Dagur - 22.01.1969, Blaðsíða 5
4
5
Skrifslofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Mikil verkefni
ÁÐUR er frá því sagt, að samvinnu-
menn brugðu skjótt við eftir brun-
ann mikla í verksmiðjum Jjeirra á
Gleráreyrum á Akureyri, og ákváðu
að byggja nýjar verksmiðjur eins
fljótt og við yrði komið. Þetta vakti
mikla athygli á tímum vonleysis og
erfiðleika og á sama tíma og verið
er að selja úr landi vélar og tæki
deyjandi fyrirtækja á ýmsum stöð-
um.
Skógerð Iðunnar, saumadeildin,
verður fyrst um sinn flutt í htisnæði
það við Ráðhústorg, er áður var
Saumastofa Gefjunar. — Vélasalur
Skógerðarinnar verður endurnýjað-
ur og vélamar yfirfamar og settar
niður á sama stað, þar til nýtt hús-
næði fyrir alla starfsemi þessarar
verksmiðju leysir húsnæðisþörfina.
Kapp er lagt á, að verksmiðjan geti
tekið til starfa eins fljótt og auðið er.
Skinnaverksmiðjan verður endur-
byggð og stækkuð til muna, með
stóraukna starfsemi fyrir augum. En
þar heldur starfsemin áfram að hluta
þar til nýtt húsnæði er fengið.
I>ær verksmiðjur, sem framleiða
peysur og teppi og Rússar hafa keypt
undanfarin ár, eru Fataverksmiðjan
Hekla og Ullarverksmiðjan Gefjun
og truflaðist ekki rekstur þeirxa í
hninannm. — Þessa dagana situr
samninganefnd frá Iðnaðardeild
Sambandsins á fundum í Moskvu og
semur við fulltrúa Sovétstjómar um
sölu á 131.800 ullarpeysum frá
Heklu og 35.400 ullarteppum frá
Gefjun. í fyrradag var samningum
ekki lokið en gert ráð fyrir sam-
komulagi. Áætlað útflutningsverð-
mæti þessara vara úr íslenzkn ull er
80-90 millj. kr. og er þetta töluvert
verkefni, sem ljúka þarf á þessu ari.
Og nú virðast vera að opnast mark-
aðir fyrir ullarvömr, einkum peysur,
á ýmsum fleiri stöðum, bæði í Banda-
ríkjunum og Ástralíu. Er nú unnið
að markaðsmálum í öllum heims-
álfum. Pmfusendingar hafa líkað
mjög vel og hér virðast íslendingar
vel samkeppnisfærir.
íslenzka ullin hefur nokkra þá
eiginleika, sem ull af öðmm fjár-
stofnum hefur ekki. Ennfremur em
gæmpelsar mun lettari, og að þvi
leyti eftirsóttari, en annarra fjár-
stofna. Þessa séreiginleika þarf að
nýta og þar felast eflaust miklir
möguleikar.
Um 80% af gæmframleiðslunni
er selt úr landi sem hráefni. — Um
þriðjungur ullarframleiðslunnar er
einnig seldur úr landi, líka sem
hráefni. Má af þessu ljóst vera, að
mikil verkefni bíða á sviði iðnaðar
í þessum greinum. Með það í huga
þarf að endurbyggja verksmiðjurnar.
Er liægt að liaga liátíðaliölduniim 17» júní á
annan hátt en að undanförnu?
SMÁTT & STÓRT
Nokkrar tillögur frá Tryggva Þorsteinssyni
ÞESSI spurning hefir stöku
sinnum leitað á mig, og ég læt
hér flakka nokkrar hugmyndir,
sem ég hripaði niður á síðast-
liðnum vetri og orðaði síðar við
nokkra kunningja mína, meðal
annarra nefndarmenn þá er sáu
um hátíðahöldin 17. júní 1968.
Hátíðahöldin ættu að hafa
einhvem ákveðinn bakgrunn
'hverju sinni, auk þess að vera
tengd stofnun lýðveldisins og
fæðingu Jóns Sigurðssonar.
