Dagur - 11.10.1967, Blaðsíða 4
4
WÍ'ÍSÍÍ;:ÍÍÁ:ÍÍ;:ÍÍÁ:ÍX:ÍÍ>A:ÍÍ::ÍÍK:K:Í:ÍÍ::Í!Í:ÍSÍÍÍ!;?ÍÍÍÍ::ÍÍÍÍIÍÍÍ::!%'X:ÍÍÍ:-Í:'Í;>ÍX<,ÍÍÍÍX:Í:!:Í:-ÍÍ;¥;*
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERJLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Áfangi í húsnæðismálum
ÚTHLUTAÐ liefur verið 283 íbúð-
um í hinu nýja Breiðlioltshverfi í
Reykjavík, en alls eiga þær að verða
1250 talsins. En íbúðir þessar eru
byggðar af ríki og Reykjavíkurborg,
og í samvinnu við verkalýðsfélögin
þar, samkvæmt samningi þar uin við
lausn kjaramála á sínum tíma. Þetta
er hin svokallaða „byggingaáætlun“
þar syðra. Löggjafavaldið samþykkti
hana og veitti heimild til þess, að
hún yrði víðar gerð á sama hátt. En
íbúðir þær, sem hér um ræðir, eru
seldar meðlimum verkalýðsfélaga
með liagstæðari kjörum en tíðkast.
Má þar nefna, að íbúðunum fylgir
80% lán og er það afborgunarlaust
fyrstu árin. Lán þetta er til 33 ára.
Hér er á ferðinni ný stefna, sem er
að því leyti mikilsverð, að farið er
inná leið mikilla lána til langs tíma,
en á þann veg m. a. hafa okkar ná-
grannaþjóðir mætt húsnæðisþörf-
inni.
Saga þessa máls á Akureyri er
stutt. Sigurður Óli Brynjólfsson og
Haukur Árnason fluttu málið í bæj-
arstjórn 1966. Var því vísað til bæjar-
ráðs og verkalýðsfélaganna. í sumar
flutti Sigurður Óli Brynjólfsson mál
ið á ný í bæjarráði (á þeim tíma er
bæjarráð starfaði sem bæjarstjóm)
og var samþykkt að vinna að fram-
gangi þess. Á þessu tímabili liefur
livorki komið stuna eða hósti frá
verkalýðsfélögunum eða t. d. frá full-
trúum Alþýðubandalags eða Alþýðu
flokks í bæjarstjórninni. Má því með
nokkrum rétti draga ályktun um
áhuga þeirra. Og ekki sáu fulltrúar
Alþýðub. og Alþýðufl. neina ástæðu
til að taka til máls við afgreiðslu fé-
lagsmálaráðuneytisns nú í sumar,
sem var jákvæð og má skoða sem
áfanga þessa mikla hagsmunamáls,
og frá hefur verið sagt hér í blaðinu.
Björn Jónsson alþingismaður ritar
um þetta mál í Verkamanninum í
sl. viku og telur frásögn Dags sverta
verkalýðsforystuna í frásögn af mál-
inu. Það er auðvitað ekki Degi að
kenna þótt lítt hafi orðið vart við
áhuga verkalýðsfélaganna hér á
þessu málefni, og sprettur misskiln-
ingur Bjöms eflaust af því, að hann
hefur ekki fylgzt nægilega vel með
bæjarstjómarstörfum. Hitt er aftur
á móti ánægjuefni, að hann skuli
hafa unnið að málinu syðra, bæði á
Alþingi og í viðtölum við ríkisstjóm
ina, er hann segir frá í grein sinni og
er ekki að efa, að þar er rétt frá sagt.
Er þess nú að vænta, að allir stjóm-
málaflokkar í bæjarstjóm vinni nú
að því sem einn maður við ríkisvald-
ið og í samráði við verkalýðsfélögin,
að hrinda þessu máli fram og leysa
á þann hátt húsnæðisþörf fjölmargra
efnalítilla manna í Akureyrarkaup-
stað. □
Aðalfundur Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti
AÐALFUNDUR Æskulýðssam
bands kirkjunnar í Hólastifti
var haldinn á Hvammstanga 9.
