Dagur - 17.12.1966, Síða 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
■kriistofan
Túngötu 1.
Akureyri,
Bíml 11475
XLIX. árg. — Akureyri, laugardaginn 17. desember 1966 — 90. tbl.
Ferðaskrifsfofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
íerðir skauta
á milli.
Farseðlar með
FlugfóL Í»L og
Loftleiðum.
Verðbólgufjárlögin miklu fyrir
1967 afgreidd með greiðsluhaila
FJÁRLÖGIN fyrir 1967 voru
afgreidd frá Alþingi síðastlið-
inn fimmtudag. Niðurstöðutala
þeirra er 4711 millj. kr. Þar við
má svo bæta umsetningu vega-
sjóðs, áætlaða 264 millj. kr..
sjóðs, áætlaðar 264 millj. kr.
aðeins áætlað til októberloka
næsta liaust. Vantar þar 50
millj. kr. í fjárlögin.
Er niðurgreiðsluupphæðin
samt talin á áttunda hundrað
milljóna króna. Ekkert er áætl-
að fyrir aukinni aðstoð við
sjávarútveginn á næsta ári, en
ótrúlegt er, að komizt verði hjá
nýjum útgjöldum á því sviði.
Ekkert er lieldur áætlað fyrir
launahækkunum á næsta ári.
Einn af ráðherrunum sagði
nýlega í Faxaflóasjónvarpinu,
að tryggður væri greiðslujöfn-
uður fjárlaga á næsta ári. En
í fjárlögunum er raunverulega
70 millj. kr. greiðsluhalli nú
þegar, þar sem kunnugt er um
ákveðnar gjaldaupphæðir, sem
vantar þar. Munar þar mest
tilnefndar 50 millj. kr., sem
vantar vegna niðurgreiðslna.
Felld var tillaga Framsókn-
armanna um að standa við lof-
orð samgöngumálaráðherra um
(Framhald á blaðsíðu 5).
« Reykvíkingar sækja nijólk, skyr, smjör og rjóma til Akureyrar. Myndin sýnir tankbíl að »
sunnan, lestaðan mjólk við Mjólkursamlag KEA. (Ljósm.: G. P. K.)
y s>
Framsoknarflokkuriim átti í gær hálfrar aldar afmæli
verður haldin síðar á þessum vetri
En afmælishátíðin
í GÆR, 16. desember, voru 50
ár liðin frá stofnun Framsókn-
ar flokksins. Hann var formlega
stofnaður, sem þingflokkur með
því nafni, 16. desember 1916. —
Átta alþingismenn gengu í
flokkinn á stofnfundinum og er
nú aðeins einn þeirra á lífi,
Þorsteinn M. Jónsson, fyrrver-
andi skólastjóri og forseti bæj-
Ólafur Briem, fyrsti formaður
Framsóknarflokksins.
Sigurður Jónsson, fyrsti ráð-
lxerra Framsóknarflokksins.
arstjómar á Akureyri. Fyrsti
formaður flokksins var kjörinn
Ólafur Briem, bóndi á Álf-
geirsvöllum í Skagafirði. í hópi
utanþingsmanna, sem einnig
stóðu að stofnun flokksins 1916
ber hæst nafn Jónasar Jónsson-
ar frá Hriflu. Fyrsti ráðherra
Framsóknarflokksins var Sig-
urður Jónsson bóndi í Yzta-
felli. Hann var atvinnumálaráð-
lierra í samsteypustjórn Jóns
Magnússonar 1917—1920.
Landsblað flokksins, Tíniinn,
byrjaði að koma út á öndverðu
ári 1917 og Dagur hér á Akur-
eyri 1918.
Flokkurinn hélt fyrsta flokks
þing sitt á Þingvöllum sumarið
1919 og mættu þar um eitt
hundrað manna víðsvegar af
landinu. Annað flokksþingið
var haldið 1931 og upp úr því
komst það skipulag á starfsemi
flokksins, sem landsflokks, er
haldizt hefur síðan í meginat-
riðum.
Hér á Norðurlandi stóð vagga
samvinnufélaganna og ung-
mennafélaganna, sem fyrir og
eftir aldamótin beittu sér fyrir
því, að efla samtakamátt ís-
lenzkrar alþýðu og glæða trú
hennar á þjóðernisleg verð-
mæti.