Eitt árið mætti miða þau við
einhvern þátt í atvinnusögu
þjóðarinnar, eins og t. d. „ís-
lendingar og hafið“. Gætu þau
þá hafist með siglingu mikils
flota smærri báta af ýmsum
gerðum, sem færi frá innstu
bryggju bæjarins og tæki land
við flotbryggju sunnan á Odd-
eyrartanga. í fararbroddi færi
víkingaskip, skarað skjöldum.
Rúmsins vegna fer ég ekki nán
ar út í þetta, þótt ég hafi gert
mér grein fyrir allri þeirri fárán
legu framkvæmd.
Einnig mætti nota einhver
tímabil úr sögu þjóðarinnar,
sem bakgrunn. Tökum t. d. há-
tíðahöld 1969. Við getum t. d.
hugsað okkur árið frá 874 til
1262. Þá gæti hátíðahöldin t. d.
farið þannig fram.
1. Bæjarbúar safnast saman á
Ráðhústorgi, þar sem ekkert
ráðhús er og á húsgrunninum,
þar sem einu sinni var kosn-
ingaskrifstofa.
2. Lúðrablástur.
3. Hlé á „blástri“, en inn á
torgið kemur fararbroddur
skrúðgöngu, sem þannig er
skipuð:
a. Ríðandi fornmenn í litklæð
um og með alvæpni.
b. Bændur og frjálsir menn í
búningum landnámsaldar, og
með vopn eða áhöld, sem til-
heyra störfum þeirra stétta á
landnámsöld.
c. Fjallkonan ekur í skraut-
vagni, sem gerður er úr venju-
legum heyvagni þannig að land
vættirnir, gammurinn, drekinn,
uxinn og risinn, mynda horn
vagnsins, en á milli þeirra er
landslag. Þetta er gert úr spóna
plötum. Vagninn er dreginn af
litlum mótorvagni.
d. Næst á eftir Fjallkommni
fara biskupar, prestar, munkar
og nunnur í einkennisklæðum
sínum og með þá hluti sem ein-
kenndu störf þeirra.
ð. Næstir gætu svo komið
nokkrir dánumenn og ribbaldar
frá Sturlungaöld, með Gamla
sáttmála.
Rúmsins vegna tek ég ekki
fleiri framliðna menn með í
skrúðgönguna, en nú er auðvelt
fyrir hvern sem er að bæta við
hópinn, eða setja upp skrúð-
göngu, sem farin yrði síðar og
hefði árið 1262—1874 að bak-
grunni.
Á eftir þessari fylkingu, sem
ég hefi nú lýst ætti að koma
skrúðganga almennings með
svipuðum hætti og verið hiefur,
að því viðbættu, að öll félaga-
samtök ættu að ganga undir
fánum sínum.
Hvert skal halda?
Út Glerárgötu og upp
Tryggvagötu, sem til er á upp-
drætti og liggur sunnan Glerár
að svæði því, sem skátamir
notuðu til hátíðahalds.
Leiksvið, eða pall þarf að
gera undir kletti sunnan við
ána, á sama stað og skátarnir
fluttu sín skemmtiatriði. Þegar
komið er á hátíðasvæðið raðar
gamli timinn (þeir framliðnu
frá 874—1262) sér í brekkuna
umhverfis pallinn, að undan-
teknum hestum, sem hestasvein
ar flytja suður götuna sem
liggur upp að Skarði.
Lúðrasveit tekur sér stöðu á
stalli framan við pallinn, en
stendur þó nokkuð hærra en
almenningur, sem verður á flöt
inni þar fyrir neðan.
Tryggvi Þorsteinsson.
Fánar og félagsmerki mynda
skeifu bak við pallinn.
Nú fer fram fánahylling með
þeim hætti að íslenzki fáninn
er dreginn á stöng sem reist
verður í klettinum upp af pall-
inum. Um leið gengur fram á
klettinn hópur skáta, sem heils
ar með fánum. Lúðrasveitin
leikur „Rís þú unga íslands
merki“.
