Dagur - 31.05.1967, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
VERRI KOSTURINN
TALSMENN ríkisstjónrarinnar
hafa valið sér verri kostinn í þeirri
kosningabaráttu, sem nú stendur
yfir. I»eir bera það blákalt fram, að
atvinnuvegir landsmanna séu í
blóma, enda hafi „viðreisnin“ skaj)-
að þeim bjargtraustan grundvöll til
langrar frambúðar. Betra liefði það
verið fyrir stjórnina og fyrir þjóðina,
ef að ríkisstjómin hefði viðurkennt
ástandið, eins og það nú er, undan-
bragðalaust, en jafnframt lofað bót
og betrun í því, sem mest hefur verið
áfátt. En það sem stjómarflokkun-
um hefur mistekizt í átta ár, er von-
lítið að þeir geri hér eftir, þ. e. að
treysta svo aðstöðu atvinnuveganna,
að Jjeir standi föstum fótum og séu
þeir hymingarsteinar í efnahagslífi
landsmanna, sem þeir eiga að vera.
Ekkert væri ánægjulegra, en að full-
yrðingar stjómarflokkanna um efna-
hagsmálin væru á rökum reistar. En
forystumenn allra lielztu atvinnu-
vega landsins hafa hvað eftir annað
hvatt sér hljóðs á opinberum vett-
vangi, og varað við því hættuástandi,
sem þegar ógnar atvinnuvegum
landsmanna.
Á aðalfundi Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna var glögglega lýst
ástandinu í fiskiðnaðinum. Floti
minni fiskibáta hefur dregizt saman,
enda ekki lengur talið gerlegt að
gera slíka báta út án enn aukinna
uppbóta. Síldarbátamir eru stolt rík-
isstjórnarinnar. En einnig þeirra
rekstrargrundvöllur virðist brostinn
og setti stjómin þá í einskonar veiði-
bann í maímánuði. Aðeins fáir tog-
arar em eftir af 48 togurum lands-
manna og eru þeir gerðir út með
harmkvælum. Það er von að stjómar-
flokkarnir séu hreyknir af frammi-
stöðu sinni.
Iðnaðurinn hefur verið lamaður
með gegndarlausum innflutningi, til
að þóknast innflytjendum. Þótt Jó-
han Hafstein flytji langar ræður um
öra og markvissa iðnþróun hafa iðn-
rekendur allt aðra sögu að segja,
enda vita þeir hvar skórinn krepjnr,
svo og fólkið sem verið er að segja
upj) hjá iðnfyrirtækjum.
Ráðherrar stjómarílokkanna vita,
að hvað lítið sem út af ber nú, verð-
ur að grípa til sparnaðaraðgerða í
meðferð gjaldeyris. Þó bera þeir það
blákalt fram, að nú sé kosið um frelsi
og höft, vitandi, að þeir kunna sjálf-
ir engin ráð önnur en skömmtunar-
skrifstofur og úthlutunarnefndir,
enda oftar en aðrir sett slíkar stofn-
anir á laggirnar og stjórnað þeim.
Þjóðin á heimtingu á að fá að vita
hið rétta í efnahags- og atvinnumál-
um. Hún þolir að horfast í augu við
staðreyndir og metur það, að undan-
bragðalaust sé frá því skýrt.
Bæta verður
unglinganna
Rætt við GUÐRÍÐIEIRÍKSDÓTTUR,
húsmæðraskólakennara
Á FRAMBOÐSLISTA Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra á að þessu sinni
ein kona sæti. Það er Guðríður
Eiríksdóttir kennari á Lauga-
landi. Ungfrú Guðríðut er íædd
að Kristnesi í Eyjafirði 30. ágúst
1943, dóttir hjónanna Eiriks G.
Brynjólfssonar forstöðumanns
Kristneshælis o£ Kamillu Þor-
steinsdóttur. Guðríður lauk
landsprófi frá Reykjaskóla í
Hrútafirði vorið 1961, fór síðan
í Húsmæðraskólann að Lauga-
landi og lauk þaðan prófi vorið
1962. Næst fór hún til náms við
Húsmæðrakennaraskóla Jslands
og Iauk prófi þaðan 1964. Um
haustið sama ár gerðist hún
kennari við húsmæðraskólann
að Laugalandi, og hefur því starf-
að við skólann í þrjá vetur.
