Dagur - 20.09.1967, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Gafnagerðargjaldið
á dagskrá
MJÖG er til umræðu á Akureyri sú
breyting, sem nú er á dagskrá þess
efnis, að leggja gatnagerðargjald á
byggjendur nýrra húsa. Hér er þó
ekki nýtt mál á ferðinni og er áf því
fengin reynsla á Faxaflóasvæðinu.
Margt mælir með þessari breytingu,
en margt einnig á móti. Þau rök, sem
helzt eru færð fyrir því, að leggja
beri gatnagerðargjald á húsbyggjend
ur eru þessi: Fé vantar til gatna-
gerðar í bænum. Innheimta þess f jár
með gatnagerðargjaldi, væri þá ekki
beint bundin fjárhag bæjarsjóðs þ. e.
útsvörum eins og nú er, heldur réði
framboð og eftirspurn nýbyggingu
gatna, en slíkt ætti að koma< í veg
fyrir skort lóða, sem oft hefur verið
til baga. Þá er talið, að gatnagerðar-
gjaldið örvi til bygginga fjölbýlis-
húsa, þar sem einbýlishúsin væru
látin bera verulega hæiTÍ upphæðir
af þessu nýja gjaldi. f vísitöluhúsinu
er reiknað með kr. 86.25 pr. rúm-
metra í þennan kostnaðarlið. Þá er
að geta þess, að þegar gerður erísárrt-
anburður á útsvörum í hinum ein-
stöku sveitarfélögum landsins, verð-
ur sá samanburður ekki raunjhæfur,
þar sem eru greidd gatnagerðar-
gjöld, gangstéttargjöld og heimtauga
gjöld, eins og hér, en þau greidd sér-
staklega á viðmiðunarstöðunum, svo
sem í Reykjavík og víðar. En þar-setrí
þessi gjöld eru innifalin í útsvörun-
um, verða útsvörin að sjálfsögðu
hærri. Með breytingunni, sem hér
er fyrirhuguð og meirihluti bæjar-
stjórnar mun vera samþykkur, verð-
ur nefndur samanburður Akureyri
hagstæðari.
En hér með er ekki öll sagan sögð.
Húsbyggingarkostnaður hækkar og
húsaleigan einnig. Þá virðist ékki
réttlátt, að láta þá bera sérstakan
kostnað af nýju gatnagerðargjaldi,
sem þeir losna við að greiða, sem
búnir eru að byggja. f framhaldi af
þessu hefur svo komið fram sú hug-
mynd, að skattleggja allar fasteignir
í bænum sérstaklega, með það fyrir
augum að gera stórt og skipulegt
átak í gatnagerð bæjarins. Virðist
það að sumu leyti réttlátara en mun
ekki að fullu samrýmast landslögum,
eins og þau eru nú. Gatnagerðar-
gjaldið er ekki formlega samþykkt
ennþá í bæjarstjóminni, en hins veg
ar samþykkt heimild til að leggja
það á við þá útlilutun lóða, sem
fram fer um þessar mundir. Ákveðn-
ar tillögur um upphæð gjaldsins
hafa ekki komið fram, svo blaðinu
sé kunnugt. □
Úfæmandi möguleikar blða þeirra,
sem í sveitunum búa
segir frú Guðrún Aðalsteinsdóttir í Klausturseli
VIÐ fyrstu sýn er Jökuldalur
hvorki grösugur eða búsældar-
legur. Eyfirzkum bónda þætti
þar graslítið og landið lítt
skemmtilegt til ræktunar. Samt
er það svo, að þar hafa margir
góðu búi búið, enda Jökuldalur
ekki allur þar sem hann er séð-
ur af þjóðvegi. Hinar víðlendu
heiðar og afburðagóðu sauð-
lönd blasa ekki við, en er stað-
reynd, engu að síður. Bænd-
urnir eru fjárræktarmenn, fjár-
margir og hafa ekki nautpening
nema til heimanotkunar.
