Dagur - 01.05.1968, Blaðsíða 4

Dagur - 01.05.1968, Blaðsíða 4
4 I 5 Skiifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Súnar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðamiaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Stjórnarskráin UM síðustu helgi var haldin í Reykjavík ráðstefna á vegum Sam- bands ungra Framsóknarmanna um stjómarskrármálið. Degi er ekki kunnugt um, hvórt ályktanir hafa verið gerðar þar, en Tíminn segir, að þar hafi verið flutt nokkur erindi um þessi mál og hverjir hafi flutt þessi erindi. Eitt þeirra flutti Ás- kell Einarsson um „Stjómarskrá og byggðastefnu". í þessu sambandi er þess að minn- ast, að á Alþingi í fyrra flutti Karl Kristjánsson tillögu til þingsálykt- unar um endurskoðun stjómarskrár- innar. Þessa tillögu endurflutti Gísli Guðmundsson á s.l. þingi. Á báðum þingum var hún meðal þeirra mála, sem ekki fengust afgreidd. Rétt \im þessar mundir eru 26 ár liðin síðan Alþingi ákvað (vorið 1942) að kjósa nefnd til að endur- skoða stjórnarskrána í tilefni af stofnun lýðveldisins, sem þá stóð fyrir dyrum. Rétt eftir að lýðveldið var stofnað var svo skipuð ný nefnd, hinni til aðstoðar og voru samtals 20 menn í þessum tveim nefndum. — Tveim árum síðar voru báðar þess- ar neíndir lagðar niður og ein sjö manna nefnd sett á laggirnar í henn- ar stað. Formaður þeirrar nefndar var Bjarni Benediktsson. Þetta var 1947. En árið 1965 var endurskoð- unarnefnd þessi ennþá skráð í Rík- ishandbókinni og nöfn nefndár- manna. Mun nefndin þó hætt störf- um fyrir löngu. Þess má geta, að 20 manna nefnd- in réði sér framkvæmdastjóra, þjóð- kunnan mann og lærðan í lögum. Það var Gunnar Thoroddsen, sem fór vítt um lönd til að viða að sér fróðleik um efni vegna endurskoð- unarinnar. Það er ekki furða þó að mönnum finnist tírni til kominn að endurskoðun fari að ljiika og þjóð- in fái lýðveldisstjómarskrána. Það mun hafa verið um það leyti, sem stjómarskrárendurskoðunar- nefnd Bjarna Ben. var skipuð, eða fyrir rúmum 20 ámm, að Fjórðungs- sambönd Norður- og Austurlands tóku að sinna þessum málum. Af þeirra hálfu voru borin fram merki- leg nýmæli: Að greina skyldi á milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds betur en nú er og fela lýðveldisfor- seta meiri völd. Að skipta landinu í fimmtunga eða fylki. Og að Alþing- ismenn í neðri deild skyldu kosnir í einmenningskjördæmum en fylkis- þingin kjósa þingmenn til efri deild- ar. Mörgum leizt vel á þessar tillög- ur. Einnig átti sú hugmynd fylgi að (Framhald á blaðsíðu 7). Mjólkursölumálin á Ólafsfirði Svar við skrifum blaðanna íslendings og Vísis kipasfóllinn í ársíok 1967 í ÁRSLOK 1967 áttu ís- lendingar 863 skip með þil- fari. Þar af 776 ffskiskip, 7 hvalveiðiskip, 9 varðskip og björgunarskip, 32 vöruflutn- ingaskip, 5 olíuflutningaskip, 7 farþegaskip og 27 skip til ýmissa nota. Brúttólestatala skipaflot- ans var rúmlega 150 þús. Stálskip voru 296, þar af 224 fiskiskip (30 togarar) og 196 fiskibátar, og 7 hval- veiðiskip. Af fiskibátunum voru 208 bátar 100 brúttólestir og stærri, 174 bátar 50 til 99 brúttólestii', 211 bátar 12 til 49 brúttólestir og 153 minni en 12 brúttólestir. Opnir velbátar eru, sem fyrr er sagt, ekki meðtald- h'. □ - Veiða árlega um 30 þús. laxa ÞANN 23/4 s.l. birta þessi blöð fjögurra dálka rammagreinar um mjólkursölumál á Olafsfirði með stórri fyrirsögn um stríð í Ólafsfirði. Er heimildarmaður fréttarinnar Gunnar Sigvalda- son fram kvæmdastjóri Val- bergs h.f. — Þar sem í grein- um þessum eru rangtúlkanir og tilhæfulausar