Dagur - 29.01.1969, Qupperneq 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Leiður nágranni
ÍSLAND liggur á krossgötum vinda
og strauma. Loftslag er hlýrra en
hnattstaðan bendir til vegna Golf-
straumsins, sem beizt að landinu
sunnanverðu. En hinn nístingskaldi
Pólstraumur er einnig álirifamikill.
Hinar miklu hafísbreiður norðurs-
ins eru jafnan skammt undan, en
það er á valdi vinda og strauma hve
ágengur liann verður við strenduil
landsins.
Þorvaldur Thoroddsen safnaði
fyrstur manna heimildum um hafís
yfir langt tímabil. Nú stendur yfir í
Reykjavík vísindaleg ráðstefna um
hafís, þar sem veðurfræðingar, haf-
fræðingar, jarðfræðingar o. fl. flytja
erindi, er síðar verða gefin út hjá
AB. Ætla má, að á ráðstefnu þessari
verði fluttur sá fróðleikur, sem yfir-
leitt er nú til um hafísinn. í fram-
haldi af henni ætti að verða auðveld-
ara, að samræma og auka rannsóknir
á „hinum forna fjanda“ og þessum
duttlungafulla og kalda nágranna.
Á fimmta áratug var áhugi lítill í
þessu máli þ. e. á hlýindatímabilinu
frá 1920 eða þar um bil til allra síð-
ustu ára. Nú er loftslag kólnandi og
hafísinn hefur gert sig heimakominn
á ný, með þeirri vé, sem hann veldur.
Þegar haft er í huga, að á tímabil-
inu 1800—1900 var einhver ís við
land í 79 ár, þar af 51 ár landfastui^
og 16 ár landfastur ís 3 mánuði eða
lengur, má ljóst vera, að rannsóknir
á hafís eru íslendingum nauðsynleg
viðfangsefni, því að áliti veðurfræð-
inga getum við vart vænst þess, að
hlýindatímabil það, sem við höfum
búið við undanfama áratugi, sé var-
anleg veðurfarsbreyting.
í bjartsýni sinni var því slegið
föstu af mörgum fyrir fáum árum,
að tækni okkar tíma mundi hindra
mestu erfiðleika af ísaárum, ef þau
kæmu á ný. Þetta er því miður fjar-
stæða. Eins og er, eru engin flutn-
ingatæki til í okkar landi, sem kom-
ið geta í stað þungaflutninga á sjó,
nema að litlu leyti. Og á mörgum
sviðum er þjóðin vert undir það
búin að mæta ísaárum en fyrrum,
vegna þess hve nú er treyst mikið á
innflutning, svo sem olíur og fóður-
vörur.
f byrjun þessa árs voru lands-
menn þó betur búnir, hvað birgðir
ýmsra nauðsynja snerti, til að mæta
hörðum vetri og siglingateppu eri
fyrir ári síðan og ber að fagna því.
En minnug þess, að síðustu daga og
vikur hefur hafísinn ógnað sigling-
um við íslandsstrendur, er ánægju-
legt að vita, að margir kunnáttu-
menn hafa nú tekið höndum saman
til rannsókna á hafís, sem gera mun
þennan leiða nágranna hættutninni.
Fóðurblöndunarstöð er knýjandi nauðsyn
segir Jakob Frímannsson framkvæmdastjóri í
viðtali við Dag um kjarnfóðurverzlunina o. fl
INNFLUTTAR komvöruteg-
undir eru meðal þýðingarmestu
rekstrarvara bænda til búvöru-
framleiðslunnar, í okkar kom-
snauða landi. Félagssamtök
bænda og samvinnumanna hafa
annazt þennan innflutning að
stærstum hluta. Nú eru þessi
kornvöru- eða kjarnfóðurkaup
mjög á dagskrá meðal bænd-
anna viða um land, einkum af
tveim ástæðum. Unnið er að
undirbúningi að gjörbreyttu
skipulagi á innflutningi kjam-
fóðurs og að koma upp fóður-
blöndunarstöðvum. í öðru lagi
hafa heildsalar látið töluvert að
sér kveða í innflutningi og sölu
kjarnfóðurs og hafa margir
bændur kosið að skipta við þá.