Hér var nýlega á ferð ein
jökuldælsk húsmóðir, frú Guð-
rún Aðalsteinsdóttir í Klaustur
seli á Jökuldal, fréttaritari
blaðsins þar í sveit. Blaðið lagði
fyrir hana nokkrar spurningar
á meðan bíllinn dokaði við.
Heyskap mun að mestu lokið
í Jökuldal?
Já, og heyin eru að þessu
sinni vel verkuð, en víða mun
minni en í meðalári. Margir
hafa þegar keypt hey og
nokkrir bændur fengu tún til
slægna, t. d. leigðu hjá tveim
bændum á Héraði, sem eru að
hætta búskap.
Hver heyhestur kemur að
meira gagni á Jökuldal en víða
annarsstaðar?
Já, að því leyti, að þar nægir
hverri vetrarfóðraðri kind þetta
heymagn, en þarf í sumum
sveitum tvisvar eða jafnvel
þrisvar sinnum meira hey
handa kindinni.
Jökuldælingar eru einungis
sauðfjárbændur. Hve stór eru
búin?
Allir framleiða mjólk fyrir
heimili sín. Margir yngri bænd-
ur bafa byggt hús yfir 400 fjár
eða þar um bil og flestir nýta
v þetta húsnæði alveg. En ekki
veit ég hvað meðalbúið er stórt.
Á ýmsum heimilum eiga fleiri
> jen bóndinn hjörðina, þótt hún
tilheyri sama bænum. Svo eiga
allir hesta, nema einn bóndi.
Heiða- og afréttarlöndin eru
mjög víðáttumikiL
, Eru Jökuldælingar hættir að
hrugga?
Steinhættir, en þeir brugg-
uðu mikið þegar ég var ungling
ur. Þar með er ekki sagt að
þeir séu allir orðnir bindindis-
• menn. En bruggið er úr sögunni
og er ekki eftirsjá í því.
Er nokkur flótti úr sveitinni?
'I /Ékki hefi ég heyrt um neinn,
sem hefur í hyggju að hætta bú
skap. Ég býst við, að atvinnu-
ástandið á Austfjörðum í sum-
ar hvetji bændur ekki til þess
að hætta búskap. Auk þess er
’ekki auðvelt að koma jörðum
sínum í verð. Ég held að flestir
uni hag sínum sæmilega.
Þið hafið ungmennafélag og
kvenfélag, svo sem víðast er í
sveitum?
Já, ungmennafélagið var ný-
lega endurreist, ef svo má kalla,
og er formaður þess Vilhjálmur
Snædal. Kvenfélag starfar líka
og formaður þess er Sesselja
Nielsdóttir. Bæði þessi félög
vinna að félagsmálum, glæða
áhuga á þeim og láta gott af sér
leiða. Félagsandinn er fremur
góður í sveitinni.
Skólamálin?
Við höfum góðan barnaskóla
á Skjöldólfsstöðum. En okkur
vantar tilfinnanlega unglinga-
skóla. Við erum í hreinum vand
ræðum með unglingastigið,
ekki sízt eftir að fyrsta deild
Eiðaskóla var lögð niður. Úr-
bætur á þessu sviði kalla á, að
eitthvað verði gert og það sem
fyrst, enda er málið á dagskrá
hjá okkur og reyndar fleiri
hreppum. Skeð getur, að auð-
veldast reynist að leysa málið
sameiginlega.
Hvernig er að vera húsmóðir
á Jökuldal?
Samanburður á því og t. d.
hér á Akureyri yrði nokkuð
flókinn. Og á ýmsum sviðum er
Guðrún Aðalsteinsdóttir.
þetta ekki saman berandi. Við
eigum við okkar erfiðleika að
stríða austurfrá, en mér skilst
að vinkonur mínar hér á Akur-
eyri séu heldur ekki lausar við
þá, þótt öðruvísi séu. Uppeldi
bamanna er auðveldara í sveit
um, og nægur tími oftast til að
vera með bömunum og ræða
við þau. Það kemur raunar
mest af sjálfu sér. Sveitabörn-
unum eru snemma fengin ákveð
in" verkefni í hendur, sem
þroska þau og gera þau ábyrg
í störfunum, og þau eru ekki
taugaveikluð af hávaða og óró-
leika fjölmennisins. Hins vegar
er aðstaðan til skólagöngu betri
í kaupstöðum. Mér finnst
bændafólk yfirleitt þroskað
fólk a. m. k. á ýmsum sviðum.
