Dagur - 06.04.1968, Blaðsíða 2
2
Talið írá vinstri: Barbara Geirsdóttir, Sigþrúður Siglaugsdóttir og Sigrún Þórhallsdóttir. — Guðmundur Frímannsson, Bjarni Sveinsson, Örn Þórsson og Þorsteinn Bald-
vinsson. — Frímann Gunnlaugsson með bikarinn sem Kiwanisklúbburinn tlekla í Rcykjavík gaí og Akureyringar unnu glœsilega. Ljósmyndir: Brynjólfur Sveinsson.
Talíð frá vinstri: Örn Þórsson, Baldvin Þorsíeinsson og Þorsieinn Vilhelmsson. — Haukur Jóhanns-
son, Gunnlaugur Frímannsson og Guðmundur Sigurðsson.
►
r
►
>
i
t
i
r
>
r
Ólafsfirði 1. apríl. — Unglinga-
meistaramót íslands á skíðum
var háð hér á Ólafsfirði 30. og
31. marz. Alls var 91 keppandi
skráður til leiks og skiptast þeir
þannig á milli staða: Akureyri
27, Siglufjörður 22, Ólafsfjörð-
ur 10, ísafjörður 10, Húsavík
(HSÞ) 8, Reykjavík 7, og
Ungmenna- og iþróttasamband
Austurlands (UÍA) 7.
Mótsstjóri var Ármann Þórð-
arson, yfirdómari Hermann Sig
tryggsson, Akureyri, og læknir
mótsins var Hreggviður Her-
mannsson, héraðslæknir.
Mótið var sett á laugardag-
inn kl. 12,45 fyrir framan fé-
lagsheimilið Tjarnarborg, af
formanni íþróttabandalags Ól-
afsfjarðar, Stefáni B. Ólafssyni.
Bauð hann keppendur og starfs
menn mótsins velkomna til
leiks með stuttu ávarpi, enn-
fremur flutti hann mótinu
kveðju Stefáns Kristjánssonar,
formanns Skíðasambands ís-
lands, sem ekki gat niætt.
Kl. 14,30 hófst svo keppnin
með stórsvigi, sem fór fram í
fjallinu fyrir ifan bæinn. Veð-
ur var bjart og kyrrt og 8 til 12
stiga frost. — Áhorfendur voru
allmargir.
Fyrst kepptu stúlkur 13—15
ára. Brekkulengd var 1100 m,
hlið 30 og fallhæð 270 m. —
Sigurvegari varð Sigþrúður
Siglaugsdóttir, Akureyri, á 66,1
sek. 2. Sigrún Þórhallsdóttir,
HSÞ, á 67,8 sek. og 3. Áslaug
Sigurðardóttir, Reykjavík, 69,1
sek.
Þá kepptu drengir 13—15 ára
næst. Brekkulengd hjá þeim
var 1200 m, hlið 32 og fallhæð
300 m. — Fyrstur varð Hauk-
ur Jóhannsson, Akureyri, á
61,9 sek. 2. Gunnlaugur Frí-
mannsson, Akureyri, 62,2 sek.
3. Guðmundur Sigurðsson, Ak-
ureyri, 64,4 sek.
Að lokum kepptu drengir 15
til 16 ára. Brekkulengd var
1500 m, hlið 39 og fallhæð 400
m. — Sigurvegari varð Guð-
mundur Frímannsson, Akur-
eyri, 73,0 á sek. 2. til 3. Bjarni
Sveinsson, HSÞ, og Örn Þórs-
son, Akureyri, á 73,2 sek. og 3.
bezta tímann hafði Þorsteinn H.
Baldvinsson, Akureyri, 75,9 sek.
Kl. 18,30 hófst stökkkeppnin
í svokölluðu Kleifarhorni. — í
flokki drengja 13—14 ára sigr-
aði Guðmundur Ragnarsson,
Siglufirði, með 215,2 stigum. 2.
varð Birgir Ingvason, Ólafsfirði,
- SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1968 í HLÍÐARFJALLI
(Framhald af blaðsíðu 8).
Aðgangseyrir í Hlíðarfjall
mótsdagana verður sem hér
segir: Dagsmiði fyrir fullorðna
kr. 40, en fyrir börn innan 16
ára kr. 20. Aðgöngumiði, sem
gildir alla mótsdagana, kostar
kr. 150. Þá verður sú nýjung, að
seldir verða fjölskyldumiðar og
kostar hver miði kr. 100 fyrir
daginn.
Eins og sjá má af ofanskráðu
hefur verði á aðgöngumiðum
verið stillt mjög í hóf og munu
stúlkur sjá um sölu miðanna í
bílum Hópferða s.f. og við hlið
á Langamel.
