Dagur - 02.11.1966, Side 2
2
Rafveiiustjórinn, Knútur Otter
stedt sendir eftirfarandi:
„Út af grein í „Fokdreifum“
í Degi 29. okt. sl. vil ég upplýsa
að skurður sá, sem grafinn var
í Þórunnarstræti milli Bjarka-
stígs og Hamarstígs, er Raf-
veitu Akureyrar með öllu óvið
komandi.
Vegna framkvæmda við hol-
ræsi í Þórunnarstræti var far-
ið fram á það við rafveituna að
fá að færa háspennustreng
þann, sem þarna liggur frá
gamalli tíð, og var það leyfi að
sjálfsögðu veitt, en rafveitan
fór jafnframt fram á að streng-
urinn yrði færður á endanleg-
an stað þ. e. í væntanlega gang
stéttarlínu, en eins og íbúum
við götuna mun nú vera kunn-
ugt, er fyrirhugað að breikka
götuna til vesturs um 3,5 metra.
Án fyrirskipunar rafveitunn-
ar var síðan grafið ofan af
strengnum og síðan hefir stað-
ið á því að viðkomandi aðilar,
sem hafa á hendi þessar fram-
kvæmdir, töluðu við húseig-
endur vestan götunnar um það
að þeir myndu missa þessa 3,5
m. af lóðum sínum svo og að
leggja þyrfti áðurnefndan há-
spennustreng í lóðum þeirra
þangað til gatan yrði breikkuð.
JÉg vil ennfremur upplýsa það
að við erum einnig lítt hrifnir
af því að láta háspennustrengi
okkar liggja svo lengi, sem hér
hefir verið gert, óvarða fyrir
ágangi og hefðum heldur kosið
að beðið hefði verið með að
grafa ofan af strengnum þangað
til gengið hefði verið frá þess-
um málum við lóðareigendur
vestan götunnar.
Þetta hefði „heimilisfaðir“
getað kynnt sér með því t. d. að
snúa sér beint til mín“.
Knútur Otterstedt.
„MEÐ LÖGUM SKAL LAND
BYGGJA---------------“
Það er sjálfsagt margt, sem
litli höfuðstaðurinn norðan-
lands, getur lært af þeim
„stóra“ syðra,----eða a. m. k.
ætti það svo að vera. Á eitt
slíkt vil ég minnast hér: Það er
umhyggja fyrir börnum á síðr
kvöldum. Frásagnir og góð við
töl í útvarpi minna á reglur um
útivist barna á kvöldin og hvað
í Reykjavík er gert, til þess, að
þeim nauðsynja fyrirmælum sé
hlýtt. í þessu blaði og víða hér
hefur oft verið á það minnzt,
hver hætta getur verið því sam
fara, að börn, jafnvel smábörn,
séu að þvælast og ólátast úti
löngu eftir að þau, lögum og
reglum samkvæmt, ættu að
vera komin heim og jafnvel í
bólið sitt. Auk þess, sem það er
engum hollt, að virða að vettugi
settar reglur, eru þess mýmörg
dæmi, að einmitt í solli síðkvöld
anna leiðast börn og unglingar
til margs ills, — til óknytta, er
síðar leiða til afbrota og glæpa
verka.
Mér skilst, að í Reykjavík sé
ákveðin, samtakahreyfing í þá
. átt að taka fyrir ósómann,
byrgja brunninn, og árangur
virðist nú þegar allgóður. Tak-
ist samvinna með foreldrum,
barnaverndarnefnd, kennurum
og lögreglu um þessi mál, er
öruggt um mikla bót frá því,
sem nú er hér í bæ og jafnvel
fullnaðarsigur á ósómanum.
En eins og nú horfir virðast
•þessi samtök engin, og aðilar
án þeirra næsta máttvana. Þótt
sumir foreldrar skilji nauðsyn
þess, að börn þeirra hlíti þess-
um reglum — alls vegna — og
berjist við að ná börnum sín-
um inn á réttum tíma, kostar
það oft mörg orð, óvild og reiði,
þegar börnin í næsta húsi leika
lausum hala áfram, oft með
háðsyrði og ókurteisi gagnvart
þeim, sem inn hverfa, — börn-
um og forráðamönnum þeirra.
Stundum kenna börnin foreldr
unum um, þetta sé bara frekja
úr þeim, sjá ekki og trúa stund
um ekki, að um nokkra mikils-
verða, almenna reglu sé að
ræða. Fengju foreldrar öðru
hvoru stuðning utan frá, t. d.
með áminningu í útvarpi, frá
lögreglu, eða viðreisnarstjórn-
inni sjálfri, gæti það orðið þeim
velviljuðu ómetanleg hjálp.
