Dagur - 14.05.1969, Blaðsíða 1
Dagur
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 14. maí 1969 — 21. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
FjórSungsmót hestamanna
f SUMAR verfjiur fjórðungsmót
hestamannaféiaga á Norður-
landi haldið á Einarsstöðum í
Reykjadalj 18.—20. júlí. Þangað
munu koma menn og liestar úr
öllum landsfjórðungum. En að
fjórðungsmótinu standa þessi
félög: Þjálfi, S.-Þing., Grani,
Húsavík, Léttir, Akureyri,
Funi, Eyjafirði, Hringur, Svarf-
aðardal, Stígandi og Léttfeti,
Skagafirði og Sauðárkróki, og
úr Húnavatnssýslu Oðinn,
Neisti og Þytur.
I : : •
Sigurður Hallmarsson á Húsa
vík verður framkvæmdastjóri
fjórðungsmótsins. □
Hólaskóla sagt upp 3. maí
BÆNDASKOLANUM á Hólum
var sagt upp laugardaginn 3.
maí. Að þessu sinni voru bú-
r r
Asgeir Asgeirsson,
fyrrv. forseti, 75 ára
HERRA Ásgeir Ásgeirsson fyrr
um forseti íslands, varð 75 ára
í gær, 13. maí. Hann varð þing-
maður V.-ísfirðinga 1923 og
jafnan kosinn til 1952, er hann
var kjörinn forseti. Forseta-
embætti gegndi hann til 1968.
Dóra Þórhallsdóttir, kona hans,
andaðist 1964.
Herra Ásgeir Ásgeirsson er
sestur í helgan stein, en nafn
hans hefur þegar verið letrað í
íslandssöguna meðal mætustu
sona þjóðarinnar. Honum ber-
ast þúsundir þakklátra kveðja á
þessum tímamótum. □
fræðingarnir, sem útskrifuðust
21 að tölu og 15 luku prófi upp
úr yngri deild. Var skólinn full-
skipaður í vetur og munu næg-
ar umsóknir liggja fyrir nú þeg
ar um skólavist næsta vetur.
Á kennaraliði urðu aðeins
þær breytingar í vetur, að H. J.
' Hólmjárn bóndi á Vatnsleysu
hætti störfum, en við tók Har-
aldui' Árnason, Sjávarborg.
Við uppsögn skólans ávarpaði
skólastjórinn, Haukur Jörunds-
son, nemendur og afhenti próf-
skírteini. Lagði hann í ræðu
sinni áherzlu á það, hve mikla
nauðsyn bæri til, fremur en
nokkru sinni áður, að fylgjast
gaumgæfilega með öllum þeim
breytingum, sem stöðugt væru
að gerast og halda áfram að
byggja ofan á þá undirstöðu-
þekkingu, sem skólinn veitti.
Nefndi hann ýmis dæmi um
(Framhald á blaðsíðu 2)
Ársfundur Mjólkursamlags KEA á Akureyri
Innlagt mjólkurmagn 1968,19.866.940 lítrar
ÁRSFUNDUR Mjólkursamlags
KEA, var haldinn í Samkomu-
húsinu á Akureyri laugardag-
inn 10. maí og hófst kl. 10.30 ár_
degis. Fundinn setti formaður
félagsstjórnarinnar, Brynjólfur
Sveinsson, yfirkennari, en
fundarstjórar voru kjörnir þeir
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi
Halnarmál Akureyringa enn á dagskrá
HAFNARSTJORN Akureyrar-
kaupstaðar, hæjarráð og bæjar-
stjórn samþykkti í vetur skipu-
lag að framtíðarhöfn fyrir kaup
staðinn ásamt vitamálastjórn,
en þessir aðilar allir þurfa að
fjalla um málið, svo að fram-
gangs megi vænta. Einnig var
samþykkt, að fyrsti áfangi hafn
arinnar skyldi gerður við
Strandgötu og bæjarstjóra falið
að útvega til þess fjármagn.
Staðarvalinu, sunnan á Odd-
eyri, við Strandgötuna réði að
sjálfsögðu sú frábæra aðstaða,
sem þar er. Þar er hafnargerð
talin ódýrust á landinu, en tvö-
falt dýrari á þeim stöðum öðr-
um er til greina koma, sem
Mokafli togbáta
TOGBÁTAR hafa aflað mjög
vel við Norðurland að undan-
förnu og nú er mokafli á Skagú
fjarðardjúpi. Til dæmis um afl-
ann liefur blaðið frétt, að eitt
togskipið hafi fengið 45 tonn af
fiski á 12 klst. og sjö togskip
150 tonn á 4 klst. Frystihús hafa
naumast haft undan og vinna
verið mjög mikil í landi, svo
sem gefur að skilja.
En nú eru hraðfrystihúsin að
stöðvast vegna umbúðaskorts
og afskipunartregðu vegna verk
fallanna því frystigeymslur eru
fullar.
Skammt undan er hafísinn og
ógnar hann einnig stöðvun og
við hann verður ekki samið um
eitt eða neitt. □
framtíðar-hafnarstæði. Þá hef-
ur Eimskip ákveðið að byggja
stórhýsi á hafnarbakkanum til
sinna nota við vöruflutningana
og fleiri byggingar eru ráð-
gerðar.