Til þess að gefa hugmynd um
magn þessara vara, mun KEA
hafa selt bændum á félagssvæði
sínu um fimm þús. tonn árlega,
auk annarra aðila. Mjólkurfram
leiðendur nota langmestan
hluta kjarnfóðursins og þar af
um 90% af þeirri fóðurblöndu,
sem hér er sett saman á staðn-
um og er löng reynsla af.
Nú hefur sú norðlenzka frétt
verið birt í sunnanblaði, að
bændur við Eyjafjörð séu nú að
flytja inn danskar fóðurvörur
og fái þær með mun betri kjör-
um með hjálp heildsala en KEA
geti veitt. Þessi innflutningur
er þegar hafinn og búist við
áframhaldi.
Blaðið snéri sér til Jakobs
Frímannssonar kaupfélags-
stjóra á Akureyri til að heyra
álit hans á kjarnfóðurmálunum
á breiðari grundvelli og fer það
samtal hér á eftir.
Vinnur KEA að því að koma
upp kornmölun og fóðurbirgða-
stöð?
Já, unnið hefur verið að því
í hálft annað ár, að fá áætlanir
FRÉTT með þessari fyrirsögn
er í „Degi“ 15. þ. m. byggð á
viðtali við rafveitustjórann á
Akureyri, 14. þ. m. Fréttin hefst
á þessum orðum: „Enn eru
miklar klakastiflur í Laxá og
eru þær víða í Laxárdalnum,
allt frá „Soginu“ og alla leið
upp að Auðnum.“ Ég tel að hér
sé ekki rétt skýrt frá ástandi
Laxár á umræddum kafla.
Saga árinnar á áður umgetn-
um kafla frá miðjum desember
til miðs janúar er þessi: Ána
leggur frá Soginu, og hér suður
á móts við Kasthvamm frá 17.
des. og fram að jólum í skörp-
um frostum en lítilli snjókomu.
Á þessum kafla er áin breiðust
hér í dalnum, og straumlítil,
einkum Birningsstaðaflóinn,
sem byrjar sunnan við Sogið,
og leggur ána oft við þessar að-
stæður á þessum parti. Að sjálf
sögðu var þetta þunnur ís. Um
áramótin koma lítilsháttar þíð-
viðri, og koma smá álar og göt
á ísinn, sem strax frusu saman
þegar kólnaði. 3. jan. kólnaði,
og 4. jan. var hér allhvöss norð-
anátt með lítilli snjókomu og
um 10 stiga frosti, yfir daginn,
en orðin 14 stig um kvöldið og
var mikil krapamyndun í ánni,
og smá þjappaðist krapið sam-
an um daginn, og næstu daga
og fraus jafnóðum, og þá kom-
inn ís á ána suður að Auðnum.
Engin hlaup komu, og hækkaði
áin lítið, eða um 1—1.5 m., þ. e.
í bakkahæð, og rúmlega það,
um fullkomna og sjálfvirka
fóðurblöndunarstöð hér á Akur
eyri og kornmölun. Endanleg
tilboð um vélar og teikningar
komu til okkar í september sl.
Þá hugsuðum við okkur að
hefja framkvæmdir. En svo
kom gengisfellingin og við gát-
um hvergi fengið lánsfé. Vegna
gengisfellingarinnar hækkuðu
hinar erlendu vélar svo stór-
kostlega, að við sáum okkur
ekki fært að hefja framkvæmd-
ir fyrir áramótin. Við losuðum
húsnæði, þar sem þessu er ætl-
aður staður (þar sem áður var
Plastverksmiðjan) og við hefj-
um framkvæmdir jafn skjótt og
við höfum fjármagn til þess.
Hin alkunna lánsfjárkreppa hef
ur tafið okkur í þessu efni. En
okkar aðal fjárfestingarfram-
kvæmdir á þessu ári eru í þess-
ari fyrirhuguðu fóðurblöndunar
stöð og stórgripasláturhúsinu.
Síðarnefnda framkvæmdin kost
ar 5—6 millj. kr. og við vorum
búnir að fá loforð um lán en
það hefur brugðizt til þessa. Þar
liggja því einnig niðri fram-
kvæmdir vegna lánsfjárskorts.
En útflutningur á miklu magni
nautgripakjöts byggist á því, að
við komum upp þessu slátur-
húsi.