(Framhald af blaðsíðu 1).
húsinu áður en vetur gengur í
garð. Skátaflokkur undir stjóm
Tryggva Þorsteinssonar tók til
höndum utanhúss, en þar verð
ur síðar grafinn skurður til upp
þurrkunar og jarðvegi verður
ýtt að húsinu til að auðvelda
þangað leið í snjó. Annars er
skálinn aðeins nokkra metra
frá þjóðveginum.
Að lokinni vígsluathöfn í
Sesseljubúð þágu gestir ríku-
legar veitingar.
Sesseljubúð á Öxnadalsheiði
veitir ferðamönnum á einu fjöl
farnasta fjallvegi íslands mikið
öryggi á vetrarferðum, þegar
snjóalög tefja för og þar sem
allra veðra er von. Daníel Sig-
mundsson á Isafirði smíðaði
húsið, en Jón Sigurjónsson setti
það upp.
Almenningur mun fagna hin-
um nýja fjallaskála, e. t. v. þó
langferðabílstjórar öllum öðr-
um fremur. En fyrirfram veit
enginn hverjir þess njóta á leið
um Öxnadalsheiði. Dagur hefur
sérstaka ástæðu til að fagna
Bændurnir eru vanir því að
þurfa að treysta á sjálfa sig
fyrst og fremst, og standa þeir
síður ráðþrota gegn erfiðleikum
lífsbaráttunnar en margir aðrir.
Framkvæmdir eru töluverð-
ar?
Já, en þær hófust síðar en
víða annarsstaðar og hafa þess
vegna orðið mun dýrari, svo
sem í ræktun og byggingu úti-
húsa. En það er enginn sam-
dráttur í búskapnum, öðru nær.
Hér um slóðir kvarta bændur
yfir því, hve bundnir þeir eru.
Hvemig er það á Jökuldal?
Búskapur er ætíð bindandi.
En bændur á Jökuldal geta
hæglega brugðið sér frá, þegar
þeir vilja eða þurfa. Fjárbú-
skapurinn er að því leyti frjáls-
legri en kúabúskapurinn. Ég
öfunda ekki eyfirzku bænd-
urna með sín stóru kúabú, sem
binda þá daglega fasta við
klukkuna og mjólkurbílinn. En
efnahagurinn er kannski betri.
Hins vegar er sauðburðurinn
mjög erfiður hjá okkur og einn
ig öll smalamennska haust og
vor.
Þið unið þá sæmilega við
ykkar hag?
Bændur verða að standa vel
saman til að fá það búvöruverð,
sem þeim ber réttur til, bæði
lagalegur og siðferðislegur. í
því sambandi er það sitt hvað,
að barma sér eða sækja sinn
fulla rétt. Yfirleitt verður að
líta raunhæft á hlutina, bæði
frá efnalegu og andlegu sjónar-
miði. Barlómur er mér ekki að
skapi, og það er ekki síður nauð
syn, að halda því á lofti, sem
vel er um sveitir og mannlífið
þar, en að mála erfiðleikana of
dökkum litum. Og víst er það,
að lengst verður dreifbýlið ís-
lenzkt og á komandi tímum
elur það hraust fólk og þrosk-
að, eins og það hefur alltaf gert.
Sennilega vantar víða töluvert
á það, í sveitunum sjálfum,
hvað þá annarsstaðar, að bú-
skapurinn sé réttilega metinn
og að því sé nægur gaumur gef
inn hve ótæmandi möguleikar
bíða þeirra, sem þar vilja lifa
og starfa, segir frú Guðrún í
Klausturseli að lokum, og þakk
ar blaðið viðtalið. E. D.