Veturinn 1965-1966 var Guð-
ríði trúað fyrir skólastjóra-
embættinu við Laugalandsskól-
etnn í íoríöllum Lenu Hall£ríms-
dóttur. Er hæpið að armarri konu
yngri hafi verið trúað fyrir slíku
embætti hérlendis, og má af því
sjá, að hún nýtur mikils trausis
þeirra, sem þekkja hana bezt.
Það er almannarómúr og sam-
dóma álit þeirra, sem til þekkja,
að Guðríði hafi faríð skólastjórn-
in hið bezta úr hendi, enda er
hún sérle&a mikils metin af nem-
endum sínum. Það er því Fram-
sóknarflokknum mikið ánægju-
efni að svo mikilhæfur og vin-
sæll fulltrúi kvenþjóðarinnar og
yngri kynslóðarinnar skuli hafa
tekið sæti á lista flokksins í þessu
kjördæmi.
Á björtum vordegi heldur
blaðamaður frá Degi fram í
Laugaland til að ná tali af Guð-
ríði. Hún hefur þegar fengið sér-
stakt orð fyrir skörulega fram-
komu á framboðsfundum, en síð-
asti mánuður skólaársins á
Laugalandi, fram til 15. júní, er
langannasamasti mánuðurinnþar,
og gefst henni því minni tími en
skyldi til að taka virkan þátt í
kosningabaráttunni. Erindið er,
að fara þess á leit við hana, að
hún svari fáeinum spurningum,
svo að háttvirtir kjósendur fái á
þann hátt að kynnast nokkuð
viðhorfum hennar. Guðríður tek-
ur þessari málaleitan af stakri
ljúfmennsku. í herbergi kennslu-
konunnar bíða fjallháir staflar af
stíla- og verkefnabókum náms-
meyjanna þess, að Guðríður hafi
tíma til að fara yfir og leiðrétta,
en um sinn er staflanum ýtt til
hliðar og blaðamanninum til-
kynnt, að hana fái ekki kaffi
fyrr en viðtalið sé komið nokkuð
á veg.
— Þú hlýtur að kunna ýmis-
legt að segja frá uppvaxtarárum
þínum hér i Eyjafirði?
— Ég ólst mest upp hjá for-
eldrum mínum á Kristnesi.
Stundum var ég þó í sveit, eins
og það var kallað heima, hjá
frændfólki okkar á Stokkahlöð-
um, en var stundum einnig í
Villingadal. Þá komst maður
náttúrlega í beína snertingu við
búskap og bændamenninguna.
Ég man það sérstaklega, að læk-
urinn í Villingadal hafði mikið
aðdráttarafl fyrir mig, því að ég
datt yfirleitt í hann, ef ég kom
þangað.
Guðríður Eiríksdóttir.
— En þrátt fyrir minninguna
um lækinn í Villingadal kunn-
irðu vel við þig í Eyjafirði á
uppvaxtarárunum?
— Já, það var gaman að al-
ast upp í þessu héraði. Þetta er
líka bæði frjósamt hérað og
blómlegt, og framtíðarmöguleik-
arnir hér eru geysimiklir. Góða
veðrið hérna hefur örugglega ein-
hver heppileg áhrif á fólkið. Hér
vorar alltaf tiltölulega snemma,
og það er sagt, að yfir firðinum
vaki sérstakur verndarvættur,
sem sjái um að fólkinu búnist
vel. Það er að minnsta kosti
óhætt að fullyrða að fólkið hér
er sérstaklega duglegt og fram-
tak^samt, enda búnast því yfir-
leitt vel.
— Svo varstu um tíma í
Reykjavík. Hvernig líkaði þér
dvölin þar?
