Dagur - 07.09.1966, Page 1
Herkergis-
pantaÐÍr.
FerSa-
skrifstoian
Túngötu 1.
Akureyri,
Sfmi 11475
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 7. sept. 1966 — 62. tbl.
FerðaskrifstofansíilS/s!
Skipuleggfum
ferðir skauta
á znilli.
Farseðlar með
Flugfél. ísl. og
Loiileiðum.
i
I
Norskur bátur strandaði
í Sandvík við Gerpi
Áhöfninni bjargað af Norðfirðingum og áhöfn Þórs
ar mundir, önnur en þau er að
framan greinir. Jafnframt er
fyrirtækið að stækka húsnæði
sitt. Framkvæmdastjóri Val-
bjarkar h.f. á Akureyri er
Jóhann Ingimarsson. □
KLAKI ENN í JÖRÐ
SUNNAN úr Borgarfirði berast
þær fregnr, að þar sé á suin-
um stöðum ennþá klaki í jörð.
Mun hann naumast hverfa þar
sem kominn er nú september-
mánuður. Svo er þetta t. d. á
Hesti í Borgarfirði og ber gróð-
urinn þess glögg merki. Þar
syðra • var snjólaust og mikil
frost langtímum saman í vet-
ur. □
Alþingismenn Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, ásamt fyrsta varamanni. Fra
vinstri: Hjörtur E. Þórarinsson bóndi og Gísli Guðmundsson, Karl Kristjánsson og Ingvar Gíslason
aJþingismenn. (Ljósmyndirnar tók E. D.)
UM KLUKKAN FJÖGUR í
fyrrinótt strandaði norskur bát
ur með 9 manna áhöfn í Sand-
vík norðan Gerpis. Þar var áður
byggð, en allir bæir nú komnir
í eyði. Sandfjara var þar sem
bátinn bar að landi og rétt við
árós, sem þar er. Bátsmenn
sendu út neyðarskeyti kl. 4.30,
sem varðskip náði þá þegar og
var þá undirbúin leit að skipinu
frá Neskaupstað.
Veður var vont, mikið brim
og stórrigning. Báturinn var
kominn inn fyrir aðalbrimgarð-
jnn þegar björgunarleiðangur-
inn frá Neskaupstað og skips-
menn af varðskipinu Þór, komu
á vettvang á tíunda tímanum í
gærmorgun. Höfðu leiðangurs-
menn gengið yfir fjallið, því
bílvegur er enginn yfir Sand-
víkurskarð og ólendandi sökum
brims og sú leið því ófær.
Fljótt og vel tókst að bjarga
mönnum í land og voru þeir
allir óskaddaðir. Þeir voru á
leiðinni til byggða um hádegis-
bilið í gær, þegar blaðið hafði
samband við fréttaritara sinn í
Neskaupstað, Hauk Ólafsson.
Þó urðu nokkrir aldraðir skips-
brotsmenn eftir í skipsbrots-
mannaskýli, sem slysavarnafé-
lög i Neskaupstað létu reisa á
sínum tíma í Sandvik og kom
nú að góðu gagni í fyrsta sinn.
Um 40 skip liggja í höfn í
Neskaupstað, enda alger land-
lega síldarskipanna þessa daga
vegna óveðurs.
Síðari fréttir: Skipbrotsmenn
komu til Neskaupstaðar kl. 2.30
í gær. Skip þeirra er gamall
iínuveiðari Gesina, og var á
reknetum. Ætlaði það til Seyðis
fjarðar en síðan heim með góð-
an farm. Það lá rétt í sandinum
og virtist óskemmt. □
Valbjörk smíðar húsgögn í 120
herbergi Sfúdenfagarðanna
ÞAÐ vakti nokkra athygli fyrr
á þessu ári, að mikið af hús-
gögnum hins nýja hótels Loft-
leiða í Reykjavík var flutt norð
an frá Akureyri. Þau húsgögn
voru smíðuð hjá Valbjörk h.f.
Nú hefur þetta sama iðnfyrir-
tæki tekið að sér smíði á hús-
gögnum í báða stúdentagarð-
ana í Reykjavík, samtals 120
herbergi. Er þar um að ræða
svefnbekki, skrifborð, stóla,
bókahillur og skápa. Verður
hluti þessarar miklu pöntunar
afgreiddur innan skamms en af
gangurinn eftir næstu áramót.
