Dagur - 25.10.1967, Síða 5
1
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
UTANRÍKISVIÐSKIPTI
OG FLEIRA
í NÝÚTKOMNU septemberhefti
Hagtíðinda er skýrsla um útflutning
og innflutning fyrstu átta mánuði
ársins 1967, þ. e. til ágústloka. Þessa
átta mánuði var útflutningur af
kunnum ástæðum miklu minni en á
sama tíma í fyrra. í fyrra nam út-
flutningur þennan árstíma 3503
millj. kr. en í ár 2673 millj. kr. eða
830 millj. kr. minna þessa fyrstu átta
mánuði ársins.
En hvað þá um innflutninginn?
Minnkaði hann einnig á sama tíma
frá ári til árs? Síður en svo. Innflutn-
ingurinn fyrstu átta mánuði ársins
1966 var 4377 millj. kr. en í ár á
sama tíma 4647 millj. kr. Á sama
tíma og útflutningurinn minnkaði
um 830 millj. kr. jókst innflutning-
urinn um 270 millj. kr.
Ætla má því að þessi óhagstæði
vöruskiptajöfnuður hafi gleypt
meira en helming af gjaldeyrisvara-
sjóðnum svonefnda eins og hann var
talinn um síðustu áramót.
Ahnennt vonast menn eftir því, að
eitthvað rofi til í útflutningsmálum
síðustu mánuði ársins: Að síldarafl-
inn haldi áfram og að verðmæti hans
aukist lilutfallslega, þar sem nú veið-
ist söltunarhæf síld. En á tölunum
hér að framan er auðsætt, að minnk-
un útflutningsverðmætisins um 830
millj. kr. liefur ekki verið látin hafa
áhrif á „úttektina" erlendis. Hún lief
ur þvert á móti verið aukin og gjald-
eyrisvarasjóðnum látið blæða.
Hver er ástæðan fyrir slíkum þjóð-
arbúskap? Kannski sú, að stjómar-
flokkarnir vilji ekki eða þori bók-
staflega ekki að taka upp það, sem
þeir á sl. vori kölluðu „höft“ á þessu
sviði, hvemig sem á stendur. Önnur
ástæða er þó kannski nærtækari.
Ríkissjóður þurfti á aðflutnings-
gjöldum og söluskatti að halda í vax-
andi mæli m. a. dl að greiða niður
dýrtíðarvöxtinn, sem ekki mátti
koma í ljós fyrr en eftir kosningar —
en nú í þingbyrjun segir svo harka-
lega til sín, að mörgum óar við.
Þannig er ástandið. Ríkissjóði svo
mjög íþyngt vegna falinnar verð-
bólgu, að hann hefur ekki getað stað
ið í skilirm, nema til kæmu tolltekj-
ur af vaxandi innflutningi — á sama
tíma og gjaldeyrisöflunin drógst
saman.
Er það ofmælt, að svona búskapar-
lag þurfi að endurskoða frá rótum?
Er ekki eitthvað bogið við það, að
hrúga inn í landið erlendum vörum
jafnvel iðnvarningi í samkeppni við
íslenzkan iðnað, í svo ríkum mæli,
að hin innlendu fyrirtæki þurfi að
draga sainan starfsemi sína eða jafn-
vel að liætta? □
Þing Alþýðusambands Norðurlands mótmælir
harðlega kjaraskerðingarfrumvarpi stjórnarinnar
10. ÞING Alþýðusambands
Norðurlands var haldið á Siglu
firði 21. og 22. okt. Til þingsins
voru mættir 36 fulltrúar frá 12
félögum. Á þinginu voru m. a.
samþykktar einsóma ályktanir
um kjaramál og atvinnumál.
Tryggvi Helgason, sem hefur
verið forseti sambandsins frá
stofnun þess eða í 20 ár bað nú
um lausn frá því starfi og voru
honum færðar miklar þakkir
fyrir giftudrjúg störf.
í miðstjórn voru kosnir: For-
seti Bjöm Jónsson, varaforseti
Jón Helgason og ritari Jón
Ingimarsson.-
Ályktun 10. þings AN um
kjaramál.