Búast má við að mikill fjöldi
gesta heimsæki Akureyri um
páskana vegna íslandsmótsins,
og þá munu og koma margir
aðrir, sem njóta vilja hinnar
ágætu aðstöðu í Hlíðarfjalli til
skíðaiðkana og útiveru, og má
búast við miklum mannfjölda í
fjallinu um páskana ef veður
v.erður gott, sem allir vona. Þá
verður stólalyftan nýja trúlega
mikið notuð, en hún er eina
mannv’irki sinnar tegundar á ís
landi. — Aldrei verður það of
vel brýnt fyrir fólki að fara að
öllu með gát og búa sig vel í
Hiíðarfjall, og ef allir leggjast á
eitt ætti að vera hægt að koma
í veg fyrir Óhöpp og slys, og við
skulum vona að svo verði nú
um páskana, þó mikið fjölmenni
verði í Hlíðarfjalli.
Sv. O.
194.1 stig og 3. Sigurgeir Er-
lendsson, Siglufirði, 186,4 stig.
í flokki drengja 15—16 ára
varð Haukur Snorrason, Siglu-
firði, sigurvegari með 210,0
stig. 2. Guðmundur Ólafsson,
Ólafsfirði, 199,0 stig. 3. Magnús
Guðmundsson, Ólafsfirði, 197,7
stig.
Sunnudaginn 31. marz gengu
keppendur fylktu liði til kirkj
kl. 10,30 og hlýddu á messu hjá
séra Ingþóri Indriðasyni, sókn-
arpresti.
Á sunnudaginn var leiðinda-
veður, norðaustan strekkingur
með skafrenningi og 16—18
stiga frosti. En skíðamennirnir
létu það ekkert á sig fá, byrj-
uðu keppni í svigi á tilsettum
tíma kl. 13,30 hér í fjallinu fyr-
ir ofan bæinn, en svo beit kuld-
inn sárt, að menn máttu hafa
sig alla við að verjast gegn kali,
einkum í andliti. Áhorfendur
voru sárafáir, sem vonlegt var
í slíku veðri.
Stúlkurnai', 13—15, ára 'hófu
keppni. Voru hlið á brautinni
36. — Beztan brautartíma hafði
Barbara Geirsdóttir, Akureyri,
39.1 sek. en hún varð sigurveg-
ari, fór báðar ferðirnar á 78,3
sek. 2. varð Sigþrúður Sig-
laugsdóttir, Akureyri, 82,5 sek.
3. Sigrún Þórhallsdóttir, HSÞ,
83.1 sek.
Næst kepptu drengir 13—14
ára. Beztan brautartíma höfðu
Gunnlaugur Frímannsson og
Haukur Jóhannsson, báðir frá
Akureyri, 34,0 sek. en sigur-
vegari varð Guðmundur Sig-
urðsson, Akureyri, á 68,3 sek.
2. Gunnlaugur Frímannsson,
Akureyri, 68,4 sek. 3. Alfreð
Þórsson, Akureyri, 77.9 sek.
Að lokum kepptu drengir 15
ÍBA og ÍBK leika ekki
LEIKUR ÍBA og ÍBK í Hand-
knattleiksmóti íslands, 2. deild,
sem fram átti að fara í íþrótta-
skemmunni í dag, fellur niður,
þar eð Keflvíkingar gáfu leik-
inn. □
til 16 ára. Beztan brautartíma
hafði Örn Þórsson, Akureyri,
40,9 og varð hann einnig sigur-
vegari á 82,0 sek. 2. Þorsteinn
M. Baldvinsson, Akureyri, 88,6
sek. 3. Þorsteinn Vilhelmsson,
Akureyri, 88,8.
Um kl 5 hófst lokakeppnin —
gangan — hér inn af bænum.
Göngubrautin hjá 13—14 ára
drengjum var 5 km. Sigurveg-
ari varð Agnar Ebeneserson,
fsafirði, gekk hann brautina á
35:53 mín. 2. Guðmundur Ól-
afsson, ísafirði, 36:30 mín. og 3.
Kjartan Ólafsson, Siglufirði,
37:10 mín.
Göngubraut drengja 15—16
ára var 7,5 km. Sigurvegari
varð Ólafur Baldursson, Siglu-
firði, 41:34 mín. 2. Ingólfur
Jónsson, Siglufirði, 43:17 mín.
og 3. Sigurður Steingrímsson,
Siglufirði, 43:26 mín.
í alpaUvíkeppni stúlkna 13
til 15 ára sigraði Sigþrúður Sig-
laugsóttir, Akureyri, með 27,64
stigum. 2. Sigrún Þórhallsdótt-
ir, HSÞ, 48,08 stig. 3. Barbara
Geirsdóttir, Akureyri, 55,12
stig.
í alpa-tvíkeppni drengja 13
til 14 ára varð sigurvegari
Gunnlaugur Frímannsson, Ak-
ureyri, með 4,06 stig. 2. Guð-
mundur Sigurðsson, Akureyri,
25,90 stig. 3. Haukur Jóhanns-
son, Akureyri, 105,30 stig.