Framsóknarflokkurinn er arf
taki þessara aldamótahreyfinga
en einnig að verulegu leyti af
norðlenzkri rót runninn. Það
má því vera Norðlendingum
sérstakt fagnaðarefni, að þessi
stjómmálasamtök, — sem svo
margir norðlenzkir menn liafa
staðið að og stutt með ráðuin
og dáð fyrr og síðar, — skuli
hafa orðið svo langlífur í land-
inu, sem raun ber vitni, og enn
í dag vera vaxandi flokkur kyn
slóðanna, jngri og eldri, og þó
umfram allt flokkur hinna
ungu, sem eiga að erfa landið
og vilja halda áfram að byggja
upp þjóðlega og óháða, skap-
andi pólitík á íslandi fvrir ís-
lendinga með almannahag fyrir
augum.
Þeir eru orðnir margir hinir
þjóðkunnu Norðlendingar, sem
staðið hafa í fararbroddi Fram
Jónas Jónsson, mikilvirkasti
forgöngumaður tlokksins.
Eysteinn Jónsson, núverandi
formaður Framsóknarflokksins.
sóknarflokksins á undanförn-
um árum.
Fyrsti formaður flokksins
var Norðlendingur og fyrsti ráð
herra einnig. Meðal flokksfor-
manna síðari tíina má nefna
Norðlendingana Sigurð Krist-
insson, Jónas Jónsson, Her-
mann Jónasson. Þessir þrír
Norðlendingar voru einnig allir
ráðherrar á vegum flokksins
um lengri eða skemmri tíma.
Sama er að segja um Magnús
Kristjánsson, Einar Ámason,
Skúla Guðmundsson og Stein-
grím Steinþórsson. Tryggvi Þór
hallsson var norðlenzkur sem
kunnugt er. Klemenz Jónsson,
sem var ráðlierra á vegmn
flokksins 1922—1924 hafði, áð-
ur en hann kom til Reykjavík-
ur, verið sýslumaður Eyfirð-
inga og . einnig þingmaður
þeirra. Dr. Kristinn Guðmunds
son, sem var utanríkisráðherra
á vegimi flokksins 1953—1956,
var um langt skeið búsettur hér
á Akureyri og í nánum tengsl-
um við Norðurland. Þannig
mætti lengi telja.
Af 19 núverandi þingmönn-
lun flokksins eru 6 kjörnir á
Norðurlandi. En jafnframt því
sem Framsóknarflokkurinn hef
ur staðið föstum fótum hér á
Norðurlandi, hefur fylgi hans
lengst af einnig verið mikið og
vaxandi í öðrum landshlutum.
Og þaðan hefur hann eignast
ýmsa ágæta forystumenn, t. d.
núverandi formann flokksins,
Eystein Jónsson, sem er Aust-
firðingur.
Nú síðustu árin hefur fylgis-
aukning flokksins orðið einna
mest í hinum fjölmennu kjör-
dæmum á Suðvesturlandi. Það
er gleðilegt tákn um óhvik-
ula trúmennsku flokksins við
uppruna sinn og þjóðleg sjónar
mið, að báðir Framsóknarþing-
mennimir í höfuðborginni eru
áhugamenn um framtíð lands-
byggðar og hafa sýnt það í
verki.
En á komandi árum mun það
verða stærsta hlutverk Fram-
sóknarflokksins að hafa forystu
um, að íslendingar byggi land
sitt með sæmd og glati því ekki
úr hendi sér með því að leggja
það í eyði að meira eða minna
leyti.
Saga Framsóknarflokksins í
50 ár er nú í þann veginn að
koma út, samin af Þórami Þór
arinssyni ritstjóra, en afmælis-
hátíð mun verða haldin í sam-
bandi við væntanlegt flokks-
þing síðar í vetur. □
IJÓLABLAÐ DAGS
JÓLABLAÐ DAGS er nú
komið út, er það 32 síður og
án augiýsinga. Efni þess er
þetta:
Þegar Alþingi var endur-
reist, eftir Gísla Guðmunds-
son alþm.. Jólaminning um
Kristneshæli, eftir Jónas
Jónsson frá Hriflu, Skrimsli
fomaldar, eftir Ingólf
Davíðsson, Samferðamenn á
Heljardalsheiði, eftir Stefán
Aðalsteinsson, Ferð á Flat-
a eyjardalsheiði, eftir Helga
S Hallgrímsson, Skáldalækjar-
$ ballið og Eggjaránið, eftir
f Sesselju K. Eldjám, Minn-
ingar mínar um Davíð skáld
f Stefánsson, eftir Sæmund G.
x Jóhannesson, Þegar ég var
f 13 ára, eftir Binu, Köld vin-
X arkveðja, eftir Bjarna Hall-
f dórsson, o. fl.
f Ljóð eru í blaðinu eftir
f Sigurð Sveinbjömsson, Am-
$ ald Guttormsson, Ármann
x Dalmannsson, Svöfu Frið-
% riksdóttur og „Sumargest“.