Dagur - 01.10.1969, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
NÝ STJÓRN&RSKRÁ
K J ÖRDÆMISÞIN G F ramsóknar-
manna á Húsavík 5.-6. sept. sl. sam-
þykkti m. a. ályktun þess efnis, að
leggja beri áherzlu á, að stjómar-
skráin verði tekin til ítarlegrar end-
urskoðunar og þá við það miðað, að
ný stjórnarskrá geti tekið giltli eigi
síðar en árið 1974 á aldarafmæli
fyrstu stjórnarskrárinnar og 11 alda
afmæli íslandsbyggðar. í þessu sam-
bandi benti þingið sérstaklega á tvö
nýmæli, sem það teldi réttmæt:
Að tekin verði upp einmennings-
kjördæmi og að landinu verði skipt
í umdæmi (,,fylki“) sem öðlist sjálf-
stjórn í sérstökum málum sem varða
umdæmin hvert fyrir sig og nú em
í höndum ríkisvaldsins. Þingið lýsti
yfir þeirri skoðun sinni, að með þess
um hætti yrðu bein áhrif fólksins í
dreifbýlinu aukin verulega og stuðl-
að að auknu jafnræði milli lands-
hluta.
Engin vafi er á því, að kosningar
í einmenningskjördæmum eiga nú
vaxandi fylgi að fagna og þó ekki
sízt meðal hinnar yngri kynslóðar.
Fylgjendur einmenningskjördæma
finnast í öllum stjómmálaflokkum
og utan þeirra. En engin af lands-
samtökum þeim, er flokksnafn bera,
hafa þau þó á stefnuskrá sinni, eins
og sakir standa.
Gallar núverándi fyrirkomulags,
sem byggir ríkisvald á flokkum og
stuðlar að því að þjóðin skiptist í
sem flesta slíka, er í vaxandi mæli
umræðuefni manna. Það er margra
mál nú, að persónulegar kosningar
séu kjósendum almennt bezt að
skapi, en jafnframt bezt til þess falln
ar, að skapa starfshæft og ábyrgt
þing og draga hæfilega úr því, sem
nefnt er flokksræði. Bent er á, að
skoðanakönnun fyrir framboð sé til-
tölulega auðveld í einmenningskjör-
dæmum en miklu örðugri eins og nú
hagar til. Margir telja einmennings-
kjördæmi líkleg til að skapa sam-
stæðan þingmeirihluta og samstæða
stjórnarandstöðu á Alþingi íslend-
inga.
Hugmyndin um að skipta landinu
í umdæmi með sjálfstjórn í sérmál-
um kom fram opinberlega fyrir
tveim áratugum frá fjórðungsþing-
um Austfirðinga og Norðlendinga.
Vildu þau gefa umdæmunum fomt,
norrænt nafn og kalla þau „fylki,“
en bæði Norðmenn og Svíar skipta
löndum sínum í slík umdæmi og í
Noregi er liið forna lieiti „fylki“ enn
í gildi.
í ályktun kjördæmisþingsins á
Húsavík var gert ráð fyrir að „fylk-
in“ fái í sínar hendur sum mál, sem
nú eru í höndum ríkisins og væri þá
(Framhald á blaðsíðu 7)
Þingeyingar ræða um Gljúfurversvirkjun
Ábendingar fulltrúa sveitarfélaga og búnaðar-
samtaka í Suður-Þingeyjarsýslu til landbúnað-
arráðuneytisins varðandi fyrirhugaða Gljúfur-
versvirkjun í Laxá.
Á FUNDI, sem haldinn var á
Húsavík 12. ágúst sl. eftir fund-
arboði sýslumanns Þingeyinga,
þar sem mættir voru fulltrúar
þeirra sveitarfélaga, sem málið
varðar, voru undirritaðir full-
trúar kjörnir, og þeim falið að
koma á framfæri sjónarmiðum
héraðsbúa, og gæta hagsmuna
bænda og þeirra 6 sveitarfélaga,
er fyrirhuguð Gljúfurversvirkj-
un snertir.