Hvað kostar fóðurblöndunar-
stöð?
Eftir gengisfellinguna þurf-
um við 6—-8 milljónir kr. til að
koma henni upp. Þá er miðað
við, að kornið sé flutt inn ómal-
að og laust í skipslest, það flutt
með dælu í korngeyma í landi
og síðan malað í fóðurblöndur.
Lækkar þá kjamfóðurverðið?
Samkvæmt útreikningum
eiga fóðurblöndur okkar þá að
lækka um 6—800 kr. tonnið. Er
þá miðað við samskonar fóður-
blöndur og við höfum haft.
þrýsti krapi á nokkrum stöðum
upp á bakkana, en rann sjálf í
sínum farvegi imdir ísnum.
Sem sagt, aðstæður voru eins
hagstæðar og þær gátu verið á
þessum parti árinnar.
Frá ísbrúninni og upp að Mý
vatni eru yfir 20 km. Þar var
áin auð, enda leggur hana þar
ekki nema í aftaka hríðum, og
þó aldrei alla, og ís stendur þar
yfirleitt ekki nema stuttan tíma
nema í því meiri frosthörkum
eins og t. d. 1918. Dagana 12.,
13. og 14. jan. voru hér mikil
frost, frá 11—20 stig, snjókoma
ekki mikil en renndi þó tölu-
vert og fór þá krapið að þéttast,
en rótaði ekki ísnum sem kom-
inn var. Svo kom 15. jan. með
öskustórhríð og 14—16 stiga
frosti, þá rennir mjög mikið í
ána, auk þess sem hvassviðrið
stóð á móti straumnum. Krapa-
myndun er því geisileg. Afleið-
ingar voru eins og öllum lands-
mönnum eru kunnar að orku-
vinnsla Laxárvirkjunar minnk-
aði og þurfti að grípa til raf-
magnsskömmtunar, þó ekki
stórvægilegrar. Að ekki fór ver,
var að þakka því að Laxá lá
undir traustum ísi á þeim kafla,
sem taldar voru í henni „klaka-
stíflur“. Þetta vildi ég leiðrétta,
en undrast jafnframt yfir
ónákvæmni í fréttaflutningi af
ástandi Laxár á þessum tíma.
20. jan. 1969,
Gunnl. Tr. Gimnarsson.
Hvað um dönsku fóðurblönd-
urnar, sem nú eru svo mjög á
dagskrá?
Við höfum kosið að halda
okkur við innlendu fóðurblönd-
una og höfum ekki viljað skipta
á okkar A-blöndu og hinni
dönsku, þrátt fyrir ofurlítinn
verðmun. í okkar fóðurblöndu
er stórgripabeinamjöl og fiski-
mjöl, sem eru innlend efni, allt
að 12%. Vegna gengisfellingar
töpuðum við á aðra milljón á
einni sendingu fóðurvara 1967,
sem við töldum okkur skylt að
flytja inn og eiga sem birgðir
og urðum fyrir svipuðum
skakkaföllum á síðasta ári
vegna gengisbreytinga. Ymsir
aðrir innflytjendur hafa önnur
sjónarmið en við, hvað snertir
birgðamál vegna hafíshættu og
hlýtur hver og einn að meta
slíkt að vild. Nú eigum við fóð-
urvörur fyrir 12—16 millj. kr.
Allt eykur þetta verzlunarkostn
aðinn og verður ekki hjá því
komist, að sú trygging sem
KEA veitir í þessu efni hljóti
að kosta eitthvað. Ljóst er, að
(Framhald af blaðsíðu 8).