þessari framkvæmd vegna sinn
ar þátttöku í baráttunni fyrir
aukinni aðstoð við ferðafólk á
heiðinni.
Athygli vakti í hinum nýja
fjallaskála, að krossmark hafði
verið sett upp á gafli gegnt úti-
dyrum.
Hlutur Slysavarnadeildar
kvenna á Akureyri er í þessu
máli góður. En eftir er hlutur
vegfarenda um Öxnadalsheiði.
Verður Sesseljubúð látin í
friði? Síðar fæst svar við þeirri
spurningu, en öll óskum við
þess, að hún geti þjónað þeim
tilgangi sínum ótrufluð af vand
ræðafólki, að veita vegmóðum
skjól. □
- SMÁTT OC STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
Jakobsson fiskifræðing um
borð, sem leiðangursstjóra.
Gerðar eru um þessar mundir
tilraunir með að flytja sjó-
kælda og ísaða síld af hinum
fjarlægu miðum, söltunarhæfa
til lands.
- SESSELJUBÚÐ Á ÖXNADALSHEIÐI
Kristrún Jóhannsdóttir.
Sýnikennslunámskeið
í Húsmæðraskólanum
KRISTRÚN JÓHANNSDÓTT-
IR húsmæðrakennari, sem und
anfarin fjögur ár hefur verið
við nám í Bandaríkjunum, en
er annars kennari við Flens-
borgarskólann í Hafnaríirði,
heldur sýnikennslunámskeið í
Húsmæðraskólanum á Akur-
eyri. Hefst námskeiðið á sunnu
daginn og lýkur á þriðjudags-
kvöldið. Alla dagana hefst það
kl. 8 síðdegis.
Á námskeiðinu verður fjallað
um grænmetisréttina — græn-
metis- og baunarétti, ennfrem-
ur ábætisrétti — og er þessi árs
tími vel til þessa fallinn.
Kristrún hefur haldið slík
námskeið áður bæði í Reykja-
vík og víðar, en þetta er fyrsta
námskeið hennar hér.
Upplýsingar um námskeið
þetta eru veittar í Húsmæðra-
skólanum kl. 1—6 e. h. í dag,
miðvikudag, og á morgun. —
Síminn er 1-11-99. □
- SKÍÐALYFTAN
(Framhald af blaðsíðu 1).
og sagði frá veltu þeirri sem
Huginn stóð fyrir og upplýsti
hann, að safnazt hefði á Akur-
eyri kr. 132.900.00, en í Reykja-
vík kr. 17.700.00, samtals kr.
150.600.00. Hann sagði einnig að
dálítill kostnaður hefði orðið
við framkvæmd veltunnar og
afhenti síðan Jerís Sumarliða-
syni, formanni íþróttaráðs,
ávísun að upphæð kr. 135.668.75.
Jens þakkaði síðan Lions-
klúbbnum Huginn fyrir ágæta
gjöf og gat þess um leið að
þetta væri ekki í fyrsta sinn,
sem þeir Lions-menn sýndu
hug sinn til framkvæmda í
Hlíðarfjalli, því þeir hefðu að-
stoðað við byggingu Skiða-
hótelsins, gefið hljóðfæri o. fl.
Hermann Stefánsson, formað
ur ÍBA, tók að lokum til máls
og ræddi ýmislegt frá gamalli
tíð, og gat þess, að það4 væri
orðið langt síðan fyrst var talað
um skíðalyftu í Hlíðarfjalli, og
lýsti ánægju sinni yfir að nú
væri sá draumur að rætast.
Gengið var síðan suður að
forstöð lyftunnar, og gaf þar á
að líta. Risin eru öll möstur
nema tvö og voru 2 steypubílar
langt upp í fjalli. Verkið geng-
ur samkvæmt áætlun og búizt
er við að framkvæmdum Ijúki í
næsta mánuði. Magnús Guð-
mundsson hefur stjómað fram-
kvæmdum og unnið mjög gott
verk. Hér eru staddir 2 sér-
fræðingar frá Doppelmayer og
vinna þeir við uppsetningu lyft
unnar og á öllum búnaði í sam
bandi við hana.
