Dagur - 02.04.1969, Qupperneq 2
2
O
Næsta keppni verður einmenningskeppni
SMATT & STORT
NÝLEGA lauk sveitahrað-
keppni Bridgefélags Akureyrar.
13 sveitir tóku þátt í keppninni,
sem var mjög skemmtileg. —
Meðalárangur var 856 stig. Að
þessu sinni sigraði sveit Hall-
dórs Helgasonar, sem hlaut 957
stig. Auk Halldórs eru í sveit-
inni Ármann Helgason, Jóhann
Helgason, Alfreð Pálsson og
Guðmundur Þorsteinsson. Röð
sveitanna er þessi: stig
Sv. Halldórs Helgasonar 95-7
— Mikaels Jónssonar 944
— Soffíu Guðmundsdóttur 941
— Páls Pálssonar 921
— Harðar Steinbergssonar 903
— Péturs Jósefssonar 884
— Oðins Árnasonar 876
— Guðmundar Guðlaugss. 875
— Jóhanns Jóhannssonar 866
— Valdimais Halldórss. 826
— Olafs Ágústssonar 763
— Gunnars Frímannssonar 756
— Stefáns Ragnarssonar 720
Næstu tvö þriðjudagskvöld
verður Bjarg opið tii æfinga
fyrir spilamenn.
Næsta keppni.
Næsta keppni verður ein-
menningskeppni félagsins, sem
JÁ, það er staðreynd, það var
leikinn annar leikurinn hér sl.
sunnudag á þessum vetri. Og
það engin viðvaningsknatt-
spyrna. Unglingalandsliðið kom
sunnan yfii' fjöll og lék við ÍBA.
Völlurinn var svo sem ekki
eins og að sumarlagi, að vísu
snjólaus að mestu, en beinfros-
inn og flugháll. Þarna birtust
þeir gæðingar úr ÍBA-liðinu
Á ÞE9SU VORI skapast ferða-
mönnum ný tækifæri til þess að
heimsækja frændur vora þá er
næstir okkur búa. Hinn 1. apríl
ganga í gildi ný og lægri far-
gjöld milli íslands og Færeyja,
hljóti þau samþykki stjórn-
valda. Flugferð til Færeyja og
heim aftur mun þá kosta kr.
5649.00 og er söluskattur inni-
falinn í verðinu.
Flugfélag íslands hefir síðan
sumarið 1963 haldið uppi áætl-
unarflugi til Færeyja, fyrstu
árin aðeins að sumrinu til en
hefst 15. apríl. Spilaðar verða
3 umferðir. Þátttöku ber að til-
kynna í síðasta lagi 13. apríl til
stjórnar félagsins.
Skautahöll
í Reykavík
UM ÞESSAR MUNDIR er ver-
ið að ljúka við skautahöll í höf-
uðborginni, eða Skeifunni 17,
eins og segir í fréttum. Er það
í fyrsta sinn, sem unnt verður
að stunda skautaíþrótt undir
þaki hér á landi og er lofsvert
framtak áhugamanna, en gam-
all draumur, er nú rætist.
Skautasvellið er 1350 ferm.
og er þar rúm fyrir ísknattleik
og áhorfendasvæði fyrir 300
manns.
Þarna gefst gestum kostur á
að fá leigða skauta, en almenn-
ur aðgangur er seldur fyrir
vissa tíma dags.
Akureyringar hafa látið sig
dreyma um vélfryst skautasvell
eða jafnvel skautahöll. Gætu
þeir e. t. v. síðar stuðst við
reynslu sunnanmanna í þessu
efni. □
frá í fyrra, margir hverjir í
góðri æfingu, nú þegar, að sýnd
ist, en fáir miður. Þarna komu
ný andlit eins og Sævar Jóna-
tansson er lék þarna ágætlega
tengilið, svo honum verður vart
rutt úr liðinu, einnig Eyjólfur
Skúlabróðir er stóð sig vel. Að
vísu saknar maður kjölfestunn-
ar frá í fyrra, þeirra Jóns Stef.
er kvað vera meiddur strax og
siðustu ár allt árið. Allmargir
íslendingar hafa á þessu tíma-
bili lagt leið sína til Færeyja,
einkanlega um Olafsvökuna,
þjóðhátíð Færeyinga. Róma
ferðamenn móttökur allar og
gestrisni fólks.
Auk flugs milli fslands og
Færeyja heldur Flugfélag ís-
lands uppi flugi milli Færeyja
og Glasgow yfir sumarmánuð-
ina. Flug milli Færeyja og
Skandinavíu er rekið af Flug-
félagi íslands og SAS sameigin-
lega. (Fréttatilkynning)
(Framhald af blaðsíðu 8).
veidd, heldur sé um að ræða
fisktegundir, sem geti orðið ár-
vissir nytjafiskar í framtíðinni.