Það er ánægjulegt, að enn
eitt iðnfyrirtækið á Akureyri
skuli vinna sér nýja markaði
fyrir framleiðsluvörur sínar.
Um 30 manns vinna nú hjá
þessu fyrirtæki og hefur mikil
verkefni með höndum um þess
fyrsta forseta og fór að öllu
leyti hið bezta fram, var engin
halielujasamkoma, heldur vett-
vangur hinna frjálsu skoðana
og umræðna um hina mörgu
þætti landsmála og byggðamála
og voru umræður í samræmi
við það.
Emkenndist af baráttuvilja fyrir
stefnu Framsóknarflokksins
Hjörtur E. Þórarinsson for-
maður kjördæmissambandsins
gerði grein fyrir störfum stjórn
ar og ennfremur reikningum í
fjarveru gjaldkera. Fulltrúar
fengu í hendur rit sambands-
ins, sem nýkomið er út. Menn
fögnuðu þessu riti, batnandi
fjárhag sambandsins og þökk-
uðu störf stjórnarinnar.
Svo sem venja er, var full-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
*
NÝ ALYKTUN kaupfélags-
stjóra á Austurlandi hljóðar
svo:
„Fundur kaupfélagsstjóra á
Austurlandi haldinn að Hall-
ormsstað 28. ágúst 1966 átelur
harðlega þá ákvörðun stjórnar-
valdanna að ætla sér að selja
eða leggja tvéim skipum Skipa-
úlgerðar ríkisips án þess að
tryggð séu skip í staðinn.
• Álítur fundurinn að í stað
þess að draga úr strandferða-
þjónustunni verði að bæta hana
með myndarlegu átaki og bend-
ir í því saríibandi á eftilfarandi:
1 1. Að byggja myndarlegá
vöruskemmu í Reykjavík og
styðja að bættum húsakosti af-
greiðslunnar úti á laridi.
2. Byggja ný hentug skip til
ferþega- og vöruflutninga.'
3. Nota nýjustu tækni við út
og uppskipanir og minnir í því
sambandi á fyrirmjmd stór-
bættrar þjónustu við sements-
flutninga.
Fundurinn telur að kaup
strandferðaskipanna hafi verið
stórkostlega myndarlegt átak á
sínum tíma, og ekki sæmandi
nú við vaxandi þörf. á flutning-
um að sporið sé stigið aftur á
bak“. . □
VEIÐÍFÉLAG UM
REYKJAKVÍSL
LANDEIGENDUR að Reykja-
kvísl í S.-Þmgeyjarsýslu héldu
nýlega undirbúningsfund að
veiðifélagi, sem ákveðið er að
stofna. En Reykjakvísl fellur í
Laxá skammt frá Laxamýri, og
er vatnasvæði hennar allstórt.
Ber þar að nefna Þverá, Helguá,
Langavatn, Geitafellsá, Kringlu
gérðisá og Kringluvatn austan
víð Kasthvamm í Laxárdal.
En í Reykjakvísl eru tveir
fossar mcð stuttu millibili,
kenndir við Þverá í Reykja-
hverfi, allháir.
Bændurn bauðst samningur
um laxastiga gegn 10 ára veiði-
leyfi og er það til athugunar.
En talið er, að kostnaður við
laxastiga þessa verði allt að
einni mjllj. kr. □
KJÖRDÆMISÞÍNG Framsókn
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, sem haldið var á
Laugum í Reykjadal dagana 2.
cg 3. september, hið sjöunda í
röðinni, var fjölsótt. Þar mættu
fulltrúar úr nálega hverri sveit
kjördæmisins auk stjórnar sam
bandsins, alþingismanna og
nokkurra fleiri gesta, en meðal
þeirra má nefna Andrés Kristj-
ritstjóra.
Þetta sjöunda þing kjördæm-
issambandsins starfaði undir
stjórn Bernharðs Stefánssonar
Starfsmcnn kjördæmisþingsins. Fremri röð frá vinstri: Jórt Jóns-
son, Bernharð Stefánsson og Þórarinn Kristjánsson. Aftari röð:
Indriði Ketilsson og Kristinn Sigmundsson.
Ólafsfirðingarnir á kjördæmisþinginu voru þeir Tryggvi Jónsson
og Gísli J. Gíslason.