Næst gengur fram á pallinn
gamall höfðingi, líklega Helgi-
magri, ásamt konu sinni, Þór-
unni. Þau flytja hvort um sig
stutt ávarp. Hann í óbundnu
máli og býður þá héraðsmenn
velkomna til þjóðhátíðar og set
ur hana, en Þórunn flytur átt-
hagakvæði. Lúðrasveit leikur:
Þú álfu vorrar yngsta land.
Fjallkonan flytur ávarp 10 mín.
Lúðrasveit leikur: Ég vil elska
mitt land. Prestur flytur 5 mín.
ræðu. Allir biðja saman Faðir
vor. Lúðrasveit leikur: Faðir
andanna. Allir syngja. Minni
Jóns Sigurðssonar (10 mín.).
Lúðrasveit leikur: ísland ögr-
um skorið. Minni íslands (10
mín.). Ó guð vors lands.
Hvað á nú að gera?
Á svæðinu beggja megin Gler
ár mætti koma fyrir ýmsu, sem
fólk getur fengist við og nefni
ég þá ekkert af því sem margir
bæjarbúar þekkja frá skátadeg-
inum 1967 en bæti þessu við:
a. „Eitt par fram“. Á tiltekn-
um stað fer þessi leikur fram
og geta öll pör, ung og gömul,
tekið þátt í honum. Einhverjir
stjóma leiknum og verða vænt-
anlegir þátttakendur að gefa
sig fram við þá. Þátttaka kostar
10 kr. fyrir parið og leikurinn
stendur í 15 mín. Fjöldi þátt-
takenda allt að 20 pör á hverj-
um stað.
b. Reiptog. Á öðrum stað er
mönnum gefinn kostur á að
reyna kraftana. 10 „Eyrarpúk-
ar“ skora á 10 „Brekkusnygla"
eða „Innbæinga". Einnig geta
10 menn 20 ára og eldri skorað
á nokki-a „pottorma", sem ekki
eru eldri en 12 ára hver, en sam
anlagður aldur þeirra allra má
ekki vera meira en 200 ár. Einn
ig má snúa þessu við og 200 ára
„pottormar“ skora á 10 menn
20 ára og eldri. Verður að skipu
leggja keppnina eins og leikinn.
Á sama hátt má stofna til
margra annarra leikja og
þrauta t. d. „Að hlaupa í skarð-
ið“, „Köttur og mús“, „Þriðji
hleypur“ o. fl.
Að sjálfsögðu yrði að hafa
ýmislega þjónustu við munn og
maga á þessum stað, og pen-
ingabragðið yrði að takmarka.
Eru þá engar íþróttir?
Jú. Ég geri ráð fyrir að íþrótt
ir verði á íþróttavellinum kl.
5—7. Þar fari fram hópsýning
á fimleikum, knattleikir og
frjálsar íþróttir. Ekki þær
skrýpamyndir af íþróttum, sem
leikir óþjálfaðra gamalmenna
verða oftast.
Er þá allt búið?
Nei. Kl. 8.30 hefst aftur gleð-
skapur við Glerá. Til þess að
árin 874—1262 verði bakgrunn-
ur þessara hátíðahalda verður
enn að hverfa aftur í aldirnar.
Meðal annara skemmtiatriða
má setja á svið sögulega þætti
t. d. „víg Gunnars á Hlíðar-
enda“, „Egill Skallagrimsson
hjá Aðalsteini konungi“ o. fl.
Samtölin liggja svo að segja
fyrir í íslendingasögunum.
Auk þess kæmi svo kórsöng-
ur, víkivakar, bændaglima og
gamanþættir við varðeld. En að
lokum kæmu þau Helgi og Þór-
unn aftur fram og mæltu nokk-
ur alvöruorð til fólksins. Há-
tíðahöldunum ætti að ljúka
með því að nokkrir álfar kæmu
fram á klöppina við fánann, og
felldu hann. Á meðan ætti að
blása á lúðra kvöldsignal skáta
og syngja með:
„Sofnar drótt,
nálgast nótt.
