Dagur - 17.07.1968, Síða 8
8
Vistheimilið Sólborg í byggingu. (Ljósm.: N. H.)
SMÁTT OG STÓRT
MIKIL VINNA —
ÞREYTT FÓLK
f ýmsum hraðfrystihúsum norð
anlands hefur verið látlaus
vinna um lengri tíma og svo
mikið hefur borizt að af fiski,
að gripið hefur verið til róðrar-
stöðvunar t. d. á Húsavík. Og
starfsfólk frystihúsanna er dauð
þreytt eftir þrotlausa eftirvinnu
vikum saman. Hinum góða afla
ber að fagna og einnig hinni
góðu vinnu.
GÓÐUR AFLI
Ströndum. Selsskinn eru í góðu
verði í ár á erlendum mörkuð-
um.
HUNDAELDI
Erlendur maður fann fyrir
nokkrum árum „íslenzka“
hunda á íslandi, keypti þá og
flutti síðan á hundabú sitt í
Californíu. Nú er verið að rækta
hundakyn, kallað íslenzkt, suð-
ur á Skeiðum, á bæ sem heitir
Ólafsvellir. En íslenzkir liundar
eiga að hafa uppspert eyru og
hringað skott, auk fl. einkenna.
Þessi hundarækt er út af fyrir
Konur safnMJtili lieimilis vangef■
mna i
FIMMTUDAGINN 11. júlí sl.
boðaði happdrættisnefnd Sam-
bands norðlenzkra kvenna
stjórn Vistheimilisins Sólborgar
á sinn fund að Hótel KEA. Til-
efnið var að afhenda ágóða af
happdrætti, sem SNK hefur á
eigin, spýtur stofnað til og
þriggja kvenna nefnd annazt að
öllu leyti. í nefndinni eiga sæti
þessar konur: Sigríður Hafstað
á Tjörn, Helga Kristjánsdóttir
á Silfrastöðum og Ásta Jóns-
dóttir á Akureyri. Skipulögðu
þær söluna með aðstoð kven-
félaga víðs vegar á Norðurlandi
og nutu auk þess dýrmætrar
fyi’irgreiðslu einstaklinga og fé-
laga í Reykjavík og víða annars
staðar á landinu. Happdrættis-
nefndin þakkar innilega mikið
örlæti og skilning á málefnum
vangefna fólksins hvarvetna
þar, sem þessir liappdrættis-
miðar hafa verið boðnir til sölu.
Nefndin afhenti framkvæmda
stjóra Sólborgar, Jóhannesi Ola
Sæmundssyni, ágóðann af happ
drættinu, sem nam hvorki
meira né minna en kr. 632.543.01
og skal honum varið til tækja-
kaupa, húsbúnaðar, eða annarra
þarfa vistheimilisins, eftir nán-
(Framhald á blaðsíðu 7).
Handfæraafli norðanlands hef-
ur verið mjög misjafn en víða
góður og togveiðibátar hafa
fengið óvenju mikinn afla á
þessu ári. En því miður ganga
afskipanir ekki eins greiðlega
og æskilegt væri. Bátar með
ólögleg veiðarfæri voru reknir
frá góðum afla á Þistilfirði, en
munu nú hafa fengið einhvem
„umþóftunartíma“ til að skipta
um veiðarfæri.
SELURINN FLÚÐI fSINN
Talið er, að selveiði verði víða
minni í ár en undanfarið, vegna
þess að ísinn hrakti selinn suð-
ur á bógimi í vetur og vor. Þó
mun veiði þessi óbreytt á Breiða
firði en er sögð mjög lítil á
sig lofsverð. En er ekki langt-
um skynsamlegra að flytja inn
þaulræktað fjárlimidakyn t. d.
frá Skotlandi eða írlandi?
LAX FRlÐAÐUR f SJÓ
f reglugerð Dalvíkurhrepps er
allt dráp göngusilungs bannað á
hafnarsvæðinu, sem er talið frá
Sauðanestá að Hálshorni. Reglu
gerðin var sett er byrjað var á
fiskirækt í Svarfaðardalsá og
gildir ennþá. Er því bannað að
veiða silung 'í net á þessu svæði
öllu ennfremur stangveiði úr
landi á sama svæði.