Vísað skal til þess að ráðu-
neytinu hafa áður verið send
mótmæli sýslunefndar Suður-
Þingeyjarsýslu, stjórnar Bún-
aðarsambands Suður-Þingey-
inga, stjórna búnaðarfélaga og
sveitarstjórna í 6 hreppum Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, landeigenda
í Laxárdal, veiðiréttareigenda í
Laxá í Aðaldal, og meirihluta
Alþingiskjósenda í Aðaldæla-
hreppi.
Á þessu stigi málsins getur
nefndin ekki skilað ítarlegri né
rökstuddri greinargerð um öll
hin fjölþættu áhrif, sem óttast
er að fyrirhuguð Gljúfurvers-
virkjun geti haft á búskapar-
aðstöðu og náttúrufar í Suður-
Þingeyjarsýslu. Til slíks þyrfti
víðtækar rannsóknir, sem yrðu
að ná yfir nokkurn tíma.
Þrátt fyrir þetta vill nefndin
végna tilmæla landbúnaðar- og
raforkumálaráðherra benda á
eftirfarandi atriði:
1. í þeim 6 hreppum í Suður-
Þingeyjarsýslu, sem fyrirhugað
ar breytingar á vatnasvæðum
Laxár og Skjálfsndafljóts
snerta, búa nú yfir 300 bændur
og gætu breytingarnar haft
áhrif á hag flestra þeirra beint
eða óbeint. ■
2. Vatnasvæði Skjálfanda-
fljóts nær til Aðaldæla, Reyk-
dæla, Ljósavatns og Bárðdæla-
hrepps. Skjálfandafljót er fisk-
gengt frá sjó um 30 km. veg
fram að fossum við Þingey, á
því svæði hefur silungsveiði og
nokkur laxveiði verið stunduð
frá ómunatíð fyrir landi fjöl-
margra jarða. Með því að gera
laxgengt fram fyrir fossa bætist
við allt að 60 km. vatnasvæði í
Bárðardal. Slík fiskvegargerð
er ekki talin kostnaðarsöm og
þegar hefur verið kosin nefnd
veiðiréttareigenda, sem vinnur
að undirbúningi fyrir stofnun
veiði- og fiskræktarfélags fyrir
allt vatnasvæðið. Skjálfanda-
fljót er jökulá mjög blandað
bergvatni og verður alltært
þegar jökulleysingar éru litlar.
Svartá með Suðurá eru megin
bergvatnsárnar, sem falla í
Skjálfandafljót. Það er kunnugt
frá fornu fari að veiðin í Skjálf
andafljóti, hvort sem stunduð
var með netum eða stangveiði,
var við það bundin að fljótið
væri hreint, það er að berg-
vatn væri þar yfirgnæfandi.
(Eftir vatnamælingum í októ-
ber 1955 var vatnsmagn Svarár
hjá Bjarnastöðum 19.6—20.0
m3/sek. á móti 55—57 m3/sek.
heildarvatni í Skjálfandafljóti
hjá Fosshóli á sama tíma. Sam-
anber „íslenzk vötn.“). Það
verður því að líta svo á, að berg
vatnið í Skjálfandafljóti sé al-
ger grundvöllur fyrir möguleik
um til velheppnaðrar fiskrækt-
ar í því.
Ráðgerðir flutningar vatns úr
Svartá og Suðurá mundu eyði-
leggja Svartá og Svartárvatn
sem veiðivötn og því leggja í
eyði Svartárkot, sem er mikil-
vægur útvörður byggðar í Bárð
ardal. í Svartá eru heimilisraf-
stöðvar, sem verðmætar eru
fyrir viðkomandi bæi.
3. Við lítum svo á að það sé
engan veginn nægilega rann-
sakað hvaða áhrif fyrirhugaðir
vatnaflutningar af Skjálfanda-
fljótssvæðinu um Mývatnssveit
í Mývatn og síðan Laxá kunna
að hafa á engja- og beitilönd í
Mývatnssveit og Mývatn sjálft
og náttúruauðlindir þess. Eða á
hinn bóginn hvað það mundi
kosta að koma vatninu aðrar og
hættuminni leið í Laxá. Við telj
um, að það sé á allan hátt óverj
andi að stofna í voða náttúru-
auðlindum þeim, sem bundnar
eru Mývatni, þær eru sérstæðar
og óbætanlegar. Margir óttast
að með auknum sandburði yrði
vinnsla kísilleðju af botni Mý-
vatns torvelduð og rekstri Kísil
iðjunnar stefnt í voða.