—10. sept. sl. Þetta er 8. aðal-
fundur sambandsins. Formaður
þess, sr. Pétur Sigurgeirsson,
flutti skýrslu stjórnarinnar og
bar hún með sér, að starf sam-
bandsins fer sívaxandi. Aðal-
viðfangsefni sambandsins er
uppbygging sumarbúðanna við
Vestmannsvatn og efling stanfs
ins þar. Fjórfeeting þar nemur
nú tæpum 3 millj. kr., þar af
í skuld um 300 þús. kr. Nú er
verið að hefja byggingu nýs
svefnskála. Verður það fjárfrek
framkvæmd, evo að sambandið
og einstöð fólög þess þurfa að
vinna ötullega að fjáröflun enn
sem fyrr. Gjafir og ýmis fjár-
öflun námu á liðnu starfsári um
870 þús. kr. Við Vestmanns-
vatn dvöldu á þessu sumri 210
börn. Þörfinni er þó hvergi
nærri fullnægt og er sambandið
þegar f arið að hugsa fyrir bygg-
ingu annarra sumai’búða á Hól
um í Hjaltadal. Sr. Sigurður
Guðmundsson, Grenjaðarstað
flutti skýrslu sumarbúðanna og
lagði fram reikninga sambands-
ins, og Gylfi Jónsson stud.
theol. sagði frá sumai'búðastarf
inu.
Foringjanámskeið fyi-ir æsku
lýðsfox-ingja var haldið á Vest-
mannsvatni sl. haust, ennfi-em-
ur voru haldin 2 fermingar-
báx-namót á vegum sambands-
ins og 1 almennt æskulýðsmót.
Bókaútgáfa sambandsins gaf
út 2 bækur á árinu, bókina
Bítlar eða Bláklukkur eftir
Jennu og Hreiðar Stefánsson og
æskulýðssöngbókina Ung akirkj
an, sem hefur að geyma sálma
og æskulýðssöngva ásamt fleira
efni. Nótur fylgja söngtextum.
Si\ Jón Bjarman æskulýðsfull-
trúi flutti skýrslu bókaútgáf-
unnar.
Æskulýðsblaðið er að hefja
göngu sína á ný. Utgáfa þess
lagðist niður eftir að það var
flutt til Reykjavíkui-, en nú
verður það flutt norður aftur og
hefur göngu sína undir ritstjórn
sr. Bolla Gústafssonar í Lauf-
ási.
Bréfaskóli sunnudagaskóla-
bama hóf göngu sína á árinu
undir ritstjóm sr. Jóns Kr. ís-
feld og er þátttaka í honum
gleðilega mikil.
Um næstu jól er væntanleg
hljómplata gefin út af Fálkan-
um h.f. og ÆSK í samvinnu.
Á plötunni verður jólaguðspjall
ið og jólasöngvar, hvort tveggja
flutt af bömum. Mun platan
nefnd Jólavaka.
Þá er í undirbúningi handbók
fyrir starfsmenn í kirkjulegu
æskulýðsstarfi.
Þá gekkst sambandið fyrir rit
gerðasamkeppni meðal nem-
enda í framhaldsskólum noi-ðan
lands. Þátttaka var mjög góð og
verður væntanlega framhald
á þeirri stai-fsemi.
Sambandið gaf út auglýsinga
blaðið Norðlending og hafði fjár
öflun á ýmsan annan hátt s. s.
með útgáfu jólakorta o. fl.
Dómhildur Jónsdóttir prests-
frú á Skagaströnd flutti erindi
á fundinum um föndurvinnu í
sambandi við bama- og ungl-
ingastarf. Samþykkti fundurinn
að athuga möguleika á sýningu
slíkrar föndurvinnu á næsta
aðaðfundi.
Aðalumræðuefni fundai-ins
var Skemmtanir og Kristindóm
ur. Framsögumenn voru Jón
Þorsteinsson úr Ólafsfirði og sr.
Bolli Gústafsson í Laufási. Um-
ræður urðu miklar um málið.
Voru menn sammála um að
þetta séu ekki andstæður, geti
vel farið saman innan vissra
takmai-ka. Trúin á ékki að ein-
angra fólk fx-á lífinu, heldur á
hún að þi’oska það, kenna því
að velja og hafna. Trúarvitund
mannsins á að efla hann gegn
því sem rangt er og skaðlegt,
en kenna honum að njóta þess,
sem hollt er og veitir sanna
gleði. í sambandi við þetta um-
ræðuefni var samþykkt tillaga
þess efnis, að kirkjan þyrfti að
gera meira hér en hingað til í
því að vinna gegn áfengisböl-
inu.