ásakanir, tél ég mér skylt að svara. Mjólkursamlagið á Ólafsfirði hefur frá upphafi heitið Mjólk- ursamlag Kaupfélags Ólafsfjarð ar, það var byggt upp af Kaup félaginu í samvinnu við bænd- ur og er eign þess. Á aðalfundi Kaupfélags Ólafsfjarðar árið 1956 er samþykkt tillaga þess efnis að komið skuli upp mjólk- ursamlagi með tækjurn til ger- .ilsneyðingar á mjólk. Skulí mjólkursamlagið rekið sem sjálfstætt fyrirtæki undir yfir- stjórn Kaupfélagsins. Þegar verið var að ræða um stofnsetningu þessa samlags bentu ýmsir sérfróðir menn á, að vonlítið væri að reka mjólk- ursamlag fyrir svo litla mjólk, sem bændur í Ólafsfirði mundu framleiða. Samt var ráðist í framkvæmdir og þá reynt að haga fyrirkomulagi og rekstri þannig að kostnaður yrði sem minnstur, og því þ á m. a. kom- ið þannig fyrir að samlagið er sambyggt sölubúð Kaupfélags- ins. Þegar búið er að láta mjólk ina í umbúðir setur samlagið hana inn í kæliklefa sem neyt- andinn tekur hana úr þegar hann kaupir mjólk. Það er not- aður sami kælirinn fyrir sam- lagið og búðina, kostnaður við flutning og tilfærslu á mjólk- inni er því enginn. Ýmislegt annað er starfrækt sameigin- lega af Kaupfélaginu og Mjólk- ursamlaginu. Um árangur og útkomu á rekstri þessa litla samlags er það að segja, að alltaf hefur veríð hægt að greiða bændum fyrir mjólkina dálítið hærra verð en verðlagsgrundvöllur landbúnaðarins hefur gert ráð fyrir, og þar með hærra verð en flest önnur samlög landsins hafa greitt. Nú gerist það með stofnun verzlunarfyrirtækisins Valbergs h.f. að þeir vilja fá hlutdeild í þessum rekstri, það er að segja þeir geta ekki þolað að öll mjólkin sé seld beint úr Mjólk- ursamlaginu í gegn um mat- vörubúð Kaupfélagsins. Sam- laginu beri að koma með mjólk ina til þeirra líka svo þeir geti selt hans líka eins og Kaupfé- lagið. Stjórn Mjólkursamlags- ins hefur talið, að um aukinn kostnað yrði að ræða ef sam- lagið þyrfti að flytja mjólkina í fleiri verzlanir, en það eru ekki nema um 100 metrar á milli verzlunar Valbergs h.f. og Kaupfélagsins. Stjórnin hefur því ekki talið ástæðu til að láta Valberg h.f. hafa mjólk til end- ursölu. Blöðin íslendingur og Vísir túlka þetta mál m. a. þannig, eftir upplýsingum framkvæmda stióra Valbergs h.f., „að svo langt hafi verið gengið í sam- komulagsátt við Mjólkursam- lagið, að bjóða því aðstoð við að koma upp áfyllingarvélum í sambandi við kassaumbúðir. Svarið hefði verið algjör neit- un og hefði því fylgt m. a. hót- un til bænda í Ólafsfirði um viðskiptabann af hálfu Kaup- félagsins ef þeir styddu málstað Valbergs h.f.“ — Þetta eru til- hæfulaus ósannindi og lýsi ég fullri ábyrgð ofangreindra aðila vegna þessa rógburðar. Ég hef aldrei sem framkvæmdastjóri Kaupfélagsins og Mjólkursam- lagsins haft í hótunum við bændur um viðskiptabann þótt þeir styddu málstað Valbergs h.f. Ég óska þess að áðurnefnd- ir aðilar sanni þessi ummæli og upplýsi hverjir það eru sem ég hef beitt þessari kúgun, að öðr- um kosti þerði þessi ærumeið- andi ummæli gerð ómerk. Gangur mjólkursölumálanna hefur verið þessi í stórum dráttum. Þann 7. desember 1961 ákvað Framleiðsluráð að Ólafs- fjörður skuli vera sérstakt mjólkursölusvæði samkvæmt heimild í 22. grein laga um framreiðsluráð og Mjólkursam- lagi Kaupfélags Ólafsfjarðar úthlutað Ólafsfirði sem sölu- svæði. Samkvæmt nefndum lögum er landinu skipt í mjólk- ursölusvæði og er bannað að flytja mjólk, rjóma og skyr milli sölusvæða nema með leyfi Framleiðsluráðs. — Eru þessi ákvæði sett til verndar fram- leiðslu þeirra bænda sem búa í