Dagur - 10.01.1968, Síða 2
2
Þetta er pólska handknattleiksliðið Spojnia, sem í gær Iék á móti Haukuni frá Hafnarfirði, og sigr-
aði Spojnia Hauka með 25 mörkum gegn 21 í spennandi leik. Er blaðið fór í pressuna var að hefjast
leikur á milli Spojnia og liðs ÍBA, og skal engu spáð um þau úrslit.
Mikill kostnaður vegna þátttöku liðs félagsins
í Íslanílsmótinii í körfuknattleik í vetur
Góðir Akureyringar!
Á sl. ári heppnaðist körfuknatt-
leiksmönnum úr íþróttafélag-
inu Þór að bera sigur úr býtum
í úrslitaleik íslandsmóts 2. deild
tekizt, fjárhagslega séð, að ná
tiltölulega hagstæðum samn-
ingum við Körfuknattleikssam-
band fslands (KKÍ), varðandi
framkvæmd mótsins hér á Ak-
ureyri, verður þátttaka þess
samt sem áður svo kostnaðar-
söm, að líklega mun einhverj-
um finnast sem teflt sé á tæp-
asta vað, en alveg óhjákvæmi-
lega hlaut allur reksturskostn-
aður að hækka mjög verulega,
beinlínis vegna þátttökunnar og
auk þess þarf félagið svo að
annast framkvæmd mótsins hér
nyrðra og standa straum af 5
keppnisferðum suður.
Þess vegna vill stjórn fþrótta-
félagsins Þórs vinsamlegast
SVEIT UNGMENNAFÉLAGSINS í
SKRIÐURHEPPI SIGRAÐI í SKÁK
SKÁKMÓT UMSE, fjögurra
manna sveitakeppninni, lauk
skömmu fyrir jól. Sex sveitir
tóku þátt í mótinu.
Heildarútslit urðu þessi:
Sveit Umf. Skriðuhrepps 16%
vinn. Sveit Umf. Svarfdæla 12
vinn. Sveit Umf. Saurbæjar-
hrepps og Dalbúans 9% vinn.
Sveit Umf. Ársólar og Árroðans
8 vinn. Sveit Umf. Möðruvalla-
sóknar 7 vinn. Sveit Umf. Æsk
unnar 7 vinn.
Flesta vinninga á 1. borði
hlutu Ármann Búason og
Sveinn Jóhannsson, á 2. borði
Guðmundur Eiðsson, á 3. borði
Guðmundur Búason og á 4.
borði Hreinn Hrafnsson.
Sveit Umf. Skriðuhrepps
vann nú í fyrsta skipti verð-
launastyttu þá sem keppt er
um. Sveitin hlaut einnig verð-
launapeninga og sigurvegarar á
SKOTÆFING í íþróttaskemm-
unni n. k. sunnudag kl. 9.30
til 11.30 fyrir hádegi. Félagar,
mætið vel og stundvíslega. —
hvetja alla velviljaða bæjarbúa
til þess að fjölmenna og helzt
fylla fþróttaskemmuna alla þá
leiki, sem auglýstir verða hér
á Akureyri, minnuga þess að
áframhaldandi framkvæmd fs-
landsmóta hér nyrðra verður
að mjög verulegu leyti háð
þeirri staðreynd, hversu vel
þeir nú sækja þessa og aðra
sambærilega leiki, sem hér
verðé háðir í vetur.
(Frá stjóm íþróttafélagsins
Þórs).
hverju borði sömuleiðis. Ungl-
ingaverðlaun vann Hjörvar
Þórsson,' yngsti keppandi móts-
ins.
Keppnisstjóri var Þóroddur
Jóhannsson. □
Hjörleifur sigraði
HRAÐSKÁKMÓT UMSE var
haldið fyrir skömmu. Fjórtán
keppendur tóku þátt í mótinu.
Sigurvegari varð Hjörleifur
Halldórsson Umf. Öxndæla,
hlaut 12V2 vinning. f öðru sæti
varð Hreinn Hrafnsson Umf.
Skriðuhrepps með llVz vinning
og í þriðja sæti Hlynur Jónas-
son Umf. Ársól með 10 vinn-
inga. □
íslandsmótið í
körfulmattleik
Á LAUGARDAGINN kemur
kl. 4 e. h. verða háðir tveir leik
ir í körfuknattleik í íþrótta-
skemmnnni, annar í 1. deild fs-
landsmótsins milli KFR og Þórs
en hinn í 2. deild sama móts
milli KA og ÍMA.
Á sunnudag er aukaleikur
milli KFR og ÍBA kl. 1.30 e. h.
- Óílýrar íbúðir
(Framhald af blaðsíðu 1).
vara Baldur Svanlaugsson. Til-
nefndir af Húsnæðismálastjórn:
Jón G. Sólnes og Sigursveina
Jóhannesson, formaður nefndar
innar.
(Fréttatilkynning frá bæjar-
skrifstofunni)
ar, sem að þessu sinni og jafn-
framt í fyrsta skipti var háður
hér á Akureyri, í íþróttaskemm
unni nýju, og öðluðust þeir
þannig rétt til keppni í 1. deild
á þessu yfirstandandi ári.
Að afloknum 'þessum nauma
sigri, fór það að vonum, að jafnt
einstakir leikmenn sem forráða
menn félagsins, gerðu sér þeg-
ar í stað grein fyrir þeim mikla
vanda, sem hlyti að fylgja þess-
ari óvæntu vegsemd, enda væri
full þörf mjög róttækra aðgerða
ef félag'ið hyggðist ná viðunandi
árangri og keppnin í 1. deild
ætti að verða eitthvað annað en
„aðeins dýrt spaug“.
