Dagur - 09.12.1967, Qupperneq 8
8
—-j1
ÞORGEIR PÁLSSON
SÝNIR
ÞORGEIR PÁLSSON opn-
aði í gær málverkasýningu í
Landsbankasalnum. Hann
sýnir 37 myndir, þar af 12
olíumálverk en hin eru
vatnslitamyndir. — Flestai'
myndir Þorgeirs eru lands-
lagsmyndir af ýmsum norð-
lenzkum stöðum, ekki sízt
Eyjafirði. Þorgeir hélt sýn-
ingu á Akureyri fyrir mörg-
um árum og hefur sýnt með
frístundamáluruni, bæði í
Reykjavík og Akureyri. Q
k........ - --------t J
Happið sett á svið
Dalvík 8. des. Enn er fært um
nærliggjandi vegi. Frammi í
sveit eru umf. Þorsteinn Svörf
uður og kvenfélagið Tilraun að
æfa Happið eftir Pál Árdal.
Leikstjóri er Sigtýr Sigurðs-
son. J. II.
Blikur og Árvakur við bryggju á Akureyri. (Ljósm.: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
SKIPT UM HJARTA
Stór tíðindi gerast öðru hverju
í heimi læknavísindanna. í
Höfðaborg fórst ung kona í bíl-
slysi. f sjúkrahúsi beið maður
nokkur dauða síns vegna ólækn
andi hjartasjúkdóms. Hjarta
stúlkunnar var nú tekið og
grætt í hinn dauðvona mánn.
Hann lifði þegar síðast fréttist
og var á batavegi, jafnvel svo,
að heimför hans var ráðgerð
eftir þrjár vikur.
RAGNAR FJALAR
LARUSSON
Séra Ragnar Fjalar Lárussón
hlaut flest atkvæði þeirra
presta, sem sóttu um Hallgríms
prestakall í Reykjavík á dög-
unum. Hann hefur nú verið
skipaður sóknarprestur þar frá
1. janúar n. k. að telja. Séra
Ragnar Fjalar hefur til þessa
gegnt prestsembætti á Siglu-
firði.
framfarir. Opinberar skýrslur
segja m. a. þetta um nýræktim-
ar: Nýrækt árið 1965 var 5049
ha. eða eitt þúsund ha. minni
en árið 1964. Árið 1966 var þró-
unin í sömu átt og voru ný-
ræktir þá ekki nema 4057 ha.,
einnig þúsund ha. minni en árið
áður. Ekki liggja skýrslur fyrir
um þetta ár, en búast má við
enn minnkandi framkvæmdum.
Þessar tölur sýna, svo ekki verð
ur um villst, hve þessi grein
framkvæmdanna hefur farið
ört minnkandi í sveitum.
HAGUR BÆNDANNA
Dæmið um ræktimina sýnir
hvert stefnt hefur. Þó er enn
eftirtektarverðara, að árið 1966
voru nettótekjur bændanna
ekki nema 100 þús. kr., en á
sama tíma voru tekjur viðmið-
unarstéttanna 244 þús. krónur.
Bændur eiga þó samkvæmt lög
um að hafa svipaðar tekjur og
verðlagsgrundvöllur landbún-
Blikur laskííðist við
Kópasker
FRAMKVÆMDIR f SVEITUM
Mjög er því á lofti haldið hve
landbúnaðurinn dafni vel undir
STRANDFERÐASKIPIÐ Blik-
ur tók niðri þegar það var að
fara frá Kópaskeri á þriðjudags
kvöldið. Kom nokkur leki að
skipinu og varð það að halda til
Húsavíkur í fylgd Árvaks, sem
var á Siglufirði og kom til að-
stoðar. Sjór fór í vélarrúm
Veður va'r sæmilegt þegar
skipið kenndi grunns, en mikil
undiralda. Örsok strandsins er
talin sú, að eitt innsiglinga-
Ijósið logaði ekki er skipið lagði
frá landi. Q
„viðreisn“ og aldrei hafi verið
„gert meira fyrir hann“. Síðan
eru taltlar upp framkvæmdir og
Flugféfag Sslands fær nýja Friendship-flugvél í vor
strandferðaskipsins og höfðu
skipsdælurnar ekki undan,
enda jókst lekinn mjög þegai-
vélamar tóku að erfiða. En
tvær dælur úr Árvak voru sett-
ar um borð og höfðu þær vel
undan. Froskmaður kannaði
skemmdir á Húsavík og munu
þær nokkrar. Bæði skipin komu
til Akureyrar til ferkari athug-
unar.