nágrenni viðkomandi kaup- staða og einnig til að forðast tilflutning á mjólk milli sölu- svæða og þann aukakostnað sem af slíku leiddi. Með þess- ari ákvörðun hefur Mjólkur- samlagi Kaupfélags Ólafsfjarð- ai' verið veittur einkaréttur til sölu og dreifingu á mjólk, rjóma og skyri hér í Ólafsfirði og flutningur á mjólk frá öðr- um samlögum hingað án leyfis Framleiðsluráðs því algjört lagabrot. Mjólkursamlag K. Ó. má að sjálfsögðu ekki selja mjólk annars staðar en í Ól- afsfirði nema með leyfi Fram- reiðsluráðs. Lög þessi eru sett m. a. til að styrkja atvinnuöryggi bænda. Hugsum okkur t. d. hversu auðvelt væri fyrir Mjólkursam- lag K.E.A. að fylla markaðinn hér í Ólafsfirði. Við það mundu bændur hér ekki losna við sín- ar mjólkurafurðir nema flytja þær eitthvað til að reyna að keppa við stóru samlögin. Yrði kostnaður við slíkt það mikill, að vonlaust yrði fyrir bændur að halda áfram búskap. Við það töpuðu bæjarbúar því öryggi, sem þeir hafa varðandi mjólk- urkaup sín þá tíma árs sem samgöngur eru erfiðastar. Nú fyrir mánuði síðan vofði það yfir okkur að lokast hér inni um tíma, þegar hafísinn ógnaði og kaffenni var á Múlavegi. — Áðurnefnd lög eru því fullkom- lega réttmæt og stuðla að því að halda milliliðakostnaði við sölu og dreifingu á mjólkurvör- um niðri. Um kjötið gildir ann- að, þar eru engin lög til vemd- ar milliliðakostnaði, enda er kjötið flutt að óþörfu til og frá um landið á kostnað bænda. Þann 26/10 1966 skrifar Val- berg h.f. bréf til stjómar Mjólk ursamlags K. Ó. og sendir afrit af því til allra mjólkurframleið enda í Ólafsfirði. Þar fara þeir í annað sinn fram á að fá mjólk urvörur frá samlaginu til endur sölu. Síðan segir orðrétt: „Vegna breyttra aðstæðna á næstunni viljum við taka það skýrt fram, að verði um neitun að ræða munum við nota þá möguleika, sem skapazt kunna, til að fara aðrar leiðir, til að vei'ða við óskum viðskiptavina okkar í þessu efni.“ Ég spyr, felst ekki svolítil hót un í þessum setningum? Ef ekki vérður gengið að kröfum þeirra munu þeir fara aðrar leiðir, ef til vill ólöglegar? Stjórn Mjólk- ursamlagsins svaraði þessu með því að tjá Valberg h.f. að af- staða þeirra væri óbreytt frá fyrra svarbréfi. Síðastliðið sumar flytur svo Valberg h.f. all mikið af mjólk til Ólafsfjarðar frá Mjólkursam lagi KEA, Akureyri. Þessum aðilum var hógværlega bent á að þetta væri ólöglegt, en þeir létu það sem vind um eyru þjóta og héldu áfram meðan Múlavegur var fær. í haust fóru fram viðræður milli fulltrúa Valbergs h.f. ann- ars vegar og Mjólkursamlags og kaupfélagsins hins vegar. Var fulltrúum Valbergs tjáð að ráð- gerður væri fundur framleið- enda til að ræða mjólkursölu- málin. Niðurstaða þessa fundar var sú að ef fallist yrði á að láta Valberg h.f. hafa mjólk til end- ursölu átti samlagið að flytja þá mjólk sem pöntuð yrði af Val- berg h.f. til þeirra, kl. 9 fyrir hádegi þeim að kostnaðarlausu, ef sú pöntun nægði ekki í dags- söluna ætluðu þeir að sækja við bót sjálfir. Ef umbúðir lækju eða gölluðust átti samlagið að 'bæta það. Þeir vildu fá sömu sölulaun og kaupfélagið. Þessi niðurstaða var undirrituð af for manni stjórnar Mjólkursamlags ins og framkvæmdastjóra Val- bergs h.f. Á þessum fundi kom það aðeins fram að ráðamenn Valbergs h.f. töldu sig reiðu- búna að aðstoða við lánsfjár- útvegun vegna kaupa á áfyll- ingárvél fyrir kassaumbúðir, bein fjárhagsleg aðstoð fékk ekki hljómgrunn og er mér ekki kunnugt um að þeir hafi haft áhuga fyrir að leggja fjármuni í kaup á þeim dýru vélum sem þurfa í samlagið. Niðurstaða þessa viðræðu- funda var síðan lögð fyrir fund mjólkurframleiðenda. Málið var rætt all mikið og að lokum bor- in fram eftirfarandi tillaga: „Fundur haldinn að Hringveri 12. des. 1967 í Mjólkursamlagi K. Ó. samþykkir að svara Val- berg h.f. eftirfarandi: Vegna kostnaðarauka, sem óhjákvæmi lega yrði við dreifingu mjólkur innar fram yfir það sem nú er og við óbreyttar aðstæður telur fundurinn ekki fært fyrir Mjólkursamlagið að hafa fleiri útsölustaði eins og sakir standa nú.