Þá samþykkti fundurinn að
fagna fyrirkominni hugmynd
um kirkjulegan gagnfræðaskóla
á Hólum í Hjaltadal, og vill
stuðla að því með Hólafélaginu
að hugmyndin verði sem fyrst
að veruleika.
í sambandi við fundinn var
kirkjukvöld í Hvammstanga-
kirkju Sr. Gísli Kolbeins á Mel
stað stjórnaði þeirri dagskrá,
sem þar fór fram. M. a. var þar
í NÝÚTKOMNUM vikublöð-
um bæjarins gefur að líta smá-
klausu úr lögi-eglusamþykkt
Akureyi-ar, og fjallar hún um
takmarkaða útivist bai-na á
kvöldin.
Mörgum sinnum hefur hér í
blaðinu o. v. verið bent á
brýna nauðsyn þess, að regl-
ur þessar séu í heiðri hafðar,
bent á hættur þær, sem kvöld-
göltrinu geta fylgt, auk "þess
uppeldis- og siðferðislega
hnekkis, sem það hefur í för
með sér að brjóta gegn hollum,
lögboðnum reglum.
Flestir foreldrar munu vilja
láta böi-n sín fylgja í þessu efni
settum reglum og reyna það
alltaf. En hér er við ramman
reip að draga vegna þess að
alltaf eru mörg börn á sama
reki, sem áfram leika lausum
hala úti, er hin hverfa inn kl.
20. Og sum þeirra — úti, sem
orðin eru 12 ára, hafa heimild
til þess. Þetta gerir foreldrum,
og einnig lögreglu, miklu erfið-
ara um vik við sína umsjón.
Fjölmargir nemendur í bama-
skólum bæjarins verða 12 ára
síðasta ár sitt í skólanum, og
verður ekki í hasti og rökkri
séður munur á þeim 11 og 12
ára. í því skjóli skáka svo fleiri
og fleiri. Hér virðist mér þurfa
og mega ráða bót á. Væri ekki
eðlilegra og heppilegra að hið
sama gilti fyrir öll þau böm,
sem enn eru í bamaskóla?
Þetta ætti bamavemdamefnd
að athuga og vera fært að fá
breytingu þar á, ef heppilegra
virðist. Hér er um réttlætismál
að ræða, og það er í bamanna
augum mikið atriði. Og foreldr-
um, kennurum og íögréglu yrði
áreiðanlega með þessu máli
gert léttara fyrir. Og allir þess-
ir aðilar eiga hér að hjálpast að.
f Reykjavik er mikill áróður
rekinn til þess að bæta um í
þessu efni. Og þar hefur lög-
reglan til hjálpar sérstaka
hverfisstjóra víðsvegar um borg
ina. Akureyri er þá og þegar
orðin borg (með 10 þús. íbúa),
og mætti sennilega á þessu
sviði — o. v. — taka þá stóru
systur sér til fyrirmyndar. Það
gæti t. d. orðið mörgum vel-
viljuðum foreldrum ómetanleg-
gefið allgott yfirlit í myndum
og máli um margt af því æsku-
lýðsstarfi sem nú er unnið norð
anlands á vegum kirkjunnar.
Kvöldinu lauk með fjölmennri
altarisgöngu.
Fundarlok voru um hádegi á
sunnudag, en kl. 2 e. h. var boð
að til messu á 6 kirkjum í ná-
grenni fundarstaðar. Aðkomu-
prestar stigu í stólinn og ungl-
ingamir, fulltrúar æskulýðsfé-
laganna á fundinum fluttu pistil
og guðspjall í messunum.
Um 40 fulltrúar sátu fundinn,
en félögin innan sambandsins
eru 10. fbúar Melstaðai-presta-
kalls sýndu fundarmönnum
mikla gestrisni og var dvölin á
meðal þeirra hin ánægjuleg-
asta.
Stjórn Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti |skipa:
Sr. Pétur Sigurgeirsson, Akur-
eyri, form., sr. Þórir Stephen-
sen, Sauðárkróki, ritari, sr. Sig
urður Guðmundsson, Grenjað-
arstað, gjaldkeri, og meðstjóm-
endur Sigurður Sigurðsson og
Guðmundur Garðar Arthúrs-
son, Akureyri. □
ur stuðningur, ef frá útvarpinu
heyrðist — einu sinni í viku
eða svo — þegar setið er að
kvöldverði — ákveðin áminn-
ing til barnanna á Akureyri frá
lögreglunni, að muna eftir að
vera komin inn á réttum tíma.