Væntanlega gefst bæjarbúum
kostur á að reyna lyftuna, áður
en skíðasnjór kemur í fjallið,
og er ekki að efa að margt verð
ur um manninn þá í Hlíðar-
fjalli.
Þess má að lokum geta, að
þetta er eina skíðalyftan, sem
til er á Islandi og hljóta allir
bæjarbúar að fagna því, að svo
vel hefur tekizt, sem raun ber
vitni, að koma þessu mannvirki
upp. Sv. O.
- GÆSIR OG GÆSAVEIÐAR
(Framhald af blaðsíðu 8).
reiðar eða önnur vélknúin farar
tæki á landi til fuglaveiða, eða
til að elta uppi eða reka fugla.
Farartæki þessi má þó nota til
að flytja veiðimenn, veiðihunda
og veiðitæki að og frá veiði-
stað.“
Og í 21. gr. segir svo: „Eftir-
talin tæki eða útbúnað má eigi
nota til fuglaveiða: Fleka
(snörufleka), stingi eða króka
(gogga), öngla, boga, gildrur,
blys eða annan ljósaútbúnað,
svo og allar aðrar fastar veiði-
vélar, þótt hér hafi ekki verið
taldar.“
í alþjóðasamþykkt um fugla-
verndun, sem fsland er aðili að
síðan 1956, segir m. a. í 5. gr.:
„Aðilar samþykktarinnar skuld
binda sig til að banna eftirtald-
ar (veiði) aðferðir, sem valdið
geta fjöldadrápi fugla eða föng
un, eða bakað þeim kvalir að
nauðsynjalausu: liður c) spegla,
blys og annan ljósaútbúnað, og
liður h) notkun vélknúinna
farartækja á landi, eða flugvél-
ar, til þess að skjóta fugla eða
reka þá.“
„Samkvæmt því sem hér hef
ur verið rakið í stuttu máli er
því augljóst, að aðferð sú við
gæsadráp er þú lýsir Norðlend-
ingur góður, er óleyfileg hér á
landi og að hæsta máta refsi-
verð. Það liggur ekki mikil
sportmennska eða sportmanns-
andi á bak við fjöldadrápsað-
ferð sem þessa, enda mun sjálf
sagt frekar lítið um það, að
þeir sem fást hér við fuglaveið-
ar geri það af áhuga á slíkri
veiðimennsku sem íþrótt. En
sem íþrótt mun þó litið á fugla-
veiðar meðal flestra siðmennt-
aðra þjóða.“
Blaðið vill vekja athygli á
ofanrituðum orðaskiptum, þar
sem sá tími fer nú í hönd er
gæsaskyttur hugsa sér til hreyf
ings. □
- AFMÆLISRIT KEA
(Framhald af blaðsíðu 8).
vörudeild, Raflagriadeild, Véla
deild, Olusöludeild, Slátur- og
frystihús, Kjötiðnaðarstöð,
Mj ólkursamlag, Brauðgerð,
Efnagerð, Snijörlíkisgerð, Kassa
gerð, Gúmmíviðgerð, Þvotta-
hús, Bifreiðadeild, Vátrygginga
deild, Útgerðarfélag, Málm-
smiðjur, Efnaverksmiðjan
Sjöfn, og sameiginlegar verk-
smiðjur KEA og SÍS, ennfrem-
ur útibú KEA við Eyjafjörð og
í Grímsey. Aftast er starfs-
mannatal og er mynd af hverj-
urri starfsmanni, miðað við júní
1966.