“ Tillaga þessi var borin upp og samþykkt með 11 atkvæðum, 2 greiddu atkvæði á móti og 1 sat hjá. Tillaga þessi var send Valberg h.f. Þann 23/2 1968 skrifar Fram- leiðsluráð landbúnaðarins bréf, sem sent var Mjólkursamlagi KEA, Akureyri, Mjólkursam- lagi K. Ó. og verzluninni Val- berg h.f., Ólafsfirði. Er þar bent á að mjólkurflutn. frá Akureyri til Ólafsfjarðar séu algjört laga brot og aðilum bent á að halda þessum málum í því formi sem gildandi lög geri ráð fyrir svo ekki þurfi að koma til mála- reksturs. — Þegar Múlavegur opnaðist í vor hóf Valberg h.f. aftur flutning á mjólk frá Mjólk ursamlagi KEA. Þessi fyrirtæki sýndu þá áþreifanlega að þau virða hvorki aðvaranir Fram- leiðsluráðs né gildandi landslög. Við ákváðum því í samráði við Framleiðsluráð að óska eftir við bæjarfógeta að hann sæi um að gildandi lögum yrði framfylgt. Því að beygja sig undir lands lög virðist Valberg h.f. una illa og lætur því umrædd blöð flytja áróðursgreinar og róg- burð um Kaupfélag Ólafsfjarð- ar og Mjólkursamlag þess. Nú er mikið rætt um hagræð ingu á ýmsu, hvaða rök eru þá fyrir því að réttlætanlegt sé að taka mjólkina úr kæliklefa kaupfélagsins, bera hana út á bíl og aka henni í verzlun Val- bergs h.f. sem byggð hefur ver- ið svo að segja við hliðina á Mjólkursamlaginu og matvöru- búð kaupfélagsins, bera hana þar inn og greiða síðan þessari verzlun sölulaun fyrir að ann- ast söluna. Starfsmenn samlags ins og kaupfélagsins hefðu minna fyrir því að selja mjólk- ina sjálfir beint til neytandans, ef hún er send heim er fyrh’- höfnin svipuð. Hver á svo að greiða þennan aukatilkostnað vegna Valbergs h.f.? Ekki þeir sjálfir, nei, — heldur bændur, — eða ef til vill kaupfélagið? — Ég tel ekkert vit í slíkri óhag- ræðingu og sóun á fjármunum. Ég held að Valberg h.f. og kaup mannasamtökin verði að sætta sig við að skipulag sé haft á dreifingu og sölu landbúnaðar- vara og milliliðakostnaðinum haldið niðri til þess að hinn al- menni neytandi geti fengið þess ar nauðsynlegu vörur á sem lægstu verði og bændur fái sem mest fyrir sínar vörur. Hvaða vit er í því að allir matvöru- kaupmenn þessa lands geti feng ið mjólkurvörur í umboðssölu á kostnað bænda. — Ég tel að frelsi í verzlun sé æskilegt en frelsi án þess að því sé stjórnað og ákveðnum reglum fylgt hlýt ur að leiða til ófarnaðar fyrr eða síðar. Að lokum vil ég upplýsa að innán skamms eru væntanlegar vélar til að fitusprengja mjólk og jafnframt tæki til áfyllingar vegna kassaumbúða. Mjólkur- samlag K. Ó. vænth- því þess að stutt verði í það að Ólafsfirð- ingar geti fengið hjá því fitu- sprengda mjólk bæði í 1 líters plastpokum og 10 lítra kassa- umbúðum. Ég vona að Ólafs- firðingar beri gæfu til að stuðla að sem hagkvæmastri, ódýrastri og beztri eigin framleiðslu. Á AÐALFUNDI Bændafélags Fljótsdalshéraðs í Valaskjálf 20. apríl mætti Gunnar Guðbjarts- son formaður Stéttarsambands bænda og gaf yfirlit um verð- lagsmál og kjaramál bænda. Fundurinn samþykkti eftirfar- andi. Fundur í Bændafélagi Fljóts- dalshéraðs 20. apríl 1968, telur þróun í verðlagsmálum landbún aðarins undanfarin ár, með sí- fellt lækkandi afurðaverði mið- að við hækkandi rkestrargjöld og í samanburði við launatekj- ur viðmiðunarstéttanna, horfa til vandræða og upplausnar í atvinnuveginum. 