verður mjög skemmtilegur í
meðförum Sigurðar Gunnlaugs
sonar og gæti maður ímyndað
sér að þar færi ekki viðvaning-
ur á leiksviðinu. Sambýliskona
Sveins er leikin af Antoníu
Antonsdóttur og gæti maður
hugsað sér að hún væri nýkom
in úr átthögunum á Vestfjörð-
um svo vel fer vestfirzkan í
munni hennar. Leikur hennar
er í senn látlaus og skemmti-
legur. Magnhildur Skúladóttir,
öðru nafni Magga miðill, er
prýðisvel leikin af Sigurlaugu
Gunnlaugsdóttur, framsögn og
framkoma í bezta lagi. Vand-
ræðapersónumar í leiknum,
það er að segja ástarhlutverkin,
þau Ósk og Márús, heildsala og
vararæðismann, eru leikin af
þeim Svövu Jóhannsdóttur og
Baldvin Haraldssyni. Var leik-
ur þeirra í hæsta máta bragð-
daufur og ekki vart neinnar
ástargleði ungra elskenda. Þor-
grímur skáld, er leikinn af Birgi
Marinóssyni og kemst hann all
vel frá þeirri raun. Þá er aðeins
að nefna Jóhannes Traustason,
sem leikur bæði Stefán lögreglu
þjón, lítið hlutverk, og Hekken
feldt, stóreignamann. Gervi Jó-
hannesar er skemmtilegt í þess
það er hægt að útvega bændum
ódýrara fóður með því að panta
fyrir þá og að þeir taki vörurn-
ar við skipshlið. En þessa
gömlu verzlunarhætti getum
við ekki tekið upp að nýju. Og
þeir menn, sem nú flytja inn
fóðurvörur til bændanna, hljóta
að reka sig á sama vanda og
við, ef verzlunarþjónustan á að
vera sambærileg.
En þið liafið ekki í hyggju að
flytja inn þessar „ódýru“,
dönsku fóðurblöndur?
Það kemur sending af þeim
innan skamms og sýnist mér
hún muni kosta um 8500 kr.
tonnið. En það skilst mér vera
sama verð og á þeirri kúafóður
blöndu út úr húsi, sem bændur
eru nú að kaupa af heildsala,
samkvæmt frétt í Morgunblað-
inu fyrir fáum dögum.
Fóðurblöndunarstöðin virðist
okkur knýjandi nauðsyn til að
lækka veigamikinn kostnaðar-
þátt búvöruframleiðslunnar,
segir kaupfélagsstjórinn að lok-
um og þakkar Dagur svör hans.
E. D.
um danska gróssera og ekki er
hægt að segja annað en hann
komist allvel frá hlutverkinu
þrátt fyrir það að honum sé
lagður mikill vandi á herðar
með því að tala bjagaða dönsku
eða dönsku-skotna íslenzku.
Ur leiknum er sleppt smákafla
þar sem böm þeirra Sveins og
Guddu hafa smásenu, getur sú
sena að vísu verið skemmtileg
ef vel tekst, en hins vegar er
alltaf ýmsum örðugleikum háð
að hafa börn í svona leiksýn-
ingu og undir hælinn lagt að
hægt sé að fá út úr þeim það
sem af þyrfti til þess að lifga
fremur en hitt, tel ég því ekki
misráðið að sleppa börnunum.
Þó að sýning þessi sé að sjálf
sögðu ekki hnökralaus þá verð-
ur ekki annað sagt en leikstjór-
anum hafi tekizt að skapa furðu
heilsteypta sýningu úr misjöfn-
um efnivið eins og vænta má
þar sem um áhugafólk er að
ræða sem alla daga er hlaðið
skyldustörfum við búsýslu í
sveit. En því lofsverðara er
þetta framtak og sá árangur
sem náðzt hefur.
Hafi leikstjóri og leikendur
heila þökk fyrir ánægjulega
kvöldstund.
G.
„Þráláfar klakastíflur I Laxá"
Jakob Frímannsson, kaupfélagsstjóri.
Leynimelur 13 á Árskógssfrönd
5
Davíð Sigurðsson
SMIÐUR - KVEÐJA
í DAG er til moldar borinn frá
Dalvíkurkirkju Davíð Sigurðs-
son, smiður, en hann lézt að
Fj órðungssj úkrahúsinu á Akur
eyri 21. þ. m. eftir langvarandi
vanheilsu, og nú síðast erfiða
legu.
Hann fæddist að Göngustöð-
um í Svarfaðardal hinn 5. dag
ágústmánaðar 1903, og voru
foreldrar hans þau Sigurður
Jónsson og Ósk Pálsdóttir, bú-
andi hjón á Göngustöðum.
Davíð ólst upp hjá foreldrum
sínum, og var einn úr hópi
margra systkina, og fór því víst
fjarri að hann ælist upp við auð
og alsnægtir. Mun hann
snemma hafa farið að heiman
til vinnumennsku og unnið fyr-
ir sér fyrstu árin við ýmis
sveitastörf.
