Dagur - 11.12.1968, Blaðsíða 1
DAGUR
LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 11. desember 1968 — 54. tbl.
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
•iiiiniiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiniiimiiiiiiiiimnHiHiiiiiHniiiiiiiiiimiiiiiniiiiiiiiniimiimiiiiniiiiiiHiim*
I NOKKURRÁ BÓKA GETIÐ I
í Á FJÓRÐA HUNDRAÐ nýj-
É ar bækur koma út hér á
\ landi þetta árið og flestar nú
| í þessum mánuði. Blaðinu
I berst fjöldi bóka og umsagna
I óskað. Sem dæmi má nefna,
1 að í gærmorgun lágu 15 nýj-
| ar bækur á skrifborðinu
I rnínu, þýddar og frumsamd-
I ar.
i Því miður hafa bókadómar
[ gagnrýnendá takmarkað
i gildi fyrir almenning, því
i hinn almenni lesandi treystir
i þeim ekki lengur og verður
i oft fyrir sárum vonbrigðum
I með bók, er kunnir menn
hafa mælt með, sterkum orð- i
um. i
Dagur hefur ekki rúm fyr- i
ir bókadóma að neinu ráði, i
og ekki bókmenntafróðum i
mönnum á að skipa. En þetta i
blað er þó bókum helgað að i
nokkru. Getið er þeirra bóka, i
sem honum hafa verið send- =
ar, eftir því sem rúm leyfir i
og á þær minnt í formi frétta i
og þess lauslega getið, um i
hvað þær fjalla. Gæti það i
e. t. v. orðið einhverjum til i
glöggvunar í bókavali því, i
sem nú stendur yfir og allt i
til jóla. E. D. i
= Þessi gamli og bókelski maiðúr lætur ekkert tækifæri ónotað i
í til að lesa. Mynd af honum er táknræn fyrir þetta tölublað’ i
i Dags, sem helgað er bókum. — (Ljósm.: E. D.) |
Hvað kostar mikið að
1 JÚLÍ í sumar samþykkti bæj-
arráð Akureyrar, að bifreiða-
styrkir bæjarstarfsmanna yrðu
endurskoðaðir og kaus þrjá
menn í nefnd til að gera tillögur
um það mál. Kosnir voru Stefán
Reykjalín, Stefán Stefánsson og
Valgarður Baldvinsson. Skyldu
þeir flokka bifreiðastyrkina mið
að við hlutdeild bæjarins í rekst
urskostnaði og skila um það
áliti til bæjarstjórnar. Hélt
nefndin marga fundi, hafði sam-
band við bæjarstarfsmenn, sem
bílstyrki hafa o. s. frv.
Nefndin leitaði til óvilhalls
manns utan starfsmanna bæjar-
ins og óskaði eftir að hann gerði
áætlun um reksturskostnað 5
manna fólksbifreiðar yfir árið.
Einnig lagði einn af starfsmönn
um bæjarins fram rekstrarreikn
ing yfir bifreið sína (einnig 5
manna fólksbifreið) fyrir sl. ár.
Þá hafði nefndin og samanburð
á rekstri hliðstæðra bifreiða
bæði frá Rafveitu Hafnarfjarðar
og Bíla- og vélanefnd ríkisins.
Á grundvelli þessara áætlana
gerði nefndin rekstraráætlun
fyrir 5 manna fólksbifreið og
fylgir hún hér á eftir, miðað við
verðlag 21. október 1968.
Sundurliðaður rekstrarkostn-
aður 5 manna fólksbifreiðar af
gerðinni Eord Cortína eða
Taunus 12 M.:
kr.
Benzín 19.110.00
Smurning og frostl. 1.200.00
Hjólbarðar 4.600.00
Varahlutir 5.600.00
Viðgerðir 9.400.00
Kaskotrygging 6.870
Skattar til bæjarfógeta 1.310.00
Ábyrgðartrygging 2.925.00
Vextir 11.000.00
Fyrning 29.700.00
Ýmiss kostnaður 2.000.00
Samtals 93.715.00
Á grundvelli þeirra upplýs-
inga og gagna, sem fyrir lágu
lagði nefndin til að flokkar bíl-
JOLASVIPUR AD FÆRAST YFIR AKUREYRARBÆ
Á AKUREYRI má nú sjá margt,
sem minnir á jólin, enda nálgast
þaU óðum. Margar verzlanir
hafa komið fyrir skreytingum
utanhúss og í búðarglugga er
kominn jólasvipur. Þetta gleður
augað og er þakkarvert, þótt
færra sé nú keypt en hugurinn
girnist. Framan við glitrandi
auglýsingaglugga verzlananna,
standa margir með þunn pen-
ingaveskin og tala um krepp-
una. Ekki skal lítið gert úr vax-
andi efnahagsvanda einstaklinga
og fyrirtækja, en á það bent, að
á meðan eyðsluvenjur eru enn
slíkar, sem áður var á mörgum
sviðum, hefur kreppan lítið
kennt fólki og er hún þó harður
kennari. Sannleikur málsins er
sá, að kreppan hefur enn ekki
komið tilfinnanlega við Akur-
eyringa, svo qr traustum at-
vinnuvegum, einkum iðnaðin-
um, fyrir að þakka. En rétt er
eiga bíl?
styrkja verði 7 talsins og upp-
hæðir eins og að neðan greinir:
1. flokkur kr. 60.000.00 á ári
2. flokkur kr. 54.000.00 á ári
3. flokkur kr. 48.000.00 á ári
4. flokkur kr. 42.000.00 á ári
5. flokkur kr. 36.000.00 á ári
6. flokkur kr. 30.000.00 á ári
7. flokkur kr. 24.000.00 á ári
Aðeins einn er í hæsta flokki.