1. Eina aðalorsök þessa undan halds í kjaramálum bænda tel- ur fundurinn sexmannanefndar ákvæðið í afurðasölulögunum, sem gefur fulltrúum neytenda í nefndinni aðstöðu til að hindra réttmæta verðákvörðun afurð- anna hverju sinni. 2. Fundurinn gerir þá kröfu til Stéttarsambands bænda, að það beiti sér hið bráðasta fyrir breytingu á lögum um Fram- (Framhald af blaðsíðu 1). En þær rannsóknir eru þó svo skammt á veg komnar, að um algert brautryðjendastarf er að ræða. Samkvæmt reynslu a nn- ara þjóða, er með ýmsu móti unnt að glæða fiskveiðar í ám og vötnum. Allar miðast þær að sjálfsögðu við það, að fjármun- ir, sem í framkvæmdir eru lagð ir, skili sér aftur með góðum rentum. Sem dæmi um fiskirækt má nefna sumareldið á Teigi í Hrafnagilshreppi, þar sem við það er miðað, að sleppa mjög ungum laxaseiðum í ár. Á öðr- um stöðum eru seiðin alin upp í göngustærð og virðist reynsl- an mæla meira með þeirri að- ferð. Hver veiðiá hefur tak- möi'kuð uppeldisskilyrði. Því hefur viðbót „sleppiseiða" mjög heppileg áhrif til örvunar. Með gönguseiðunum má jafnvel gera þær fiskgengar ár að sæmilegum veiðiám, sem sjálf- ar hafa ekki skilyrði til að rækta sig upþ. Það er engin fjarstæða að ímynda sér, að auka megi laxgengd og þar með laxveiðar í íslenzkum ám um helming eða jafnvel marg- falda hana. Kemur þá til greina hvar heppilegast sé að setja upp eldisstöðvar framtíðarinnar fyr ir hina ýmsu landshluta og hversu megi á ódýrastan hátt framleiða nægilegt magn göngu seiða til að fullnægja eftirspm'n og þöi'fum. Vegna þess hve laxinn er verðmikill fiskur, m. a. til út- flutnings, eru miklar líkur á leiðsluráð o. fl., á þann veg að sexmannanefndarákvæðið verði fellt niður, en sett í þau ákvæði um beina samninga við ríkis- valdið hverju sinni. 3. Þá vill fundurixm eindregið mæla með tillögum endurskoð- unarnefndar um lög og reglu- gerð Stéttasambandsins um fjölgun í stjóm sambandsins til að auka áhrifavald hennar. 4. Fundurinn lýsir yfir að sölustöðvun eigi að beita, ef nauðsyn krefur, til þess að fá réttmætum kröfum stéttarinnar framgengt. 5. Fundurinn mótmælir harð- lega dómsniðurstöðu yfirdóms um verðlagningu búvara á sl. hausti og telur að í fullkomið óefni stefni með efnahag margra bænda, sé stéttin beitt slíkri valdnýðslu, Ennfremur telur fundurinn að neitun ríkisstjórnarinnar um fyrirfreiðslu við landbúnaðinn samkvæmt erindi Stéttasam- bands bænda, um niðurgreiðslu áburðar o. fl., lýsi fullkomnu skilningsleysi á hagsmunamál- um bændastéttarinnar. □ hagnaði ef þeim fjármunum, sem á skynsamlegan hátt er varið til að auka magn h ans í veiðiánum. En laxatekjur og allar framtíðaráætlanir um aukinn lax byggist á þeirri staðreynd, að laxinn, sem í svokalaðri göngustærð yfirgef- ur ána, sem hefur fóstrað hann, kemur aftur þangað að vissum tíma liðnum og hefur þá marg- faldað stærð sína og þyngd með ótrúlegum hraða á hafi úti. Og þegar inniræktuðum laxaseið- um er sleppt í einhverja á, fá þau á örfáum dögum „tilfinn- ingu“ fyrir vatninu og rata sem þroskaðir fiskar til baka, þótt áin, þar sem þeim var sleppt, hafi alls ekki fóstrað þá, en að- eins opnað þeim leið út í víð- áttur hafsins. Umræður spunnust m. a. um það, hvernig auðveldast væri að koma upp silungseldi við sveitabæi. Gaf veiðimálastjóri ýmsar upplýsingar um það mál og einnig