Dagur - 10.09.1969, Síða 2
2
FERÐARITVÉL
óskast til kaups.
Uppl. í síma 1-11-61.
Til sölu:
Dönsk, litskorin UOllD-
STOFUHÚSGÖGN.
Uppl. í síma 1-10-61,
eftir kl. 8 á kvöldin.
Til sölu er fallegur,
lijósgrár Peggy BARNA-
VAGN, verö kr. 6000.00,
ennlremur handsmíðuð
PÍANÓHARMONIKA
— t'erður seld á hálfvirði,
kr. 18.000.00.
Uppl. í .Skarðslilíð 16,
sími 1-24-22.
Til sölu:
6 skota Mossberg
HAGLABYSSA No. 12,
magnum.
Uppl. í Mýrarvegi 124.
Til sölu, strax, vel með
farinHonda 50,
SKELLIN AÐR A.
Uppl. í síma 1-13-65,
milli kl. 19.00 og 20.00.
HÚSGÖGN til sölu
vegna brottflutnings.
Eruifremur Kango-raf-
magnshöggbor, snittvél
og tilheyrandi verkfæri.
Uppl. í síma 1-27-51,
eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu:
SÓFABORÐ og 4 stólar.
UppL í síma 6-13-51,
Dalvík.
Til sölu:
STÁL-
ÞVOTT APOTTUR,
75 lítra,
í Byggðavegi 101 F.
Til sölu:
Pedegree
BARNAVAGN.
Uppl. í Norðurgötu 10,
niðri.
Til sölu:
Hoover ÞVOTTAVÉL
með þeytivindu og
Rafha-þvottapottur,
50 lítra.
Uppl. í síma 1-28-44,
eftir kl. 5 e. h.
Til sölu:
Notuð, stór ELDHÚS-
INNRÉTTING, ásamt
stálvaska og Westing-
house eldavél.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-16-08.
eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu:
Thor ÞVOTTAVÉL,
Rafha þvottapottur. 100
lítra, og Necchi sauma-
vél (í skáp). — Allt vel
með farið.
Uppl. í síma 2-11-16.
Er Akureyri „heimavölluf IBA-Iiðsins - eður ei?
TILEFNI skrifa þessara, er ein-
dæma lítilmannleg og ókurteis
framkoma Akúreyringa á knatt
spyrnuvelli laugardaginn 23.
ágúst. Aldrei þessu vant, þá fór
undirritaður á völlinn fimmtu-
daginn 21 ágúst sl. og sá Akur-
eyringa sigra Keflavík, naum-
lega þó. Vallargestir hvöttu lið
sitt óspart, enda unnu leikmenn
af miklu kappi, og það voru
ánægðir Akureyringar sem
sneru heim þann daginn.
Jæja, hinn 23. ágúst fór und-
initaður aftur á völlinn, og sá
leik Akureyringa við Vest-
mannaeyjar, þar sem ‘keppt var
um veglegan.bikar. Nú brá hins
vegar svo við, að leikmönnum
okkar tókst ekki eins vel upp
og á fimmtudag, en það sem
verra var, áhorfendur brugðust
liði sínu gjörsamlega. í stað
hvatningar heyrðist vart annað
í stúkunni en hæðnisglósur og
skammir um liðið og einstaka
leikmenn. Forráðamönnum
knattspyrnunnar bölvað fyrir
að senda óreynda leikmenn inn
á (hvenær eiga þeir annars að
öðlast reynslu?) og einnig mátti
heyra sitt af hverju um dómar-
ann. Nú jæja, leiknum lauk
með sigri Vestmannaeyinga, en
að leik loknum steig fram for-
maður ÍBA og ávarpaði leik-
menn með fáeinum orðum, en
afhenti síðan sigurvegurunum
bikar þann, sem um var keppt.
En viti mehn! Þegar form. ÍBA
hóf mál sitt að loknum leik, þá
voiu flestir vallargesta, sem i
stúku sátu horfnir af vettvangi
og sýndu þar með knattspyrnu-
liðunum báðum og ekki sízt
gestunum fádæma lítilsvirð-
ingu. Nú er þetta ekki aðeins
spurning um þrjár mínútur eða
svo, sem menn tefjast við þetta,
heldur er þetta andlegur krypp
lingsháttur, sem er til þess eins
■ Norðl. samtök um náttúruvernd
HIN nýstofnuðu samtök um
náttúruvernd á Norðurlandi,
boðuðu til fundar í Húnaveri í
Austur-Húnavatnssýslu þann
30. ágúst sl.
