnt um sveit og
bæ. Leikstarfsemi í hinum ýmsu
byggðum, sem mjög hefur auk-
izt hin síðustu ár, er gleðilegur
vottur um hina björtu hlið fé-
lagsheimilanna, og einn þáttur
þess menningarstarfs, sem þeim
var ætlað í upphafi.
Sjónleikurinn, Allt er þá
þrennt er, fjallar um glæpi og
ástir, er gamansamur á pörtum,
en veldur manni litlum heila-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
■— ' :-------------
Stjórnmálafundin-
um frestað
STJÓRNMÁ L A FUNDI
Framsóknarfélaganna er
frestað unr sixm vegna veik-
indaforfalla hjá öðrum fram-
sögumanni. — Verður aug-
lýstur aftur síðar.
- .................. .....-
TANKBÍLAR FLYTJA
MJÓLKINA
í VOR verða gerðar tilraunir
með það í Ámes- og Rangár-
vallasýslu, að flytja mjólk í
tankbiTum frá 100 bændabýlum
til mjólkurstöðvar.
Mjólkurker verða sett upp á
bæjunum, búin kælitækjum,
sem halda mjólkinni við
tveggja gráðu hita. Þarf því
ekki að tæma kerin nema ann-
an eða þriðja hvern dag. Mjólk-
urbú Flóamanna stendur fyrir
smíði keranna, sem verða mis-
stór, upp í 600 lítra. Tankbílar
verða svo notaðir við flutning
mjólkurinnar til vinnslustaðar.
Þessi mál hafa um skeið verið
í athugun í Eyjafirði, en þurfa
mikinn undirbúning. □
SMÁTT OG STÓRT