Dagur - 07.09.1966, Síða 8

Dagur - 07.09.1966, Síða 8
s SMÁTT OG STÓRT Hvað um hermennina, ef til af- vopnunar kemur? ■HVAÐA horíur eru á því að hægt verði að þjálfa og endur- Oiennta það vinnuafl, sem losna •nawn ef til afvopnunar kemur? Bandaríkin, Sovétríkin og 18 Evrópuríki hafa nú veitt svör vjð gpumingaskrá, sem send var út af tveimur sérstofnunum NÝR SKÓLAMEIST- ARIí YETUR STELNDÓR STEINDÓRSSON menntaskólakennari á Akur- eyri mun á þessu skólaári gegna störfum skólameistara Sameinuðu þjóðanna, Alþjóða- vinnumálastofnuninni (ILO) og Efnahagsnefndinni fyrir Evrópu (ECE). OIl svara ríkin á einn veg, að þ'að m.undi hafa jákvæð áhrif í flestum tnvikúm að koma á af- vopnun. Sú aðlögun, sem nauð- synleg verður á vinnumarkað- inum, er lítilvæg í samanburði við þau vandamál, sem skapazt hafa af hagræðingu landbúnað- arins, flóttanum úr dreifbýlinu og sjálfvirkni iðnaðarins. Fjórar ástæður liggja til þess, að vandinn er einfaldari en margir halda: 1. í sambandi við vélvæðingu varnarmálanna hljóta æ fleiri liðsforingjar og sérfræðingar menntun sem einnig kemur að notum í borgaralegu lífi. í flest um tilvikum verður einfalt að breyta herriaðarlegum mennta- stofnunum í borgaralegar ménntastofnanir. 2. Á seinni árum eru einstök lönd í æ meiri mæli farin að hjálpa starfsmönnum varnar- mála til að taka próf, sem jafn- framt veita þeim aðstöðu til borgaralégra starfa sem iðnað- armenn, tæknifræðingar, verk- fræðingar o. s. frv. Þetta gerist ýmist vegna þess að herþjón- usta þeirra krefst slíkrar þjálf— unar eða til að veita þeim „aðra möguleika“. 3. í flestum löndum er lögð mikil áherzla á tæknikunnáttu, sem hermenn og sérfræðingar afla sér áður en þeir hefja her- þjónustu. Þess vegna er það al- títt, að þessir menn fá hjálp bæði til að halda við kunnáttu sinni og auka við hana. 4. Hvorki í löndum með langa eða stutta herþjónustu munu skapast veruleg vandamál hjá þessum hluta hermannanna. Þar sem herþjónusta er löng fá menn venjulega framhalds- menntun, sem bæði miðast við borgaralegt líf og hermennsku. Skortur á vinnuafli. í flestum svaranna er vísað til þeirrar eklu á faglærðum (Framhald á blaðsíðu 7). AÐ BIRTA NOFN Ennþá einu sinni hefur verið skorað bréflega og munnlega á Dag að birta nöfn þeirra ógæfu sömu nianna, sem víkja af vegi heiðarleikans í samfélagi okkar og gerast brotlegir við lögin. Og enn hlýtur blaðið að gefa sömu svör og áður í þessu efni. En þau eru þessi. Blaðið telur, að birting á nöfnum nefndra manna sé í sjálfu sér refsing, stundum jafnvel meiri refsing en dómsvaldið kveður á um — og það yrði viðbótarrefsing ef nöfn viðkomanda væru birt. Þá refsingu hefur blaðið neitað að leggja á fólk nema til komi við- urkenndar reglur um slíkt, sem þá giltu jafnt fyrir alla og blöð- in treystu sér til að fylgja hlut- drægnislaust. Þegar þær reglur eru fyrir hendi mun Dagur ekki víkja sér undan þeim. MARGRÉT DANA- PRINSESSA TRÚLOFLÐ Forsætisráðherra Danmerkur hefur tilkynnt, að Margrét prinsessa og ríkisarfi Danmerk- ur hygðist trúlofast frönskum greifa að nafni Henri Marie Jean André de Laborde de Monpezat. FuIIu nafni heitir prinsessan Margrette Alexand- ine Þórhildur Ingrid. Lengra er þetta nú ekki. STJÓRNIR OG RAÐSMENN Kunnur hagfræðiprófessor lét eitt sinn orð falla á þá leið, að stjórnir hinna ýmsu fyrirtækja vanræktu hlutverk sitt og létu framkvænidastjóra sinn aða ráðsmann hafa veg og vanda af viðskiptamálum milli árs- uppgjörs. Þegar ungir menn og lítt mótaðir, e. t. v. nýkomnir frá prófborði, skuldugir og hús- næðislausir ættu í hlut sem ráðsmenn, reyndi eftirlitsleys- við Menntaskólann á Akureyri í forföllum Þórarins Björns- sonar. Þórarinn Björnsson skóla- meistari liggur nú í sjúkrahúsi en er á batavegi. Hann mun taka sér hvíld frá störfum í vetur og dvelja í öðrum lands- hluta á meðan hann safnar kröftum á ný. Dagur óskar honum góðs bata og skóla hans velfarnaðar. □ ÁGÚST SIGURÐSSON VALLANESPRESTUR ÞANN 28. fyrra mánaðar fór fram prestskosning í Yallanes- prestakalli, og var umsækjandi aðeins einn, séra Ágúst Sigurðs son, áður á Möðruvöllum. At- ■kvæði voru talin í gær á skrif- stofu biskups. 