Fundinn sóttu allmargir
áhugamenn úr Skagafjarðar-
og Húnavatnssýslum. Síra Árni
Sigurðsson á Blönduósi setti
fundinn með ávarpi og síðan
flutti Helgi Hallgrímsson, safn-
vörður á Akureyri ýtarlegt
erindi um hlutverk néttúru-
verndar. Hjörtur Eldjárn Þór-
arinsson, bóndi á Tjörn í Svarf-
aðardal ræddi um náttúruvernd
KA og Þór leika í dag
NORÐURLANDSMÓT í knatt-
spyrnu heldur áfram á Akur-
eyri í dag, miðvikudag, á íþrótta
vellinum með fyrri leik KA og
Þórs. Leikurinn hefst kl. 6.30
síðdegis.
Síðasti leikur ÍBA á
laugardag
SÍÐASTI leikur ÍBA í fyrstu
deild á þessu sumri fer fram á
íþróttavellinum n. k. laugardag,
13. ágúst, kl. 4 e. h. og mæta
Vestmannaeyingar til 'leiks —
Mjög tvísýnt er nú hvort ÍBA-
liðið þarf að leika aukaleik um
sæti sitt í 1. deild, en vonandi
tekst liðinu að hrista af sér slen
ið í síðasta leiknum og bjarga
sér þannig frá aukaleik við
Breiðablik í Kópavogi.
Syndið
200 METRANA
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
takan fer fram utan netalagna,
í svokölluðum almenningi.
Þessu mótmæla landeigendur
og vilja fá staðfest, að eigna-
rétturinn sé þeirra, og þeim sé
hehnilt, að taka gjald fyrir hrá-
efnið til Kísiliðjunnar. Dómþing
var haldið í máli þessu í Mý-
vatnssveit í ágúst og þá lagði
lögmaður bænda, Páll S. Páls-
son, fram stefnu og greinargerð
í málinu. Verjandi er Sigurður
Ólason.
og landsnytjar. Síra Árni Sig-
urðsson flutti erindi um náttúru
vernd á Norðurlandi vestra og
Guðmundur Ólafsson, mennta-
skólakennari talaði um sandfok
og sandrækt.
Að loknu kaffihléi ræddi
Helgi Hallgrímsson um skipu-
lagsmól og verkefni samtak-
anna. Síðan hófust almennar
umræður. M. a. tóku til máls
síra Gísli Kolbeins á Melstað,
Haukur Hafstað, bóndi í Vík,
Egill Bjarnason, ráðunautur og
Ingimar Bogason, verzlunar-
maður, báðir á Sauðárkróki.
Fundurinn taldi ástæðu til að
vekja athygli manna á meng-
unarhættu í ám og vötnum, ef
forðast ætti slík slys, sem átt
hafa sér stað erlendis í því efni.
Því samþykkti fundurinn eftir-
farandi tillögu:
„Almennur fundur um nátt-
úruvernd á Norðurlandi, hald-
inn í Húnaveri, A.-Hún. 30.
ágúst 1969, beinir þeim tilmæl-
um til stjórnar veiðifélaga að
þau fylgist sem bezt með hvers
konar mengun vatnsfalla og
vatna af völdum úrgangsefna
og eiturefna.“
Fundarmenn voru á einu
máli um nauðsyn þessara sam-
taka og hafizt yrði handa um að
kynna þessi mál.
í sambandi við fundinn var
sýningin „Náttúruvernd á Norð
urlandi" í Húnaveri.
Að lokum samþykkti fundur-
inn að auka tveimur mönnum á
vestursvæðinu í bráðabyrgðar-
stjórn samtakanna, er kosin var
á Laugum 28. júní sl. Þessir
hlutu kosningu: Sr. Árni Sig-
urðsson og Egill Bjarnason.
Aðrir í stjórn eru: Helgi Hall-
grímsson, Hjörtur E. Þórarins-
son og Jóhann Skaptason.
Fundarstjóri var Haraldur
Árnason, kennari, Sjávarborg.
