Dagur - 15.05.1968, Side 7
MATUR OG NÆRING
KOMIN er á markaðinn ný bók
í Alfræðasafni AB og nefnist
hún Matur og næring. Aðal-
höfundui' hennar er William H.
Sebrell prófessor í heilsufræði
og næringarfræði við Colombíu
háskóla, en hann er auk annars
ráðunautur við Alþjóða heil-
brigðismálastofnunina (WHO)
og Barnahjálp Sameinuðu þjóð
anna (UNICEF). Nýtur hann
alþjóðlegrar viðurkenningar
sem einn fremsti fræðimaður
heims á sínu sviði og hefur
sjálfur unnið þar merkileg
vísindaafrek. Má þár til n efna
kannanir hans sjálfs á sam-
bandi milli næringar og blóð-
sjúkdóma, en sá þáttur lækna-
vísindanna verður nú æ af-
drifaríkari eins og berlega kem
ur fram í þ essari bók.
Matur og næring kom fyrst
út á ensku fyrir fáum mánuð-
um og t-ekur þannig örugglega
til nýjustu þekkingar og rann-
sókna. Hefur Örnólfur Thorla-
cius menntaskólakennari þýtt
hana og búið í hendur íslenzk-
um lesendum. — Skrifar hann
einnig formála fyrir bókinni og
kemst þar m. a. svo að orði:
„Matur og næring, viðfangs-
efni þessarar bókar, hefur ver-
ið meginviðfangsefni manna og
mannlegs þjóðfélags á öllum
öldum. Fyrstu samfélög manna
voru einkum stofnuð til öflun-
ar matvæla, og menning dafn-
aði ekki fyrr en tími varð af-
lögu frá brauðstritinu . . . Ekki
er ýkjalangt síðan ófeiti var
algeng dánai'orsök hér á landi.
En nú er svo komið hér sem
víða í grannlöndum vorum, að
menn stytta ýmsir ævi sína
frekar með of mikilli neyzlu
matai' en of lítilli. Vandamál
ofneyzlu eða „ofátið" eru tek-
in til meðferðar í þessari bók,
en þau eru nátengd þjóðfélags-
legum venjum ekki síður en
vandamál vannæringar.“ □
AUGLÝSING
UM GREIÐSLUR ÚTSVARA
Bæjarstjórn Akureyrar liefir samiþykkt að nota heimild
í 2. málsl. síðustu málsgr. 31. gr. laga nr. 51, 10. júní
1964, um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. breytingu frá
10. apríl 1968.
Sainkvæmt þessu verða útsvör þessa árs því aðeins
dregin frá hreinum tekjum við álagningu útsvara á ár-
inu 1969 í Akureyrarkaupstað, að gerð hafi verið full
skil á fyrirframgreiðslu eigi síðar en 31. júlí í ár og
útsvör ársins einnig að fullu greidd fyrir n.k. áramót.
Sé eigi staðið í skilum með fyrirframgreiðslur sam-
kvæmt framansögðu, en full skil þó gerð á útsvörum
fyrir áramót á gjaldandi aðeins rétt á frádnetti á helm-
ingi útsvarsins við álagningu á næsta ári.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 14. maí 1968.
BJARNI EINARSSON.
SPARISJÓÐUR
CLÆSIBÆJARHREPPS
opnar í nýju húsnæði
að BREKKUGÖTU 7, Akureyri,
mánudaginn 20. maí.
Afgreiðslutími sami og áður. — Sími 2-15-90.
© |
*- Þakka innilega œttingjum og vinúm alla dstúð og
& gjafir d S0 dra afmœli minu, 3. mai sl. ^
4 Öllum Gidionbrœðrum d Akureyri og einnig i %
Reykjavik og elskulegar viðtökur par hjd vinum og x
^ cettfólki. ||
% Friður og farsœld verið með oss öllum i drottins *
5 nafni. <3
Skjaldarvik, 14. mai 1968.
STEFÁN JÓNSSON.
t
I
Konan mín,
MARfA RANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR,
verður jarðsungin að Möðruvöllum í Hörgárdal, mið-
vikudaginn 15. maí kl. 2 e. h. — Blóm og kransar af-
þakkaðir. Ferð frá ferðaskrifstofunni Sögu kl. 1.30 e. h.