— Það er auðvitað gott að
vera alls staðar þar sem fólkið er
gott, en Reykjavík hefur aldrei
haft sérstakt aðdráttarafl fyrir
mig. Borgin stakk í stúf við
sveitakyrrðina, og Húsmæðra-
kennaraskólinn var strangur. Við
vorum að frá kl. 8 á morgnana
til kl. 5—6 á kvöldin, og þá var
eftir að lesa undir næsta dag.
Við máttum því ekki mikið vera
að því að velta fyrir okkur,
hvemig borgin væri. Yfirleitt var
sem sagt mjög reynt að halda
okkur að náminu, enda lærði
maður mikið í skólanum. Náms-
greinarnar voru geysimargar og
heimavinnan mikil.
— Hvað viltu segja frá nám-
inu þar að öðru leyti?
— Mér féll prýðilega við
menntunaraðstöðu
í dreifbýlinu
skólastjórann, Vigdísi Jónsdótt-
ur, sem er skörulegur og góður
kennari og einbeitt í skólastjórn-
inni. Annars hafði allt námið
sína þýðingu. Kennararnir voru
yfirleitt mjög góðir og mér féll
vel við þá. Ég hafði einna mest
gaman af íslenzkunni, enda höfð-
um við afbragðs góðan kennara,
þar sem er prófessor Steingrímur
J. Þorsteinsson. Hann var mjög
elskulegur og vildi okkur sérlega
vel. Ingólfur Davíðsson kenndi
náttúrufræði, og okkur líkaði
einnig prýðilega við hann. Um
sumarið 1963 vorum við látnar
safna plöntum og greina þær. Ég
safnaði 200 tegundum á Laugar-
vatni og hér nyrðra. Af því hafði
ég mikla ánægju, enda hefur
náttúran alltaf heillað mig.
— Og svo komstu strax aítur
norður?
— Já, mér líður bezt í þess-
um firði og var fegin að koma
norður á ný. Ég hef að vísu ekki
ferðazt eða dvalið mikið í öðr-
um héruðum, en ég held þó, að
hér vilji ég helzt vera.
— Er langt síðan þú ákvaðst
að gerast kennari?
— Mér fannst afskaplega mik-
ið til þess koma þegar ég var í
barnaskóla, að kennarinn skyldi
geta búið til stundaskrá og ritað
á skólatöfluna, og ég held mig
hafi alltaf síðan langað til að
verða kennari, þótt hugmyndirn-
ar um starfið hafi auðvitað smám
saman breytzt. Fyrst ætlaði ég
að verða barnakennari, en ég
valdi mér húsmæðrakennara-
starfið meðal annars vegna þess
að það lá beint við og námið ekki
langt og veitti þó færi á að kom-
ast til að kenna húsmóðurefnum,
en mér þótti einsýnt og þykir
enn, að mjög margar þeirra hafi
ónóga menntun. Með bættri
menntun þeirra hljóta þær að fá
meiri ánægju af lífinu og þá
verða þær líka hæfari til að ala
upp nýta þjóðfélagsþegna.
— Og karmtu vel við þig í
starfinu?
— Já, ég kann þessu ágætlega,
og kemur margt til. Það er
bæði þroskandi og dæmalaust
skemmtilegt að vera svona alltaf
innan um ungviðið, eins og í
þessum heimavistarskóla, og ég
álít einmitt að heimavistarskól-
arnir eigi mikinn rétt á sér, þar
læra nemendurnir að lúta aga,
og mér þætti gaman að vita
hvað er þroskandi, ef það er ekki
hæfilegur agi. Svo er starf mitt
auðvitað þægilegt að því leyti
að ég hef frí meiri hlutann af
sumrinu og þá get ég verið úti í
náttúrunni.
Nú ákveður ungfrú Guðríður
að hlé skuli gert á spurningum
um stund meðan hún bjóði til
kaffidrykkju. Tíðindamanni Dags
verður litið upp á vegg, en þar
hangir gítar, greinilega mikið
notaður, og til hliðar hangir
skeifa og undir henni lítil silfur-
búin svipa. Aðspurð segir Guð-
riður, að svipan sé kennslutæki,
og verður brosleit við. Eftir kaff-
ið er aftur snúið að spurningun-
um.