Síðan lagði Davíð fyrir sig
smíðar og vann að þeim meðan
heilsan leyfði. Vann hann við
húsabyggingar ýmist á Dalvík
eða fram í sveitinni af sérstæð-
um dugnaði og trúmennsku.
Svarfaðardalur geymir mörg og
góð handtök Davíðs, og ætíð
voru launin honum aukaatriði,
aðeins unnið þar sem þörfin var
mest.
Ég var svo lánsamur að kynn
ast Davíð á mínum unglings-
árum, og tókst með okkur sú
vinátta sem hélzt alla tíð.
Hann var ekki margmáll eða
gjarn á að flíka tilfinningum
sínum, en hjartahlýjan og ein-
lægnin voru ósvikin. Slíkum
mönnum er þroskavænlegt að
kynnast.
Snemma á ævi komu fram
hæfileikar Davíðs til harmon-
ikuleiks, og var hann kunnur
víða í héraðinu fyrir leik sinn.
Munu ungmennafélögin í Svarf
aðardal minnast hans sem ötuls
stuðningsmanns um fjölda ára.
Um leið og við hjónin kveðj-
um Davíð Sigurðsson og þökk-
um við systkinum hans samúð-
um honum samfylgdina, send-
arkveðjur.
Kærleiks birtu vafin varstu,
vorsins hlýja barst þér frá.
Trúin sem í brjósti barstu,
blítt þér vísar himinn á.
Brjánn Guðjónsson.
Jón Marínó Pélursson
Fæddur 10. nóvember 1922 — Dáinn 15. janúar 1969
HINZTA KVEÐJA
ÞEGAR sú harmafregn barst
hinn 15. janúar síðastliðinn, að
sjórinn hefði tekið líf eins skips
félaga mannsins míns, stað-
næmdist hugurinn við upphaf
sálms St. Thorarensens.
Ég lifi og ei veit hve löng
er mín bið.
Ég lifi unz mig Faðirinn kallar.
Ég lifi og ég býð unz ég
leysist í frið.
Ég lifi sem farþegi sjóinn við,
unz heyri ég að herrann mig
kallar.
Mín trú er að við séum öll
bræður og systur. Og þegar við
fréttum að einhver sé horfinn
úr hópnum kemur það okkur
ætið á óvart, og þó sérstaklega
þegar slys ber að höndum,
hvort sem er til sjóðs eða lands.
Dauðinn er gestur sem dregur
hið mikla og dulda tjald frá og
vísar okkpr leiðina inn í löndin
óþekktu
Á mælikvarða lífs okkar er
tíminn hlifðarlaus. Við getum
ekki staðið til hliðar og horft á
hann líða framhjá. Vægðar-
laust hrifsar hann okkur með.
Mannveran þokast viðnáms-
laust um hallardrög aldanna að
sínu endadægri sem alvizka for
sjónarinnar ákveður hverju og
einu okkar. Fæðing okkar í
þennan heim er upphaf dauð-
ans. Alfaðir gefur, Alfaðir tek-
ur. Við sem stöndum eftir
hverju sinni eigum þó það sem
aldrei er hægt að svipta okkur,
það eru minningarnar.
Ekkert er betra og dýrmæt-
ara en fagrar minningar um
góðan son, bróður, vin, frænda
og félaga.
Jón Marinó Pétursson fædd-
ist að Nýjabæ á Árskógssandi
10. nóvember 1922, sonur hjón-
anna Elísabetar Sölvadóttur og
Péturs Jónssonar. Hann var
elztur átta systkina. Ungur
missti hann föður sinn og ef-
laust hafa erfiðir tímar æsku-
áranna reynt mjög á hið við-
kvæma og rólega eðlisfar hans.
Vinnan hefur orðið honum fró-
un og um leið hjálp til móður
og systkina.
Verk hans voru ætíð sjónum
bundin og þar var hann við
vinnu sína er hið sviplega slys
bar að.
Við vorum bæði það sem við
kölluðum Norður-Eyfirðingar
og tignuðum fjörðinn, fjöllin og
ströndina.
Tvisvar hefi ég verið farþegi
með manninum minum á tog-
aranum Harðbak. í báðum þeim
ferðum var Jón einn af skips-
félögunum, sem allir voru mér
sem beztu bræður. Síðari ferð-
in endaði hér á Akureyri 7.
janúar síðastliðinn.