4. Fyrirhuguð stífla í Laxár-
dal, 57 m. að hæð, leggur undir
vatn nær öll ræktunarlönd
þeirra 12 lögbýla, sem þar eru
nú og færu þau því í eyði og
fólkið, sem þar býr, á milli 50
og 60 manns, yrði að hverfa
þaðan.
Mikil skilyrði eru til fiskrækt
ar í Laxárdal, og engar líkur
eru til annars, en að með fisk-
vegi, sem væri tiltölulega ódýrt
að gera upp fyrir Laxárgljúfur,
mætti gera þann 30 km. langa
kafla af Laxá, sem þá bættist
við að allt eins verðmætri lax-
veiðiá, og neðri hluti hennar er
nú. Með laxgengd fram í Laxár
dal opnaðist einnig leið fyrir lax
í Mývatn og Kráká.
5. Laxá í Aðaldal er sem
kunnugt er ein af allra kunn-
ustu og verðmætustu laxám
landsins og jafnvel í allri
Evrópu. Fegurð hennar og
stærð laxastofnsins, er það sem
gefur henni mest gildi og að-
dráttarafl, og benda allar líkur
til, að í framtíðinni verði það
jafnvel ennþá meira metið en
nú er.
Óttast er að svo mjög aukið
vatn í Laxá samfara vatnsmiðl-
un, sem fyrirhuguð er, kunni að
hafa í för með sér grundvallar-
breytingar á hrygningar-, eldis-
og veiðiskilyrðum í ánni.
Viðurkennt er af okkar helztu
kunnáttumönnum, að ekki sé
unnt að segja fyrir um þessi
áhrif nema að undangengnum
og víðtækum vatna- og líffræði
legum rannsóknum.
Þá óttast menn að nefnd
vatnsaukning spilli bæði gróður
fari og ræktunarlöndum við
Laxá og meðfram henni, og
dragi úr náttúrufegurð með-
fram Laxá.
Kunnugir telja að vatnsaukn
ingin i Laxá mundi skapa stór-
aukna flóðahættur í Aðaldal. En
vetrarflóð og vorflóð („Framan
vötn“) sem skapast af jakastífl-
um í Laxá eru illræmd frá
fornu fari, og hafa tíðum valdið
búsifjum. í slíkum flóðum er
hrygningarstöðvum og laxaseið
um mjög hætt.
Toppmiðlun með auknu
rennsli mundi að okkar dómi
stórauka á ísmyndun neðan
virkjunarinnar, í miklum frosta
vetrum gætu slíkar ísmyndanir
stíflað ána og lagt dalinn undir
ís og tortímt seiðum ánni til
mikils hnekkis.
Við teljum þær áætlanir yfir
breytingar á vatnsborði í Laxá
byggðar á of takmörkuðum for-
sendum, enda þær tölur, sem
nefndar hafa verið gefnar upp
sem meðaltalstölur og gefa því
litla mynd af áhrifum vatna-
breytinganna í einstökum til-
fellum.
Nefna má að lengri tíma
þyrfti til að kanna það hvaða
áhrif hraunið meðfram Laxá
hefur á viðvarandi breytingar á
vatnsborðinu. Hin mikla og
djúpa uppistaða í Laxárdal mun
verða þess valdandi, að áin hitn
ar seinna á sumrin, og má því
búast við að göngu laxins
seinki, gróður í ánni minnki og
uppeldisskilyrði versni.
Ekki verður hjá því komist að
benda á þá hættu, sem fyrirhug
uð stíflugerð hefur í för með sér
fyrir fólk og byggð í Aðaldal.
Benda má á, að af hafa hlotizt
stórkostlegar slysfarir erlendis,
er slíkar stíflur hafa brostið.
Hér yrði þetta þó þeim mun
ótryggara, þar sem berggrunn-
ur er ótraustari á því land-
skjálfta- og eldhraunasvæði,
sem fyrirhugað er að stífla í
Laxárgljúfri. En engin hliðstæð
stífla hefur enn verið gerð hér
á landi og því engin reynsla af
slíkri mannvirkjagerð við hér-
lendar aðstæður.
