Dagur - 17.12.1967, Blaðsíða 1

Dagur - 17.12.1967, Blaðsíða 1
HOTEL Herbergis- pantanir. Ferða- skrifstofan Túngötu 1. Akureyri. Sími 11475 Dagur L. árg. — Akureyri, sunnudagmn 17. desember 1967 — 79. tölublað Ferðaskrifsfofan Túngötu 1. Sími 11475 Skipuleggjum ódýrustu ferðirnar til annarra landa. Sérstök Jólafargjöld F.í. fyrir skólafólk EINS og mörg undanfarin ár, mun Flugfélag íslands nú auð- velda skólafólki ferðir heim um jólin með því að veita því sér- stakan afslátt af fargjöldum. Allt skólafólk, sem óskar eft- ir að ferðast með flugvélum fé- lagsins um hátíðirnar á kost á sérstökum fargjöldum, sem eru 25% lægri en venjuleg fargjöld innanlands og gilda frá 15. des- ember til 15. janúar 1968. Til þess að njóta þessara kjara þarf að sýna vottorð frá skólastjóra, sem staðfesti að við komandi stundi nám og að keyptur sé tvímiði og hann not- aður báðar leiðir. Mikil umferð um Egilsstaðaflugvöll Egilsstöðum 16. des. Snjóföl er í byggð og lítill snjór á heiðum. En dag hvern eða því sem næst, lokast þó Fjarðarheiði og Fagra dalsbraut vegna rennings. En leiðin til Borgarfjarðar er held- ur vond því þar hafa myndazt svellbunkar, sem eru stórhættu legir og er þar naumast fært nema jeppum með keðjur á öll- um hjólum. Njarðvíkurskriður eru hættulegastar. Hér um slóðir eru menn í sárum eftir hið hörmulega bif- reiðaslys. Og nú er þriðji pilt- urinn dáinn, Þorgeir Bergsson, 18 ára, héðan úr Egilsstaða- kauptúni, en hann var einn þeirra, er í 'bílslysinu lentu. Umferð er nú mikil um Egils staðaflugvöll. Skólar eru að gefa jólafrí um þessar mundir, ennifremur er fólk að fara úr vinnu af Austfjörðum. V. S. 'iiiimiiiiiiimiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiMmiiimimMiiiiiiimiimiiiiiiimiimimtimiMiiHmmiHiimiHmHiiiiiiimiiimmiiimitiiiiiHiitimiimiiiiiiitmiiiMiiiiiiiimiiimiimiiiiiimiiiiiMimiiiiHiHmiMiiiiimitiiiiiiiM . 'W : Ný Súla Leós Sigurðssonar kom til Akureyrar í gær — 400 tonn að stærð. (Ljósm.: E. D.) iiiiiHmiiiiiiiiiimmimmmiiimimiimiiiiiHmmimmmiiiimiiiiimiimmmmmmimmmiimmmmmmmmmiimmmuiimmimmimmmmmmmimmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmi . fi • ■ ■■. -• FERÐAMENN LENTU í HRAKNINGUM Dalvík 16. des. Bátarnir Bjarmi II, Loftur Baldvinsson, Björg- vin og Björgúlfur eru allir komnir heim af síldarmiðunum. í - fyrrakvöld var vitlaust veður, blindstórhríð og kóf svo mikið að illfært var. Áætlunar- bíllinn kom ekki til Dalvíkur fyrr en kl. 3 um nóttina, eða eftir 10 klst. ferð. Hafði annar bíll verið sendur á móti honum. Mai-gt fólk var með og leið því vel, nema þeim mönnum, sem skiptust á um að ganga á und- an. Margt ferðafólk settist að í sveitum þar sem það var statt er óveðrið skall á. Héðan frá Dalvík fóru tveir menn á bíl til Ólafsfjarðar sama kvöldið. Þeir komust að Voghóli, gengu þar af bílnum og héldu undan veðrinu til Dalvíkur. Farið var að óttast um þá og leit hafin. Margir hafa dáið hér og í Svarfaðardal undanfarið og nú síðast Jón Arngrímsson fiski- matsmaður, sem varð bráð- kvaddur í nótt, en hann var harða skafla í hvassviðrinu. roskinn orðinn. Vegir allir eru færir nú og veð- Snjór er lítill og rak hann í ur sæmilega gott. J. H. NÝTIFRYSTIHÚS BÍÐUR AFLA Lómatjöm 16. des. Hér var jarð sunginn frá Laufási hinn 14. des., Björn Árnason frá Páls- gerði. Hann bjó í Pálsgerði í Dalsmynni um 20 ára skeið, fluttist þaðan til Hríseyjar en var mörg síðustu æviár sín á Akureyri og var orðinn aldur- hniginn þegar hann lézt en fram að þeim tíma vel ern. Hann var kunnur og vinsæll sæmdarmaður, sem í engu vildi vamm sitt vita. Á Grenivík eru fjórir menn að kaupa 35 tonna mótorbát, þeir Oddgeir fsaksson, Davíð Guðmundsson, Villijálmur ísaksson og Orn Árnason. Þeir koma með bátinn í næstu viku og gera hann út héðan. Fiskur hefur verið meiri þetta ár en næsta ár á undan. Frystihúsið nýja á Grenivík er nú tilbúið til að taka á móti afla og fær það væntanlega verk- efni eftir áramótin. S. G. Ófeigsstöðum í Kinn 16. des. Hér ætlaði allt um koll að keyra í fyrrakvöld í aftaka norðanroki og snjókomu. Bill valt út af vegi hjá Lækjamóti, var að koma frá Reykjavík með Öðru hverju bregður náttúran upp þeim myndum, sem vel liæfa jólunum. Ljósmynd: E. D. vörur. Honum til aðstoðar fór bíll frá Húsavík og komst hann hingað og fauk þá út af vegin- um. Elnn ætluðu bílar að hjálpa og fór það á sömu leið. Átta menn gistu hér á bæjunum, veðurtepptir. Margir fleiri lentu í hraknmgum en ekki urðu slys. Maður einn gekk sama kvöld af bíl sínum á Fljótsheiði og komst til bæja við illan leik, en þá var með öllu vonlaust að aka bíl. Menn bjóða nú hátt verð í rjúpur, en þáer láta ekki sjá sig þótt 100 krónur sé boðið í stykkið ,og allra sízt eftir geng- isfellinguna. Sumir hafe þegar gert laufa- brauðið og eitthvað huga menn líka að hangikjöti. En kjötreyk- ing er hálfgerð listgrein, sem höfð er í heiðri. Menn eru mis- góðir í þessari grein, sem öðr- um, en margir góðir. Sumir bæir eru frægir reykingabæir. Bið svo að heilsa bæjarbúum og Eyfirðingum öllum. B. B.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.