Æfingar hófust því með fvrra
móti sl. haust og hafa þær verið
ágætlega sóttar, með mjög at-
hyglisverðum árangri, eins og
heimsóknir 1. deildarliða frá
Reykjavík, svo og þátttaka í
hraðkeppnismóti syðra, ótví-
rætt benda til, enda hefir félag
ið notið mjög góðrar hand-
leiðslu og ómetanlegrar þátt-
töku hins víðkunna körfuknatt-
leiksmanns, Einars Bollasonar.
Aðaíþolraunin er svo alveg á
næsta leiti, því nú um næstu
helgi á íslandsmótið í 1. deild
að hefjast með því að laugar-
daginn 13. jan. n. k. heyr félag-
ið sinn fyrsta leik í mótinu hér
á Akureyri, í íþróttaskemm-
unni og þá gegn Körfuknatt-
leiksfélagi Reykjavíkur (KFR).
Fyrirhugað er að mótinu,
sem háð verður heima og heim
an, verði lokið þann 17. marz og
er félagið þannig skuldbundið
til þátttöku um hverja helgi,
,næstu 10 helgar í röð.
Euda þótt félaginu hafþ nú
Heilsufarið batnaði lífið - þrátt fyrir 1276 verkefni Alþjóða-
Hti
HINIR neikvæðu þættir sem
hafa áhrif á framfarir van-
þróuðu landanna yfirleitt —
vilja- eða getuleysi háþróaðra
landa til að haga hjálp sinni
í samræmi við raunverulegar
þarfir vanþróuðu Iandanna,
pólitískur óstöðugleiki, lítil
afköst opinberra embættis-
manna og ónógar áætlunar-
gerðir — várpa einnig skugga
sínum á heilsufarið og gera
hjálparstarfið á þessum vett-
vangi að nokkru leyti óvirkt.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) hefur því orðið
að horfast í augu við, að ár-
angurinn hefur orðið hörmu-
Iega lítill af þeirri viðleitni að
konta á vísi að heilbrigðiseft-
irliti í mörgum vanþróuðum
löndum, segir framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar, dr. M.
G. Candu, í ársskýrslu sinni
til alþjóðaheilbrigðismálaráð-
stefnunnar, sem hófst 8. maí.
Þrátt fyrir erfiðleika studdi
WIiO 1276 vérkefni í 152
löndum og landssvæðum árið
1966. Úrtíningur úr skýrsl-
unni sýnir, að:
Lömunarveiki-tilfellum hef-
ur fækkað um 99% í Evrópu
eftir víðtækar bólusetningar-
herferðir. í Norður-Ameríku,
Ástralíu og Nýja-Sjálandi hef
ur veikinni að heita má verið
útrýmt — á árinu 1964 voru
einungis tilkynnt 166 tilfelli,
en frá því um 1950 höfðu að
jafnaði verið 44.000 árleg til-
felli.
Kynsjúkdómarnir sýfílis og
lekandi hafa verið undir víð-
tækri alþjóðlegri rannsókn,
sem lauk 1966. 147 lönd tóku
þátt í henni, og a. m. k. helm-
ingur þeirra lét í Ijós áhyggj-
ur vegna vaxandi útbreiðslu,
einkum meðal unglinga.
Yaws — hitabeltis-húðsjúk-
dómnum — hefur verið út-
rýmt í 16 ára herferð, sem
leitt hefur til þess að 150
milljónir manna hafa verið
undir læknishendi. Hann er
nú í rénum á allmörgum
svæðum,- en þó er níuiðsyn-
legt að vera vel á verði gagn-
vart honum um mörg ókomin
ár.
Nýjar skordýraeiturtegund-
ir eru reyndar og rannsakað-
ar undir handleiðslu WHO,
og hefur það verið gert síðan
1960. Á þessu tímabili hafa
1300 ólíkar samsetningar ver-
ið reyndar, og stofnunin hef-
ur látið gera nákvæma notk-
unarleiðarvísa.
Krabbameinsrannsóknirnar
hafa leitt það í ljós síðast, að
samhengi er milli krabba-
meins í munni og þess að
tyggja betel-blöð og munn-
tóbak. Eins og stendur er ver-
ið að rannsaka sambadið
milli krabbameins í brjósti og
brjóstgjafar meðal hópa í átta
löndum.
Krabbameinsrannsóknir í
dýrum.
Apinn, hesturinn og hundur-
inn, uxinn, kindin og köttur-
inn geta öll þjáðst af ólíkum
tegundum krabbameins, sem
líkjast þeim tegundum krabba
er þjá menn. Þess vegna hefur
verið ákveðið að rannsaka
þessar skepnur á vegum
krabbarannsóknardeildar Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar. Ný alþjóðamiðstöð
fyrir dýrakýli hefur verið sett
á laggirnar við meinarann-
sóknastofnun hersins í Was-
hington. Hingað til hafa sex
aðrar vísindastofnanir — í
Glasgow, Zúrich, Munchen,
Amsterdam, Bern og Lundún-
um t— tilkynnt að þær muni
eiga samvinnu við miðstöðina.
Útvarpsaðvaranir um
farsóttir.
14 útvarpsstöðvar senda nú
út hinar daglegu aðvaranir A1
þjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar (WHO) um farsóttir.
Þær eru sendar kl. 8 GMT frá
Genf á hverjum morgni, en
síðan er þeim endurvarpað af
útvarpsstöðvum í Singapore,
Hongkong, Karachi, Keelung,
Madras, Manila, Mauritius,
Saigon, Sandakan og Tókíó.
Aðvaranirnar taka til drep-
sótta, kóleru, kúabólu, tauga-
veiki og febris recurrens, þeg-
ar þessir sjúkdómar koma upp
í nánd við hafnir og flugvelli
eða á svæðum sem áður hafa
verið laus við þá. Q