Sveipast kvöldroða himinn
og sær.
Allt er hljótt, hvíldu rótt.
Guð er nær.“
Hvað á þetta að þýða?
Skrúðgangan verður talandi
tákn um liðna öld. Á sama hátt
minna nokkur atriði á gengna
tíð með öðrum hætti en vana-
legast er.
Leikirnir geta orðið til þess
að bæjarbúar kynnast með nýj-
um hætti, um leið og þeir
skemmta sér.
Þjóðdansaflokkurinn, segjum
10 pör, sem dansa gamla víki-
vaka í sögualdarbúningum, get
ur orðið skemmtikraftur, sem
grípa má til í samþandi við
heimsóknir erlendra skemmti-
ferðaskipa og oftar.
Sama er að segja um glímu-
flokkinn.
Nýr blær.
Hér er lauslega drepið á nokk
ur atriði, sem geta sett nýjan
blæ á hátíðahöldin 17. júní, sem
flestum finnst nú tilbreytingar-
lítil frá ári til árs og því fremur
leiðinleg, þótt formið hafi í upp
hafi verið gott. Það endist fátt
_til eilífðar.
Er þetta hægt?
Hver veit? Reyna má það.
Mér er ljóst að þegar lagt verð-
ur inn á nýjar brautir með þessi
hátíðahöld, kostar það mikla
fyrirhöfn og langan undirbún-
ingstíma. í maí sl. var skátun-
um boðið að sjá um hátíðahöld-
in 1968, en þar sem stuttur tími
ar til stefnu og margt af því
fólki sem við hefðum leitað til
í prófum eða próflestri, treyst-
um við okkur ekki til að reyna
þetta á þessu vori, þótt við hefð
um hug á að gera tilraunina
síðar, enda hafa þær tillögur,
sem að framan eru skráðar ekki
verið lagðar fyrir neina til at-
hugunar. Verið getur að eftir
lestur þessarar greinar komi
einhver fram með miklu snjall-
ari hugmyndir en hér hefur
verið vikið að, og þá er þetta
rabb ekki gagnslaust.
Kostar þetta ekki öll ósköp?
Jú, en ég geri ráð fyrir að sá,
sem sér um hátíðahöldin fái
ágóðann af öllu sem selt er á
svæðinu við Glerá auk þess
sem hann taki að sér að láta
gera sérstakt merki í tilefni af
25 ára afmæli lýðveldisins og
hafi hagnað af því. Á það skal
líka bent að ekki er gert ráð
fyrir útidansleik og sparast við
það töluvert fé, sem verja má
til annars, t. d. búninga.
Að sjálfsögðu leggur bærinn
svo fram fé til hátíðahaldanna
í tilefni af 25 ár'a afmæli lýð-
veldisins og ef bæjarstjórn fel-
ur einhverjum að sjá um há-
tíðahöldin er líklegt að hún eða
bæjarráð vilji sjá aðalatriðin í
þeirri áætlun sem um þau verð
ur gerð, og ef þau þykja fram-
bærileg er eðlilegast að fram-
kvæmdaaðilinn fái allt það fé
til umráða sem til hátíðahald-
anna er ætlað, og svo er það
hans að spjara sig.
Fer nú ekki allt í hundana, ef
illa viðrar?
Jú, en þá frestum við 17. júní
til næsta sólskinsdags. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
mikið út, eins og þeir, sem ætla
að blása fast, heldur sagði hann
að dáinn maður hefði sagt, að
slíkt væri hægt. Þetta var að
vísu lofsverð tilraun til að
hugga dapran lýð, en tilraunin
var þó svo utangátta, að strák
einum varð að orði: Hví blæs
Bjarni Benediktsson bara ekki
sjálfur á erfiðleikana?