Takist okkur að koma á góðri
reglu í þessu efni og halda
henni, væri von um, að á næstu
árum þyrfti ,,rafveitan“ — þ. e.
liðsmenn hennar — ekki að
standa ráðþrota í myrkum göt-
um bæjarins vegna óknytta og
skemmdarverka unglinga, og
skip í höfninni ekki þurfa öfl-
uga lögregluvernd til að halda
friði og tækjum sínum
óskemmdum þegar legið er við
bryggju á Akureyri o. s. frv.
Frá mínu takmarkaða ensku-
námi minnist ég mjög oft
tveggja vísuhendinga, sem ég
læt hér fylgja, vitandi það, að
kjmning ungmenna á Akureyri
er orðin svo mikil af enskri
tungu, að þau munu mörg skilja
þetta fallega spakmæli og geta
mömmu og yngri systkini ef
þarf:
„Early to bed, and early to
rise make man healt’hy, wealthy
and wise“.
Mætti það sem flestum að
kenningu verða.
Akureyri, 8. okt. 1967.
Jónas í Brekknakoti.
Utivist barna
AÐ GEFNU TILEFNI beinir
'bamavemdarnefnd • og æsku-
lýðsráð þeim tilmælum til for-
eldra í bænum, að þau virði 20.
grein lögreglusamþykktar Akur
eyrarbæjar, en þar segir meðal
annars: Böm >mgri en tólf ára
mega ekki vera á almannafæri
seinna en klukkan 20 á tíma-
bilinu 1. okt. til 1. maí, nema í
fylgd með fullorðnum vanda-
mönnum.
Börn 12—14 ára mega ekki
vera á almannafæri seinna en
klukkan 22 á tímabilinu 1. okt.
til 1. maí, nema í fylgd með
fullorðnum vandamönnum. □
ALLIR HJALPITIL
5
% Ferðafólk á Hólasandi í boði Norðurverks h.f. (Ljósm.: E. D.) %
Vilja sálfræðiþjónustu í skólum
AÐALFUNDUR Kennarafélags
Eyjafjarðar var haldinn í Odd-
eyrarskólanum á Akureyri 26.
sept. sl. Á fundinum var m. a.
rætt um knýjandi nauðsyn þess,
að fastri sálfræðiþjónustu verði
komið á hér á Norðurlandi, og
samþykkt einróma eftirfarandi
tillaga.
Aðalfundur Kennarafélags
- Frá lögreglunni
(Framhald af blaðsíðu 1).
Olvun, síðan átök manna í
milli ög einhver meiðsl urðu við •
Hóte KEA á mánudaginn.
í fyrrinótt handtók öreglan
ökumann vegna meintrar ölvun
ar við akstur og annan í: gær-
morgun. □
r
- Ms. Arni Friðriksson
(Framhald af blaðsíðu 1).
innar er þessi vísa Baldurs
Eiríkssonar skráð:
Hljóttu gengi glæsta skeið,
gæfan fylgi nafni.
Leggist ætíð ljúf og greið
leiðin fyrir stafni.
Fagnar nú um fjörð og dal
framsýnn þjóðarandi,
traustu fleyi er flytja skal
farsæld voru landi.
- Hörmuleg sjón
(Framhald af blaðsíðu 8).
lítið meira en beinin, kræklótt-
ir, dauðir og máttlausir, og
komu að engum notum. Þetta
var hin hörmulegasta sjón.
Þessar línur eru til þess rit-
aðar, að minna eftirlitsmenn
vega á þessa hættu og að gæta
þess, að slík saga endurtaki sig
ekki.
Einn af sjónarvottunum.
- NÝTT FÉLAG
(Framhald af blaðsíðu 8).
Fyrstu stjóm þessa sambands
skipa: Bjami Einarsson, Ytri-
Njai’ðvík, formaður, Þorbergur
Ólafsson, Hafnarfirði, Jón
Svcinsson; Garðahreppi, Marsel
íus Bernharðsson, Isafirði og
Sigurjón Einarsson, Hafnarfirði.
