Dagur - 29.03.1969, Blaðsíða 1

Dagur - 29.03.1969, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Simi 12771 - P.O. Box 397 SCRVERZLUN: LJÓSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERINC ÞEIR REIKNA FYRIR SUNNAN Egilsstöðum 27. marz. Með hverri viku versnar um atvinnu og eru horfur á, að í sumar verði mikill samdráttur í bygg- ingum einstaklinga og hins opinbera. Ekki er enn búið að „reikna út“ Lagarfossvirkjun, þ. e. hvort hagkvæmara telst, að virkja Lagarfljót eða fá línu að norðan. Hefur þetta reiknis- dæmi staðið í fagmönnum og ráðamönnum í heilan -áratug. En á sama tíma hefur tap ríkis- rafveitna hér á Austurlandi verið álíka og stofnkostnaður við Lagarfossvirkjun! Fregnað höfum við hér, að framlög til vega verði enn skor in niður og skiljum við ekki þá hagfræði, t. d. að hagkvæmt sé að byggja upp hluta Fagradals- vegar, en láta svo aðra hluta leiðarinnar grotna niður og valda því, að umferð er úti- lokuð verulegan hluta á ári hverju. V. S. VEIÐA NÝGENGINN ÞORSK Gunnarsstöðum, Þórshöfn 27. marz. Ágæt hláka hefur verið og nú er láglendið sem óðast að koma undan fönn. Ekki eru menn ennþá famir að leggja grásleppunet sín, en undirbúa það og ætla ekki að láta þá gráu sleppa. Fallegur þorskur hefur fengizt í net vestur á Vík unum og eru menn vongóðir STÁLU NÓT OG FISKI Á SUNNUDAGINN var lög- reglu Akureyrar tilkynnt, að stolið hefði verið loðnunót úr báti í Sandgerðisbót. Og aðfarar nótt miðvikudags var 2—300 kg. af nætursöltuðum fiski úr Fisk- móttöku KEA á Oddeyri stolið. Samkvæmt frásögn lögregl- um, að þar muni um byrjunar- göngu að ræða. Bátur fékk þar nær þrjú tonn í 20 net. Kristín Sigfúsdóttir frá Hvammi var jarðsungin á þriðjudaginn. Hún bjó allan sinn búskap í Hvammi, ásamt manni sínum Jóhanni Jónssyni frá Hávarðsstöðum. Þau eign- uðust mörg börn og eru öll búsett í héraðinu. Kristín var hin mesta atgervis- og sóma- kona. í gær var jarðsunginn Þor- valdur Pálsson á Þórshöfn. Hann var kunnur kraftajötunn, glímumaður góður, refaskytta og víkings duglegur maður. Hann var ráðsmaður þriggja presta en bjó síðan á nokkrum stöðum áður en hann flutti til Þórshafnar. Ó. H. Rannsóknir sumian Oddeyrar vegna hafnarinnar. (Ljósm.: E. D.) Vænlanlepr hafnarframkv. á Akureyri BÆJARSTJÓRN Akureyrar, ásamt skipulagsstjóra og hafnar málastjórn landsins, hefur sam- þykkt merkilegasta skipulags- mál í bænum og mjög aðkall- andi, þar sem hafnarmannvirkj um er m. a. ætlaður staður. Uppdráttur af hinu nýja skipu- lagi hefur þegar verið birtur í blöðum. Ekki hafði þessi samþykkt Mjólkurflutningunum verður aS Ijúka TALIÐ ER, að nú séu um 54 þús. nautgripir á íslandi, þar af 39 þús. mjólkurkýr og hefur því orðið nokkur fækkun vegna versnandi árferðis. Elzta mjólkursamlag landsins, Mjólkursamlag KEA, er rúm- lega fertugt fyrirtæki, sem hef- ur tekið á móti nálægt fimmta hluta landsframleiðslunnar, sem til mjólkurbúanna berst. En til búanna bárust 1967 yfir 100 þús. tonn. Eyfirðingar hafa löngum stað ið í fremstu röð bænda í