Hér á Akureyri veiðist árlega
nokkuð af laxi í sjó í net á
Akureyrarpolli og munu stang-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fimmtu stórgripir lagðir í eina gröf
Frá vinstri: Ásta Jónsson, Sigríður Hafstað og Helga Kristjáns-
dóttir. (Ljósm.: N. H.)
Nóg að gera á Skaga
HELGA BJORG og nokkrir
færabátar hafa aflað sæmilega
að undanförnu og hefur um 40
manns hdft góða atvinnu við
frystihúsið á Skagaströnd, sem
nú er aðeins eitt þar á staðnum.
Spretta á rækutðu landi er
enn mjög skammt á veg komin
enda viðvarandi kuldar. ísinn
var að hverfa að mestu nú um
síðustu helgi og aðeins hrafl
eftir.
Á laugardaginn var fé rekið
saman til rúnings í Höfðahreppi.
í Skagahreppi er óvíst að smal-
að verði til rúnings nú í sumar
vegna kuldanna. □
EINS og fyrr hefur verið frá
sagt, kom upp illkynjuð veiki á
Rútsstöðum í Eyjafirði snemma
í júnímánuði sl. Dýralæknir
kom þar 15. sama mánaðar og
litlu síðnr var úrskurðað, að
•
upp væri kominn taugaveiki-
bróðir á þeim bæ. Menn og naut
gripir sýktust af veikinni, bær-
inn var settur í sóttkví og sala
búfjárafurða stöðvuð þaðan. Bú
peningur hefur ekki veikzt á
öðrum bæjum nema Akri, ný-
býli í sama túni. Hins vegar
hafa 15 manns veikzt, flestir á
Akureyri eða nágrenni, auk
fólks á fyrrnefndum bæjum.
Héraðslæknir, héraðsdýralækn
ar og sérfróður maður að sunn-
an hafa rannsakað þessa veiki í
héraðinu og tekið mikið af sýnis
hornum til rannsóknar. Ekki
liggur enn Ijóst fyrir, hvernig
veikin hefur borizt i Eyjafjörð,
ekki heldur hvernig hún hefur
borizt til Akureyrar eða hvort
samband er þar í milli.
Heil-brigðisyfirvöld landsins
lögðu til, að niðurskurður færi
fram á öllum búpeningi Rúts-
Drukku fyrir 266 milijónir kréna
í FRÉTTATILKYNNINGU frá ið 266 milljónum króna á sjö
HEYSKAPURINN HAFINN
Áfengisvarnarráði segir, að
áfengissala Áfengis- og tóbaks-
verzlunar ríkisins á fyrra helm
ingi yfirstandandi árs hafi num
útsölustöðum. Er aukning frá
fyrra ári 7.6%. Áfengissala á
Akureyri var nálega 12 millj.
króna. □
Blönduósi 15. júlí. Heyskapur
er hafinn í Langadal og á Ásum.
Mun lítið vera um kalskemmdir
í Langadal en töluvert á Ásum
og Þingi. í öllum hreppum sýsl-
unnar munu kalskemmdir vera
nokkrar en mjög mismunandi
og bændur eru í þessu efni mun
Vegleg hátið
UM SÍÐUSTU HELGI hélt Ung
mennafélag íslands 13. landsmót
sitt á Eiðum. Var það mikil, fjöl
menn og vegleg hátíð. Talið er,
að 9—10 þúsund manns hafi
verið þar saman komin á sunnu
daginn, sem var síðari móts-
dagur. Tjaldbúðir ferðamanna,
sem einkum voru ungmennafé-
lagar hvaðanæva af landinu,
voru hinar skrautlegustu yfir
að líta og miklar, svo sem tala
gesta geíuj- nokkra hugmynd
um. Mótsstjóri var Björn Magn-
ússon skólastjóri barnaskólans
á Eiðum. En það var Ung-
menna- og íþróttasamband Aust
urlands, sem sá um framkvæmd
mótsins.
á Eiðum
Íþróttakeppni í öllum íþrótta
greinum fór fram á móti þessu
og er talið, að um 1000 kepp-
endur hafi reynt þar hæfni sína.
Þrettánda landsmót ungmenna-
félaganna fór hið bezta fram.
Auk íþróttanna voru ræður
fluttar, karlakór og blandaður
kór sungu, sögusýning sett á
svið, fimleikar. sýndar, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Að öðru leyti er mannlíf kyrr
látt á Austurlandi um þessar
mundir. Heita má, að atvinnu-
lífið sé í dróma og mun vart
rætast úr því nema síldin komi
upp að ströndum landsins. Fram
kvæmdir hins opinbera og ein-
staklinga eru mjög miklu minni
en í fyrra. í sjávarþorpunum er
meira og minna atvinnuleysi.