10. þing Alþýðusambands
Norðurlands, haldið á Siglufirði
21.—22. okt. 1967, mótmælir
harðlega frumvarpi því um
efnahagsaðgerðir sem ríkis-
stjórnin hefir lagt fram á Al-
þingi, og þeim aðgerðum, sem
þegar eru komnar til fram-
kvæmda og eru fyrirhugaðar í
tengslum við þessa lagasetn-
ingu, en þær munu að saman-
lögðu leiða af sér álögur að upp
hæð a.m.k. 755 milljónir króna.
Auðsætt er, að álögur þessar
leggjast með hlutfallslega mest
um þunga á hina tekjulægstu í
þjóðfélaginu, en aðeins að mjög
litlu leyti á þá, sem betur mega,
og telur þingið þær því strax af
þeirri ástæðu með öllu óviðun-
andi.
Alveg sérstaklega fordæmir
þingið þá fyrirætlun stjómar-
valda að rjúfa þau tengsl milli
verðlags og launa, sem um var
samið vorið 1964 og sem alir
kjarasamningar launafólks hafa
síðan verið byggðir á. Telur
þingið að engar breytingar á
þeim tengslum megi gera, ef vel
á að fara, nema með fullu sam-
komulagi við verkalýðssamtök-
in og þá aðeins með þeim hætti,
að breytingarnar tryggi eigi síð
ur en hið fyrra samkomulag
raungildi umsaminna launa
verkafólks.
Telur þingið hina einhliða
riftun samningagrundvallarins,
af hálfu ríkis eða löggjafarvalds
ins harkalega og fráleita ráða-
gerð, sem auk þess að valda lítt
bærilegri skerðingu lifskjara,
hlyti að leiða til varanlegs ófrið
ar og óvissu á vinnumarkaðin-
um og valda þannig tjóni og
áföllum fyrir alla aðila, sem
hlut eiga a ðmáli, og að því beri
að hindra framgang þeirrar
ráðagerðar með hverjum þeim
aðgerðum verkalýðssamtak-
anna, sem að haldi mega koma.
Þingið bendir á, að sú rýmim
á verðmæti útflutningsafurða,
sem líkur 'benda til að verði á
þessu ári, að enduðu margra
ára tímabili metafla og ákaf-
lega hagstæðrar verðlagsþróun
ar á erlendum mörkuðum hef-
ur þegar skollið á með fullum
þunga á afkomu allra þeirra,
sem að útflutningsframleiðsl-
unni vinna með samdrætti at-
vinnu og skertum aflahlut, svo
að vafalaust nemur hlutfalls-
lega meiru en hugsanlegri lækk
un þjóðartekna vegna minni
afla og lækkaðs afurðaverðs.
Þingið telur því fráleitt, að
nokkur rök styðji þá fyrirætl-
un að skerða enn afkomu þessa
fólks stórkostlega með hundruð
milljóna skattheimtu af brýn-
ustu nauðsynjum þess. Þingið
bendir einnig á þá staðreynd,
að þrátt fyrir verðlækkanir á
afurðum og nokkru minni afla,
er hvorttveggja, heildarafli og
verð hagstæðara en oftast áður
og ætti því með réttri stefnu í
efnahags- og atvinnumálum að
vera fullkomlega kleift að halda
í horfinu um samningsbundin
launakjör vinnustéttanna.
Þingið telur að höfuðorsakir
þeirra vandamála, sem nú
steðja að útflutningsatvinnu-
vegum þjóðarinnar séu á eng-
an hábt afleiðing þess að vinnu-
stéttirnar hafi- fengið of rífan
•hlut þjóðartekna, heldur sé
orsaka þeirra að leita í rangri
efnahagsstefnu, sem leitt hefur
af sér hættulega verðbólguþró-
un, skipulagsleysi í fjárfesting-
armálum og hirðuleysi um
rekstrarhagkvæmi og ennfrem-
ur ofþenslu í milliliða og verzl-
unarstarfsemi á kostnað út-
flutningsatvinnuveganna og
þeirra sem að þeim starfa.
Þingið telur að algjörs ósam-
ræmis gæti í rökum fyrir ráð-
stöfunum ríkisstjómarinnar þar
sem verðfall og aflatregða eru
höfuðröksemdimar, en ekkert
af hinum 7—8 hundruð milljón
um sem áformað er að inn-
heimta fer til aðstoðar við sjáv-
arútveginn.