í alpa-tvíkeppni drengja 15
til 16 ára sigraði Örn Þórsson,
Akureyri, með 1,90 stig. 2. Þor-
steinn M. Baldvinsson, Akur-
eyri, 66.65 stig. 3. Guðmundur
Frímannsson, Akureyi'i, 69,22
stig.
í norrænni tvíkeppni drengja
13 til 14 ára sigraði Kristján
Möller, Siglufirði, með 449,67
stig. 2. Sigurgeir Erlendsson,
Siglufirði, 434,53 stig. 3. Örn
Jónsson, Ólafsfirði, 369,50 stig.
í norrænni tvíkeppni drengja
15 til 16 ára sigraði Ingólfur
Jónsson, Siglufirði, með 473,16
stig. 2. Haukur Snorrason,
Siglufirði, 404,90 stig. 3. Guð-
mundur Ólafsson, Ólafsfirði,
395,90 stig. í
Keppni milli liéraðssambanda.
í alpa-tvíkeppni sigraði Ak-
uréyri með 86,5 stigum og vann
farandbikar í þessari grein í 3.
sinn og þar með til eignar. 2.
varð HSÞ með 18,5 stig og 3.
Reykjavík með 7,0 stig.
í norrænni tvíkeppni sigraði
Siglufjörður 'með 65,0 stigum
og vann verðlaunabikarinn í
þessari grein í annað sinn. 2.
varð Ólafsfjörður með 22,0 stig.
Á þessu Unglingameistara-
móti var í fyrsta sinn keppt um
fagra styttu, en þessi forkunn-
arfagri verðlaunagripur er gef-
inn af Kiwanisklúbbnum Heklu
í Reykjavík. Hlýtur það hérað
verðlaunagripinn, sem beztum
árangri nær í öllum keppnis-
greinum samanlagt. Til þess að
vinna gripinn til eignar verður
að vinna mótið þrisvar í röð
eða fimm sinnum alls.
Að þessu sinni hlaut Akur-
eyri þennan fagra verðlauna-
grip fyrir bezta árangur á mót-
inu, 86,5 stig. 2. varð Siglu-
fjörður með 53.0 stig og 3. HSÞ
með 28,5 stig.
Mótið fór- allt hið bezta fram
og urðu engin slys á beppend-
um í sambandi við það.
Um kvöldið milli kl. 7 og 8
var sameiginleg kaffidrykkja
fyrir keppendur og starfsmenn
mótsins í félagsheimilinu Tjarn
arborg. Þar fór fram verðlauna
afhending. Hina nýju styttu frá.
Kiwanisklúbbnum Heklu af-
heti fararstjóri Reykvíkinga, en
fararstjóri Akureyringa veitti
henni móttöku.
Björn Stefánsson.
Sveit Stefans Gunnlaugssonar
sigraði í Sveitahraðkeppni B. Á.
Næsta keppni bæjarhlutakeppni
ÞRIÐJUDAGINN 2. apríl lauk
sveitahraðlieppni B. A. Þessi
fjögra kvölda keppni var mjög
skemmtileg og spennandi allt
frá upphafi. Sigurvegari vai'ð
sveit Stefáns Gunnlaugssonar,
sem hlaut 1294 stig. Auk Stef-
áns eru í sveitinni Frímann Frí
mannsson, Stefán Vilhjálmsson,
Bjarni Sveinsson, Jóhann Jó-
hannsson og Sigmundur Stefáns
son, en þeir 4 síðasttöldu eru
nemendur í M. A. Meðalárang-
ur út úr keppninni er 1152 stig.
Flest stig eftir eina umferð
hlaut sveit Stefáns í síðustu um
ferðinni 357 stig. — Röð efstu
sveita er þessi: stig
1. Sv. Stefáns Gunnl. 1294
2. — Harðar Steinbergss. 1271
3. — Guðm. Guðlaugss. 1267
4. — Halldórs Helgas. 1264
5. — Soffíu Guðm.dóttur 1236
6. — Mikaels Jónssonar 1228
7. — Óðins Árnasonar 1194
8. — Péturs Jósefssonar 1174
9. — Arnalds Reykdals 1165
10. — Guðjóns Jónssonar 1155
Alls kepptu 17 sveitir.
Næsta keppni.
Næsta þriðjudag (9. apríl) fer
fram all nýstárleg keppni á veg
um félagsins, en hún er þannig
að Innbærinn og Brekkurnar
keppa saman gegn Oddeyrinni
og Glerárhverfinu. Þetta verður
sveitakeppni og aðeins ein um-
ferð. Verður fróðlegt að sjá
hvor hluti bæjarins býr yfir
betri bridgemönnum.
íslandsmótið í bridge fer fram
í Reykjavík nú um páskana. Á
það mót fer ein sveit héðan og
keppir þar í 1. flokki. Er það
sveit Harðar Steinbergssonar
og óskum við henni góðs gengis.