um þá takmörkuðu þekkingu og reynslu, sem fyrir lægi á því sviði. En með sil- ungseldi er átt við eldi í litlum tjörnum, þar sem fiskurinn er daglega fóðraður eins og hús- dýr. í sambandi við silungseldi á sveitabæjum er mikið undir vatninu komið og varmi vatns- ins hefur ákaflega mikla þýð- ingu hvað fæðutöku og vaxtar- hraða snertir, gagnstætt dýrum með heitt blóð og jafnheitt, hversu sem viðrar. Hins vegar getur laxinn hundraðfaldað þunga sinn á einu ári í sjó og virðast vaxtarhraðanum því ekki sett þi'öng takmörk, þar sem skilyrði eru hagstæð. Ennþá eru og lítt rannsakað- ir þeir möguleikar, sem hin fjörmörgu veiðivötn í byggð og óbyggð kunna að búa yfir, ef maðurinn kæmi til hjálpar. — Hins vegar eru takmörk fyrir því, hvað t. d. hver hektari vatns getur skilað miklum nytjafiski, án aðstoðar. Eins til tíu kg veiði af hektara er stundum nefnt í því sambandi, en mun lítt rannsakað 'héi'. Þar kemur bein fóðrun og dreifing vissra jurta- og skordýranær- andi efna til greina, en er ó- rannsakað hér á landi hvern árangur kynni að bera. En ekki má rugla saman fiskeldi í tjöm- um og ýmsum aðferðum til að örfa fiskigengd í ám, og þroska fisks í vötnum með aðferðum, sem ekki heyra undir beina fóðrun. Á bændaklúbbsfundinum kom það skýrt fram, sem fæstum er raunar lengur hulið með öllu, að í fiskeldi og margs konar fiskirækt í ám og vötnum, eru möguleikarnir miklir. Samfé- lagið verður að verja nokkrum fjármunum til margþættra til- rauna í fiskiræktarmálum — meira en verið hefur til þessa. Það er of dýrt að láta hina miklu möguleika ónotaða. □ Armann Þórðarson. Sölosföðvun ef nauðsyn krefur Nokkrar ininiiiiigar frá Árskógsströnd NORÐLENDINGAR hafa nú daglega ísinn fyrir augum, þeir, sem til sjávar sjá og búa nú við nær algera siglingateppu. Hin mikla hafíshurð féll að stöfum og lakaði Norðurland inni hvað samgöngur á sjó snertir. Sjó- menn hafa misst hundruð neta undir ísinn og hafa ekki haft frið til sjósóknar, enda sum fiskiskip algerlega innilokuð á hinum ýmsu norðlenzku höfn- um. Allir vita, að samkvæmt reynzlu fyrri ára getur hafísinn fyllt hvern fjörð, vog og vík á einum stórhríðardegi, og þá er vá fyrir dyrum. Og menn rifja upp minningar frá gamalli tíð, eða frostavetrinum 1917—1918, en þá varð Eyjafjörður fullur af hafís og fraus ísinn þegar saman í grimmdar-frosthörkum, sem þá gengu. Þá voru sleðaferðir farnar til Hjalteyrar og jafnvel alla leið til Hríseyjar, héðan frá Akureyri. Þetta muna margir eldri menn. Blaðið átti tal við sjötugan mann af Árskógsströnd, Jón Níelsson, nú kaupmann á Akur eyri, og voru þá rifjuð upp nokkur atvik frá heimabyggð okkar, sem gerðust fyrir hálfri öld. Hann sagði frá á þessa leið: Það var í janúar 1918 eða fyr- ir 50 árum, sem Eyjafjörður fylltist af hafís og allt fraus saman, svo akfært var á sleðum um allan fjörðinn, frá Látrum og Grímsnesi að austan og Dal- vík að vestan. Þá voru fréttirnar ekki eins fljótar að berast og nú, milli sveita og bæja. En þó bárust þær fréttir furðu fljótt, að mikið hefði verið drepið af höfrung- um við Grímsnestanga á Látra- strönd. En þar hafði haldizt auð vök um skeið. Bændurnir Jón Halldórsson á Grímsnesi og Steingrímur á Skeri unnu að höfrungadrápinu ásamt heima- mönnum sínum. Þeir áttu sela- skutla og skutluðu dýrin og stungu síðan en skutu þau ekki. Höfrungarnir, sem drepnir voru í þessari vök voru 92 talsins ög voru þeir til jafnaðar 410 pund, þó misstórir. Síðar fundust 42 höfrungar í botninum, sem kafn að höfðu undir ísnum á sömu slóðum. Mikil bjöi'g var