6. Aukið vatnsmagn í Laxá
mun valda tjóni í Reykjahreppi
einkum á Laxamýri, þar sem
áveituengjar, bithagi og varp-
lönd hljóta að vera í hættu, auk
væntanlegs tjóns á laxveiði
vegna flóða, sem áður er lýst
fyrir Aðaldal.
Ljóst ætti að vera að þau
vatnasvæði, sem hér um ræðir
geta orðið undirstaða undir
margra tuga milljóna króna ár-
lega gjaldeyrisöflun, ef árnar fá
að halda sínu náttúrulega
rennsli og fiskræktarmöguleik-
ar þeirra verði nýttir á æski-
legasta hátt.
Við óttumst hins vegar að
framkvæmdir þessar geti orðið
til að rýra stórlega þessa og
aðra verðmæta aðstöðu byggð-
anna.
Ekki er unnt að meta hve
brýnar eða æskilegar þessar
fyrirhuguðu virkjunarfram-
kvæmdir eru nema að fyrir
liggi til samanburðar upplýs-
ingar um það hvaða annarra
kosta sé völ um orkuöflun fyrir
þetta svæði. Til dæmis það hve
hagkvæmt væri að virkja ca.
12.500 kw. virkjun í Laxárgljúfr
um með 18—20 m. hárri stíflu,
og hve lengi sú virkjun mundi
geta fullnægt orkuþörf svæðis-
ins, eða hve stóra og hagkvæma
virkjun mætti gera efst í Laxár
dal með falli úr Mývatni.
En hitt er fullljóst að í þær
áætlanir, sem kynntar hafa ver
ið, vantar alla þá liði, sem óhjá-
kvæmilega hljóta að bætast við
vegna bóta fyrir náttúruspjöll
og skerta landkosti og ráðstaf-
anir til að draga úr þeim, og
hljóta þær áætlanir, sem ekki
taka tillit til þessa, að vera hald
lausar.
Ljóst er að hér á landi hafa
aldrei verið gerðar né fyrir-
hugaðar virkjunarframkvæmd-
ir, sem hafa í för með sér svo
stórfellda röskun á heilu fjöl-
byggðu héraði, sem þessar fyrir
huguðu virkjunarframkvæmdir
við Laxá. Á þetta mál má því
líta sem prófmál á það hver sé
réttur landeigenda og héraðs-
búa, þeirra, sem vilja nýta gæði
héraðsins, þjóðinni til heilla,
gagnvart óskum annarra byggð
arlaga um það að fá að nýta
fallvötnin einhæft til orkufram-
leiðslu.
Kunnugt er að Þingeyjar-
sýsla hefur sérstöðu umfram
ýms önnur byggðarlög hér á
landi, hvað snertir fjölbreyttni
í margbreytilegri náttúrufegurð,
auðlegð kostarikra veiðivatna,
sem auðvelt er að rækta og
hverskonar hagnýtingu hinna
fjölbreytilegu framtíðarmögu-
leika til aukins ferðamanna-
straums og gjaldeyrisöflunar
fyrir þjóðarbúið.
Nýting þessara möguleika
gæti þjóðhagslega séð verið hag
kvæmrai en raforkuvinnsla,
sem leiðir af sér óbætanleg
náttúruspjöll í stóru landbún-
aðarhéraði, sem á augljósan og
skýlausan rétt á því að hagnýta
sem bezt auðlindir sínar til batn
andi afkomumöguleika í fram-
tíðinni.
Lítt rannsökuð framkvæmda
áform, sem stefnt er gegn eðli-
legri þróun þingeyskra byggða,
án þess að almennings og þjóð-
arhagur krefjist, er að okkar
áliti mikill ábyrgðarhluti.
Skoðun okkar er líka sú, að
fyrirhuguð Gljúfurversvirkjun
muni reynast óhagkvæmari,
þegar allt er krufið til mergjar,
en ýmsir aðrir tiltækir virkj-
unarmöguleikar á Laxársvæð-
inu og Norðausturlandi.
Ljóst er, að mjög erfitt er að
segja fyrir um hagkvæmni
virkjunarinnar að 10—15 árum
liðnum, áður en reynsla er feng
in fyrir hugsanlegri hagkvæmni
gufu- og kjarnorkuvirkjana.