Eyjafjarðar, haldinn á Akur-
eyri 26. sept. 1967, skorai' á
fræðslumálastjórn, að nú þegar
verði gerðar nauðsynlegar ráð-
stafanir til að fastri sálfræði-
þjónustu verði komið á, á Norð
urlandi, svo fljótt sem verða
má.
Stjórn Kennarafélags Eyja-
fjarðar.
Þá var nokkuð rætt um sjón-
varpsmál og í því sambandi sam
þykkt eftirfarandi tillaga:
Aðalfundur K.F.E. haldinn á
Akureyri 26. sept. 1967 fagnar
því að hermannasjónvarpið á
Keflavíkurflugvelli er nú orðið
aðeins fyrir eigin umráðasvæli.
Jafnframt lýsir fundurinn
ánægju sinni við tilkomu ís-
lenzks sjónvarps í Reykjavík og
telur, að á það beri að leggja
höfiúáherzlu, að allir lands-
menn fái sem fyrst notil þess,
í stað þess að kosta miklu til að
veita þeim, sem þegar hafa að-
stöðu til að njóta sjónvarps,
sem mest að vörtum, þ. e. 6
daga sjónyarp í stað (þriggja)
fjögurra, en fjöldi sjónvarps-
notenda hafa mótmælt þessari
aukningu.
Eins og kunnugt er gefur fé-
lagið út uppeldisritið Heimili
og skóla, en ritstjóri þess er
Hannes J. Magnússon, rithöf-
undur og fyrrv. skólastjóri.
Síðastliðinn vetur var gerð til-
aun til útbreiðslu á ritinu og
söfnuðust 150 nýir áskrifendur.
Á fundinum var samþykkt að
gera Eirík Sigurðsson fyrrv.
skólastjóra að heiðursfélaga, en
hann hefúr um áratuga skeið
setið í stjórn félagsins.
Að loknum fundi bauð félag-
ið til kaffidrykkju í skólanum.
Stjóm félagsins skipa nú: For
maður Indriði Úlfsson, skóla-
stjóri, meðstjórnendur Edda
Eiríksdóttir, skólastjóri og
Jónas Jónsson, kennari. □
Sænsk-dönsk trúboðshjón komin
FYRIR nokkrum dögum komu
hingað til bæjarins sænsk-
dönsk trúboðshjón, Ulf og
Caren Carlbark. Hafa þau kom
ið 'hingað á vegum Varðtums-
félagsins og munu þau hjónin
starfa með söfnuði votta Jehóva
og taka þátt í því boðunar- og
bibliunámsstarfi, sem hann rek
ur hér í bæ. Ulf og Caren Carl
bark hafa verið hér á landi um
hálft ár og 'hafa fram að þessu
dvalið í Reykjavik til þess að
kynna sér málið. Forstöðumað-
ur votta Jehóva hér í bæ, Kjell
Geelnard, segir að allir vottar
Jehóva um allan heim taka þátt
í boðunarstarfinu með því að
fara á milli húsa og ókeypis
stjórna biblíunámi hjá því
fólki sem vill kynna sér efni
Biblíunnar. Að sjálfsögðu verða
flestir vottar að nota sína frí-
tíma í því starfi, en samt sem
áður hafa um 50.000 vottar get-
að gert prédikunarstarfið að
aðalstarfi sínu eins og t. d. þessi
hjón, sem núna hafa komið til
Akureyrar. Alls eru vottar
Jehóva núna um 1.100.000 um
allan heim, segir hr. Geelnard
að lokum.
Hversu lengi Ulf og Caren
Carlbark verða hér á Akureyri
er óákveðið, en þau kunna bæði
vel við sig hér á landi og eru
þau sérstaklega hrifin af því
hvað íslendingar yfirleitt er
vingjamlegt og gestrisið fólk.
Hingað til landsins komu þau'
Ulf og Caren frá Höganás í Sví-
þjóð en þar voru þau í sam-
svarandi starfi í 3 ár.
(Aðsent)
Fjölbreytt íþróttastarf í vetur
r
Ekki fá allir tíma í Iþróttaskemmimni sem vilja
HAFNAR eru nú æfingar í
Iþróttaskenimunni á Oddeyri
bæði í handknattleik og körfu-
knattleik, og er nú aðstaða hin
ákjósanlegasta í húsinu. Dálitl-
ar breytingar hafa farið þar
fram og liægt er nú að fara í
bað að loknum æfingum og
keppni. Fyrirsjáanlegt er, að
ekki geta allir fengið þá tíma
eða tímafjölda, sem sótt var um
og er hver tími skipaður frá kl.