— Hvernig stóð á því að þú
tókst að þér að gerast skólastjóri
hér svona ung og lítt reynd?
— Það var haustið 1965, að
Lena Hallgrímsdóttir skólastjóri
varð að taka sér veikindafrí einn
vetur. Mál þetta bar mjög brátt
að og var afráðið að leita til mín
um þetta, og það varð svo úr að
ég skyldi spreyta mig á skóla-
stjórninni einn vetur.
— Hvernig fannst þér ganga
að hafa hemil á stelpunum þenn-
an vetur í fyrral
— Það er nú ekki rétt að
spyrja mig um það, en mér
fannst þetta ganga sæmilega
miðað við allar aðstæður. Hver
skóli hefur auðvitað sínar hefðir,
og eftir þeim verður að laga sig
að verulegu leyti. Samt get ég
nefnt það, að Björn Th. Björns-
son kom hingað þann vetur og
sagði, eftir að hafa skoðað skól-
ann og séð allt liðið umgangast
lítillega: Hvers vegna í ósköpun-
um þérarðu þær ekki? Honum
fannst ég alltof frjálsleg við nem-
endurna. Ein þeirra var eldri en
ég í fyrra, hinar allar litlu yngri.
Samt sem áður fannst mér sem
sagt ganga sæmilega að halda
aganum uppi.
— Hverjar álíturðu heppileg-
ustu kennsluaðferðirnar við
svona skóla?
— Ég álít heppilegast í meg-
indráttum að vinna með nem-
endunum og reyna að láta þeim
finnast kennarinn vera einn af
þeim. Þetta getur gefið góða
raun. Ég læt þær gagnrýna
hverja aðra, og það gefur mjög
hagstæðan árangur, þótt þær
geti reyndar orðið fullbitrar við
slík tækifæri, en þær íæra mikið
á þessu. I gagnrýni held ég að
eigi að uppörva þær með því að
forðast að draga fram neikvæðu
hliðarnar um of á kostnað þeirra
jákvæðu, því að alltaf er mjög
óheppilegt að draga kjark úr
nemendum. Auðvitað verður svo
að viðhafa að einhverju leyti
nýjar aðferðir við hvern nýjan
hóp, en ekki sízt kennararnir
hafa mjög gott af slíkri tilbreyt-
ingu. Það er líka gaman að fylgj-
ast með nýjum aðferðum og
þannig forðast maður einmitt
stöðnun. Hlutirnir mega nefni-
lega ekki verða of vélrænir, til-
breytni á alltaf að eiga sér stað.
— Hver er aðalkennslugrein
þín?
— Það er matreiðslan. Við
skiptum verklega náminu í fjóra
nokkurn veginn jafnréttháa hluta
að því er tímalengd snertir. Það
er 1) matreiðsla og bakstur; 2)
ræsting og þvottur (heimilis-
störf); 3) vefnaður; og 4) hann-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Nánismeyjar Laugalandsskóla heimsóttu nýlega íyrirtæki samvinnumanna á Akureyri. Kennslukon-
urnar lengst til hægri. (Ljósm.: G. P. K.)
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
FÁEIN ORÐ UM HEIMAÞRÓUN
í ÞINGEYJARSÝSLU
mundur á Sandi reisa þar skóla
Islendinga, en nú er svo komið,
að skóli, sem Þingeyingar reistu
í hlýlegum dal, er augasteinn
fólksins í héraðinu, jafnt ung-
menna og fullorðinna manna.
Þangað leitar æskan til náms, til
íþrótta og til mannfunda um fé-
lagsmál sýslunnar. Þar er gesta-
koma mikil á sumrin, og aðstaða
ein hin bezta, sem völ er á fyrir
langferðafólk. Kring um skólann
er vaxin álitleg byggð, mann-
mörg og fjölþætt iðja. Að síð-
ustu sló hið máttuga og sögu-
ríka Kaupfélag Þingeyinga þar
sínum landtjöldum.