rækt- un og ekki síður í kynbótum nautgripa og eiga nú stórar hjarðir úrvals gripa til mjólkur framleiðslu. Nú í vetur hafa eyfirzkir bændur, ásamt stéttarbræðrum sínum norðanlands, sent mikið af mjólk og rjóma á Reykja- víkurmarkaðinn. Um þau mál sagði Vernharður Sveinsson samlagsstjóri á Akureyri m. a. þetta: Sunnlendingar eru að verða Sameining frystihúsa? SAMKVÆMT ósk atvinnumála nefndar ríkisins voru trúnaðar- menn bæjarstjórnar Sauðár- krókskaupstaðar, Fiskiðju Sauð árkróks, Skjaldar h.f. (frysti- hús, sem enn er lokað) og frysti hússins á Hofsósi, boðaðir á fund í Reykjavík. Erindið var viðræður um hugsanlega sam- vinnu eða sameiningu frystihús anna þriggja. Um erindislok er blaðinu ekki kunnugt. □ sjálfbjarga í mjólkurmálum og sendingar héðan eru að hætta. Búið er að senda á Reykjavíkur markaðinn nú í vetur 280 tonn af nýmjólk og 80 tonn af rjóma frá Mjólkursamlagi KEA. Smjölfjallið hefur minnkað að mun. Við áttum 147 tonn um sl. mánaðamót. Þegar smjörið var mest hér, var það yfir 400 tonn. En um síðustu áramót átt um við 221 tonn af smjöri. Höf- um við því selt nær 75 tonnum meira en við framleiddum fyrstu tvo mánuði ársins. Tvo fyrstu mánuði þessa árs höfum við fengið 16% minni mjólk en árið áður og einnig verulega minni mjólk í marz. af nýmjólk og 80 tonn af rjóma. plastumbúðir um kassamjólk- ina, en höfum áður notað er- lendar. Kassamjólkin er alltaf mjög vinsæl þótt hún sé dýr. Við seljum enn mjólk í lausu máli í mjólkursamlagsbúðinni, og fleiri vilja kaupa hana en áður. Hún kostar kr. 10.10 lítr- inn, flöskumjólkin 10.60 en kassamjólkin 11.90. Munar því kr. 1.80 á mjólk í lausu máli og kassamjólkinni. Bændur spyrja oft um það, hvað samlagið greiði endanlega fyrir mjólkina 1968. Enn get ég ekki svarað því, þótt ég feginn vildi, en ég vona, að mjólkurframleiðslan aukist mjög hér í næsta og næstu mánuðum, sagði Vern- harður að lokum. □ fyrr verið gerð en upp hófust raddir fólks um nauðsyn þess, að friða það land og fegra, sem nú á að taka undir hafnarmann virki og er þá átt við sunnan- verða Oddeyri. Má um þær raddir segja, að þær séu fagur- fræðilegar fremur en raunsæar og á það lögð rík áherzla, að strandlengjan sunnan Strand- götu fái að halda sínum náttúr- legu sérkennum og þau fegruð. Hugmyndin um fegrun og frið- un fjörunnar við Strandgötu er bæði falleg og virðingarverð. Rök fyrir þeirri friðun eru þau, að þetta sé nú einu sinni náttúrlegur staður, sem aldrei yrði bættur ef hafnargerð væri þar leyfð og Akureyri yrði þá aldrei sú sama, eftir breyting- una og þetta er líka bæði satt og rétt. Fuglinn fjaðraprúði á að halda þeim rétti sínum að tína í svanginn í fjörunni, hlaupa til og frá og syngja fyrir börn og aðra bæjarbúa og stærri elsk- endur geta haldist í hendur og reikað um, eins og á suðrænni strönd. í stað pálmanna er hægt að gera græna grasgeira, jafn- vel runna og tré. Það er hægt að gera fuglum litla hólma við ströndina. Og þetta kostar [>ó ekki nema nokkrar milljónir króna en höfnin milljónatugi. Margir