af þess ari veiði. Pundið var selt á 10 aura og sagað þvert yfir í stykki, þegar ekki var selt í heilu lagi. Þegar fréttin um höfrungana barst vestur yfir fjörðinn, fannst mörgum sjálfsagt að út- vega sér nokkurn forða af þessu kjöti. Ekki sízt vegna þess, að líkur bentu til þess, vegna haf- íssins, að ekki yrði farið á sjó- inn að svo stöddu, e. t. v. ekki næstu vikur eða jafnvel mán- uði. Níels Jónsson á Birnunesi, faðir þess, er söguna segir, kom að máli við Þorvald Jónsson frá Kleif, þá á Hinriksmýri og var hann reiðubúinn til að taka að sér forystu í leiðangri austur yfir fjörð. Þeir, sem með honum fóru, auk sögumanns og farar- stjóra, voru: Ásmundur Sig- fússon, Gunnlaugur Jóhannes- son, Gísli Sölvason og Finnbogi Guðmundsson. Við vorum þann ig sex saman með stóran sleða meðferðis og drógum hann á sjálfum okkur. Ferðin gekk vel austur yfir fjörðinn, en krók- ótta leið urðum við að fara til að sneiða sem mest hjá háum jökmn en fara heldur sléttan lagísinn. Mig minnir að við kæmum að Grímsnesi kl. 11 ár- degis. Var þá byrjað að verzla við Jón bónda og sagði hann að við gætum fengið það sem við treystum okkur með. Við tók- um þrjá höfrunga á sleðann og hefur ækið þá sennilega verið um 1200 pund eða vel það. Ekki vildi Jón láta okkur fara án þess að þiggja fyrst kaffisopa og var því tekið með þökkum. Á meðan góðra veit- inga var neytt, sagði Jón okkur frá höfrungadrápinu og að mai'gir hefðu án efaAafnáð únd ir ísnum. Bjóst hann við, að kjöt af þeim væri’ mun verra en þó allgóður matur. Síðar . kom í Ijós, að kjöt af þeim höfrimgum, sem síðar fundust á sjávárbotni, var gott enda sjórinn mjög kald ur og þessum höfrungurrí hafði blætt inn. Við vorum víst lyst- ugir, en jafnóðum var. bætt.á diskana. Við héldum svo af stað heim- leiðis í allgóðu veðri og skilaði sæmilega þótt - við færum nú ekki lengur með tóman sleða. En þegar við vorum komnir- í miðjan ál eða þar um bil, skall á norðan stórhríð með grimmd- arfrosti. Sáum við okkur ekki annað fært en að skilja sleðann eftir. Stungum við löngum broddstaf hjá ækinu og héldum svo til Hríseyjar og gistum þar um nóttina. Næsta morgun vát bjart og 30 stiga frost. Fórum við þá að sækja ækio, fundum það strax og héldum nú heim- leiðis og bar ekkert sérstakt til tíðinda. Við héldum á okkur hita á leiðinni, þótt veðrið væri svalt. Margir nutu kjötsins sem við sóttum á sleðann á Gríms- nes og þótti ferðin hafa tekizt vel. Það var löngu seinna þennan sama vetur. ísinn hafði þá brot- ið upp, alilt inn að Birnunes- nöfum. Þrír menn, þeir Gunn- laugur Skarphéðinsson, Krist- inn Kristjánsson og Kristinn Pálsson báðu mig að koma með sér yfir að Grímsnesi til að sækja höfrungakjöt. En þá höfðu höfrungarnir fundizt í botninum. Pabbi átti bát og lán aði hann. Drógum við bátinn fram á ísskörina og var þaðan auður sjór. Er við höfðum róið kippkorn rauk hann upp með suðaustan drif svo strax fór að gefa á. Segi ég þá, að nú yrði að setja upp segl til að ná Gríms nesi. Einn félaga minna varð æfur við og spurði hvort ég væri orðinn vitlaus að setja upp segl á galtómum bát í svona veðri. Þetta varð þó svo að véra og sigldum við hinn ljúfasta beitivind og skilaði okkur drjúgum austur yfir og allt upp í Grímsnesfjöru. En fyrrnefnd- ur maður hélt í klóna. En fleiri voru á ferð en Ár- skógsströndungar. Fimm bátar frá Olafsfirði voru komnir á undan okkur. Enn hafði hvesst og fóru tveir Ólafsfjarðarbát- arnir heimleiðis um þetta leyti. Jón Bergsson, nú háaldraður maður á Akureyri og mörgum kunnur, var formaður á