TIL SJÓNVARPSINS
Borgari á Akureyri óskar, að
Sjónvarpið sýni á ný myndina
um krabbameinið, sem sýnd
var 1967. Segir borgari, sem sá
þessa mynd syðra, að ýmsir, er
LÆTUR EIMSKIP SMIÐA A AKUREYRI?
(Framhald af blaðsíðu 1)
með bréfi Viðskiptamálaráðu-
neytisins, dags. 14. janúar 1969.
Afhendingartími fyrra skips-
ins, sem verður alfryst, er í
maímánuði 1970, en hins síðara,
sem verður venjulegt flutninga
skip með nokkru frystirými, í
september sama ár. Þá mun
Eimskipafélagið geta fengið
þriðja skipið byggt hjá skipa-
smíðastöðinni í Álaborg á föstu
verði.
Svo sem kunnugt er, leggur
íslenzka ríkisstjórnin mikla
áherzlu á, að þau verkefni á
sviði iðnaðar, sem framkvæm-
anleg eru innanlands, verði
fengin íslenzkum aðiljum til úr
lausnar. Vill Eimskipafélagið að
sjálfsögðu stuðla að því að svo
megi verða, eftir því sem hag-
kvæmt og fært reynist. Hefir
Eimskipafélagið tilkynnt Slipp-
stöðinni h.f. á Akureyri, að fé-
lagið myndi ekki taka ákvörð-
un um byggingu þriðja skipsins
fyrr en 1. maí 1969. Er þetta
gert til þess, að þessu fyrirtæki
gefist kostur á að athuga, hvort
það treysti sér til að gera við-
unandi tilboð í skipið á föstu
verði. Smíði þessa skips er að
sjálfsögðu háð því, að fjárhagur
Eimskipafélagsins og aðrar
ástæður leyfi.
Framangreindar skipasmíðar
og bygging vörugeymsluhúsa
voru ákveðnar á aðalfundi fé-
lagsins 1966 og á síðari fundum.
Skipasmíðarnar eru endumýj-
un á skipastól félagsins. Var
- SKÍÐAHÓTELIÐ
(Framhald af blaðsíðu 2).
virka daga kl. 10—12).
Áætlunaiferðir í Hlíðarfjall
annast Hópferðir sJ. Afgreiðsla
er í Kaupvangsstræti 3, sími
21700. Upplýsingar um ferðir í
Hlíðarfjall veitir einnig Ólafur
Þorbergsson, heimasími 12878.
Þá má geta þess að Skíðaráð
Akureyrar heldur uppi mikilli
starfsemi í Hlíðarfjalli í vetur.
Skíðaæfingar fara fram tvisvar
í viku í upplýstum skíðabrekk-
um við hótelið og Stromp og
skíðamót fara fram um helgar.
Formaður Skíðaráðs Akureyr-
ar er Óðinn Árnason. □
FERÐAMÁLAFÉLAGIÐ ENDURVAKIÐ
AÐALFUNDUR Ferðamálafé-
lags Akureyrar var haldinn
fimmtudaginn 9. janúar sl. Þar
með var starfsemi félagsins end
urvakin, eftir nokkurra ára hlé,
var lögum félagsins breytt til
samræmis við nýjan starfsvett-
vang og ný stjórn kosin. Er nú
stefnt að því, að Ferðamála-
félagið verði forystuaðili í ferða
málum á Akureyri, hvetji með
upplýsingum og aðgerðum til að
bæta og auka ferðamannaþjón-
ustu í bænum og beiti sér fyrir
því að ferðamannastraumurinn
til bæjarins fari sífellt vaxandi,
jafnt að sumri og vetri.
Ferðamálafélag Akureyrar
var stofnað haustið 1952 og starf
aði um árabil að uppbyggingu
á aðstöðu til skíðaiðkana í Hlíð-
arfjalli. Fyrir nokkrum árum
tók Akureyrarbær við þeirri
uppbyggingu og rekstri mann-
virkjanna. Eins og kunnugt er,
hefur íþróttasamband íslands
ákveðið, að vetraríþróttamið-
stöð landsins verði í Hlíðarfjalli.