Mætti hins vegar telja líklegt,
að aðeins 12.500 kw. virkjun
mundi geta gefið ódýrasta raf-
orku næstu árin.
Það er því að okkar áliti alltof
viðurhlutamikið, að ákveða
virkjunarframkvæmdir til svo
langs tíma, sem hér er ráðgert,
ekki sízt með tilliti til þeirra
miklu náttúruspjalla og byggða
röskunar, er væntanleg Gljúfur
versvirkjun mundi hafa í för
með sér. Ber eins að hafa í
huga, hve sáralítill rluti lands-
ins er vaxinn gróðri, sem þjóð-
inni ber skylda til að varðveita
á sama hátt og sjálfa lands-
byggðina.
Að síðustu teljum við, að
fremur beri að virða rétt og
vilja Þingeyinga sjálfra, varð-
andi fyrirhugaðar virkjunar-
framkvæmdir á þeirra eigin
landi, en utanhéraðsmanna er
virðast telja sér heimilt að slá
einskonar eign sinni á mikils-
ORÐSENDING TIL
BÆJARRÁÐS AKUREYRAR
Nú er búið að malbika Hörgár-
braut að gatnamótum Höfðahlíð
ar og eru akreinar tvær með
malbikuðum gangstéttum
beggja megin og þrem grasgeir-
um á milli, sem verið er að
ganga frá. Ennfremur er búið
að malbika Höfðahlíð upp að
útibúi KEA og Skarðshlíð norð
urúr. Er þetta gott verk, sem
lengi hefur verið beðið eftir og
mikill þrifnaður að.
Annað verkefni þolir nú
enga bið og Akureyrarbær á
að sjá um framkvæmd á og
kosta, samkvæmt skilmálum, er
gerðir voru við eigendur Skarðs
hlíðar 8—12. Önnur grein samn
ingsins er svohljóðandi:
íbúðirnar verða seldar að öllu
leyti fullfrágengnar samkvæmt
verðustu framtíðarverðmæti
fjölbýlla byggðarlaga, gegn
skýrum ákvæðum gildandi
vatnalaga og friðhelgi eignar-
réttarins samkvæmt stjórnar-
skránni.
Að þessu athuguðu berum við
fram þá ósk, að tekið verði fullt
tillit til þeirra tilmæla okkar,
sem okkur hefur verið falið að
bera fram fyrir hönd héraðsins,
við háttvirtan landbúnaðar- og
raforkumálaráðherra, að okkar
fögru og kostríku byggðarlög-
um verði þyrmt við þeirri óbæt
anlegu limlestingu, er af Gljúf-
urversvirkjun gæti hlotizt, ef
hún yrði framkvæmd eins og
ráðgert er.
Mundi slíkt verða öllum hlut-
aðeigendum til mesta sóma og
koma í veg fyrir lítt æskileg og
hugsanleg stórátök vegna þess-
ara framkvæmda, verði þess
freistað að knýja þær fram í
andstöðu við hlutaðeigandi
byggðarlög í Þingeyjarsýslu, en
ljóst er að hér yrði um stórkost
legustu og róttækustu fram-
kvæmdir að ræða gagnvart einu
byggðarlagi er átt hafa sér stað
hér á landi.
En hvað sem öllum bollalegg-
ingum um framkvæmdir við
Laxá líður stendur eitt óhaggað
og óumdeilanlegt frá okkar
sjónarmiði, að Þingeyingar og
Þingeyjarsýsla hafa átt frá
ómunatíð fram á þennan dag
hið dýrmætasta sköpunarverk
— Mývatnssveit og Laxá.
Þetta mikla meistaraverk guð
legrar náttúru er bæði héraðs-
búum og þjóðarheildinni jafn
skylt að varðveita í sinni upp-
haflegu mynd til ókomins tíma,
a. m. k. þangað til að augu
mannsins vilja ekki lengur sjá
annað en ímyndaðan peninga-
ágóða í snoturlegum búningi út
reiknáðira áætlanagerða á skrif-
borði.
í þessu efni stendur þó enn
óhaggað hinn sígildi gullvægi
málsháttur: „Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur.“
Því viljum við á alvöruþrung
inn hátt vara við afleiðingum af
ráðgerðri Gljúfurversvirkjun.
Staddir í Reykjavík,
4. september 1969.