Þingið telur því, að nú beri
að snúast við vandamálum efna
hagslífsins og atvinnuveganna
m. a. með því:
1. Að Alþingi og ríkisstjórn
taki upp framsýna uppbygg-
ingarstefnu í atvinnumálum
þjóðarinnar og þá fyrst og
fremst að því er sjávarútveg,
fiskiðnað og annað iðnað
landsmanna snertir. Verði í
því sambandi þegar hafin
endurbygging togaraflotans
og þess bátaflota, sem stund_
ar bolfiskveiðar og stórátak
gert í þá átt að fullvinna
sjávarfang og auka þannig
útflutningsverðmæti þess.
2. Að bæta rekstrargrundvöll
atvinnuveganna með hverj-
um tiltækum ráðum, sem
ekki hafa í för með sér al-
mennar vei’ðlagshækkanir og
skerðingu lífskjara, svo sem
lækkun vaxta og hagkvæm-
um og fullnægjandi stofn-
lánum og afnámi eða lækk-
un beinna og óbeinna álaga,
svo sem tolla og útflutnings-
gjalda.
3. Að stefna að heildarstjórn
þjóðarbúskaparins, hagr
kvæmri fjárfestingu og alls-
herjarátaki til að beita vís-
indum og tækni í þágu at-
FRAM hafa komið í sunnan-
blöðum harðar ákærur á hend-
ur skólaheimilisins Bjargs á
Seltjamamesi, en heimili þetta
starfrækir Hjálpræðisherinn.
Ákæran er byggð á meintri illri
meðferð á færeyskri stúlku,
sem þar hefur dvalizt.
Þar sem ég er heimili þessu
dálítið kunnugur og þekki for-
stöðukonu þess, og sá kunnug-
leiki hefur vakið hjá mér traust
til istofnunarinnar, koma mér
fréttir þessar furðulega fyrir
sjónir. Ég er sannfærður um, að
hér er farið með rangt mál,
enda málflutningur blaðaniia
einhliða. Hefi ég rökstuddan
grun um, að hér séu að verki
mjög óvinsamleg öfl, sem gera
vilja úlfalda úr mýflugu til þess
að vanvirða þessa stofnun
Hjálpræðishersins. Þótt aðrir
treysti sér e. t. v. til að leggja
framburð hinnar færeysku
stúlku til grundvallar ákærum
sínum á hendur skólaheimilis-
ins á Bjargi, geri ég það ekki og
vil hér með skora á fólk að bíða
vinnulífsins í stórauknum
mæli, því til eflingar og auk-
inna afkasta.
4. Að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til að utanríkisvið-
skipti þjóðarinnar séu ekki
rekin með illviðráðanlegum
gjaldeyrishalla.
5. Að vanda ríkissjóðs verði
mætt með ýtrustu sparnað-
arviðleitni og ráðdeild í smáu
sem stóru, nauðsynlegum
breytingum á skattheimtu-
formum og fullkomnu skatta
og tollaeftirliti t. d. með
innheimtu söluskatts við toll
afgreiðslu og verksmiðju-
dyr.
6. Að tafarlaust verði dregið úr
óhóflegum milliliðakostnaði
og sífellt aukinni verzlunar-
álagningu m. a. með því að
ríkið taki í sínur hendur
mikilvæga þætti innflutn-
ingsverzlunarinnar, svo sem
verzlun með olíur.
7. Að virk verðlagsákvæði verði
sett og verðlagseftirlit stór-
aukið.
Væru slíkar leiðir farnar
undanbragðalaust, telur þingið,
að fyllilega yrði unnt að halda
lífskjörum óskertum og bæta
þau, samfara aukinni verðmæta
sköpun atvinnuveganna. Þingið
hafnar því algjörlega þeirri
kjaraskerðingarleið, sem nú
virðist eina úrræði stjórnar-
valda og telur það skyldu
verkalýðshreyfingarinnar að
berjast gegn henni og hindra
þannig framgang hennar með
öllu því afli, sem samtökin ráða
yfir. — Hugsanlegri samþykkt
framlagðs frumvarps um efna-
hagsaðgerðir telur þingið, að
samtökum launafólks beri að
svara með tafarlausum launa-
hækkunum, sem á hverjum
tíma jafni kjaraskerðinguna að
fullu.