öðrum bátnum. Þeim gekk vel heim, en vegna ísjaka var siglingin þó hættuleg. Það var mikið horft á eftir þessum bátum á meðan þeir voru að hverfa vestur yfir álinn. En Jón á Grímsnesi tók nú til sinna ráða. Hann sagðist ekki afgreiða fleiri báta í dag og varð svo að vera. Hins vegar væri gisting heimil. Gistum við svo þarna 16 talsins og var bæði nægilegt húsrými og matföng. Um kvöldið var slegið upp balli. Lítil harmonika var til á bæn- um og lékum við Jón Frímanns son frá Ólafsfirði á hana. Döm- ur voru heldur fáar en við skemmtum okkur hið bezta. Ég minnist þess enn, eftir 50 ár, hve rausnarlega var á borð bor- ið. Heimamenn voru skraf- hreifnir. Jón bóndi sagði okkur þá m. a. sögur af vöskum mönn um. Einu sinni tóku þeir Odd- geir Jóhannsson og Þorsteinn Ágústsson, báðir á Grenivík, 80—90 punda bagga á bak sér og báru frá Grímsnesi og heim til sín. Þriðji maður, Þórhallur Geirfinnsson frá Botni í Þor- geirsfirði, fór með 110 punda bagga á bakinu frá Grenivík að Botni í Fjörðum, en bar 90 pund frá Grímsnesi til Greni- víkur. Eitt sinn að kveldi dags komu tveir Hríseyingar að Birnunesi og báðust gistingar. Það var vel komið. Þeir spurðu um manna- ferðir og áttu von þriggja manna annarra, er allir komu á ísnum frá Akureyri og ætluðu að hittast á þessum stað. Seint þetta kvöld gekk faðir minn út og heyrði þá hóað frammi á ísn- um. Hann hóaði á móti, fór síð- an inn sótti lukt og hengdi hana á flaggstöngina. Þetta voru Hrís eyingarnir, orðnir rammvilltir en komu nú. Þessir menn voru: Þórður Jónsson frá Yztabæ, Abel Jónsson, en nafni 3. manns ins hefi ég gleymt. Þeir gistu allir hjá okkur um nóttina. Einu sinni eftir að ísinn braut inn að Birnunesnöfum, man ég að menn komu róandi frá Ólafsfirði en gengu svo til Akureyrar og höfðu með sér sleða til að flytja varning á. Ég minnist þess hve þessir ferða- menn voru oft þreyttir, illa á sig komnir og þyrstir. Móðir mín, Kristín Kristjánsdóttir, fór oft út í fjós með fötu til að gefa þyrstum ferðamönnum spen- volga nýmjólk að drekka. Það var vel þegið. Einu sinni fórum við þrír strákar til Akureyrar af Ár- skógsströnd: Þorsteinn Stefáns- son, síðar hafnarvörður á Akur eyri, Tómas Sigurðsson á Selá og ég. Við fórum með sleðaanga með okkur og á honum var koffort. Afmæli ungmennafé- lagsins okkar, Reynis, var fram undan og vorurn við sendir til að kaupa til veitinganna. Við fórum á glærum ís frá Rauðu- vík og allt til Akureyrar á skautum. Gekk sú ferð vel. Gist um við svo á Akureyri um nótt ina en héldum heim með vör- urnar daginn eftir. En þá var hvass sunnanstormur og hláka. Bar ekkert til tíðinda fyrr en hjá Gæseyri. Þar bilaði skaut- ur. ísinn var glerháll og nær ógangandi. Létum við manninn því setjast á koffortið og héld- um áfram. Skilaði okkur vel með storminn í bakið svo við þurftum lítið fyrir að hafa. Einn fyrsta daginn eftir að hafísinn fyllti fjörðinn, var ég sendur með áríðandi bréf suður í Selá. Þá var 35 stiga frost og var ég mjög dúðaður enda kal- hætta mikil í slíku frosti og var ég með „strút“ til að kala ekki á andliti. Á leið minni var fjöldi fugla, sem lágu á snjónum eins og hráviði, dauðfrosnir. Þar var bæði æðarfugl, hávellur, haf- tyrðlar og svartfugl. En á ís- breiðunni yfir fjörðinn þveran sást enginn fugl og ekkert líf. HÆTTUR Á VEGUM Á NÝHEFLUÐUM vegi í Þing- eyjarsýslu gróf vatn gjótu, sem olli skemmdum á 6 bílum. Bílstjórar þurfa að gæta var- úðar á viðsjálum vegum — og Vegagerðin að „standa vel í stykkinu". □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.