Dagur - 01.10.1969, Síða 1
ÞRÍFUR
ALLT
T,TT. árg. — Akureyri, miðmikudaginn 1. okt. 1969 — 38. tölublað
FIL.MU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Sjóvarnargarðurinn er kominn
Vopnafirði 29. sept. Síðustu
göngur, sem nú kallast eftirleit,
eru eftir. En sauðfjárslátrun
hófst 22. sept. og verður lógað
15—16 þús. fjár og er féð sæmi-
lega vænt að þessu sinni.
Brettingur, sem hér hefur
lagt upp afla sínum, seldi síðast
í Þýzkalandi, því ekki var unnt
að taka á móti aflanum í slátur-
tíðinni. En verið er að bæta að-
stöðu til fiskmóttöku, enda
standa vonir til, að bæði Brett-
ingur og Stefán Valgeir landi
hér í vetur.
Sjóvarnargarðurinn mikli er
nú langt kominn og nær hann
nú út í Miðhólma. Verður þessu
mikla verki senn lokið og með
því stórbatnar höfnin. Kostar
grjótgarður þessi, sem að mestu
er gerður úr stórum björgum,
um 30 milljónir króna.
Laxárnar hér í Vopnafirði
voru gjöfulli í ár en í fyrra þótt
laxinn gengi seint. Þ. Þ.
Rækja fil Skagaslrandar
Skagaströnd 29. sept. Guðjón
Árnason hefur farið sinn fyrsta
rækjuróður og fékk 450 kg.
Rækjan var unnin í Hólanesi
h.f., þ. e. gamla frystihúsinu og
gekk það vel. Með framhaldi á
MISLINGAR
MISLINGAR hafa verið í hér-
aðinu síðan í júlí í sumar og
voru 40 mislingatilfelli í ágúst,
sagði héraðslæknir blaðinu í
gær. Flestir eru búnir að fá
mislinga, sagði hann ennfremur,
nema þá helzt börn, yngri en á
skólaskyldualdri. Um faraldur
er því ekki að ræða.
Erfitt er að fá bóluefni, en
reynt er að bólusetja þá, sem
heilsuveilir eru. □
þessu eykst vinna verulega á
staðnum. Helga Björg og Arnar
fiska og leggja hér upp, en afl-
inn er fremur dræmur.
Verið er að setja upp sjálf-
virka símastöð og verður því
verki væntanlega lokið um mán
aðamótin nóv.—des.
Til tíðinda má teljast á Skaga
strönd, að þar er íbúðarhús í
smíðum, en það hefur ekki skeð
í mörg ár.
Snjór er í fjöllum en auð jörð
í byggð. Sauðfjárslátrun stend-
ur yfir og verður 10 þús. fjár
lógað. Féð sýnist sæmilega
vænt, en vigtartölur liggja ekki
fyrir.
Heyskapartíð var erfið í sum
ar, en ekki er talið vandræða-
ástand í því efni á Skaga. X.
Alþýðuskólabyggingarnar á Eiðum á Héraði.
-• i i
Alþýðuskóliiin á Eiðum 50 ára
ALLT frá því á söguöld hafa
Eiðar á Fljótsdalshéraði verið
höfðingjasetur og höfuðból. Þar
sátu merkir menn og mætar
konur og þar var löngum prest-
setur. Er fram liðu stundir varð
staðurinn auðugur af löndum
og lausum aurum og var þá
nefndur Eiðastóll. Var það
þriðji stóllinn í landinu, en áður
voru fyrir Skálholts- og Hóla-
stólar.
Árið 1883 ákváðu Múlasýslur
Sfóraukin framleiðsla SÍS-verksmiðjanna á Ak.
Á FYRSTU átta mánuðum árs-
ins jókst framleiðsla Gefjunnar
á Akureyri um 40%, miðað við
sama tíma í fyrra og nær aukn-
ingin til allra aðal framleiðslu-
greina verksmiðjunnar. Þykja
þetta eflaust góðar fréttir, og
eins og nú horfir eru líkur á
enn meiri aukningu þá mánuði
ársins, sem eftr eru.
Afkastamiklir vefstólar, sem
upp hafa verið settir og nýjar
spunavélasamstæður auðvelda
verksmiðjunni að fullnægja auk
inni eftirspurn innan lands og
utan. Og enn eru ráðgerð kaup
afkastamikilla véla.
Skóframleiðslan tafðist mjög
vegna brunans, en hófst á ný í
júníbyrjun og fer fram á tveim
stöðum. Tefur það, en þó er
búið að framleiða 14—15 þús.
pör af skóm og framleiðslan til
áramóta er upppöntuð.
Það má til tíðinda teljast, að
verið er að semja um sölu á
kuldaskóm til Rússlands, en
kuldaskór Iðunnar þykja mjög
góðir og henta sérlega vel í frost
hörðum löndum. Gert er ráð
fyrir, að upp úr miðjum vetri
verði unnt að flytja Skóverk-
smiðju Iðunnar í nýtt húsnæði
og verður það mjög til hag-
ræðis.
Sútunarverksmiðjan nýja,
sem í byggingu er á Akureyri,
tekur væntanlega til starfa í
mai-z eða apríl á næsta ári. En
starfsemi þeirrar verksmiðju
lamaðist vegna brunans í byrj-
un þessa árs. Framkvæmda-
stjóri nýju verksmiðjunnar
verður Ragnar Olason.