Felur þingið stjórn Alþýðu-
sambands Norðurlands að fylgj
ast nákvæmlega með fyrirhug-
uðum samningaviðræðum ASÍ
og ríkisstjórnarinnar og að sam
ræma aðgerðir verkalýðsfélag-
anna á Norðurlandi, ef viðun-
anleg lausn fæst ekki .í þeim
viðræðum.
Þá lýsir þingið yfir þeirri
skoðun sinni, að náist slík lausn
ekki hljóti vinnustéttirnar að
knýja fram gerbreytta efna-
hagsstefnu, sem taki fullt tillit
til hagsmuna þeirra. □
niðurstöðu þeirra rannsókna í
þessu máli, sem yfir standa.
Ónefndur ákærandi í þessu
máli, er í yfirheyrslu, einmitt
nú, á meðan línur þessar eru
skrifaðar. Fólk er stundum
fljótt að fella sína dóma. Ég bið
menn að fresta þeim þar til mál
ið liggur allt fyrir. Major Anna
Ona, forstöðukona skólans, var
hér í fríi fyrir skömmu og fékk
hún þá mörg bréf frá stúlkun-
um á Bjargi, sem báru því vitni
að hún nýtur bæði trausts og
vináttu þeirra. Nú er hún niður
brotin af þessu máli og liggur í
rúminu.
Málið er í rannsókn. Við skul
um bíða niðurstöðu þeirrar
rannsóknar. Það sem skeð hef-
ur, varpar miklum skugga á
starf Hjálpræðishersins á Sel-
tjarnarnesi og það verður erfitt
að má hann burtu. En sannleik
urinn sigrar jafnan og svo mun
einnig verða nú. Guð gefi þeim
styrk, sem í erfiðleikunum
standa.
Níels Ilansson,
Rétt er að bíða niðurstöðu rannsókna
s
Bræðrabrúðkaup á Akureyri. Talið frá vinstri: Valgerður Magnúsdóttir og Teitur Jónsson stud.
odont. Sigríður Jóhannesdóttir og Eirikur Jónsson stud. polyt. Svava Heiðrún Björgvinsdóttir og
Stefán Jónsson málaranemi.
Um 120 nemendur í Tónlisfarskóla Akureyrar
Vaxandi starf hjá Tónlistarfélagi bæjarins
FRÉTTAMÖNNUM var á laug
Fjáröflun Barnaverndarfélags Akureyrar
ardaginn boðið til fundar í Tón
listarskóla Akureyrar og þágu
þar ágætt kaffi. Tónlistarfélag
bæjarins og Tónlistarskólinn
kynntu starfsemi sína.
Jón Sigurgeirsson formaður
Tónlistarfélagsins kynnti fyrir-
hugað vetrarstarf félagsins, sem
að þessu sinni verður meira og
fjölbreyttara en áður og sagt
var frá í síðasta tölublaði Dags
og tónlistarunnendur hafa ef-
laust fagnað. Og nú vildi það
til, að tónlistarfólk — Lundúna
tríóið — kemur hingað og njóta
Reykvíkingar þess, en jafnan
hefur þetta verið á annan veg,
þann, að við höfum notið þess
listafólks, sem gisti höfuðborg-
ina, fengið það til að skreppa
norður.
Tónleikar Tónlistarfélagsins
Tónakvartettinn frá
Húsavík syngur
Húsavík 24. okt. Tónakvartett-
inn á Húsavík efnir til tveggja
samsöngva sunnudaginn 29.
okt., hinn fyrri á Dalvík kl. 16,
og í Óíafsfirði kl. 21 sama dag.
Kvartettinn hefur verið mjög
eftirsóttur skemmtikraftur. —
Hann er vel æfður og er með
fjölda laga á söngskránni. Á
þessu ári kom út hljómplata
með 6 lögum, sem kvartettinn
syngur og hefur henni verið vel
tekið. í ráði er að önnur plata
komi út innan skamms. Undir-
leikari er frú Björg Friðriks-
dóttir. Þ. J.