Sláttur mun óvíða eða hvergi
hafinn á ræktaðri jörð. En sum-
ir eru byrjaðir að kroppa í tjörn
um og öðrum engjum, sem slá-
andi eru orðin. Víða eru tún
stórskemmd af kali, einkum á
Úthéraði og við ströndina. Horf
ur eru því hinar verstu. En
væntanlega er Gylfi ráðherra
búinn að sjá uppflosnuðum
bændum stað og dægradvöl,
kannski líka starfsvettvang. Ef
svo er ekki mun mega telja
ríkisstjórnina svo skipaða, að
þar séu þreyttir menn og úr-
ræðalitlir, jafnvel svo, að líkja
mætti við vesalinga. V. S.
betur settir en þeir, sem við
Hrútafjörðinn búa.
Á miðvikudaginn fara ung-
mennafélagar upp á Auðkúlu-
heiði með 10 tonn af áburði og
samsvarandi grasfræ til sáning-
ar og dreifingar. Landgræðslan
leggur til vörurnar en Ung-
mennasambandið vinnuna.
Laxá á Ásum hefur verið fiski
sæl að undanförnu, ennfremur
Blanda og sæmilega hefur einn
ig veiðzt í Vatnsdalsá.
Ráðgert 'hefur verið, að Sam-
bandið kaupi um 40 hross héðan
úr sýslu. En kröfur eru strang-
ari en fyrrum. Nú þurfa hrossin
að vera tamin og töltgeng, 4—7
vetra. Verðið var áætlað 12—16
þúsund krónur hvert hross, mið
að við að þau væru sótt til bænd
anna.
Mikill bændafundur verður á
miðvikudaginn á Reykjum í
Hrútafirði. Eru það búnaðarfé-
lög í Vestur-Hún. og Stranda-
sýslu, sem eru fundarboðendur.
Þangað er boðið haröærisnefnd
og landbúnaðarráðherra til
skrafs og ráðagerða um þau
nýju viðhorf, sem túnskemmd-
irnar í þessum sýslum hcifa
skapað nú í sumar. Á. J.
staða og Akurs. En þá þegar
höfðu 9 nautgripir drepizt a£
völdum veikinnar, en allt fólk
á góðum batavegi. Mikið hefm-
borið á magaveiki meðal bæjar-
búa á Akureyri í vor og sumar,
en líklega af öðrum toga.
Niðurskúrðúrinn fór svo fram
á fimmtudaginn, rúmum mán-
uði eftir að veikinnar varð vart.
Tveir héraðsdýralæknar, héraðs
læknir, fimm lögregluþjónar og
tveir slátrarar, ásamt sótthreins
unarmanni voru við aflífun
skepnanna. Áður hafði gröf ver
ið tekin með jarðýtu og í þeirri
fjöldagröf liggur búpeningur
tveggja bænda: rúmlega 50
nautgripir á öllum aldri, 200
hænsni og reiðhestur. Eru þá
meðtaldir þeir gripir, sem áður
voru dauðir. Gunnbjörn Arn-
ljótsson skaut allar skepnurnar,
nema hunda, sem búið var að
lóga áður. En annar bóndinn
framvísaði skepnunum og sást
ekki annað heimilisfólk á með-
an á þessu stóð.
Samþykkt hefur verið, að
bændum skuli f ullar bætur
gjalda af almannafé, svo sem
sjálfsagt er, því nóg hefur þegar
á þá reynt. □
Bílveltur
Á FÖSTUDAGINN mættust
tveir Akureyrarbílar á blind-
hæð sunnan Bægisár í Öxnadal
og kastaðist annar bíllinn út af
og valt heilan hring. Enginn
meiddist en báðir bílarnir stór-
skemmdust.
Seint á laugardaginn valt Ak.
bíll hjá Gröf í Kaupangssveit.
Tveir menn í bilnum meiddust,
annar beinbrotnaði. Bíllinn
sýndist lítils virði eftir veltuna.
Engin vandræði liafa orðið af
mjög fjölgandi ferðafólki á Ak-
ureyri, sagði lögreglan blaðinu
í gær. □