Hermóður Guðmundsson,
Sigurður Jónsson,
Vigfús B. Jónsson,
Sigurður Þórisson,
Teitur Björnsson.
uppdráttum og byggingarsam-
þykkt, með skápum og innrétt-
ingum, dúklagðar og málaðar.
Húsið verður múrhúðað utan
og málað, lóð jöfnuð og sáð í
hana grasfræi og innaksturs-
svæði og bifreiðastæði púkkað
o. s. frv.
Nú erum við, í austurhelm-
ingi hússins, búnir að búa í hús
inu í þrjú ár og ekkert verið
hreyft við lóðinni, þrátt fyrir
margar fyrirspurnir og viðtöl.
í júlí í sumar minnir mig,
skrifuðum við, allir eigendur,
bæjarráði mjög hógvært bréf
og fórum fram á, að gengið
væri frá lóðinni norðan við hús
ið, þar sem innakstur, gang-
braut og bílastæði á að vera, en
jöfnun og sáning yrði látin bíða
til næsta sumars, þar sem við
vissum, að bærinn hafði í mörg
horn að líta.
Vilja kristinfræðikennslu í framhaldsbekkjum
TÍUNDI aðalfundur Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Hóla-
stifti var haldinn í Sumarbúð-
unum að Vestmannsvatni dag-
ana 13. og 14. sept. sl.
Sambandið var stofnað í
kapellu Akureyrarkirkju 18.
okt. 1959 á aðalfundi í Presta-
félagi Hólastiftis, en þó voru
starfandi fjögur æskulýðsfélög
norðanlands. Fyrsta verk ÆSK
var að beita sér fyrir auknu
sumarbúðastarfi, en þá voru
sumarbúðir að Löngumýri í
Skagafirði, og tók sambandið
þátt í því starfi. Árið 1961 var
hafizt handa um byggingu
nýrra sumarbúða við Vest-
mannsvatn í Aðaldal, og þær
vígðar af biskupi íslands, herra
Sigurbirni Einarssyni, 28. júní
1964. Húsameistari var Jón Geir
Ágústsson byggingafulltrúi Ak-
ureyrar, en formaður sumar-
búðanefndar frá upphafi hefir
verið Sigurður Guðmundsson
prófastur.
Árlega hafa farið fram mót
fermingarbarna, námskeið fyrir
foringja æskulýðsfélaganna og
mót fyrir félaga. Fyrir hver jól
hefir sambandið gefið út jóla-
kort, og tekið þátt í almennum
æskulýðsdegi 1. sunnudag í
marz. Gefnar haf^verið út tvær
hljómplötur í samvinnu við
„Fálkann“ í Reykjavík. Þá hefir
ÆSK efnt til samkeppni meðal
skólanemanda, og í sumar var
ljóðasamkeppni í tilefni 10 ára
afmælisins. Úrslit í þeirri
keppni urðu þau, að þrjú beztu
ljóðin voru eftir þessa höfunda:
Pétur Sigurðsson erindreka,
Reykjavík, Kristján frá Djúpa-
læk og Gunnlaug Hjálmarsson,
Akranesi.
ÆSK hefir í samvinnu við
Hólafélagið hafið undirbúning
að stofnun heimavistarskóla
kirkjunnar að Hólum í Hjalta-
dal. Ætlunin er, að skólinn
verði fyrst starfræktur í sumar
búðunum, þar sem þegar eru
þar fyrir hendi húsakynni til að
byrja skólahald. í sumar voru
fjögur námskeið fyrir börn, en
auk þess sumardvöl fyrir aldr-
að fólk í samvinnu við EIli- og
hjúkrunarheimilið Grund í
Reykjavík, og færði Gísli Sigur
björnsson forstjóri sambandinu
að gjöf „sólarmerki", sem eiga
að seljast til að hjálpa öldruðu
fólki að njóta sumarsins með
dvöl á Vestmannsvatni og víðar
í landinu.
Eitt æskulýðsfélag var stofn-
að á sl. ári þann 8. des., Æsku-
lýðsfélag Þingeyrarklausturs,
Eins og gefur að skilja viljum
við ekki við una vanræksl-
una lengur og búa við þann
mikla óþrifnað, sem þessi van-
ræksla veldur okkur.