Frá því að Ferðamálafélagið
afhenti Akureyrarbæ mann-
virkin þar, hefur starfsemi þess
legið niðri. En á fyrstu Ferða-
málaráðstefnu Akureyrar, sem
haldin var fyrir tæpu ári að
tilhlutan bæjaryfirvalda, var
ákveðið að endurvekja félagið,
svo sem nú hefur verið gert.
í hinni nýju stjórn Ferðamála
félags Akureyrar eru þessi
menn: Formaður Herbert Guð-
mundsson ritstjóri, ritari Pétur
Jósefsson kennari, gjaldkeri
Gunnlaugur P. Kristinsson
skrifstofumaður, Ragnar Ragn-
m.s. Goðafoss seldur á sl. ári og
hefir nú verið tekin ákvörðun
um, að setja m.s. Dettifoss á
söluskrá“. □
hann þekkti liafi þá hætt að
reykja. Nú horfa fleiri Iands-
menn á sjónvarp en þá og slík
hugvekja mun því gera enn
meira gagn. Blaðið tekur undir
þessa ósk.
HÁLAR BRAUTIR
Annar borgari bað fyrir þá orð
sendingu, að kirkjutröppumar
væru svo glerhálar að slys gætu
hlotist af — og óskar lagfær-
ingar áður en verr fer. Vonandi
verður einnig þetta tekið til
vinsamlegrar athugunar hið
fyrsta, því mörgum er hætt á
hálum brautum, einnig í hinum
120 kirkjutröppum á Akureyri.
Nýif land - Frjáls þjóð
ÚT ER komið fyrsta tölublað
vikublaðsins, Nýtt land —
Frjáls þjóð. Útgefandi er hluta-
félagið Huginn, sem áður gaf
út Frjálsa þjóð. Segir í þessu
fyrsta tölublaði, að útgáfan kom
ist nú á breiðari grundvöll,
einkum með tilkomu nýrra
manna í hlutafélagið. Útgefend
ur ætla blaði sínu að vera mál-
svara verkalýðshreyfingarinnar
og vinstri stefnu í landinu, seg-
ir í fyrsta tölublaði. En í það
ritar Björn Jónsson forsíðu-
grein.
Blaðstjórn skipa: Hannibal
Valdimarsson, Haraldur Henrys
son og Magnús Torfi Ólafsson.
En Ólafur Hannibalsson er rit-
stjóri. □
KOMA HAUKARNIR?
VONIR standa til, að 1. deildar
lið Hauka frá Hafnarfirði í
handknattleik heimsæki Akur-
eyri um helgina, og leiki hér
tvo leiki í Íþróttaskemmunni.
Haukar eru nú í 2. sæti í ís-
landsmótinu í 1. deild, og koma
trúlega til með að berjast við
F. H. um íslandsmeistaratitil-
inn. Haukar koma á vegum
KA, ef af verður. Sv. O.
arsson hótelstjóri, Jón Egilsson
forstjóri, Hermann Sigtryggs-
son fulltrúi og Gunnar Árnason
forstjóri. í varastjórn eru Björg
vin Júníusson fulltrúi, Halldór
Helgason skrifstofustjóri og
Hörður Svanbergsson prentari.
Fyrstu verkefni stjórnarinnar
verða að safna félögum og er
það þegar hafið, en margvísleg
verkefni á sviði ferðamálanna
bíða nú úrlausnar og er nú ver-
ið að kanna, með hverjum hætti
unnið verður að þeim á næst-
unni.
(Fréttatilkynning frá Ferða-
málafélagi Akui'eyrar).
DAGUR
keinur næst út miðvikudaginn
29. janúar.
Áætlunarferðir í Hlíðarfjall með Hópferðum s.f. verða fyrst um sinn
sem hér segir:
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
í Hlíðarfjalli tók til starfa 15. þ. m.