Anton Larsen.
Leikfélag Akureyrar
ÓVÆNT
HEIMSÓKN
eftir J. B. PRIESTLEY
Sýning miðvikudag
(í kvöld).
Fimmtán ára dreng
VANTAR VINNU
í sumar, á Akureyri eða í
nágrenni.
Uppl. í síma 1-25-73.
13 ára stúlka óskar eftir
B ARN GÆZLUST ARFI
í sumar.
Uppl. í síma 1-26-95.
Ung stúlka óskar eftir
VINNU í sumar í sveit.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu Dags, merkt
,,Sveit“.
BÆNDUR!
Þrettán ára drengur óskar
eftir að komast í sveit í
sumar, vanur sveitavinnu.
Uppl. í síma 1-14-75
og 1-14-37.
Nýlegur BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í síma 1-13-86.
TIL SÖLU:
Leistar og vettlingar.
Rósa prjónakona.
Sími 1-21-48.
HEY TIL SÖLU
Verð kr. 330 hesturinn.
Upplýsingar gefur
Helgi Hálfdánarson.
TIL SÖLU:
Notaður ÍSSKÁPUR,
Bosch, stærsta gerð.
Uppl. í Norðurgötu 41 A.
TIL SÖLU:
Agfa Super 8
kvikmyndatökuvél
með Sum-linsu.
Ólafur Ásgeirsson,
Oddeyrargötu 32
Sími 1-16-77.
Sem nýr
ÍSSKÁPUR
til sölu.
Uppl. í síma 1-19-07.
VESKI með peningum
fannst laugard. 4. þ. m.
Vitjist á afgr. blaðsins.
MESSAÐ í Akureyrarkii-kju á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h.
— Hinn almenni bænadagur.
— Sálmar nr. 374 — 376 —
378 — 1. — P. S.
SJÓNARHÆÐ. Mister G. K.
Lowther flytur síðasta biblíu
fyrii'lestur sinn í kvöld —
miðvikudagskvöld — kl. 8.30.
Samkoma n. k. sunnudag kl.
5. Allir velkomnir.
KRISTNIBOÐSHÚ SIÐ ZION.
Sunnudaginn 19. maí. Sam-
koma kl. 8.30 e. h. Allir hjart-
anlega velkomnir.
*dij/ „KRISTUR KALLAR
ÆSKU ÍSLANDS“ er
kjörorð Hjálpræðis-
Núaiia:' hex-sins í ár. Verið vel
komin á samkomur Hjálp-
ræðishersins hvert supnudags
kvöld kl. 20.30.
I.O.G.T. st. Akurliljan nr. 275.
Rabbað saman yfir kaffisopa
í kvöld, miðvikud. 15. maí, kl.
21.00 á venjulegum fundar-
stað. Heimilt að taka með sér
gesti. Næsti reglulegur fund-
ur miðvikudaginn 22. maí. —
Ath. breyttan fundardag. —
Æ.t.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99
heldur fund fimmtudaginn
16. þ. m. kl. 9 e. h. að Hótel
Varborg. Fundai'efni: Inn-
taka nýrra félaga, önnur mál,
hagnefndai-ati'iði. — Æ.t.
GLERÁRHVERFISBÚAR! —
Athugið auglýsingu. í blaðinu
í dag, um aðalfund Glerár-
deildar KEA.
KONUR í Kvenfélagi Akureyr-
arkirkju. — Fjölmennið til
kirkju uppstigningadag kl. 2
e. h. Kaffi og aðalfundur í
kapellunni að lokinni messu.
— Stjói’nin.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR
Dalvík — Ólafsfjai’ðarmúli,
kvöldferð 15. maí kl. 20.00, ef
veður leyfir. Sérstakt tæki-
færi til að sjá hafísinn. Far-
seðlar seldir á skrifstofu fé-
lagsins, Skipagötu 12, frá kl.
19.00 — 20.00 og við bílinn.