Nefndin leggur til að endur-
skoðun bílstyrkja fari fram einu
sinni á ári 1. júní ár hvert. Verði
framangreindur rekstrarkostn-
aður lagður til grundvallar við
útreikninga hækkana á rekstri
bifreiða og hugsanleg hækkun
verði reiknuð á grunntöluna kr.
24.000.00, þannið að allir flokk-
ar hækka þá jafnt.
Ljóst er af öllu þessu, að það
er dýrt að eiga bíl og ætti næsta
mál á sviði bifreiðastyrkja að
leiða til athugunar á því, hvort
reiðhjól eða skellinöðrur myndu
í sumum tilfellum við hæfi í
hörðu árferði. □
að gera ráð fyrir vaxandi erfið-
leikum og búa sig undir þá í
tíma.
Undanfarnar sex vikur eða
því sem næst hefur verið ríkj-
andi sunnanátt hér á landi, vot-
viðra_ og stormasamt syðra en
hægviðri nyrðra og hvarvetna
mjög hlýtt.
Sauðfjárbændur á Norðaust-
urlandi, sem óttuðust mjög vet-
SÍÐARI HLUTA októbermán-
aðar ferðaðist Eiríkur Sigurðs-
son, erindreki Stórstúku ís-
lands um Vestfirði. Hafði hann
bindindisfræðslu í 14 skólum,
heimsótti 10 barnastúkur og
endurvakti sumar þeirra. Þá
mætti hann á umdæmisstúku-
þingi á ísafirði og flutti þar
erindi.
Eftirtaldar barnastúkur, sem
störfuðu ekki reglulega síðast-
liðið ár, taka nú aftur til starfa
í vetur, sumar með nýjum
gæzlumönnum: HAUSTRÓS
nr. 123, Hnífsdal, HARPA nr.
67, Flateyri og EYRARULJA
nr. 30, Þingeyri.
Þá endurvakti erindrekinn
eftirtaldar þrjár barnastúkur
með nýjum gæzlumönnum:
VORBOÐANN nr. 108, Bíldu-
dal, GEISLA nr. 104, Tálkna-
firði og BJÖRGU nr. 70, Pat-
reksfirði.
í nóvembermánuði ferðaðist
erindrekinn töluvert um Norð-
urland. Hafði hann þar bind-
indisfræðslu í 12 skólum og
heimsótti margar barnastúkur.
Tókst honum í þeirri ferð að
endurvekja þrjár bamastúkur
með nýjum gæzlumönnum, en
það eru stúkurnar NORÐUR-
LJÓSIÐ nr. 115, Raufarhöfn,
VETRARBLÓMIÐ nr. 121,
Hvammstanga og MAÍBLÓMIÐ
nr. 154, Blönduósi. Tvær þeirra,
urinn, vegna takmarkaðs fóð-
urs, líta nú vonbetri fram á veg-
inn, enda hafa þeir fæstir eytt
teljandi heyi það sem af er.
Gleðilegt er að frétta af því
úr mörgum áttum, að fólk vill
nú leggja meiri rækt við „hug-
kvæmar“ jólagjafir og ódýrar,
en verið hefur í tízku um skeið.
Og það er ekki síður ungt fólk,
(Framhald á blaðsíðu 5)
stúkurnar á Raufarhöfn og
Hvammstanga, hafa ekki starf-
að reglulega síðastliðin tvö ár,
en stúkan á Blönduósi hefur
verið starfslaus mun lengur.
Rómar erindrekinn mjög alúð
legar móttökur Vestfirðinga og
Norðlendinga.
Þá höfum við einnig þær
ánægjulegu fregnir að færa, að
stórgæzlumaður stofnaði þrjár
nýjar barnastúkur í nóvember.
Sú fyrsta var stofnuð í Miðbæj-
arskólanum í Reykjavík, önnur
í Álftamýrarskólanum í Reykja
vík og sú þriðja í barnaskólan-
um á Hellu. Gæzlumenn allra
þessara stúkna eru ungir kenn-
arar, sem starfa við þessa skóla,
enda hafa stúkurnar allar fasta
fundarstaði í skólunum með
vinsamlegu samþykki viðkom-
andi skólastjóra.
Ber vissulega að fagna þess-
um nýja gróðri á akri bindindis-
starfsins.
(Fréttatilkynning frá Ungl-
ingareglunni).
VERZLANIRNAR
verða opnar til kl. 6 e. h. á laug-
ardaginn kemur.
Undantekningar eru: Utibú
Nýlenduvörudeildar KEA í út-
hverfum, Véladeild KEA og
Byggingavörudeild. □
Elling bindindissfirfsiras
Þrjár nýjar barnastúkur taka til starfa í vetur