LEIÐRÉTTING
NOKKRAR línur féllu niður
úr viðtali við Snorra Sigfússon
í síðasta blaði. Svar við spurn-
ingunni Hvaða úrræði telur þú
líklegust? á að enda á þessa
leið:
Og nú er meira að segja far-
ið að nefna 14. árið 7. bekk
skyldunámsskólans rétt eins og
fyrir 20 árum, og 15. árið þá að
sjálfsögðu 8. bekk. Þetta er
eðlilegt framhald á sama skóla-
stigi skyldunámsins, sem bama
skólarnir sjái um. Svo tækju
gagnfræðaskólamir við. □
verða í vetur 6 að tölu: Trio of
London á morgun og unglinga-
tónleikar fyrr þann sama dag.
Magnús Jónsson syngUr 23. nóv.
V. Askenazy leikur 29. des.
M. Vaiman fiðluleikari kemur
hingað í marz. Hafliði Hall-
grímsson selloleikari 9. apríl og
Sinfóniuhljómsveitin í vor.
Jakob Tryggvason skýrði frá
starfi Tónlistarskólans, sem nú '
hefur um 120 nemendur og var
settur um mánaðamótin septem
ber—október. Við skólann
(Framhald af blaðsíðu 8).
móti svínakjöti nema verð-
lausu, og „engin trygging að við
fengjum nokkum tíman eyris-
virði fyrir það“, segir þar.
2. SNE, Grísaból, Mjólkur-
samlagið eða KEA(!) keyptu
svínabúið Lón fyrir smánar-
verð. Hvort tveggja haft eftir
Víkingi Guðmundssyni á Græn
hóli, sem bætir við aðdróttun-
um um, að KEA fari e. t. v. að
neyða bændur til að selja búfé
sitt á hálfvirði.
3. Eftir Óskari Hermannssyni
er haft, að KEA hafi tilkynnt
honum og félaga hans við Lóns-
svínabúið, að það hætti að taka
svínakjöt nema verðlaust og að
búið fengi ekki kjamfóður leng
ur, nema gegn staðgreiðslu.
Þess vegna hefðu þeir félagar
auglýst hús og svín til sölu.
„Það er ekki alltaf lengi gert að
gera út af við smælingjana",
segir Óskar og verða þau orð
naumast misskilin.
Dagur hringdi til Vals Am-
þórssonar fulltrúa kaupfélags-
stjóra og spurði hann hvað hæft
væri í ásökunum þessum. Hann
undraðist þennan málflutning
Sv. P. og harmaði, að hann
hefði ekki leytað upplýsinga
beggja aðila, áður en slíkar mis
sagnir væru sendar til birting-
ar í víðlesnasta blaði landsins.
í fyrsta lagi vil ég taka fram,
sagði Valur Arnþórsson, að
KEA hefur tekið svínakjöt gegn
staðgreiðslu, 67.50 pr. kg. í dag
fást 75 krónur fyrir kg. á
Reykjavíkurmarkaði. Vegna
vaxandi sölutregðu þéssa kjöts
var svínakjötsframleiðendum
bent á, að til þess gæti komið,
að ekki yrði hægt að greiða
starfa nú þrír erlendir menn og
ein kona, þ. e. Sigurður D.
Franzson, Jan Kisa, Philip
Jenkins og Maria Bayer-Jiitter.
Auk þeirra og skólastjórans
kenna við skólann, Soffía Guð-
mundsdóttir, Dýrleif Bjama-
dóttir, Þyri Eydal og Margrét
Eiríksdóttir.
Með ráðningu S. D. Franz-
sonar er söngnámið orðinn fast
ur þáttur skólastarfsins og Jan
Kisa tekur að sér þjálfun lúðra
sveitar barna. Þá fagnaði skóla-
stjórinn endurráðningu P. Jen-
kins við skólann. □
Pálsson?
þeim andvirði kjötsins fyrr en
það væri selt. Kemur það m. a.
til af því, að afurðalán fást ekki
út á svínakjöt, eins og aðrar
búsafurðir. Hins vegar tökum
við þessa vöru í umboðssölu
eins og aðrar landbúnaðarvör-
ur. Hvorki lagaleg eða siðferði-
leg skylda hvílir á KEA að hafa
þar annan hátf á.
í öðru lagi vil ég taka skýrt
fram, að KEA gerði ekki kröf-
ur til stöðvunar á rekstri svína-
búsins Lóns. Þar vom aðrir að
verki, þeir sem áttu veð í bæði
húsi og svínum og kröfðust
greiðslna. Eigendur Lóns báðu
SNE að kaupa svínin og fóru
þau kaup fram, og með þeim
hætti, að ég hygg að báðir
mættu vera sæmilega ánægðir.