ALLT frá því Boeing 727 þotan
Gulfaxi hóf áætlunarflug á
millilandaleiðum félagsins 1.
júlí sl. hefur rekstur þessarar
nýju flugvélar gengið vel. Allir
gérðu ráð fyrir byrjunarörðug-
leikum, sem kannski myndu
valda töfum og rugla áætlun-
inni. Flugreksturinn gekk betur
én jafnvel þeir bjartsýnustu
þorðu að vona, og tafir urðu
fáar. Þrátt fyrir það óhagræði,
sem reksiur þotunnar frá Kefla
víkurflugvelli í stað Reykjavík
urflugvallar skapar farþegum,
hafa flutningar aukizt og síðari
hluta sumars var Gullfaxi þétt-
setinn. Nú hefur innréttingu
Gullfaxa verið breytt á þann
veg, að framhluti farþegarýmis
er nýttur til vöruflutninga, en
aftur í eru sæti fyrir 69 farþega.
Nýr Fokker Friendship, sá
þriðji í röðinni fyrir Flugfélag
fslands er nú í smíðum í Amster
dam í Hollandi. Upþhaflega var
ráðgert að þessi flugvél yrði af
gerðinni F-27 200, en nú hefur
verið ákveðið að flugvélin verði
af 100 seríunni, það er, sams
konar og Blikfaxi og Snarfaxi.
Hinn nýi Friendship verður út-
búinn til vöruflutninga, jafn-
hliða farþegaflutningum. Á flug
vélinni verða stórar vörudyr til
fermingar og affermingar, sem
gefa tækifæri til flutninga á
stærri stykkjum en mögulegt er
(Framhald á blaðsíðu 2).
ER OLiA AF SKORNUM SKAMMTIILANDINU?
Ellefu þúsund tonna farmur frá Rússum brást
FRÉTTIR hafa borizt að því,
að ísinn sé að þessu sinni
skammt undan Norðurlandi,
samkvæmt upplýsingum frá síð
asta ískönnunarflugi. íshraflið
koma úrri .þessar mundir, kæmi
ekki. í gær var enn ekki vitað
hversu úr yrði bætt, en verið
var að leita eftir skipi til flutn-
inganna og þá frá öðru landi.
Milliríkjasamningar um olíu-
sölu og flutninga sovéskra og
íslenzkra yfirvalda hafa í þetta
sinn brugðizt. Er hér um alvar-
legan hlut að ræða, svo sem
öllum má ljóst vera. Því miður
virðist skilningur íslenzkra
ráðamanna heldur ekki nægur
í því efni, að tryggja þau svæði
landsins, sem lokast geta af ís,
með nægilegum birgðum af
þessari þýðingarmiklu vöru.
En þar þarf aðstoð bankanna
einnig að koma til. Q
aðarins á að vera við það mið-
aður. Hagur bændastéttarinnar
undir „viðreisn“ er því afleitur,
enda cr nú svo komið, að þrátt
fyrir minni framkvæmdir en
áður, eru skuldir bænda nú
mjög vaxandi yfirleitt, og efna-
liag þeirra er að hraka.
RAFMAGNIÐ
Enn einu sinni hafa Norðlend-
ingar fundið, hve háðir þeir eru
rafmagninu. Krapastíflur, eins
og þær, sem nú ollu truflunum,
eru sjaldgæfar og orkufram-
leiðslan að komast í eðlilegt
Iiorf.
(Framhald á blaðsíðu 2)
ÍSINN ER ÍSKYGGI-
LEGA NÆRRI
Ófeigsstöðum 8. des. Veður-
'harka, bæði hríð, hvassviðri og
grimmdarfrost. Færir eru þó
vegir ennþá, en í gær urðu bíl-
ar fyrir ýmiskonar töfum, en
það er vont í slíkum kulda.
ísinn er óþarflega nærri og við
ekki vel undir það búnir að
siglingar teppist. Skipaverkfall
ið og gin- og klaufaveikin tafði
flutning á fóðurvörum og fleiri
þungavörum hingað til Norður-
og Norðausturlands. B. B.
við Grímsey og úti í mynni
Eyjafjarðar segir einnig sína
sögu, þótt þar hafi aðeins verið
um dreifða jaka að ræða.