Hekla hefur framleitt meira
(Framhald á blaðsíðu 5)
að stofna búnaðarskóla fyrir
Austurland. Var honum valinn
staður á Eiðum, þar sem hann
starfaði við ágætan orðstír til
ársins 1918. Var þá um skeið
sviptingasamt í skóla- og menn
ingarmálum fjórðungsins, og
var ákveðið að bjóða ríkinu
Eiðaeignir að gjöf, með því skil
yrði, að þai' yrði rekinn alþýðu
skóli fyrir Austurland. Sam-
þykkti Alþingi íslendinga þessa
málaleitan árið 1917.
Þann 20. okt. árið 1919 var
Alþýðuskólinn á Eiðum settur
í fyrsta sinn. Gerði það nýskip-
aður skólastjóri sr. Ásmundur
Guðmundsson, síðar biskup.
Eru því senn 50 ár liðin frá upp
hafi starfs Alþýðuskólans. í
fyrstu skólasetningarræðu sr.
Ásmundar segir m. a.: „Ný,
sjálfstæð skólastefna á að verða
til hér á landi. Að vísu munum
við taka samskonar skóla með
öðrum þjóðum til hliðsjónar, en
við munum ekki leitast við að
stæla þá. Hér á íslandi á ekki
allt hið sama við og þar, vegna
ólíkra staðhátta og þjóðarein-
kenna. Við verðum að þreifa
(Framhald á blaðsíðu 5)
Ljósabúnaður bifreiða
LÖGREGLAN beinir þeim til-
mælum til ökumanna, að þeir
láti nú þegar lagfæra ljósabún-
að ökutækja sinna, ef þau eru
ekki í fullkomnu lagi. Mun lög-
reglan nú næstu daga leggja
áherzlu á athugun ljósabúnaðar,
þar sem sá tími fer í hönd, að
þess er sérstök þörf.
í snjóföli og mikilli hálku á
götum bæjarins í gær, hafði
ekkert umferðaróhapp orðið, er
blaðið leitaði um það frétta
nokkru eftir hádegi, og er það
ökumönnum til sóma. Hins veg
ar lentu margir í nokkrum
vanda þar til keðjur voru komn
ar á eða snjódekk.
Fyrir of hraðan akstur og
ölvun við akstur hafa nokkrir
verið teknir. □
Tutfugu íbúðarhús eru í smíðum
Sauðárkróki 29. sept. U.m 50
þús. fjár verður lógað hjá Kaup
félagi Skagfirðinga, þar af um
6 þús. á Hofsósi, en þar er nú
í fyrsta sinn lógað á vegum Kf.
Skagfirðinga. Búið er að lóga
16—17 þús. fjár og flokkast kjöt
ið mun verr nú en undanfarin
ár, enda dilkar ekki eins vænir
og undanfai'ið. Er talið, að mun
að geti um einu kílói á kropp,
Sláturféð er vænt á Kópaskeri
1 innbænum á Akureyri eru gamalfrægir og ágætir kartöflu-
garðar, sem enn gefa oft ríkulega uppskeru. Hér er Ágúst
Ásgrímsson að taka upp kartöflurnar í garði sínum.
(Ljósm.: Á. Á.)
Kópaskeri 29. sept. Hér hjá
kaupfélaginu er nú búið að lóga
11637 kindum á 10 dögum og er
meðalvigt 16.1 kg. og er það all
gott og betra en í fyrra og raun
ar betra en verið hefur síðustu
10 árin a. m. k. Alls verður 25
þús. lógað og er það heldur
færra en í fyrra. Fjárstofninn
dróst saman í heyskaparleysis-
árunum undanfarið. Nú er liey-
forði hins vegar meiri og mun
þá reynt að fylla í skörðin með
nokkru meiri ásetningi líf-
lamba. Stöku menn vantar hey,
en sem heild er heyforðinn
sæmilegur.
Hér ríkja almenn vonbrigði
yfir þeirri afgreiðslu á lausa-
skuldamálum bænda, sem menn
bundu þó vonir við. Eru þær
vonir nú að engu orðnar og
hafa bændur verið blekktir.
Fyrir göngur snjóaði ögn í
fjöll og auðveldaði það göngur
fremur en hitt og smalaðist vel.
R. B.
frá' því sem var í fyrra. Slátrun
lýkur 23. október og tekur þá
nautgripaslátrun við og að síð-
ustu hrossaslátrun, sem álitið er
að verði lítil í haust.
Nýfarin eru 145 lífhross til
Svíþjóðar, þar af 39 hryssur
með folöldum. En hryssur þess-
ar voru keyptar snemma í vor,
fylfullar. Verð lífhrossanna er
sæmilegt eða 12—15 þús. fyrir
ótamin hross. En nú er farið að
spyrja mjög um bandvön hross
eða jafnvel meira tamin og fyrir
þau fæst hærra verð.
Drangey var að losa hér 75
tonn og hefur verið nóg að
starfa í Fiskiðjunni í sumar og
á þessu ári hefur mikill afli ver
ið lagður á land.
Bærinn hefur nú með hönd-
um holræsagerð fyrir nýtt,
væntanlegt íbúðahverfi og und-
irbýr aukningu varanlegrar
gatnagerðar.
Nú eru um 20 íbúðarhús í
smíðum í bænum. En stærsta
byggingin hér, sem nú er eink-
um unnið að, er nýtt sútunar-
verksmiðjuhús. H. R.