Þeir kaupsamningar voru KEA
með öllu óviðkomandi.
í þriðja lagi verður það að
teljast nokkurt undrunarefni,
svo ekki sé meira sagt, að Ósk-
ar Hermannsson hafi viðhaft
þau orð, að KEA hafi gert út af
við svínabúsrekstur hans og fé-
laga hans, því að KEA hefur
hvað eftir annað hlaupið undir
bagga til hjálpar, síðast bjarg-
aði það húseign hans undan
uppboðshamrinum. Mætti senni
lega með meiri rétti átelja KEA
fyrir of mikla greiðasemi í
þeim viðskiptum.
í lok viðtalsins í Mbl. er svo
gerður tölulegur útreikningur
á gróða hins nýja eiganda
svínabúsins. Þar fer eins og
áður, að önnur hlið málsins
gleymist, þ. e. kostnaðarhliðin
og gefa þær upplýsingar því
mjög villandi hugmyndir, eins
og annað í viðtalinu, sagði Val-
ur Arnþórsson að lokum. □
GÓÐIR Akureyringar! Næsta
laugardag er fyrsti vetrardag-
ur, árlegur fjáröflunardagur
barnavemdarfélaga um land
allt. Síðdegis þann dag munu
börn knýja dyra hjá ykkur og
bjóða bókina Sólhvörf og merki
dagsins. (Bókin mun þó eitt-
hvað seld dagana á undan).
Undanfarin ár hafa þessir ungu
sendiboðar mætt mikilli velvild,
og bæjarbúar hafa fúslega lagt
fram mikinn skerf til góðs mál-
efnis. Um leið og við þökkum
þessa liðsemd ykkar, vonum við
að þið sýnið sömu fórnarlund
og höfðingsskap þetta sinnið.
Mörgum hefir fundizt mikill
fengur að bamabókinni Sól-
hvörf og þar fundið gott lestrar
efni fyrir hina ungu. í ár hefir
Indriði Úlfsson skólastjóri ann-
ast efnissöfnun í bókina, og er
það næg trygging fyrir því, að
vel sé valið. í bókina skrifa
ýmsir, sem lagið er að ná eyr-
um barnanna og veita þeim
hollt veganesti. Oft hafa færri
fengið bókina en vildu.
Störf Bamaverndarfélags Ak
ureyrar er óþarft að kynna. Það
hefir um árabil starfrækt leik-
skólann Iðavöll, og margir eru
(Framhald af blaðsíðu 8).
vegssýni úr öllum sýslum fjórð
ungsins nema frá V.-Húna-
vatnssýslu. Hafin var efnagrein
ing þeirra í janúar 1966 og því
lokið um miðjan apríl það ár.
Niðurstöður voru sendar bún-
aðai'samböndunum, sem önnuð
ust frekari dreifingu, fyrir apríl
lok.
Sumarið 1966 var unnið á
Rannsóknastofunni við ákvarð-
anir á brennisteini, kalsíum o.
fl. í jarðvegi. Auk þessa voru
framkvæmdar tilraunir með
brennisteinsáburð úti á túnum
hjá nokkrum bændum í Eyja-
firði og í S.-Þingeyjarsýslu.
Niðurstöður þessara tilrauna
birtust í 63. árg. Ársrits R. N.,
en þær sýndu m. a. að áber-
andi brennisteinsskortur var á
þeim svæðum, þar sem tilraun-
irnar voru framkvæmdai'.
Haustið 1966 bárust ca. 2.150
jarðvegssýni, til Rannsóknastof
unnar, af félagssvæðinu og
hófst efnagreining þeirra í des-
emberbyrjun.
Á fundinum flutti Árni Jóns-
son tilraunastjóri á Akureyri
fróðlegt og athyglisvert erindi
um KAL og kom hann víða við.
Hann benti á, að svo virtist sem
kal í túnum væri vaxandi nú á
síðari árum og væri mikil nauð
syn á að rannsóknir væru stór-
auknar á þessu sviði. En jafn-
hliða væri nauðsyn á að bænd-
ur væru ávallt við því búnir að
geta tekið þessi kalsvæði, strax
og kalskemmdanna yrði vart,
og sá í þau fræi einærra fóður-
jurta, er gætu gefið nokkra upp
skeru á sama ári.