Far þú vel í frelsara vors nafni.
Fararheillin. Gæfan er í stafni.
Siglir þú greitt inn í sólar
löndin.
Signi þig vinur. Drottins
höndin.
Hugheilar samúðarkveðjur
sendi ég og móður hans og öll-
um ættingjum.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
merktum poka. Og síðast en
ekki sízt: Allir þurfa að vera
samtaka um þá umgengnis-
hætti, sem sæma u-ngu og
drengilegu fólki.
DAUFT YFIR LEIKLISTINNI
Hér um slóðir er fremur dauft
yfir leiklistiimi, miðað við und-
anfarin ár. Ekki er blaðinu
kunnugt um sjónleiki í nágrenn
inu, nema á Árskógsströnd og
í Hrísey fyrr í vctur. En verið
er að æfa tvo sjónleiki á Akur-
eyri. Leynimelur 13, sem Ieik-
inn er á Arskógsströnd, var æfð
ur af miklum dugnaði og telur
leikstjórinn mikinn áhuga þar
og meiri árangur, en liaim þorði
að vona. f sama streng tekur sá,
Réttingarfæki á Þórshamri
þar a leiksynmgu og segir fra
því á öðrum stað.
Talið er, að fólk kjósi víðast
fremur að njóta sjónvarps í
sveitum en efna til tímafrekra
leikæfinga.
EFTIR umferðarbreytinguna í
vor minnkuðu mjög árekstrar í
umferðmni og var það mjög
athyglisvert og ber að þakka
það . stöðugum og nauðsynleg-
um áróðri, í sambandi við H-
daginn. En siðar hefur tekið að
sækja í sama horfið.
Lengra á ógæfubraut
ÍSLENDINGAR færa sig stöð-
ugt upp á skaftið í óknyttum og
glæpum. Fyrir fáum dögum
fölsuðu tveir ungir menn 14
ávísanaeyðublöð á nafngreind-
an sparisjóð og sviku út um 20
þús. kr. Annar maðurinn var
prentari og bjó hann til eyðu-
blöðin. Eyddu þeir hinum illa
fengnu fjármunum við drykkju.
Fljótt komst upp um svikar-
ana og er verið var að sækja
þá til yfirheyrslu, voru þeir á
leið til lögreglunnar til að játa
verknaðinn.
Virðist af þessu o. fl. Ijóst, að
herða þarf til muna eftirlit með
notkun ávísana. Q
Bregðast krosstré - sem önnur tré
Ófeigsstöðum 29. jan. Hagfræð-
ingar og tæknimenntaðir menn
virðast margir hverjir ekki
hafa vit á móti óskólagengnum
mönnum. Það er ægilegur and-
skoti, hvað þessum mönnum er
lítið treystandi og hefur almenn
ingur fengið að þreifa á því að
undnaförnu og hefur misst
trúna á þeim. Ríkisstjómin
hefði þurft að vera búin að átta
sig á þessu og hefði þá trúlega
ýmislegt betur farið.
Flestir spá hafís, en ég trúi
ekki komu hans fyrr en ég sé
hann sigla inn Skjálfandaflóa.
Og ef þá koma bjarndýr, finnst
mér Eyfirðingax eigi að fá þann
næsta.
Snjólétt er hér en nokkur
svellalög og færi gott á vegum.
Storka er á jörð og létið beitt.
Menn hafa ekki haldið þorra-
blót, m. a. vegna ótta við út-
breiðslu inflúensu, sem þó er
óvíst að sé nokkursstaðar hér
- DAGUR SIGRAÐI
um slóðir. Ef svo reynist að
þessi pest er engin til, endast
menn naumast til að bíða lengi
því líkami og sál girnist gleð-
skap, eins og að líkum' lætur.
Merkur maður úr Aðaldal,
Þórólfur í Hraunkoti, var bor-
inn til moldar i Nesi 22. janúar
að viðstöddu fjölmenni, 76 ára.
Hann var vinsæll maður og
virtur, skáldmæltur og fékkst
hin síðari ár við ættfræðirann-
sóknir og mun hafa átt mikinn
fróðleik skráðan, er hann lézt.