Nokkrar óánægjuraddir
komu fram um það, að með
þessu væri fjaran við Strand-
götuna eyðilögð, en hana hefði
mátt prýða fyrir fáar milljónir
króna. Eki sú fegrun hefur verið
látin ógerð í öll þessi ár. Hver
vill ekki skipta á slíku og fá í
staðinn nýtízku farmskipa- og
umhleðsluhöfn með myndarleg
um byggingum á hafnarbakk-
anum? Jú, einhverjir vilja ekki
skipta, en þeir tala alls ekki um|
kostnaðarhliðina en segja sem
svo: Það er hægt að byggja
höfn einhversstaðar annarsstað
ar. Aðrir halda því mjög á lofti
og telja ósæmilegt, að skipu-
leggja strandlengjuna alla og
liefja síðan framkvæindir í
áföngum. Þessir menn vita bet-
ur. Þeir vita, að það dýrasta og
hættu-Jegasta fyrir Akureyrar?
bæ, er skipulagsleysið. Það er
m. a. vegna skipulagsleysis, að
nú er ekki lengur hægt að velja
um hafnarstæði við Oddeyri,
eins og var hægt fyrir nokkr-
um árum, heldur hefði orðið að
byggja hafnarniannvirki norðan
Glerár, ef Strandgötunni hefði
verið hafnað. Slíkt hefst upp úr
skipulagsleysinu.
Og til að minnast á aðeins
eitt atriði enn í gagnrýninni við
þessa merkustu ákvörðun bæj-
arstjórnar í Iangan tíma, má
nefna, að Verkamaður kallar
samþykktir bæjarstjórnar skýja
borgir og stórmennskuskipulag.
Kannski eru það skýjaborgir
einar lijá þessu bæjarfélagi að
biðja um 50 milljóna kr. lán eða
svo til að leggja veg um bæinn?
Kannski er það stórmennsku-
brjálæði að ætla sér að malbika
götur bæjarins eða byggja
skóla? Hve furðulegt er það
annars ekki, að nokkur Akur-
eyringur skuli svo „langt niðri“,
að hann þoli ekki að bæjar-
stjóm áformi nauðsynlegar
framfarir með trú á framtíðina
að leiðarljósi?
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
kom fram tillaga um, að fresta
framkvæmdum. I því sambandi
er rétt að taka fram að láns-
fjár til hafnargerðarinnar er afl
að með tilstuðlan atvinnumála-
nefndar ríkisins og Norður-
lands, vegna þess að talið er, að
framkvæmdir þessar hafi inikil
(Framhald á blaðsíðu 2)
Vernliarður Sveinsson,
samlagsstjóri.
mjólkursamlagsstjóri og Jón
Bjaraason, Garðsvík. Ritarar
fundarins voru kjörnir Kristján
Hannesson, Kaupangi og Gunn
ar Kristjánsson, Dagverðareyri.
Á fundinum mættu 230 mjólkur
framleiðendur frá 13 félags-
deildum auk stjórnar, fiam-
kvæmdastjóra, mjólkursamlags
stjóra og margra gesta.
Mjólkursamlagsstjóri, Vern-
harður Sveinsson, flutti ýtar-
lega skýrslu um rekstur Sam-
lagsins á liðnu starfsári og las
reikninga þess. í skýrslu hans
kom fram, að innlagt mjólkur-
magn á árinu 1968 var
19.866.940 lítrar frá 421 fram-
leiðanda, en framleiðendum
um hafði fækkað um 25 á árinu.
Mjólkurmagnið hafði aukizt um
352.800 lítra eða 1.8%. Meðal-
fitumagn mjólkurinnar var
4.02%. Af mjólkurmagninu
voru 20.22% seld sem neyzlu-
mjólk, en 79.78% fóru til fram-
leiðslu ýmsi'a mjólkurvara.
Á árinu var framleitt:
551.292 kg. smjör.
347.131 kg. ostar.
196.721 kg. skyr.
171.800 kg. kasein.
21.220 kg. þurrmjólk.
Reikningsyfirlit ársins sýndi,
að reksturs- og sölukostnaður
hafði orðið samtals 242.63 aurar
(Framhald á blaðsíðu 8)
IðnráðssteYna á
Allir kemnir nema óðinshaninn
KRÍAN kom 9. maí og um svip
að leyti kjóinn og spóinn var
áður kominn. Stórir hópar af
lóuþrælum sáust á sínu listflugi
við fjörur um helgina, og voru
sandlóur þar með. En báðar
þessar fuglategundir voru áður
komnar, svo og steinklappan,
allar endui', hrossagaukurinn
fyrir nokkru og grátittlingur-
inn. En óðinslianinn er ókom-
inn, einn farfuglanna. Auðnu-
tittlingur einn verpti hér í bæ
á páskum og tókst útungunin
með ágætum. Þrestir verpa sem
óðast og mófuglarnir undirbúa
hreiðurgerðina svo og hettu-
mávar, gæsir, endur og æðar-
fugl. Æðarkóngur, konulaus,
blandar geði við æðarfugla á
Akureyrarpolli, álftir synda á
tjörnum og krummar liggja á
hreiðrum.
Ekki mega sinubrennur fara
fram eftir 1. maí, nema með
leyfi yfii'valda. □
DAGANA 6.—8. júní verður
iðnaðarmálaráðstefna haldin á
Akureyri. Forgöngu í þessu
liafa félög Franisóknarmanna á
Akureyri og í Reykjavík.
Nokkrir tugir ráðstefnugesta
víðs vegar að, koina hingað til
Akureyrar.
Hehnsótt verða mörg fyrir-
tæki í bænum, erindi flutt og
skroppið á sjó til að fiska og
hljóta fræðslu um byggðirnar
við fjörðinn.
Olafur Jóliannesson prófessor
flytur ávarp á ráðstefnu þess-
ari.
Margir sérfróðir ræðumenn
flytja erindi. Nánar verður
sagt frá ráðstefnunni síðar hér
í blaðinu. □