Dagur - 02.12.1967, Blaðsíða 1
Herbergli-
pantanir.
FerSa-
skriístofan
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
L. árg. — Akureyri, laugardaginn 2. desember 1967 — 74. tölublað
r *• I ■/ « r Túngötu 1.
Feroaskrifsfofan simi n«s
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Mikiö er unnið í ár að holræsagerð á Akureyri. En slík mann
virki eru færð í kaf eins skjótt og auðið er.
(Ljósmynd: E. D.)
Skipasmíðaaðstaðan í
bænum athuguð
STJÓRN Skipaútgerðar ríkis-
ins ásamt framkvæmdastjóra
hennar var á Akureyri í gaér og
átti viðræður við bæjarstjóm,
atvinnumálanefnd og kynntu
sér aðstöðu til skipasmíða og
skipaviðgerða.
■ -En aðal erindi þeirra mun þó
hafa verið að kynna sér aðstöðu
til betra skipulags vörudreif-
ingarinnar hér um slóðir. □
Síðasta síldarfólkið
fór í gær
Raufarliöfn 1. des. Dálítill snjór
er kominn, allt þó fært í ná-
grenninu en bæði á Tjörnesi og
hjá Auðbjargarstöðum í Keldu-
hverfi hafa miklar umferðar-
Sænskir kvikmyndatökumenn eru hér að kvikmynda fjárrekstur í Eyjafirði og voru augsýnilega ánægðir með þennan þátt mynd
arinnar. (Ljósm.: G. P. K.)
Ekkert er róið vegna ógæfta.
Tveir dekkbátar eru þó á floti
enbþá, en búið að setja trill-
urnar. Kaffi vantaði hér nokkra
daga, ennfremur sykur. Þessar
vörur voru keyptar upp fyrir
gengisfellinguna. Hins vegar
höfðum við olíu til tveggja mán
aða og vorum því rólegir í verk
fallinu.
Síðasta aðkomuverkafólkið
fór héðan í gær og er nú lítið
um að vera og allt rólegt. Rjúp-
ur hafa ekki veiðzt svo teljandi
sé og virðist mjög lítið af þeim,
hvarvetna þar sem til hefur
fréttzt. H. H.
Ný yerðliækkunaralda skellur yfir í kjölfar
gengislækkuuar
GENGI íslenzku krónunnar
hefur nú verið fellt í þriðja
sinn á valdatíma viðreisnar-
stjórnarinnar, sem í upphafi
ferils síns- og jafnan siðan hef-
ur talið sig standa vörð um
verðgildi krónunnar. Forsætis
ráðherra og meðreiðarmenn
hans, sóru fyrir gengisfellingu
fram á síðustu stiaid. Og til
þess að útiloka haiia algerlega
fluttu þeir hið margumtalaða
efnahagsmálafrumvarp sitt
um 750 millj. kr. nýjar álögur.
En þær komu þegar fram í
hækkuðu vöruverði. Sama
dag og Bjarni Ben. ráðherra
flutti varnarræðu í útvarps-
umræðum um svik sín og
stjómarinnar í sambandi við
Viljð fá þyrlu fil aS fryggja flufninga
Egilsstöðum 1. des. Allir vegir
um Hérað eru enn færir, enda
mjög lítill snjór í byggð. Enn-
fremur er Fagridalur fær og
stundum Fjarðarheiði. Henni
átti að halda opinni fram eftir
vetri, í sambandi við flugferðir
til Egilsstaða og vegna al-
mennra flutningaþarfa. Hefur
það gengið svona nokkurn veg-
inn.
Oddvitinn okkar er nú að
telja sína hjörð fyrir Hagstof-
una og hefur komið í ljós, að
fólksfjöldi hefur aukizt hér um
60—80 manns á árinu.
Hér hefur því verið hreyft, að
fá hingað þyrlu til að flytja fólk
og farangur og vera til öryggis
ef vegir teppast alveg, eins og
stundum kemur fyrir. Það eru
sveita- og kauptúnahreppar,
sem að þessu munu standa, ef
af verður og þá í félagi við
þyrlueiganda syðra. En þyrla
sú, sem um hefur verið rætt í
þessu sambandi tekur 7 farþega
eða hálft annað tonn af vörum.