Jakob Jakobsson hefur í því
sanibandi nefnt spærling, sand-
síli og kolmunna, auk loðnunn-
ar. En þessar tegundir telur
hann geta orðið mikilvægar til
bræðslu. En nú þegar eru að
opnast augu manna á þýðingu
loðnunnar til manneldis, enda
er þetta góður fiskur, sem fjöl-
margir hafa neytt. Áhugi Jap-
ana og fleiri þjóða á loðnunni,
gefa vonir um, að hún geti orð-
ið niargfalt meiri nytjafiskur til
nianneldis en til mjöl- og lýsis-
gerðar.
BRAGÐ ER AÐ ...
íslendingur-ísafold segir um
stórvirkjun og stóriðju nyrðra:
„Því miður benda þær (umræð
ur á Alþingi) ekki til þess, að
nauðsyn strjálbýlisins sé tekin
alvarlega af þeim, sem mestu
ráða. Allar rannsóknir og allur
undirbúningur að áframhald-
andi framkvæmdum miðast við
að enn verði haldið áfram upp-
byggingu stórvirkjana og stór-
iðju syðra og ekki einu sinni
látið að því liggja, að nein
Péturs, sem er víst að múra
ennþá, einnig spretthlauparans
Kára. Samúel var afar mistæk-
ur í markinu.
Sunnanpiltana þekki ég eng-
an með nafni, en þar voru vissu
lega á ferð piltar, sem eru þess
meðvitandi að þeir eru á knatt-
spyrauvelli. Oft á tíðum sýndu
þeir góð tilþrif og fylgdu fast
eftir, upp að marki andstæð-
inganna. Þeir skoruðu líka
fyrsta markið, þótt taflið snér-
ist þeim í verulegan óhag um
það er fyrri hálfleik lauk, en þá
var staðan 5:2 fyrir ÍBA.
í síðari hálfleik hjálpuðu Ak-
ureyringar gestunum til og skor
uðu ágætlega í eigið mark, en
seinna bættu sunnanmenn við
fjórða markinu svo lokatölur
urðu 5:4 fyrir ÍBA.
Það var mikill mannfjöldi á
íþróttavellinum á sunnudaginn
og láta bæjarbúar sig ekki
vanta þegar knattspyrnan er
annars vegar. Logn var og sól-
skin, snjóhrafl á vellinum og
svo sleipt, að leikmönnum gekk
illa að fóta sig.
Flestum knattspyrnuunnend-
um mun það gleðiefni að fá
tækifæri til að sjá knattspyrnu-
leiki, einkum á þessum árstíma,
sem er ánægjuleg nýjung.
ákveðin stefna sé ríkjandi í
þessu efni gagnvart strjálbýlinu
eða í tengslum við byggðaþró-
unina yfirleitt.“ Því miður er
þetta rétt og má segja, að bragð
er að þá barnið finnur.
NÝ TÍZKA
Sú tízka er gengin í garð hér á
landi, að nemendur hinna ýmsu
skóla gera samþykktir um nýja
skipan fræðslumála, senda til-
lögur sínar, áskoranir og álits-
gerðir blöðum og útvarpi til
birtingar þjóðinni. Svo virðist,
sem ráðamenn fræðslumála og
kennarar séu stoltir af þessu
framtaki og sýnist það bera
vott um skjótan þroska í skól-
um, að nemendur, allt frá ferm-
ingaraldri, geti á síðustu og
beztu tímum sagt hinum eldri
fyrir verkum í menntamálum
þjóðarinnar.
HVER NENNIR ÞVÍ?
í greinarkorni í „Degi“ 19. þ. m.,
sem ber ofannefnda yfirskrift,
er minnzt á grænmetisrækt, og
það, að fólk nenni ekki að
rækta grænmeti og finnist létt-
ara að kaupa það í búðvtm. —
Ég er ein þeirra, sem hef nennt
að rækta grænmeti í mörg ár,
en með misjöfnum árangri.
Meðal annars hef ég reynt að
rækta gulrætur, en þeim þarf
helzt að sá snemma, og hefur
það oft gengið erfiðlega, vegna
vorkulda. En hvað um það, nið-
ur í moldina hafa fræin komizt
— og svo er að bíða og sjá. Uni^
ir haust eru þetta oft orðin há
og falleg grös og sæmilegar gul
rætur. En svo einn morgun,
þegar litið er út, bregður manni
í brún. Þar sein grænu og
fallegu gulrótargrösin stóðu
kvöldinu áður, er mest allt autt
og tómt, nema hvað visið gras
og smá gulrætur liggja út um
allt. — Kálið hefur oftast fengið
að vera í friði hjá mér, en það
er meira en margir aðrir geta
sagt, þar sem kálhöfuðin hafa
verið skorin af niður við rót, —
og það ár eftir ár. — Það er
þetta, að fá aldrei að liafa neitt
í friði, sem gerir, að fólk hrein-
lega gefst upp á að reyna að
rækta nokkuð heima á lóðum
sínum.
