Dagur - 26.02.1969, Page 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN':
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Hreindýriii í byggð
Egilsstöðum 25. febrúar. Hér er
svarta þoka, regluleg Austfjarð
arþoka með hýmingi. Snjór er
lítill í byggð en storka og svella
lög nokkur.
Stórir hópar hreindýra eru
nú komnir til byggða. í fyrra-
dag voru mörg hreindýr hér í
þorpinu, gæf og sælleg. Einnig
eru þau í Egilsstaðaskógi og
Fagradal í stórhópum.
Austfjarðabátar stunda veið-
ar eftir verkfallið, sumir á net-
um aðrir elta loðnuna. En því
miður stóð svo á, þegar hin
mikla loðnuganga kom að Aust
urlandinu, steittu menn hnefa
í kjaradeilum, og loðnan gekk
hjá á meðan.
Atvinnumálanefnd Austur-
lands hefur setið á fundi á
Reyðarfirði undanfarna daga.
V. S.
Spurningakeppni skóla
EFTIR síðustu áramót hóf Ung
mennasamband Eyjafjarðar nýj
LITILL SNJOR EN
MIKIL SVELLALÖG
Sveinsstöðum 24. febrúar. Fóð-
urbirgðir í Lýtingsstaðahreppi
voru ólíkt meiri í haust en
haustið 1967. Sumarið í sumar
var sæmilegt heyskaparár. Ær
voru ekki teknar á gjöf fyrr en
um miðjan desember en haust-
beit fyrir kýr var lítil og verður
gjafatímmn því sennilega lang-
ur að þessu sinni.
Kjarnfóðurnotkun er minni
nú en fyrirfarandi vetur. Fjár-
hagsleg afkoma er sennilega
svipuð og árið 1967 en skatta-
skýrslur hafa ekk] verið gerðar.
Snjólaust er að kalla en svella
lög mikil. Hross hafa víða sæmi
lega haga en á öðrum stöðum
hefur þeim verið gefið út. Sauð
fé er ekki beitt.
B. S.
an þátt í starfsemi sinni. Var
þar um að ræða spurninga-
keppni milli barnaskólanna á
sambandssvæðinu. Hafa þrír
nemendur, fæddir 1955 eða síð-
ar, frá hverjum skóla tekið þátt
í keppnunum. Yfirleitt hafa þær
verið mjög jafnar og tvísýnar.
í sambandi við keppnirnar hafa
verið önnur skemmtiatriði svo
sem söngur, bingó, dans og
Ingimar Eydal hljómsveitar-
stjóri hefur flutt ágætt ávarp
um skaðleg áhrif áfengis og
tóbaks.
Urslitakeppnin fer fram í
Freyvangi n. k. sunnudag 2.
marz kl. 1.30 e. h. Þá keppa skól
arnir sem fóru með sigur af
hólmi í undankeppninni, en þeir
eru: Hríseyjarskóli, Þelamerk-
urskóli og Laugalandsskóli í
Öngulsstaðahreppi.
Þessar keppnir UMSE, og það
sem þeim fylgir, voru og eru
fyrst og fremst ætlaðar til
skemmtunar, fróðleiks og kynn
ingar milli nemenda, en ekki er
verið með þeim að kanna gáfna
far þeirra eða skólalærdóm. □
FélagsráSslundur Kaupfélegs EylirSinga
Hið glampandi skautasvell á Pollinum freistar margra.
(Ljósm.: E. D.y,
MÖRG HUNDRUÐ MANNS A SKÁUTUM
bundu saman ermar og köstuðu
til hans og dróu hann svo til
sín. Skátar, Æskulýðsráð eða
aðrir þyrftu að hafa eftirlit með
ferðum fólks á ísnum, í samráði
við lögreglu bæjarins. Og að
síðustu: Dásemdir skautasvells
ins eiga að veita yndisstundir.