4 til 11 alla daga vikunnar nema
laugardaga og sunnudaga, en
um helgar verður keppt er líða
tekur á vetur. Hreinn Óskars-
son verður forstöðumaður
íþróttaskemmunnar og verður
ráðinn maður honum til að-
stoðar.
Það fór eins og raunar var
búizt við fyrirfram, að íþrótta-
skemman getur ekki fullnægt
þeirri eftirspurn eftir tímum í
hópíþróttum og öðrum íþrótta-
greinum, sem nauðsynlegt væri.
Hún getur varla fullnægt þeim
tímum sem óskað er eftir aðeins
í handknattleik og körfuknatt-
leik. Það er því fyrirsjáanlegt
að nýtt íþróttahús, sem notað
yrði fyrir skólana á daginn,
leysir ekki þann vanda, sem nú
er við að glíma, því það gefur
ekki fleiri tíma að kvöldinu en
skemman, og búast má við auk
inni eftirspurn eftir því sem
bæjanbúum fjölgar og fjöl-
breyttni verður meiri í íþrótta-
lífi bæjarins. Sú spurning hlýt-
ur því að vakna hvort ekki er
rétt að setja trégólf í íþrótta-
skemmuna næsta sumar og
nota hana á daginn sem íþrótta
hús fyrir Oddeyrar- og Glerár
hverfisskóla, þar til nýja húsið
rís. Það skapar auðvitað hag-
kvæmai'i rekstur fyrir húsið ef
það er í notkun allan daginn,
. auk þess sem mjög langt er fyr
ir böm úr þessum skólum að
fara upp í gamla íþróttahúsið á
brekkunni.
Mikið fjör í liandknattleik og
körfuknattleik í vetur.
Eins og frá hefur verið sagt
áður taka þeir Einar Bollason
og Matthías Ásgeirsson við
þjálfun í körfuknattleik og
handknattleik í vetur, og er
enginn vafi á því, að þessir
tveir ágætu íþróttamenn gera
sitt bezta til að efla þessar
íþróttagreinar, auk þess leika
þeir með Akureyringum í ís-
landsmótum í viðkomandi
íþróttagreinum.
Ákveðið er að íslandsmót í
handknattleik hefst í byrjun
desember og leika Akureyring-
ar í 2. deild, en auk þeirra taka
þátt í rnótinu, Ármann, ÍR og
Þróttur úr Reykjavík og Kefl-
víkingar og Vestmannaeyingar.
Það verða því 6 lið í 2. deild í
vetur. Ekki er enn ákveðið um
fyrirkomulag keppninnar, en
3ja manna nefnd sem kjörin
var á Ársþingi HSÍ um sl. helgi
mun reyna að finna þá lausn
sem öll liðin geta sætt sig við,
en mikið tap varð á 2. deild sl.
vetur.
Það er fyrirsjáanlegt, að mik-
ið verður um að vera hjá hand-
knattleiksmönnum í vetur, eða
ætti að geta orðið. Búast má við
að Haukar frá Hafnarfirði komi
norður í þessum mánuði og
fleiri 1. deildarlið vilja koma
áður en íslandsmótið hefst.. Þá
stendur til boða að fá hingað til
Akureyrar í janúar pólskt lið,
sem kemur til landsins í boði
Hauka, mjög gott lið. Það eru.
þvi stór verkefni framundan,
sem taka þarf föstum tökum.
Það er fullvíst að ÍBA-liðið
gengur nú miklu betur undir-
búið til leiks en í fyrra, enda
vissu allir að æfingar gátu þá
ekki hafizt af alvöru fyrr en
um áramót. Handknattleiksunn
endur biða óþreyjufullir eftir
leikjum Akureyringa í vetur og
vona sannarlega að þeir velgi
sunnanliðunum í íslandsmót-
inu.
1. deildarlið Þórs í körfu-
knattleik á eflaust við rammann
reip að draga, en það er trú mín
að það geti komið skemmtilega
á óvart í vetur, enda æfir það
nú fjórum sinnum í viku.