Enn einu sinni minna þessar
ísafréttir á það, hvar á hnettin-
um land okkar liggur og að
búast má við ís og siglinga-
teppu 'hluta úr ári, svo sem sag-
an hefur staðfest, þótt við höf-
um sloppið við ís að mestu á
nokkurra áratuga hlýindatíma-
bili undanfarið.
Rússneski olíufarmurinn
brást.
í landinu er nú lítið af olíu,
hér á Norðurlandi tveggja til
þriggja vikna birgðir eða svo
af húsa- og skipaolíum en jarð
olía til eitthvað lengri tíma. Ný
lega tilkynntu Rússar, en af
þeim kaupum við þessar og
fleiri olíur, og flytja hana til
íslands, að 11 þús. tonna olíu-
farmur, sem hingað átti að
Sldðaíþróttin er jafn gömul þjóðinni
VIÐ vígslu skíðalyftunnar
nýju í Hlíðarfjalli var Gísli
Guðmundsson alþingismaður
meðal þeirra, er tóku til máls.
Gísla fórust orð á þessa leið:
Háttvirtir áheyrendur!
Ég þakka þeim, er mér og
öðrum hafa boðið 'hingað i dag
af góðu tilefni.
Grímur Thomsen lýsir í
ljóði norrænni vetrarnótt fyr-
ir 900 árum:
„Lausamjöll í skógi skefur
skyggnist tunglið yfir hlíð
Er á ferli úlfur og refur
örn í furutoppi sefur.
Nístir kuldi um næturtíð.“
Einn er þar maður á ferð —
maður á skiðuin — og hefir
spjót fyrir staf. „Á eftir hon-
um úlfar þjóta — ilbleikir
með strengdan kvið.“ — En
skíðamaðurinn fer hraðar en
úlfarnir.
Ganga manna á skíðum er
fom íþrótt á Norðurlöndum,
eldri en sagan um Arnljót
Gellina. Hún er a. m. k. eins
gömul og Ásatrúin. Eina af
Ásynjum, sem raunar var
jötnaættar, nefnir Snorri önd-
urdís — skíðadísina. Skíðadís-
in átti heima í háfjöllum Nor-
egs — í Þrymheimi. — í Flat-
eyjarbók segir frá Hemingi
Áslákssyni á Torgum á Há-
logalandi, er kvaddur var á
fund Haralds konungs harð-
ráða, og skyldi sína getu sína
í þeim íþróttum, er mest þótti
um vert. Fyrst skaut hann af
boga — 'hnot af höfði bróður
síns. Næst þreytti hann sund
við sjálfan konunginn. En trú
lega var sú raunin tahn mest,
er síðast er frá sagt, er hann
lék listir sínar á skíðum í svell
runninni fjallshlið og- nam
staðar á hamrabrún, þar sem ,
hann hljóp af skíðunum í loft
upp.
Hér á landi er skíðaíþróttin
jafn gömul þjóðinni. 1 snjó-
þungum sveitum og er fara
skyldi um heiðar á vetrum,
voru skíðin í 1000 ár eitt hið
nytsamasta fárartæki, og eru
enn. Þau hafa ósjaldan bjarg-
að lífi manna og málleysingja.
En nú í seinni tíð hafa íslenzk
ungmenni í vaxandi mæli lagt
stund á að fullkomna sig í
hinni djörfu iþrótt Hemings á
Torgum — í snævi þöktum
hlíðum brattra fjalla ,og sú
list er nú viðar leikin. Skíða-
lyftan. hér í Hlíðarfjalli mun
greiða fyrir því, að sú-íþrótt.
eflist með íslendingum á kom
audi tímum. Ég óska Akureyr
ingum til hamingju með þessa
fyrstu framkvæmd sinnar teg
undar á íslandi. Hún mun eiga
eftir að varpa nýjum ljóma á
þetta fjall, — í heimi íþrótt-
anna — nú þegar höfuðstaður
Norðurlands hefir verið gerð-
ur að miðstöð vetraríþrótt-
anna hér á landi.
Ég er ekki fþróttamaður og
hefi aldrei haft þar af neinu
að státa — því miður. En nú,
þégar árin færast yfir og ég
sé þjóðina breytast meir og
(Framhald á blaðsíðu 2).