B. B. ’
arekstrar tiðir nu í vetur og
tjón mikil á farartækjum. Rétt-
ingar á dælduðum bílum hafa
verið mikill hluti bílaviðgerða.
Bifreiðaverkstæðið Þórsham-
ar hefur fengið réttingatæki og
notað með góðum árangri um
skeið. Tæki þetta er, að sögn
Hrafns Sveinbjörnssonar verk-
stjóra, vinnusparandi, auðveld-
ar réttingar og sparar í ýmsum
tilfellum varahluta. Réttingar-
tækið er nýjung norðanlands og
fylgir hér mynd af því í notkun.
- BJARNDÝR UNNIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
hann af löngu færi og særðist
hann eitthvað, tók til fótanna
og hélt í átt til Bása, en veiði-
menn fylgdu fast á eftir. Út-
undir Básum veitti flugvallar-
girðingin aðhald og var hann
felldur þar. Nóg voru skot-
vopnin.
Bjarndýrið var 2.40 m. á
lengd og mjög hvitur feldurinn,
fullorðið dýr og vel á sig komið.
Þorlákur Sigurðsson og Sæ-
mundur Traustason leituðu síð-
an um eyjuna, því von gat verið
fleiri dýra. Fundu þeir þá 5
bæli dýrsins og ekki öll ný og
sýnir það, að björninn hefur
verið búinn að dveljast þarna
7—10 daga. En fleiri dýr fund-
ust ekki. íshroði hafði verið við
Grímsey viku áður og sennilegt
að bangsi hafi komið með hon-
um til eyjarinnar. □
- RAFMAGNIÐ HÆKKAÐIUM15-35%
(Framhald af blaðsíðu 1).
koma í staðinn. Orsökin fyrir
nauðsyn hækkunarinnar er
fyrst og fremst sú að heildsölu-
verð raforku frá Laxárvirkjun
til Rafveitu Akureyrar hækk-
aði um 28% og svo almennur
rekstrarkostnaðarhækkanir. T.
d. er hækkun á öllu erlendu
efni um 46% vegna síðustu
gengislækkunar.
Gjaldskrártaxtarnir eru marg
ir en hér á eftir verða nokkrir
sýndir og jafnframt til saman-
burðar eldra verðið og núver-
andi gjaldskrá Reykjavíkur. —
Verðið er gefið upp í kr. á kwst.
(Framhald af blaðsíðu 2).
8.—9. Sævar Hallgrímss. kjöt
iðnaðarm., kepp. Reynir Brynj-
ólfsson, 46.2.
10. Ljósgjafinn, kepp. fvar
Sigmundsson, 46.9.
- NÝR FORMAÐUR
(Framhald af blaðsíðu 8).
Varastjórn skipa: Guðmund-
ur Blöndal, Björn Guðmunds-
son og Magnús Kristinsson.
Endurskoðendur: Baldur
Halldórsson og Stefán Reykja-
lín.
í blaðstjórn Dags: Haraldur
M. Sigurðsson, Sigurður Óli
Brynjólfsson og Arnþór Þor-
steinsson.
í fulltrúaráð voru kjörnir 22
menn og 10 til vara. □
Lýsing A 1 ...,
Lýsing A 2 . .. .
Heimilisnotkun*
Vélar C 1......
Vélar C 3......
Daghitun .... ,
Næturhitun .. .
FIMMTUDAGINN6. febrúar n.
k. flytur Jón Rögnvaldsson
garðyrkjumaður erindi með
skuggamyndum í Landsbanka-
salnum kl. 9 e. h. Aðgangur 25
Núverandi Eldra Rafm.v.
verð verð Rvíkur
7.15 6.20 7.69
2.02 1.75 2.04
1.44 1.25 1.67
3.45 3.00 3.84
2.00 1.75 2.04
0.65 0.48 0.70
0.35 0.26 0.32
kr. fyrir fullorðna, sem rennur
óskiptur til Lystigarðs Akur-
eyrar. Ei'indið nefnist: Garð-
yrkjan sem listgrein og lífs-
björg. Q
* Fast gjald vegna heimilisnotkunar er hér 0.92 kr. á ferm. á
mánuði, en 161.46 kr. á herbergi á ári í Reykjavík. □
Listgrein og lífsbjörg