417 manns voru á kjörskrá, af þeim hlaut umsækj andinn 205, auðir seðlar voru 9 en ógildir tveir. Kosningin er lögmæt og séra Ágúst því rétt- kjörinn prestur til Vallanes. Verður nú að kjósa prest að Möðruvöllum. Q Frá slarfsemi Framsóknarfélaganna í Norður- FRAMSÓKNARFÉLAG N,- Þingeyinga, austan Axafjarðar- heiðjp- þélfeaðajjfund sinn í Þórs 1 höfþ 4Í (iJúltrVbru þar kosnir þrír fulltrúar á kjördæmisþing. Hinh 27. ágúst stóð félagið fyrir héraðshátíð” í Þórshöfn. Gísli Guðmundsson alþingismaður flutti þar ræðu og Jón Gunn- laugsson gamanleikari skemmti samkomugestum og að lokum var stiginn dans. 1 stjórn félagsins eru nú: Sig urður Jónsson Efralóni formað ur, Óli Halldórsson Qunnars- stöðum, Eggert Olafsson Laxár dal, Þórarinn Kristjánsson Holti og Sigtóyggur Þorláksson Svalbarði. Framsóknai’félag N-Þingey- inga, vestan heiðar hélt aðal- fund á Kópaskeri 30 ágúst og kaus fimm fulltrúa á kjördæm- isþing. í stjórn þess félags eru nú: Jóhann Helgason Leirhöfn, Björn Haraldsson Austurgörð- um, Hóimsteinn Helgason Rauf arhöfn, Þorsteinn Steingríms- sop Hóli og Björn Benedikts- son Sandfellshaga. Blaðið óskar frétta af starf- semi Framsóknarfél. sem víðast að og birtir þær með ánægju. GARÐAR LOFTSSON SÝNIR Á DALVÍK LAUGARDAGINN 10. septem- ber kl. 15 opnar Garðar Lofts- son málverkasýningu í Barna- skólanum á Dalvík. Garðar sýn ir þar yfir 100 myndir, vatnslita og olíumálverk, sem ná yfir meir en 20 ára tímabil eða frá 1945—1966. Málverkin eru víðsvegar að, svo sem úr Svarfaðardal, frá Akureyri og grennd, Mývatns- sveit, Þingvöilum og Þórshöfn svo eitthvað sé nefnt. Þetta er fimmta sjálfstæða sýning Garð- ars og jafnframt sú stærsta. Þetta er sölusýning. Sýningin stendur frá 10. til og með 18. sept. og opin dag- lega frá kl. 14—22. Q ið mjcg á heiðarleika þeirra, — stundum um of. — Eflaust er þetta rétt og myndi eftirlit og meiri stuðningur við ráðsmenn ina oft koma í veg fyrir ýmis- konar ógætni — jafnvel fjár- glæfra. „LEGÚFÆRÍN“ í HVALFIRÐI Þeir, sem ekið hafa Hvalfjarð- arveg nú í sumar og sjá þau hernaðarmannvirki, sem þar er verið að gera, minnast yfirlýs- inga okkar kæru ríkisstjórnar um, að það þyrfti að búa til ofurlítil „Iegufæri“ í Hvalfirði og lagfæra annað smávægilegt. En vegfarendum sýnist, að þar sé meira gert, sem sé það, að byggja mikla og fullkomna kaf-1 bátakví, eins og óttast var og fram kom í umræðum en var harðlega mótmælt. VIÐSKJPTI NÆTUR OG DAGA Fyrir fáum vikum fluttu til Hafnarfjarðar erlend hjón í at- vinnuleit. Eftir nokkra athug- un á atvinnulífinu fannst mann inum heppilegast að koma á fót kynningastöð fyrir konur og karla, með hjónaband fyrir aug um. Aðsókn reyndist bærileg og ört vaxandi svo að ekki var gerður munur dags og nætur, enda mörgum mál að komast í hjónaband. Várð af þessu ónæð issamt og var það kært. Hinni ungu kynningarstöð fyrir karla og konur méð hjónaband fyrir augum hefur því verið lokað. ÞRJÁR STJÖRNUR Þegar frómt ílialdsfólk sneri ásjónum sínum upp til síns stjörnuhimins eftir bæjarstjórn arkosningarnar í vor, sá það aðeins þrjár stjömur í stað fjögurra áður, og sýndist skinið í daufara lagi. Þar voru nú eft- ir Jón G. Sólnes, Árni Jónsson cg Jón Þorvaldsson. Stjarna bankastjórans logaði skærast. Bæjarfélagið leysti hann fljót- lega frá forsetaembættinu. Þar sem Árni var á festingunni, var lítið ljós, nánast endur- skin frá stórum kúabópi á Galtalæk. En nú eiga kýr ekki lengur upp á pallborðið, ekki heldur kýr ríkisstofnana. Dauðadómur hefur verið kveð- inn upp yfir þessum fósturbörn um Árna á Galtalæk. Þar sem þriðja stjarnan, með nafni Jóns Þorvaldssonar, hékk áður, er nú ekkert ljós lengur. Jábræð- ur hans í bæjarstjórninni settu fyrir hann þá gildru að bjóða honum að þjóna gömlu fólki í Skjaldarvík og vera þar staðar- ráðsmaður. Jón féll i gildruna og situr þar fastur. GÓÐ BLEIKJUVEHH Um þessar mundir er góð bleikjuveiði í mörgum norð- lenzkum ám, sem fæstar hafa verið gjöfular í sumar en flest- ar valdið vonbrigðum stang- veiðimanna. Haustbleikjan er smá en skenimtileg ef viðeig- andi veiðarfæri eru notuð.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.