Ráðgert er, að þetta myndar-
lega og fróðlega afmælisrit
verði sent á hvert heimili sam-
vinnumanna á félagssvæði
KEA. Það mun þykja merkilegt
heimildarit þegar fram líða
stundir, um fjölmennustu sam-
tök fólks um verzlun og önnur
viðskipti, verksmiðjurekstur og
menningarmál, sem nokkru
sinni hafa starfað á Norður-
landi. □
Lið Þórs. Fremri röð frá v.: Steingrímur, Valsteinn, Samúel, Ævar,
Páll. Aftari röð f. v.: Guðni, Magnús, Guimar, Anton, Pétur, Aðal-
steinn. Á myndina vantar Jón Friðriksson. Ljósm.: G. P. K.
KNATTSPYRNUMÓT AKUREYRAR.
Þór varð Ákureyrarmeistari
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
fór fram á íþróttavellinum síð-
asti leikurinn í Knattspyrnu-
móti Akureyrar. Þór og KA
léku í meistaraflokki karla.
Dynjandi rigning var er leikur-
fnn fór fram og var völlurinn
háll og erfiður. Þó sýndu bæði
liðin góð tilþrif og er þetta
einn jafnasti leikur, sem ég.hef
séð um árabil milli þessara
aðila, og hefði ekki verið ósann
gjamt, að mínu viti, að jafn-
tefli hefði orðið.
Leikar fóru svo að Þór sigr-
aði með 2 mörkum gegn engu.
Magnús Jónatansson skoraði
fyrra markið á 34. mín. fyrri
hálfleiks, með mjög fallegu
skoti frá vítateigslínu, sem sagt
glæsilegt mark. Ég missti af
byrjun leiksins, en Guðni Jóns
son, Þór, brenndi af vítaspyrnu
snemma í leiknum. KA-menn
áttu sín tækifæri í þessum hálf-
leik, en þeim mistókst, eða Jón
Friðriksson, sem var í marki
hjá Þór í fjarveru Samúels,
varði. Hann varði oft ótr-úlega
vel. Einnig varði markvörður
KA, Halldór Rafnsson, oft vel.'
í síðari hálfleik skiptust liðin
á upphlaupum og munaði oft
mjóu við bæði mörkin. Á 43.
mín. síðari hálfleiks skoraði
svo Aðalsteinn Sigurgeirsson
siðara mark Þórs, en hann
fylgdi vel eftir alveg í mark.
Þór varð því Akureyrar-
meistari í knattspyrnu 1967. En
leikur þessi var, eins og áður
segir, jafn, og er það trú mín
að Þór fari að ganga verr að
sigra KA en undanfarin ár, þó
i Þórsliðinu séu flestir leik-
menn og varamenn ÍBA-liðs-
ins.
Það er mikil nauðsyn fyrir
KiA, að fá fleiri leiki milli Þórs
og KA en verið hafa undan-
farin ár. Mætti ekki t. d. leika
tvisvar í mánuði á æfingatím-
um? Ef leikið er jafn prúðmann
lega og gert var sl. fimmtudag
ætti ekki að verða hætta á
meiðslum.
í yngri flokkum, 2., 3., 4. og
5., sigraði KA, eins og áður hef-
ur verið frá sagt. Sv. O.
í DAG, miðvikudag, fer fram á
íþróttavellinum leikur í Norður
landsmóti í knattspymu milli
KA og Þórs, og hefst kl. 6.
Gólfteppi Gólfteppi
Ensk WILTONTEPPI, breidd 274 og 90 cm.
íslenzk WILTONTEPPI frá Vefaranum
Enn fremur TEPPI í stærðum:
140x200 cm.
170x240 cm.
183x274 cm.
200x300 cm.
225x274 cm.
274x320 cm.
274x366 cm.
Tökum upp fyrir næstu helgi liin margeftirspurðu
SHAW-TEPPI frá Englandi
LYKKJUTEPPI
í stærðum 190x290 cm.; 250x350 cm.
DREGILL, 102 cm.
WILTONTEPPI, stærð: 3oox4oo cm.