Húsmóðir.
AÐ LIGGJA ÚTI
Mörg skíðanámskeið eru haldin
og ungu fólki kennt að beita
skíðum og stöfum. En hve oft
er þessu sama fólki kennt, að
búa sig skynsamlega, hvað
klæðnað snertir og að búa um
sig á víðavangi ef nauðsyn
krefst útilegu í vondu veðri?
Þessari spurningu er hér kastað
frain til athugunar vegna þess,
að stundum hefur það ráðið
úrslitum um líf eða dauða,
hvort ferðafólk hefur kunnað
að búa um sig í snjó.
HITT OG ÞETTA
Oll eldri met hafa verið slegin
í loðnuveiði og loðnumjölið selt
háu verði. Þorskafli hefur verið
mikill og á sumum stöðum mok
afli að undanförnu. Mánaðar-
viðræður verkalýðsfélaga og
atvinnurekenda bera enn eng-
an árangur. Akureyri er hæsti
atvinnuleysiskaupstaður á ís-
landi um þessar mundir. Um
helgina verður tekin ákvörðun
í Sanamálinu fræga á Akureyri.
Slippstöðm h.f. í sama bæ er
komin í fjárhagslega erfiðleika,
Akureyringar komast af án öl-
bruggs en vart án skipasmíða-
og viðgerða. Fólk flýr land
vegna atvinnuskorts og óstjórn
ar. Konur „fussuðu“ á ráðherra
á Alþingi í fyrradag, er rædd
voru heilbrigðismál, m. a. um
fæðingardeild Landspítalans og
móðurlífskrabba. Ungmennl
vilja taka að sér stjórn fræðslu-
mála, enda virðast þeir ekki síð
ur hafa vit á þeim en núver-
andi ráðherrar. Prestar hafa
gert misheppnaðar tilraunir
með afkáralegar messugerðir
fyrir unglinga, einnig með grall
arasöng. Margir fjárglæfra-
menn hafa flúið land með mik-
inn varaldarauð í vösum sínum.
Iðnvöruauglýsingar sjónvarps-
ins eru flestar erlendar eða
gerðar fyrir erlend framleiðslu
fyrirtæki. Hin innlendu eru of
fátæk til að auglýsa.
SANA
Gjaldþrotafyrirtækið Sana h.f.
á Akureyri, sem verið hefur í
höndum skiptaráðanda uin
lengri tíma, mun nú rísa úr
öskustónni. Vænta menn þess,
að fyrirtæki þessu, sem brugg-
ar gott öl o. fl. verði stjórnað
af nýjum mönnum, því annars
er naumast hægt að reikna með
langlífi þess eða mikilli farsæld,
Kröfuhafar hafa nú gerzt hlut-
hafar, um eða yfir 30 talsins.
Naumast þraf að efa, að ölið
verður gott. Það gleður flesta
liér, að þetta norðlenzka fyrir-
tæki verður ekki lagt nið'ur.
Hitt er isvo annað mál, hvort
það er gleðiefni eða hryggðar,
að bankamál á íslandi skuli
vera í svo breiðum og djúpum
öldudal, að enginn bankastjóri
hafi lirokkið upp úr stólnum
sínum, vegna þessa máls.
1
HLUTAFÉLÖGIN
Vegna fréttar á öörum stað í
blaðinu um stórkostlega aukn-
ingu hlutafjár í Sana li.f. hlýtur
sú spurning enn einu sinni að
verða borin fram, hvort ekki sé
þörf á allsherjar endurskoðun
laga um hlutafélög. í framhaldi
af henni hlýtur einnig að verða
spurt, hvort ekki sé nauðsyn-
legt, að bnakastofnanir og fjár-
festingasjóðir hefðu einhverjar
skynsamlegar reglur u>m lág-
mark eigin áhættufjár hinna
svonefndu eigenda (stjórnenda)
hlutafélaga á móti lausafé því,
sem þau fá og oftast er í raun
réttri almenningsfé. Þess munu
mörg dæmi, að hlutafélög liafi
að láni almenningsfé upp á jafn
margar milljónir og hlutaféð er
margar þúsundir. Þessir eigend
ur, sem ekki hætta neinu er
máli skiptir og hirða oft há
laun, vilja svo eiga alla mögu-
leika á þeim hagnaði, sem verða
kynni. Þess vegna er hætt við,
að oft verði spilað í happdrættis
von, meira en öruggur atvinnu-
rekstur þolir.
Hörku skot — og boltinn í netinu. — (Ljósrn.: E. D.)
Knattspyrna að vetrarlagi?
FÆREYJAFERÐ
ÓDÝRASTA UTANLANDSFERÐIN í ÁR