GISTING
fyrir einstaklinga og hópa í her-
bergjum og svefnpokaplássi
GREIÐASALA - BÖÐ OG GUFUBÖÐ
Félög, félagasamtök og vinnuflokkar
athugið:
Tilvalin upplyfting er að gista
Skíðahótelið
um helgar og aðra frídaga. Odýr og
góð þjónusta
Nánari upplýsingar í hótelsímanum, 1-29-30,
alla daga, og í síma 1-27-22 milli kl. 10 og 12
alla virka daga.
Skíðalyftan
er opin fyrst um sinn, fyrir almenning, alla
virka daga nema mánudaga frá kl. 13—17 og
laugardaga og sunnudaga frá kl. 10—17. Verð
miða er óbreytt frá því í fyrra.
frá Kaupvangsstræti 3 og Glerárstöðinni
ÞRIÐUDAGA:
Að Skíðahóteli kl. 13,00
Að Skíðahóteli kl. 16,00
Að Skíðahóteli kl. 18,00
Frá Skíðahóteli kl. 14,00
Frá Skíðahóteli kl. 16,30
Frá Skíðahóteli kl. 18,30
Frá Skíðahóteli kl. 21,00
MIÐVIKUDAGA:
Að Skíðahóteli kl. 15,15
Frá Skíðalióteli kl. 18,00
FIMMTUDAGA:
Að Skíðahóteli kl. 13,00
Að Skíðalióteli kl. 16,00
Að Skíðahóteli kl. 18,00
Að Skíðalióteli kl. 20,00
Frá Skíðahóteli kl. 14,00
Frá Skíðahóteli kl. 16,30
Frá Skíðalióteli kl. 18,30
Frá Skíðahóteli kl. 21,00
Frá Skíðahóteli kl. 22,30
FÖSTUDAGA:
Að Skíðahóteli kl. 16,15
Að Skíðahóteli kl. 16,30
Að Skíðahóteli kl. 19,30
Að Skíðahóteli kl. 22,45 frá Kaupvangsstræti 3 og Glerárstöðinni
Frá Skíðahóteli kl. 17,30
Frá Skíðahóteli kl. 20,15
Frá Skíðahóteli kl. 23,30
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
frá flugvelli
frá Kaupvangsstræti 3 og Glerarstöðinni
frá Kaupvangsstræti 3 og Glerárstöðinni
LAUGARDAGA:
Að Skíðahóteli kl. 9,30
Að Skíðahóteli kl. 13,00
Að Skíðahóteli kl. 19,30
Að Skíðahóteli kl. 23,30
Frá Skíðahóteli kl. 10,00
Frá Skíðahóteli kl. 14,00
Frá Skíðahóteli kl. 20,15
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
SUNNUDAGA:
Að Skíðahóteli kl.
Að Skíðalióteli kl.
Að Skíðalióteli kl.
Að Skíðahóteli kl.
Frá Skíðahóteli kl.
Frá Skíðalióteli kl.
Frá Skíðahóteli kl.
Frá Skíðahóteli kl.
Afgreiðsla Hópferða er í Kaupvangsstræti 3, sími 2-17-00. Upplýs-
ingar um ferðir í Hlíðarfjall einnig veittar í Glerárstöðinni, sími
2-12-10, og hjá Ólafi Þorbergssyni, heimasími 1-28-78.
Ef hópar óska eftir flutningi á öðruni tímum en gefnir eru upp hér
að framan, }>á vinsamlegast hafið samband <við Ólaf Þorbergsson, sími
1-28-78. Fargjald fyrir fullorðna fram og til baka í Skíðahótelið er kr.
60,00 og kr. 50 fyrir börn 12 ára og yngri. Fargjald aðra leiðina er kr.
35 og 30. Vinnuhópar, félagasamtök og skólar fá afslátt af ferðum ef
um 15 ntanns eða fleiri er að ræða.
HÓPFERÐIR S.F.
9,30
10.30
12.30
13.30
10,00
11.30
14.30
17,00
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
frá Kaupvangsstræti 3
á flugvöll
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
og Glerárstöðinni
Vetraríþrót tamiðstöðin - Akureyri