Þótt kennarar minni nemendur
sína á reglurnar, þótt lögreglu-
þjónn segi einu og tveimur að
fara nú heim til mömmu, nær
það skammt, ef samtökin vanta.
Eðlilegt sýnist, að barnavernd-
arnefnd hafi forgöngu í þessu
máli, reyni að efna til samtaka,
t. d. með viðtali með bæjar-
stjórn og lögreglu og síðan með
almennum borgarafundi. Mun
þetta ekki Akureyringum fært
eins og Reykvíkingum? Nauð-
syn aðgerða er ekkert efamál.
31. okt. 1966
Jónas í Brekknakoti.
SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
vík, að hún ber sig ekki í sam-
keppni við óhindraðan innflutn
ing. Stjórnin skipaði fyrir
nokkru nefnd til að athuga
þetta mál og flytja síðan á Al-
þingi frumvarp þess efnis, að
þessi grein iðnaðarins skuli fá
verðuppbót frá sjávarútvegin-
um, sem síðan verður að fá
verðuppbætur úr ríkissjóði. Á
að leggja skatt á innflutt veiðar
færi til að fá fé í verðuppbót
handa iðnaðinum ca. 3 millj. kr.
Ýmsum finnst einfaldara að
greiða þessa uppbót til Hamp-
iðjunnar beint úr ríkissjóði
enda hefir einn nefndarmanna,
Árni Vilhjálmsson prófessor,
lagt til, að þannig verði að farið.
BÓKAMIÐLUN
Rétt er að vekja athygli á því,
að hér á Akureyri, nánar tiltek
ið í Lönguhlíð 2 í Glerárhverfi
fer fram bókamiðlun, kaup og
sala eldri bóka og tímarita. Enn
finnast gamlar bækur á háloft-
um eða í kössum, sem einlivern
daginn þarf að færa til eða fjar
lægja. Leiðin liggur oft upp á
öskuhaugana með þetta gamla
dót. En nú er athugandi, hvort
ekki er betra að skipta á hinuni
ýmsu heftinn, kannski ósam-
stæðum og bókum eða heftum
annarra rita, sem e. t. v. er
áhugi að eiga samstæð en vant-
ar í meira eða minna. Margir
eru kaupendur gamalla bóka
og þess ættu menn að minnast.
Sími bókamiðlunarinnar er
12331 og sá, sem hana annast
er Jóhannes Óli Sæmundsson,
fyrrum námsstjóri.
MEIRA UM ÞINGSÆTI
MAGNÚSAR
Dagur vill hér með leiðrétta
það, sem sagt var af vangá í
blaðinu, að Sjálfstæðisflokkur-
- RÖNG STEFNA
(Framhald af blaðsíðu 4).
einstaklingar verða að vinna
fleiri klukkustundir á degi
hverjum til að afla sér og
sínum lífsUauðsynja. Hajjpa-
og glappastefnan er orðin
skjaldarmerki núverandi
ríkisstjónar inn á við, auð-
mýkt og jafnvel undirlægju-
háttur út á við. Slíkri stjórn
ber að hafna í næstu kosn-
inn gæti sett Magnús fjármála-
ráðherra á „raðaðan iandlista“.
Þetta var svo til skamnis tíma
í kosningalögum, en uppstill-
ing á röðuðum landlista mun
hafa verið afnumin í lögimi
þcim, er nú gilda. Einföld trygg
ing á uppbótarsæti Magnúsar,
ef hann þyrfti slíks með, yrði
því að nægja, nema Sjálfstæðis
menn vilji setja hann í efsta
sæti listans, eins og Alþýðu-
maðurinn leggur til.
-SPURT OG SVARAÐ
(Framhald af blaðsíðu 1)
kenndi, þessi löglærði og að
ýmsu leyti skynsami óhappa-
maður í íslenzkri stjómmála-
forystu, sem búið er að segja
honum margsinnis undanfarin
ár, að það er ekki einfalt mál
eða sjálfsagt að framkvæma
hagfræðikenningar iðnaðarstór
veldanna hjá hinni fámennu ís-
lenzku þjóð og við þá stað-
hætti, sem hér ríkja. En sá
skilningur eða viðurkenning,
sem hér kemur fram, er búin
að vera helzt til lengi á leið-
inni. Sagan endurtekur sig.
Bjami Benediktsson var líka
lengi að gera sér grein fyrir því,
að það væri rétt, sem Hermann
Jónasson sagði fyrir 10 árum,
að gott væri fyrir ríkisstjóm
og engin óvirðing gagnvart AI-
þingi, að hafa samráð við ís-
lenzk stéttarsamtök um lausn
efnahagsmála. Q
- KJÖRDÆMISÞING
(Framhald af blaðsíðu 1).
mest um 40 á dag en þó margir
lítið.