Gæti þyrlan komið hingað í
janúar eða febrúar ef um semst.
V. S.
gengisfellinguna, varð annar
ráðherra, stærri þjóðar, að
biðjast lausnar. Hann hafði
líka neitað gengisfellingu, sem
þar var svo gerð.
Gengisfellingin, sem átti að
koma í veg fyrir, með 750
millj. kr. skattinum, kom svo
til viðbótar og er nú lögfest,
svo sem landslýð er kunnugt.
Leggjast nú afleiðingar beggja
þessara ráðstafana á þjóðina,
sem geigvænleg verðbólga.
Jafnframt er kaupgjald slitið
úr sambándi við vísitöluna svo
að launþegar fá ekki skaða
sinn vegna hækkaðs vöru-
verðs bættan í kaupi nema
með nýjum samningum.
Stjórnarvöld landsins, sem
þessum aðgerðum stjórna
flytja hvar sem þeir mega við
koma, bænir til launþega um
það, að þola allt bótalaust og
láta sem ekkert sé. En kaup
verkamanna óg iðnverka-
manna fyrir 8 stunda dag-
vinnu er 110—135 þús. krónur
á ári, en framfærslukostnað-
urinn 236 þús. kr.!
Margt er öfugsnúið í okkar
þjóðfélagi eftir 8 ára samfellt
afla- og markaðsgóðæri.
Óvissan er mest áberandi á
nær öllum sviðum, einnig
hreint öngþveiti í efnahags-
og atvinnumálum. Og ný óða-
verðbólgualda skollin á. Ósam
lyndið í landinu hefur aldrei
verið meira, né siðferðisleg
(Framhald á blaðsíðu 5).
Snúum oss að skemmtiiðnaðinum
Gunnarstöðum Þistilfirði 1. des.
Hér kólnaði í veðri með gengis-
fellingunni. Vonuðu menn þá,
að það mundi hlýna með van-
traustinu, en sú von brást.
Engir rauðir varðliðar eru
hér í Þistilfirði, en þó er hér
menningarbylting og hún mikil.
Því til sönnunar ber að nefna
þetta: Björg Björnsdóttir æfir
KRÖFUR I ÞROTÁBÚ 54 MILLJ.
FYRIR skömmu rann út frest-
ur til að skila kröfum í þrotabú
Friðriks Jörgensens. Skiptaráð-
andi borgarfágeta Reykjavíkur
hefur upplýst, að kröfurnar
nemi 54 millj. kr. Hjá Sakadómi
Reykjavikur liggur fyrir mál á
hendur Friðriks þessa fyrir
gjaldeyrisbrot. En Friðrik Jörg
ensen var mikill útflytjandi
ýmsra sjávai-afurða, svo sem
margir norðlenzkir sjómenn
kannast við, einkum af grá-
sleppuviðskiptum sínum við
hann. En á sínum tíma bauð
hann hærra verð fyrir hrogn
/en rótgróin fyrirtæki treystu
sér til að bjóða og hreppti
nokkur viðskipti, sem enduðu
samkvæmt því, er að framan
greinir, og margir harma nú
hversu til tókst □
kirkjukór Svalbarðs- og Sauða
neskirkju. Hefjast þær æfingar
kl. 3 síðdegis og standa til kl. 7
að kveldi. Þá taka við æfingar
leikfélagsins, stundum til tólf.
Svanhildur Sigurðardóttir hef-
ur hér einnig dansnámskeið og
þeir séra Marinó prófastur
Kristinsson á Sauðanesi og Þór
arinn bóndi Kristjánsson í Holti
æfa karlakór. Það er því mörg
starfsemin.
Hyggnir menn og hugsuðir
iíta svo á, að bændur séu nú að
verða leiðir á að bíða eftir verð
lagsgrundvellinum og þar með
afufðaverðinu. Og af því af-
koma þeirra sé síður en svo
glæsileg og útlitið jafnvel
skuggalegt, bregði bændur og
fleiri á það ráð, að efla nú
skemmtiiðnaðinn sem mest,
samikvæmt því áliti Gylfa, að sú
iðngrein eigi sér lítil takmörk
og glæsta framtíð ef vel sé á
haldið. Ó. H.