En þessi dalur á langa og nýja
landnámssögu, aðra en þá, sem
við kemur Laugaskóla. Um alda-
mótin bjó framarlega í dalnum
gáfaður og kynsæll bóndi, að
Hallbjarnarstöðum. Fram hjá
þeim bæ liggur þjóðvegur í Mý-
vatnssveit. Elzti sonur Sigtryggs
bónda hét Björn. Hann þótti
mikið mannsefni og varð síðar
einn af mestu áhrifamönnum í
héraðinu, en ekki verður sú saga
hér rekin, nema varðandi lítinn
þátt í búnaðarmálum.
Land er allt gróðursælt í
þessu dalverpi og Fljótsheiði sí-
frjó langar leiðir til afrétta. Þar
valdi Björn sér land til ræktun-
ar. Hann vann að þvi að girða
væntanlegt tún í venjulegum
hvíldartíma, og braut síðan land-
ið með áhöldum þeirra tima,
plóg og herfi. Þetta ræktunarmál
þótti í fyrstu næstum sérvizku-
mál. Það var ekki auglýst. Þang-
að kom enginn nýbyggðastyrkur.
Þannig liðu ár. Þá byggði Björn
og húsfreyja hans nýjan og reisu-
legan bæ. Þar myndaðist eins og
í ættargarðinum fjölmennt heim-
ili, nýbýlið Brún var þegjandi
og hljóðalaust orðið eitt af stór-
býlum sveitarinnar. Þessi nýjung
var fyrirboði nýs landnáms víða
um land, þar sem mannfélagið
hafði forgöngu og lagði til marg-
háttaða liðsemd. Brún var ný-
sköpun frjálshuga fólks eins og
(Framhald á blaðsíðu 7)
Burðarásar afvinnuveganna brosfnir
Á BARÁTTUDEGI verkalýðsins
1. maí sl. komst einn ræðumaður
hátíðarhaldanna x Reykjavík svo
að orði, aðspurður, hvað efst
væri í huga hans á þessum degi;
að það væri kvíðinn fyrir at-
vinnuleysi á næstu grösum. Kvíð-
inn vegna samdráttareinkenna í
atvinnulífinu og kvíðinn fyrir
mjög versnandi afkomu verka-
fólks og sjómanna. Þessi maður
var formaður sjómannasam-
bandsins. Þeir tímar eru að baki
að mestu leyti að íslenzkir laun-
þegar semji um kjör sín í smá-
hópum. Nú eru það fjórðungs-
samtök og landssamtök sem
semja á breiðum grundvelli. Enn
sem fyrr er það verkefni launþeg-
anna og atvinnurekendanna að
semja sín á milli um kaup og
kjör. Og enn sem fyrr er skylda
ir jafnt stjórnarsinnar sem stjórn-
arandstæðingar og hitt er þá líka
jafn augljóst að atvinnuvegir sem
berjast í bökkum eru ekki færir
um að greiða hærra kaup. Eða
hvað segja menn um sjávarútveg-
inn og fiskiðnaðinn í landinu? Og
hvað segja menn um annan iðn-
að, sem býr við versnandi sam-
keppnisaðstöðu. Burðarásar at-
vinnuveganna eru í raun og veru
brostnir. Hvorki bátar eða fisk-
vinnslustöðvar geta haldið áfram
án stórfelldrar aðstoðar bank-
anna. Þó er hver veiddur fiskur
verðbættur úr ríkissjóði og
vinnsla fisksins einnig. Um þess-
ar mundir er kröfupólitík laun-
þegasamtakanna að miklu leyti
óraunhæf, vegna þess hve illa at-
vinnuvegirnir eru staddir.
Engin rikisstjórn, hversu öflug
sem hún er og hversu vel sem
hún vill, getur á skömmum tíma
bætt þann þjóðarskaða sem verð-
bólgan og allir hennar fylgikvill-
ar hafa valdið þjóðinni. En flest-
um mun nú finnast að sú ríkis-
stjórn, sem nú er, hafi nógu lengi
setið og of lengi þó og tími sé
til þess kominn að skipta um.