Hlé hefur verið á síldveiðun-
um og óhemju mikið að gera
hjá Flugfélagi íslands, þar sem
fjöldi sjómanna hélt heimleiðis
á meðan. Þessi mikla umferð
minnir enn á þörfina á bættri
aðstöðu á Egilsstaðaflugvelli.
Þar er flugstöðvarhús búið að
vera á þriðja ár í smíðum og er
enn ekki lokið. Húsið er aðeins
fokhelt og í lélegu gripahúsa-
ástandi. Ennfremur þarf að
endurbæta aðalflugbrautina
með varanlegu slitlagi. N. S.
Oskum eftir að kaupa
notaða BARNAKERRU
við vægu verði.
Ujjpl. í síma 4-11-26.
Dúmbó-sextett og Steini frá Akranesi.
/Eskulýðsdansleikur í Laugarborg
UNGMENNASAMBAND Eyja
fjarðar efnir til æskulýðsdans-
leiks í samvinnu við Samband
eyfirzkra kvenna í Laugar-
borg n. k. laugardag, 5. þ. m.
klukkan 9 e. h. Hin vinsæla
hljómsveit Dúmbó-sextett og
Steini frá Akranesi koma norð-
ur og sjá um fjörið.
Þessi dansleikur, sem ætlað-
ur er æskufólki 14 ára og eldra,
er liður í þeirri viðleitni Ung-
mennasambandsins, að halda
uppi menningarlegu skemmt-
analífi. Þeirri reglu verður
stranglega fylgt, að áfengi verði
algjörlega útilokað frá dans-
leiknum og eftirlit verður haft
með því að fólk fari ekki inn á
dansstað öðruvísi en snyrtilega
klætt.
Fólk er minnt á að sýna full-
gild nafnskírteini þ. e. með
mynd. Aðgöngumiðapantanir
og forsala þeirra verður í Bóka
búð Jóhanns Valdimarssonar
Akureyri sími 12734 frá fimmtu
deginum 3. þ. m. — Sætaferðir
HERBERGI ÓSKAST
til leigu nú þegar.
Upjil. í síma 1-10-55.
Stefán Asgrímsson.
ÍBÚÐ ÓSKAST
2ja til 3ja herergja íbúð
óskast til leigu.
F y r irf ramgre iðsl a.
Tobías Jóhannesson,
sími 2-10-75.
Tveggja eða þriggja her-
bergja ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu, sem fyrst.
Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Ujjpl. í síma 1-18-30
á daginn og 2-12-86
á kvöldin.
Ungur, ábyggilegur mað-
ur óskar að taka á a
LEIGU HERBERGI
eða litla íbúð.
Vinsamlegast hringið í
sínia 1-28-17.
(Radiovinnustofa)
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
verða frá Ferðaskrifstofunni
Túngötu 1 Akureyri. Q
TILBOÐ ÓSKAST
í bifreiðina A—1788,
í því ástandi sem hún er
í eftir veltu. Tilboð skilist
til Svavars Jóhannssonar,
Spítalaveg 11.
DODGE SENDIFERÐA-
BIFREIÐ, árg. 1952,
er til sölu til niðurrifs,
annað hvort eins og hún
er, eða í pörtum.
Upplýsingar veitir
Ólafur Héðinsson,
Hrafnagilsstræti 23.
TIL SÖLU:
Nýlegur Bronco,
ný Austin Gipsy og
Renault R 8, árg. 1965.
Góðir greiðsluskilmálar.
Kristján P. Guðmundsson
Sími 1-29-19.
Heimasími 1-18-76.
*:H:*S:t5E:S;.T
ÓSKILALAMB
í haust var mér undirrit-
uðum dæmt lamb í slátur-
húsi Svalbarðseyrar, með
marki: vaglskora fr. h. og
biti fr. v. Lamb þetta á
ég ekki. Getur því réttur
eigandi helgað sér það, •
og- vitjað verðsins gegn
greiðslu á kostnaði á þess-
ari auglýsingu.
Tryggvi Sigmundsson,
Ytra-Hóli I, Öng.hr.
S AUÐFJÁRBÖÐUN!
Ákveðið er að sauðfjár-
böðun fyrir Akureyrar-
umdæmi fari fram við
skilarétt bæjarins laugar-
daginn 5. þ. m. fyrir alla
fjáreigendur innan Gler-
ár, sem þess óska. — Þeir
utan Glerár og á býlunum
efra, sem hefðu hug á að
nota sér þægóðu aðstöðu,
sem þarna er fyrir hendi,
hafi samband' við undir-
ritaðan sem fyrst.
Anton Jónsson, Naustum.
Sími 1-29-58.
xngum.