Greinilegt er af því sem sagt
hefur verið hér á undan, að fjöl
breytt íþróttalíf verður hér í
bæ í vetur og íþróttaunnendur
fá væntanlega að sjá marga
skemmtilega leiki í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri. Sv. O.
HUSVIKINGAR
SIGRUÐU
Húsavík 10. okt. Laugardaginn
7. þ. m. fór fram í Reynihlíð hin
árlega bæjarkeppni í bridge
milli Húsavíkur og Akureyrar.
Keppt var á sex borðum. Hús-
víkingar sigruðu með 30 stigum
gegn 18 og á fimm borðum af
sex. Þ. J.
Æfingatímar í íþróttaskemmu
verða sem hér segir í vetur:
MANUDAGAR:
kl. 4.00— 5.00 ÍMA, körfuknattleikur
— 5.00— 6.00 Þór, liandknattleikur, stúlkur 13—14 ára
— 6.00— 7.00 Þór, liandknattleikur, 3. fl. karla
— 7.00— 8.00 Þór, handknattleikur, 2. fl. og m.fl. karla
— 8.00— 9.00 Þór, handknattleikur, 2. fl. og m.fl. kvenna
— 9.00—10.00 Þór, körfuknattleikur, meistaraflokkur
— 10.00—11.00 KA, körfuknattleikur, meistarafl. og 2. fl.
ÞRIÐJUDAGAR:
kl. 4.00— 5.00 KA, handknattleikur, 4. fl. karla
— 5.00— 6.00 KA, liandknattleikur, 3. fl. karla
— 6.00— 7.00 KA, liandknattleikur, stúlkur 13—14 ára
— 7.00— 8.00 KA, liandknattleikur, stúlkur 15 ára og eldri
— 8.00— 9.30 ÍBA, handknattleikur, meistarafl. karla
— 9.30—10.30 KA, handknattleikur, m.fl., 1. og 2. fl. karla
MIÐVIKUDAGAR:
kl. 4.00— 5.00 Þór, handknattleikur, 4. fl. karla
— 5.00— 6.00 Þór, handknattleikur, stúlkur 13—14 ára
— 6.00— 7.00 Þór, handknattleikur, 3. fl. karla
— 7.00— 8.00 Þór, handknattleikur, 2. fl. og m.fl. karla
— 8.00— 9.00 Þór, handknattleikur, 2. fl. og m.fl. kvenna
— 9.00—10.00 Þór, körfuknattleikur, meistaraflokkur
— 10.00—11.00 KA, körfuknattleikur, meistarafl. og 2. fl.
FIMMTUDAGUR:
kl. 4.00— 5.00 KA, handknattleikur, 4. fl. karla
— 5.00— 6.00 KA, liandknattleikur, 3. fl. karla
— 6.00— 7.00 KA, handknattleikur, stúlkur 13—14 ára
— 7.00— 8.00 KA, handknattleikur, stúlkur 15 ára og eldri
— 8.00— 9.30 ÍBA, liandknattleikur, meistarafl. karla
— 9.30—10.30 KA, handknattleikur, m.íl., 1. og 2. fl. karla
FÖSTUDAGUR:
kl. 4.00— 5.00 IMA, körfuknattleikur
— 5.00— 6.00 Þór, handknattleikur, 4. fl. karla
— 6.00— 7.00 ÍMA, handknattleikur
— 7.00— 8.00 Skotfélag Akureyrar
— 8.00— 9.00 Þór, körfuknattleikur, meistarafl. karla
— 9.00—10.00 KRA, knattspyrna
— 10.00—11.00 Skautafélag Akureyrar
LAUGARDAGUR:
kl. 5.00— 7.00 Þór, körfuknattleikur, meistarafL karla
FORSTÖÐUMAÐUR.
Æfingagjöld fyrir veturinn í íþróttaskemmunni fyrir félaga
KA og Þórs verða sem hér segir:
4. fl. karla kr. 600.00. — Stúlkur yngri fl. kr. 600.00. —
3. fl. karla kr. 700.00. — Stúlkur eldri fl. kr. 900.00. — M.fL, g
1. og 2. fl. karla kr. 1000.00.
KA — ÞÓR.
Æfingatímar í íþróttum fyrir böm á barnaskólaaldri verða g
ekki í íþróttaskemnumni í vetur. — Sími íþróttaskenun- ý’
unnar verður 2-15-30.
ÍÞRÓTTARÁÐ AKUREYRAR