Fullreynt er, fyrr og nú, að
þjóðartekjunum verður ekki
skipt á viðunandi hátt undir for-
ystu íhaldsins. Sennilega geta
Iaitnþegar ekki á annan hátt
betur tryggt sér réttlátan hlut en
með því að hjálpa til þess að
leysa núverandi valdhafa frá
störfum. Það gera þeir með því
að styðja öflugasta íhaldsand-
stæðinginn, Framsóknarflokkinn.
Mynd þessi er tekin þegar söngmenn frá ísafirði skemmtu Norð-
lendingum. Ragnar H. Ragnar, hinn kunni söngstjóri þeirra (fyrir
miðju) ræðir við Áskel Jónsson söngstj. á Akureyri. (Ljm.: E. D.)
MENN veita því eftirtekt um
þessar mundir, að vel getur svo
farið í næstu kosningum, að Suð-
ur-Þingeyingar eignist ekki á
næsta kjördegi heimafenginn
fulltrúa. Ekki eru það réttlát lög,
en við þau má búa eitt kjörtíma-
bil, ef því er að skipta. Þar kem-
ur Þingeyingum að góðu gömul
venja, að ráða fram úr stórum
málum með samvinnu og‘ hæg-
fara en öruggri þróux). Lauga-
skóli og öll nýbyggð hans er
þannig til komin. Þegar skóla-
staðurinn var ákveðinn þótti
ekki mikið koma til hins vel
gróna, en ekki svipmikla um-
hverfis. Jarðhitinn einn var þess
valdandi, að skólinn var settur
að Litlu-Laugum. En nú er svo
komið, að enginn Þingeyingur
mundi vilja flytja þessa stofnun
úr stað, jafnvel ekki að hihum
fögru Kálfastrandarklettum.
Um síðustu aldamót vildi Guð-
ríkisvaldsins að sjá til þess að
þessir samningar haldi gildi sínu
og séu ekki eyðilagðir með ráð-
SLYSIÐ 4 HJALTEYRI
stöfunum stjórnarvalda. — Um
þessar mundir er svo ástatt í
landinu að mikill hluti launþega-
samtaka er með lausa kjarasamn-
inga og viðsjárverðir tímar geta
því verið framundan. Sú ömur-
lega staðreynd blasir við, eftir
öll þau góðæri, sem gefizt hafa
hér á landi undanfarin ár, að
kaupmáttur dagvinnu hefur stað-
ið í stað þrátt fyrir þessar stór-
kostlega auknu þjóðartekjur.
Hér hefur þróunin orðið allt
önnur heldur en í nágrannalönd-
unum, þar sem auknar þjóðar-
tekjur hafa gefið vaxandi launa-
tekjur. Að vísu er það svo, eink-
um vegna aflagóðæris að það
hefur mjög víða á landinu verið
uppgripavinna og menn hafa get-
að bætt hag sinn með því að
vinna mikla eftirvinnu, jafnvel
óhóflega eftirvinnu. Það er stað-
reynd að það getur enginn fjöl-
skyldumaður lifað af launatekj-
um dagvinnunnar. Islendingar
hafa því miður dregizt aftur úr í
þessum málum á undanförnum
árum. Þróunin orðið allt önnur
hjá íslenzkum launþegum og
óhagstæðari, en hjá nágranna-
þjóðunum. Þetta viðurkenna all-
AÐ undanförnu hafa talsverð
blaðaskrif orðið um slys, sem
varð á Hjalteyri fyrir nær 6 ár-
um síðan, er verkamaður hjá
Kveldúlfi varð fyrir því óhappi
við vinnu sína, afð missa fjóra
fingur hægri handar, og þá furðu-
legu niðurstöðu hjá dómstólum,
að slysið sé ekki bótaskylt.
Sá, sem fyrir slysinu varð, heit-
ir Jóhannes Björnsson, smiður,
búsettur á Hjalteyri, annálaður
dugnaðarforkur. Hafði hann unn-
ið meira og minna hjá verksmiðju
Kveldúlfs á Hjalteyri um tutt-
ugu ára skeið, jöfnum höndum
við smíðar og önnur störf í þágu
verksmiðjunnar. x
Þegar fyrrgreint slys bar að
höndum, var Jóhannes, ásamt
nokkrum verkamönnum, að
ramma niður staura í bryggju,
þar sem notaður var 700 kg.