<^>
TEPPADEILD
Olafur surtdkennari 75 ára i
SÁ íslendingurinn, sem flest- stofnuð ungmennafélög for-
um unglingum hefur kennt að göngu um sundmenntina.
synda, er Olafur Magnússon Síðan hóf Olafur sundkennslu
sundkennari á Akureyri, enda á Akureyri, fyrst í köldum polli
hefur hann þá kennslu stundað á núverandi sundstað, sem hit-
í hálfa öld og fjórum árum bet- aður var með laugarvatni 1933,
ur. Sjálfur lærði hann sund hjá einnig að forgöngu ungmenna-
Þingeyingnum Jóni Markússyni félaga. Ólafur kenndi sund á
í köldum polli, þar sem nú er Akureyri frá 1922—1964.
Lónsbrú og sér enn fyrir torf- Ólafur Magnússon er frá
görðum þess sundstaðar. Þá Bitru í Glæsibæjarhreppi, elzt-
ur 9 systkyna, missti föður sinn
16 ára gamall og tók þá við
umsjá búsiris. Fátækt var í föð-
urgarði og þung byrði var
lögð á herðar hins 16 ára pilts,
sem ekki hafði náð miklum
þroska. Þá mun hafa reynt
meira á þrek hans en nokkru
sinni. En Ólafur Magnússon
reyndist þá strax mikils trausts
og trúnaðar verður og þar tók
hann sitt landspróf með sóma.
Síðar óx honum fiskur um
hrygg og varð með vöskustu
mönnum, góðum og fjölþættum
íþróttum búinn, og t. d. var
hann góður glímumaður, og er
það sem meira er um vert:
hinn mesti drengskaparmaður,
með sitt varma'-og viðkvæma
var Ólafur 8 ára gamall og grét hjarta á réttum stað.
á sinni fyrstu göngu til synds- Enn hefur hann brennandi
ins. Síðar stundaði hímn sund áhuga á málefnum æskunnar,
hjá Steinþóri Leonarðssýril óg sem hann hefur helgað langt og
Jóhanni Ólafssyni, sem Ólafúr óvenju farsælt æfistarf.
segir að verið hafi afburða íþróttasamband íslands hefur
sundmaður, og síðast i hjá Jóni veitt Ólafi verðugan heiður, m.
Ólafi Pálssyni í Reykjavík. a. sæmt hann gullmerki sínu.
Ágæt sundkunnátta Ólafs not Á sjötíu og fimm ára afmælinu
aðist vel, því sundkennsla varð. var honum tilkynnt, að Sund-
hans ævistarf. Fyrst kehridi samband íslands hefði einnig
hann sund í nágrannahfeþpun- sæmt hann sínu æðsta heiðurs-
um, Glæsibæjarhreppi, köldum merki, en það hefur núverandi
sundpolli við Blómsturyqlli, í forseti landsins einn áður hlot-
Hrafnagilshreppi, í vo,lgrÍvJayg ið.
við Kristnes, og á köldum stáð Dagur sendir afmælisbaminu
í Öngulsstaðahreppi. En í þess- hugheilar kveðjur.
um sveitum öllum höfðu nýlega E. D.
Sængurfatnaður
DÁMASK, bómullar
DAMASK, silki
HÖIE-KREPP-EFNI
LAKALÉREFT, hvítt
LAKALÉREFT, mislitt, komið aftur
KODDAVERALÉREFT
VEFNAÐARVÖRUDEILD
TIL SÖLU:
EINBÝLISHÚS á Ytri Brekkunni. Sem nýtt. 2 stofur,
4 herbergi. Lóð fullfrágengin.
6 HERBERGJA ÍBÚÍ) við Aðalstræti. Góðir greiðslu-
skilmálar.
6 HERBERGJA ÍBÚÐARHÆÐ á Ytri Brekkunni.
2 HERBERGJA STÓR ÍBÚÐ á Ytri Brekkunni.
2 HERBERGJA ÍBÚÐ á Oddeyri. |
EINBÝLISHÚS og ÍBÚÐIR af öðrum stærðum.
Upplýsingar gefur
RAGNAR STEINBERGSSON, HRL.,
Hafnarstræti 107
Símar 1-17-82 og 1-14-59. Viðtalstími kl. 5—7 e. h.