Ég leyfi mér að fara fram á
það, fyrir hönd okkar húseig-
enda, að framanskráðar fram-
kvæmdir verði gerðar án tafar.
Nægilega lengi höfum við beðið
og lengur en sæmilegt er. Ég
leyfi mér að átelja, að bæjarráð
hefur ekki svarað áðurnefndu
bréfi okkar þótt liðið sé á þriðja
mánuð síðan það var sent, en
mér finnst það sjálfsögð skylda
af opinberum aðilum, hvernig
sem svarið verður.
Virðingarfyllst.
28. sept. 1969.
Loftur Meldal,
Skarðshlíð 10 C.
með 24 félögum. Ráðgjafar eru
Kristinn Pálsson kennari og
hvatamaður að stofnun félags-
ins séra Árni Sigurðsson á
Blönduósi. Er þá 9 starfandi fé-
lög í sambandinu. Á liðnum 10
árum hefir stjórnin haldið 42
fundi.
Gjaldkeri stjórnarinnar, séra
Sigurður Guðmundsson, lagði
fram reikninga sambandsins, er
nema tæpum 5 milljónum
Sumarbúðirnar við Vestmannsvatn.
króna. Er þar stærsti þátturinn
kostnaður sumarbúðanna. ÆSK
skuldar nú % þeirrar upphæð-
ar. Skýrslu um rekstur sumars.
ins gaf sumarbúðastjórinn,
Gunnar Rafn Jónsson stud.
med. Um Æskulýðsblaðið töl-
uðu ritstjórinn séra Bolli Gúst-
avsson og Guðmundur Garðar
Arthúrsson, er lagði fram reikn
inga blaðsins. Frá útgáfuráði tal
aði Gunnlaugur Kristinsson full
trúi, og fyrir hönd bréfaskólans
(Framhald af blaðsíðu 1).
fyrir okkur hægt og hægt,
kanna jarðveginn sem bezt, og
byggja traust á þjóðlegum
grunni, svo að hér rísi íslenzk-
ur skóli, hold af okkar holdi og
bein af okkar beinum, nátengd-
ur lífi og sögu okkar íslend-
inga.“ Sr. Ásmundur lagði
áherzlu á það, að skólinn skyldi
starfa í anda þjóðrækni og
kristilegs siðgæðis, og eftir-
menn hans leituðust við að
fylgja sömu stefnu.
Er sr. Ásmundur hvarf frá
skólanum árið 1928, tók við af
honum sr. Jakob Kristinsson,
síðar fræðslumálastjóri, og var
hann skólastjóri um 10 ára
skeið m. a. á tímum kreppu og
margvíslegra erfiðleika. Síðan
tekur við Þórarinn Þórarinsson,
en hann hefur starfað lengst
allra manna við skóla á Eiðum,
eða 35 ár samfleytt, þar af 27 ár
sem skólastjóri. Þórarinn lét af
stjórn árið 1965 og tók þá við
Þorkell St. Ellertsson, sem nú
stýrir skólanum.
Alþýðuskólinn á Eiðum var í
upphafi sniðinn nokkuð eftir
erlendum lýðháskólum og var
VETRARSTARFSEMI
Bridgefél. að hef jast
AÐALFUNDUR Bridgefélags
Akureyrar var haldinn sl.
þriðjudag. — Stjórn félagsins
skipa: Mikael Jónsson, Angan-
týr ■ Jóhannsson, Sveinbjörn
Jónsson, Jóhann Helgason og
Rósa Sigurðardóttir.
Fyrsta keppni félagsins verð-
ur tvímenningskeppni, sem
hefst þriðjudaginn 7. okt. n. k.
kl. 8 síðdegis. Verða spilaðar 4
umferðir og fer keppnin fram að
Bjargi.
Þorvaldur Kristinsson. Gunn-
laugur afhenti sumarbúðunum
kr. 38.500.00 frá útgáfunni, sem
er ágóði af bók Jennu og Hreið-
ars: Bítlar eða Bláklukkur.
Aðalmál fundarins var: Ferm
ingin og undirbúningur hennar.
Frummælendur voru Hrefna
Torfadóttir, Akureyri og séra
Þórir Stephensen, Sauðárkróki.