þungur, vélknúinn fallhamar, er
svo kallaður vindumaður stjórn-
aði. Ætlaði Jóhannes að lagfæra
staurinn, sem hallaðist eftir á-
sláttinn, auðvitað í þeirri ör-
uggu vissu, að fallhamarinn væri
stöðvaður, enda segist hann hafa
gefið vindumanninum merki um
stöðvun. En hamarinn féll á
meðan á staurinn, og varð hægri
hönd Jóhannesar þar ú milli —
með þeim afleiðingum, sem fyrr
greinir.
Var Jóhannes fluttur í Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, þar
sem hann lá sárþjáður lengi, og
mun, eins og að líkum lætur,
aldrei endurheimta heilsu sína,
eftir það mikla líkamlega og
andlega áfall, sem hann varð
þarna fyrir.
Oft á tíðum áður hafði Jóhann-
es unnið við ýmis hættuleg störf
í þágu verksmiðjunnar, og m. a.
var hann látinn fara upp í 35 m
háan reykháf. Spurðist hann þá
fyrir um það áður, hvort hann
væri nú slysatryggður. Fullviss-
aði forstjórinn hann um, að svo
væri örugglega. Sagðist Jóhann-
es hafa spurt um þetta fyrst og
fremst vegna konu sinnar og
fjögurra barna þeirra.
En því miður reyndist hin svo
kallaða slysatrygging Kveldúlfs
aðeins tálvon, þegar til kastanna
kom.
Skömmu eftir heimkomuna af
sjúkrahúsinu fór Jóhannes að
kynna sér væntanlegar slysabæt-
ur. En því Var nú ekki alveg að
heilsa, að peningamir biðu hans
í launaumslagi heima á Hjalteyri.
Skal nú Ijót saga rakin í stuttu
máli:
Eftir mikið málastapp íyrir
héraðsrétti og síðar Hæstarétti,
í sambandi við slysið skilaði sér
norður til Hjalteyrar, eftir 5 ár,
sú furðulega dómsniðurstaða, að
Jóhannes skyldi hvorki fá þján-
inga- eða slysabætur. Þarna fékk
hann sem sagt „verðuga" uppbót
á 20 ára langa og dygga þjónustu
hjá Kveldúlfi á Hjalteyri.
Ekki er of djúpt tekið í árinni,
þótt menn furði sig mjög á slík-
um dómi. Bgeði Jóhannes og
flestir aðrir álitu það öruggt, að
háar slysabætur yrðu greiddar,
annaðhvort í eitt skipti fyrir -öll
eða þá nokkur fjárnæð á ári
hverju. En að engar bætur yrðu
greiddar, fannst víst flestum vara
hnefahögg á réttlæti og ma xn-
réttindi.
Eftir þennan Hjalteyrardóm
verða þeir ekki fáir, sem efast
um gagnsemi slysatrygginga, ef
í engu á að bæta örkuml þau,
sem Jóhannes Björnsson hlaut.
Það er eðlilegt, að menn undrist
og vilji fá svar við þeirri spurn-
ingu, hvort slysatryggingar séu
á stundum gagnslaus pappírsgögn
og framvegis geti þeir, sem vinna
hættuleg störf, átt von á álíka
glaðningu og Jóhannes, ef slys
ber að höndum.
Nú hefur forstjóri Kveldúlfs á
Hjalteyri, herra Vésteinn Guð-
mundsson, reynt að gera hreint
fyrir sínum dyrum og Kveldúlfs,
með því að birta niðurstöður
héraðsdómsins og einhverja yfir-
lýsingu um milljón króna slysa-
tryggingu. Vill hann þar með
skjóta sér á bak við dómstólana,
og þykist nú hafa þvegið hendur
sínar vel og vendilega. En ég vil
(Framhald á blaðsíðu 7).