taka undir þetta og bæta því við af sannfæringu, að skaparinn hafi gefið okkur fjör una og við eigum að fá að hafa hana í friði. En málið er ekki alveg svona einfalt, og því er nú ver. Hafnar mál hafa verið til umræðu og athugunar á Akureyri og hjá þeim aðilum öðrum, sem ekki verður gengið fram hjá, í ár og (Framhald á blaðsíðu 5). Mikill fundur i Floðvangi Mesla alvinnuleysiS búiS Skagaströnd 27. marz. Undan- farið hefur verið veðurblíða og snjórinn lætur undan síga. Sjó- menn eru byrjaðir að veiða hrognkelsi og hafa fengið rauð- maga en grásleppan hefur ekki látið sjá sig ennþá. En tunn- urnar undir grásleppuhrognin bíða og væntanlega verða þær ekki lengi tómar. Arnar hefur skilað töluverð- um afla á land sl. mánuð og er aflinn unninn í frystihúsi kaup félagsins, sem Hólanes h.f. rek- ur núna. Guðjón Árnason, lítill bátur, fiskar á línu. Atvinnu- leysið er á undanhaldi þótt það sé ekki úr sögunni. Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd æfir sjónleikinn Klerkar í klípu og mun sýna hann á Húnavökunni, sem hefst á annan í páskum á Blöndu- ósi. X. GUÐMUNDUR Jónasson, Ási í Vatnsdal sagði á fimmtudaginn eitthvað á þessa leið: Jörð er nær auð, vorveður á hverjum degi að undanförnu og fólk létt í skapi, enda spilar það, teflir og dansar öðru hverju og liðkar sig fyrir Húnavökuna, sem hefst um páskana og verður eflaust fjölsótt ef veður verða góð og vegir spillast ekki til muna. Hér hafa ráðunautar verið á ferð og flutt okkur margan fróð liek. Má þar fvrst nefna Stefán Aðalsteinsson, sem kennir okk- ur að rækta fannhvítt fé með á Elliheimilinu í sumsr STJÓRN Elliheimilis Akureyr- ar hefur nú tryggt sér lánsfé til allmikilla byrjunarfram- kvæmda næsta áfanga í stækk- un heimilisins, og bæjaryfir- völdin hafa samþykkt fram- kvæmdirnar. Sýnist því ekkert því til fyrirstöðu, að byrjað verði strax með vorinu. Elliheimili Akureyrar rúmar nú um 30 vistmenn og á sú tala að geta tvöfaldast i næsta áfanga. Rétt er að geta þess, að allar gjafir til Elliheimilisins eru skattfrjálsar. □ verðmeiri ull og gærur handa Akureyringum og fleirum að vinna góðar vörur úr. Einnig var hér nýr ráðunautur Bún- aðarfélags íslands, Magnús Sig- steinsson, sem er bútækniráðu- nautur. Aðal umræðuefni hans voru leiðbeiningar um bygging ar búpeningshúsa og breyting- ar á þeim, sem fyrir eru, með tilliti til vinnusparnaðar og minni stofnkostnaðar. Og Ólaf- ur Guðmundsson frá Hvann- eyri ræddi við okkur um bú- vélar og Guðmundur Jóhannes- son ráðsmaður á Hvanneyri um verkfæri af ýmsu tgai. Bændur fjölmenntu til að heyra til ráðu nautanna og leggja fyrir þá spurningar, er þeir síðan svör- uðu. Fundur þessi var haldinn í Flóðvangi, rétt við Vatnsdals- hólana, þetta er veiðimannahús, sem nú stendur autt og er all- gott samkomuhús og góður fundarstaður. Utlit er fyrir, að fénaður gangi vel fram í vor. Hrossin eru í ágætum holdum, enda hef ur beit lengst af verið góð í (Framhald á blaðsíðu 4)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.