Mál‘ þetta var mikið rætt af
fundarmönnum. Fundarstjóri
benti á, að á aðalfundi R. N. ár-
ið 1966 hefði verið gerð álykt-
un í þessu máli, er sva svohljóð
andi:
„Aðalfundur Ræktunarfélags
Norðurlands haldinn á Akur-
eyri 29. júní 1966 lítur svo á að
kal í túnum sé eitt alvarlegasta
vandamál, sem að íslenzkum
landbúnaði steðjar og að
reynsla undanfarinna ára hafi
sýnt _að engin önnur áföll valdi
meira og tíðara fjárhagstjóni.
Fundurinn bendir á að rann-
sóknir á eðli kalsins og ástæð-
um hljóti að verða svo umfangs
miklar og margþættar að nauð-
syn sé að einn eða fleiri sér-
fræðingar geti helgað sig þeim
eingöngu. Hann beinir því
þeir orðnir, sem af eigin raun
hafa kynnzt því hversu mikil-
vægu hlutverki $ú stpfnun gegn
ir í bæ okkar. Með framlagi
ykkar, lesendur góðir, hjálpið
þið til þess, að svo megi áfram
verða.
Guð gefi ykkur góðan vetur.
F. h. Barnaverndarfélags Ak-
ureyrar. Birgir Snæbjörnsson.
- Leikfélag Akureyrar
(Framhald af blaðsíðu 1).
Næsta verkefni L. Á. verður
Gísl eftir írska leikritaskáldið
Brenden Behan og verður Ey-
vindur Erlendsson leikstjóri en
Arnar Jónsson. fer ineð aðal-
hlutverkið. Verður leikurinn
væntanlega tilbúinn til sýning-
ar um miðjan febrúan Ráðgert
er svo að sýna barnaleikrit.
Stjórn Leikfélags Akureyrar
skipa nú: Jón Kristinsson for-
maður, Marinó Þorsteinsson
varaformaður, Sæmundur Guð
vinsson gjaldkeri og Kjartan
Ólafsson ritari. □
þeirri eindregnu áskorun til
stjórnar Rannsóknarstofu land-
búnaðarins að hún feli þessar
rannsóknir nú þegar sérstökum
sérfræðingi og verði hann stað-
settur þar sem aðstæður geta
orðið sem beztar bæði með til-
liti til rannsókna og tilrauna á
kalsvæðunum sjálfum og vinnu
á rannsóknastofum. Fundurinn
beinir þeirri ósk til fjárveitinga
valdsins að það geri Rannsókna
stofnun landbúnaðarins þetta
fært méð því að auka; fjármágn
til hennar eða veita sérfjárveit-
irigu til kalrannsókna".
Þessu næst ræddi fundurinn
um möguleika fyrir því að ráð-
inn væri til starfa hagfræðiráðu
nautur fyrir félagssvæði R. N.,
og í þvi efni var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga:
„Fundurinn samþykkir að
fela stjórn félagsins að kynna
sér möguleika á ráðningu hag-
fræðiráðunauts, er starfi á fé-
lagssvæðinu og sendi tillögur
sínar varðandi málið til bún-
aðarsambandanna fyrir næsta
aðalfund þeirra“.
Að lokum ræddi Þórarinn
Haraldsson um nauðsyn á .að
aukin yrði laxa- og silunga-
rækt í ám og vötnum hér á fé-
lagssvæðinu með það fyrir aug-
um, að veiðarnar gætu þá orð-
ið veigameiri og almennari bú-
grein fyrir sveitimar heldur en
nú er.
Mál þetta var mikið rætt og
með áhuga fyrir að hægt yrði
að hefja framkvæmdir hið
fyrsta í .þessu efni. — Að um-
ræðum loknum var samþykkt
svohljóðandi tillaga:
„Aðalfundur R. N. 1967 telur
mikla nauðsyn á að hér norðan-
lands yrði stofnuð og starfrækt
klak- og eldisstöð fyrir silung
og lax í líkingu við þá, sem nú
er starfrækt í Kollafirði. Fund-
urinn felur stjóm .R. N. 'að leita
eftir samstöðu sýslufélaga, bún
aðarsambanda, fiskiræktarfé-
laga og einstaklinga í Norðlend
ingafjórðungi um framkvæmd
málsins".