KVIKMYNDAÁHUGAMENN!
Áfoi-mað er að stofna félag
áhugamanna um kvikmynda-
töku (8 m/m). Undirbúnings
fundur verður að Hótel KEA
þriðjudaginn 21. maí kl. 8.30.
Allir áhugamenn velkomnir.
TIL SÖLU:
Peclegree BARNAVAGN
Sími 1-18-92.
Píano-HARMONIKA
til sölu.
Mjög vönduð.
Uppl. í síma 1-24-22.
TIL SÖLU:
Sóíi, sófaborð og tveir
stólar. Mjög ódývt.
Norðurgötu 54.
Sími 1-21-74.
KÖHLER SAUMAVÉL
til sölu.
Selst ódýrt.
Til sýnis í Véla- og raf-
tækjasölunni, Geislag. 14.
BRÚÐHJÓN. Þann 10. apríl sl.
voru gefin saman í Akureyr-
arkirkju ungfrú Regína Hall-
dói'sdóttir, Melum, Dalvík og
Stefán Páll Einarsson, Akur-
eyri. Framtíðai'heimili þeirra
er í Skarðshlíð 13, Akureyri.
BRÚÐHJÓN. Þann 11. þ. m.
voru gefin saman í hjóna-
band brúðhjónin ungfrú
Karolína Stefánsdóttir og
Karl Franklín Magnússon iðn
nemi. — Heimili þeirra er að
Lækjargötu 4, Akureyri.
SKYGGNILÝSINGAR. Vegna
fjölda áskorana heldur frú
Lára Ágústsdóttir skyggnilýs
ingarfund í Alþýðuhúsinu
miðvikudaginn 15. maí kl. 9
síðd. Aðgöngumiðar seldir í
Bókaverzlun Eddu og við inn
ganginn.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
vatni falli á land okkar árlega,
ýmist sem regn eða snjór. ÞaS
er því engin furða, að menn
verði úrkomunnar varir. Vatn-
ið skóp landið okkar, nærir
gróðurinn, veitir okkur bezta
neyzluvatn í heimi og er orku-
gjafi í fallvötnunum. Af jörð-
inni þekur það nær þrjá fjórðu
hluta. Vatnsnotkun jarðarbúa
vex ört, svo að á síðari árum
eru víða gerðar rannsóknir til
að fylgjast með grunnvatns-
birgðum jarðlaganna, þar seni
ótæpast er af ausið.
230 NAUÐUNGARUPPBOÐ
Friðjón Skarphéðinsson borg-
arfógeti í Reykjavík auglýsir í
síðasta Lögbirtingarblaði 30.
apríl 230 nauðungaruppboð —
allt fasteignir, nema citt skip.
Fjárhagserfiðleikarnir segja
víða til sín undir viðreisnar-
stjórn, og fara stöðugt vaxandi.
AÐALDALSFLUGVÖLLUR
Flugmálastjóri hefur tjáð, að
verkfræðingar flugmálastjórnar
hafi komizt að þeirri niðurstöðu
að Aðaldalsflugvöllur uppfylli
bezt þau skilyrði, sem leitað er
að til að búa til alþjóðaflugvöll,
samkvæmt þeim athugunum,
sem fram hafa farið. Loftleiðir
liafa sýnt áhuga á máli þessu
og Þingyingar eru því hlynntir.
Talið er óviðunandi að hafa
ekki alþjóðlegan varaflugvöll
norðanlands.
ENN EITT MORÐ
Sl. fimmtudagsnótt skaut Gunn
ar V. Frederiksen flugmaður
Jóhann Gislason deildarstjóra
hjá Fí til bana heima hjá hin-
um síðarnefnda, eftir að hafa
brotizt þar inn. — Morðinginn
flúði en náðist fljótlega eftir
verknaðinn. Hér var um að
ræða morð að yfirlögðu ráði og
hið fjórða í Reykjavík á síð-
ustu 17 mánuðum. Eitt er enn
óupplýst. Gunnar V. Frederik-
sen sat að drykkju áður en
hann vann óhappaverkið og ók
bíl sínum að því loknu heim til
Jóhanns.