Veitingar önnuðust konur úr
Kvenfélagi Bólstaðarhlíðar-
hrepps.
(Fréttatilkynning frá stjórn
samtakanna).
DANSKAR
Iiannyrðavörur
alltaf að koma.
Póstsendum.
Verzlun Ragnheiðar
0. Björnsson
fallinn, að koma óorði á akur-
eyrska vallargesti.
Einhvers staðar hefi ég lesið,
að þegnar hennar hátignar
Bretadrottningar telji, að leikur
knattspyrnuliðs á heimavelli
jafngildi tveggja marka for-
skoti. Ekki veit ég hvað hæft er
í fullyrðingu sem þessari, en
hitt er víst, að liðsmenn ÍBA á
heimavelli eiga ekki sjö dagana
sæla. Haldið þið ekki, vallar-
gestir góðir, að það væri ekki
skemmtilegra, bæði fyrir okkur
og leikmenn, að allir reyndu að
mæta á vellinum í þolanlegu
skapi, og hvetja strákana, ekki
sízt þessa ungu og óreyndu,
HVORT SEM VEL GENGUR
EÐA ILLA? Við getum ekki
búist við því, að okkar menn
sigri alltaf, en við verðum alltaf
að styðja við bakið á þeim og
vera þátttakendur í leiknum
með þeim, — á þann hátt öðlast
þeir sjálfstraust og þegar þeir
finna, að heimamenn hafa ti'ú á
þeirn og hvetja þá, munu þeir
leggja sig alla fi'am um að gera
sitt bezta, — hvoi't sem ái’ang-
urinn verður sigur eða ekki
sigur.
Með knattspyrnukveðjum,
Pétur Jósefsson.
• imiiiiiMiiMMiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiimiiiiiitiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiitiiiiiiiiiiiuiin
I - Frá 12. kjördæmisþinginu (
I (Framhald af blaðsíðu 1)
| verkfallsbaráttu, sem verið
I hefur eina tiltæka vörn laun-
| þega gegn kjararýmuninni.
| Þingið telur að koma eigi upp
| sérstakri hagstofnun launþega
I samtakanna, sem styrkt verði
| af opinberu fé. Mundi slík
| stofnun skapa möguleika á að
I heyja kjarabaráttu framtíðar-
| innar með raunhæfari aðferð-
| um en nú er.
| 5. Kjördæmisþingið varar
I við þeirri hættu, sem nú staf-
I ar af pólitískri sundrung lands
1 manna. Skorar þingið á alla
I framfarasinnaða landsmenn,
| að fylkja sér undir merki
| Framsóknarflokksins og vinna
með honum að því að treysta i
öryggi atvinnuveganna og I
rekstraröryggi fyrirtækja og |
bægja á þann hátt frá þjóðinni \
atvinnuleysi og efnaliagslegri |
óvissu. Bendir þingið á, að I
Framsóknarflokkurinn hefur |
bezt skilyrði til að veita slíkri 1
samstöðu forystu og koma I
fram með ný markmið og i
stefnur í þýðingarmestu mál- =
unum, s. s. efnahagsmálum og i
stjórnarskrármálinu. Unnið i
skal markvisst að því, að hann J
verði stærsti þingflokkurinn 1
eftir næstu kosningar, enda er f
hann eini flokkurinn, sem i
mun taka upp breytta stjórnar f
stefnu.
HÁKARL
KJÖRBÚÐIR KEA
á VOPNAFIRÐI - úrvalsgóður.
---------------
SKÓLAFÓLK!
í kjörbúðum vorum fæst það algeng-
asta, sem þarf til skólans, svo sem:
STÍL ABÆKUR - REIKNIBÆKUR
RISSBÆKUR - VASABÆKUR
REGLUSTRIKUR o. m. fl.
KJÖRBUÐIR
KEA
STJARNAN - KJÖTMARKAÐUR
Höfum aftur opnað verzlun vora í Lundargötu
og jafnframt lokað verzluninni í Skipagötu.
Verzlið þar sem krónan er stór.
HÚSMÆÐUR - ATHUGIÐ!
Við sendnm ykkur mjólkurkassann með öðrum
matvælum án sérstaks gjalds.
STJARNAN - KJÖTMARKAÐUR
Lundargötu (Rétt við Strandgötu) . Sími 2-16-47