En auka þarf eftirlitið. □
FÉLAGSRÁÐSFUNDUR KEA
var haldinn miðvikudaginn 19.
febrúar. Var fundurinn vel sótt
ur af félagsráðsmönnum hinna
mörgu deilda á félagssvæði
kaupfélagsins. Fundurinn hófst
kl. 2 síðdegis í aðalsal Hótel
KEA með setningarorðum
Brynjólfs Sveinssonar stjórnar-
formanns, sem um leið las upp
nöfn félagsráðsmanna, er mætt-
ir voru.
Ingimar Brynjólfsson bóndi á
Ásláksstöðum var kosinn fund-
arstjóri en Gunnlaugur P. Krist
insson ritaði fundargjörð.
Svo sem venja er, lá það aðal
mál fyrir fundinum, að gefa fé-
lgasráðsmönnum fyrstu upplýs-
ingar um hag og rekstur KEA
á síðasta ári. Ennfremur að
veita þeim upplýsingar um hin
ýmsu kaupfélagsmál, sem á dag
skrá eru og fyrirspurnir gera
um til stjórnar og framkvæmda
stjóra.
Jakob Frímannsson kaup-
félagsstjóri flutti síðan fundin-
um yfirlitsskýrslu sína, en aðal
(Framhald á blaðsíðu 2).
Atli Benediktsson, Akureyri, og
Davíð Haraldsson, Árskógs-
strönd. □
Vilja stofna
tollvörugeymslu
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Akureyrar hélt á laugardaginn
fund til að ræða stofnun toll-
vörugeymslu hér í bæ, út af
bréfi frá bæjaryfirvöldum, þar
sem óskað er umsagnar um um
sókn Eimskip varðandi tollvöru
geymslu.
Samþykkt var samhljóða, að
stofna félag um rekstur tollvöru
geymslu og kosin undirbúnings
nefnd til að hrinda formlegri
félagssto-fnun í framkvæmd. □
En ísilagður fjörðurinn krefst mikillar varúðar
SKÁKÞING Norðlendinga, hið
35. í röðinni, var haldið á Akur
eyri dagana 15.—23. febrúar og
lauk með hraðskákmóti er Frey
steinn Þorbergsson, Varmahlíð,
vann eftir harða keppni við Jón
Björgvinsson, Akureyri.
í meistaraflokki tefldu 8 og
í fyrsta flokki 10. Skákstjóri var
Albert Sigurðsson, Akureyri.
Skákmeistari Norðurlánds
varð Halldór Jónsson, Akur-
eyri. Hlaut hann 5 vinninga,
Olafur Kristjánsson, Akureyri
hlaut 4 vinninga og varð í öðru
sæti. í 3.—4. sæti urðu Jón
Torfason, Húnvetningur, og
Hjálmar Theodórsson, Húsavík.
í fyrsta flokki sigraði Viðar
Stefánsson, Akureyri, með 7
vinninga. Annar var Stefán
Ragnarsson, Akureyri, með 6V2
vinning, en í 3.-4. sæti urðu
Á SUNNUDAGINN voru
skautamenn, ungir og gamlir í
hundraðatali á Pollinum, sem
er nú undir spegilsléttum ís.
Einnig mátti sjá skellinöðru-
ökumenn, sleðafólk, hjólreiða-
fólk, menn við dorg og smá-
börn með foreldrum sínum. ís-
inn nær norður fyrir Krossanes.
Skip, sem ætlaði að Torfunefs-
bryggju á sunnudaginn, sneri
við framan við Oddeyrartanga.
En rennu hefur verið haldið
opinni fyrir skip og þar er ís,
er á milli myndast, mjög hættu
legur.
Blaðinu hefur verið tjáð, að
nokkrir hafi farið niður um ís-
inn jafnvel átta eða níu manns.
Slys urðu ekki. Þó munaði
mjóu. Ungur maður braut ísinn
og komust félagar hans ekki að
honum, þar sem ísinn bar þá
ekki. Fóru þeir þá úr jökkum,
(Ljósm.: E. D.)
Aðal-verzlunar og skrifstofuhús KEA.
Albert Sigurðsson til hægri afliendir Halldóri Jónssyni verðlaun
að keppni lokinni. (Ljósm.: E. D.)
HALLDÓR JÓNSSON VARÐ SKÁK-
MEISTARI NORÐURLANDS