Fleiri mál reyndist ekki, tím-
ans vegna, fært að taka til um-
ræðu. s,
Stjórn Ræktunarfélags Norð-
urlands skipa nú: Steindór
Steindórsson formaður, Jóhann
es Sigvaldason framkvæmda-
stjóri og Jónas Kristjánsson
meðstjórnandi.
(Fréttatilkynning)
1 Tugfhús og brennivín
« ÞEGAR stjórnarráðshúsið
« við Lækjartorg var reist,
>> upprunalega sem fangelsi,
?z mun það hafa verið með
2? stærstu húsum þar, ef ekki
« allrastærstu. Þá fór saman,
« að íslendingum skyldi séð
» fyrir nægu bennivini og
S stóru fangelsi.
» Árin 1916 og '1917 var ís-
« land brennivínslaust land,
« þurrt eða því sem næst —•
$ algert áfengisbann. Þá var
einn maður annað árið í
« fangelsi í Reykjavík, hitt ár-
« ið enginn. Þetta sýnir
j? skýrsla fangavarðar frá
?2 þeim árum.
22 Nú flæðir áfangið aftur
22 um landið. Undanfarið hefur
$ þeim stöðum fjölgað, sem
22 gefur mannkindunum færi á
22 að raða sér á áfengisgarðana
22 og sötra þar áfenga drykki,
2? og nú skal líka reisa stórt
22 ríkisfangelsi til viðbótar því
2? sem fyrir er. Þetta fer sam-
22 an: fangelsi og áfengir drykk
22 ir, helzta orsök afbrota,
22 glæpa og slysa.
22 Pétur Sigurðsson.
- Efnahagsmálin
(Fi-amhald af blaðsíðu 1).
TiIIaga Framsóknarflokksins
var þá felld. Stjórnin kærði sig
ekki um samstarf allra flokka
um meðferð vandans. í stað
þess lióf hún, með stuðningi 33
þingmanna af 60 þá „viðreisn",
sem nú er orðin að nýjum
vanda.
Meðferð liins nýja stjórnar-
frumvarps, sem á að útvega rík
issjóði þær 750 milljónir króna,
sem fjármálaráðherra telur sig'
vanta til að geta samið greiðslu
hallalaust fjárlagafrunivarp, hef
ur nú verið frestað í 10 daga og
viðræður hafnar um þessi mál
milli ríkisstjórnarinnar og laun.
þegasamtakanna.
Auðsætt er, að frumvarpið, e£
að lögum verður, hefur í för
með sér skerðingu lífskjara á
þann hátt, að margir telja’
hvorki sanngjamt né hyggilegt.
Hitt er þó jafnvel verra, að hér
er ekki um að ræða lausn þess
vanda, sem við er að etja.
Vandamál atvinnuveganna eru
óleyst, þó þetta fmmvarp yrði
að lögum. Og ríkisstjórnin, sem
án efa er nú búin að glata meiri
hlutafylgi kjósenda frá sl. vori,
er þess ómegnug að koma í veg
fyrir enn vaxandi verðbólgu,
eftir að hafa eytt að fullu liin-
um gífurlegu tekjum ríkissjóðs
undanfarið og aukið innflutning
tollvara svo mjög, að teflt er á
tæpasta vað. Það er ekki óeðli-
legt þótt margir láti sér það um
munn fara, að liér þurfi til að
koma samstarf Alþingis alls tií
þess að stýra út úr ógöngunum,
Stjórnarflokkarnir hafa talið
sig einfæra að Ieysa vandann og
hvað eftir annað liafnað sam-
starfi. Nú hefur það hins vegai.'
borið við, að sjálfur forsætis-
ráðherrann hefur auglýst eftii;
góðum ráðuni og tilkynnt þá
hugarfarsbreytingu, að haim og
stjórnin vilji liafa samstarf viði
mai'ga, utan þmgs og innan. Q
- Illur andi hlaupinn i svínaeig-
endur og Sv
- Frá aðalfundi Ræktunarfélags Norðurlands