Samþykkt var svohljóðandi til-
laga um þetta mál:
„10. aðalfundur ÆSK haldinn
á Vestmannsvatni vekur athygli
á hinu mikla gildi fermingar-
undirbúningsins, og leggur ríka
áherzlu á að hann sé vel rækt-
ur. Fundurinn telur bókakost
þann, er fermingarfræðarar
eiga nú kost á ófullnægjandi og
leggur til að nýjar bækur verði
reyndar, er séu aðgengilegri,
þannig að þær t. d. setji trúar-
skoðanir fram á ákveðnari hátt
og veiti örugga leiðsögn til trú-
þá tveggja ára skóli. Síðan hafa
þar verið gerðar ýmsar breyt-
ingar á til samræmis við hið is-
lenzka skólakerfí, og er nú starf
ræktur þar fjögurra ára gagn-
fræðaskóli með um 120 nem-
endum. Á undanförnum árum
hafa staðið yfir miklar bygg-
ingaframkvæmdir á Eiðum og
verða ný og glæsileg húsakynni
skólans formlega tekin í notkun
á þessu hausti,
Við skólasetningu þann 5.
okt. n. k., klukkan 15.00, verð-
ur 50 ára afmælis Alþýðuskól-
ans á Eiðum minnzt með hátíð-
legri athöfn í nýjum samkomu-
sal skólans. Þangað eru vel-
- Stóraukin framl. SÍS
(Framhald af blaðsíðu 1)
frá áramótum en allt árið í
fyrra, en eins og kunnugt er,
er framleitt mikið af Heklu-
peysum fyrir Rússlandsmarkað
og er það þó aðeins einn þáttur
framleiðslunnar.
Eftir endurbyggingu þeirra
SÍS-verksmiðja, er brunnu og
öllum er í fersku minni, eflast
þær mjög og munu stórauka
afköstin í öllum framleiðslu-
greinum, auk nýrra, sem ýmist
eru á tilraunastigi eða athug-
unar. □
- BYGGJUM ENN...
(Framhald af blaðsíðu 8).
hæli af grunni. En sigrar þeir,
sem síðan hafa unnizt ættu að
vera þess virði að við, sem ver-
ið höfum vitni að þeim, leggj-
um með ánægju af mörkum
okkar skerf, þegar liðveizlu er
leitað.
Jórunn Olafsdóttir
frá Sörlastöðum.
ar og bænalífs einstaklingsins.
Þetta ætti að stuðla mjög að því
að efla hið trúarlega gildi ferm-
ingarinnar. Einnig þurfa nem-
endur að eiga kost á öðrum bók
um til sjálfsnáms. Síðast en ekki
sízt vekur fundurinn athygli á
þeim stóra þætti, sem heimilin
hljóta að eiga í fermingarundir-
búningi með því að fylgjast með
heimanámi og að fylgja unga
fólkinu til kirkjunnar."
Samþykkt var eftirfarandi
áskorun:
Skorað var á hið háa Alþingi
að samþykkja þegar á næsta
þingi frumvarp um prestakalla-
skipun og kristnisjóð, sem m. a.
gerir ráð fyrir öðrum æskulýðs
fulltrúa, og verði hann staðsett-
ur á Norðurlandi, og þingmenn
kjördæmanna þar beðnir um að
vinna ötullega að því.
Stjórnendur fjölmiðlunar-
tækja voru minntir á þau miklu
áhrif, sem þau sem slík hafa á
mótun hinna ungu og þá ábyrgð
er því fylgir, og að efnisval
þurfi að vanda sem mest.
Fundurinn áleit nauðsynlegt
vera, að þjóð, sem kennir sig
við kristna menningu og byggir
á lífssannindum kristindómsins,
hafi kristinfræði í öllum bekkj-
um framhaldsskólanna sem
skyldunám allt að stúdentsprófi
svo sem reglugerð mælir fyrir
um.
Þessir voru kosnir í stjórn
ÆSK til tveggja næstu ára: For
maður séra Sigurður Guð-
mundsson, séra Þórir Stephen-
sen, séra Birgir Snæbjörnsson,
Ingibjörg Siglaugsdóttir og Pét
ur Þórarinsson. — f varastjórn:
Séra Bolli Gústavsson, séra Þór
hallur Höskuldsson og Guð-
mundur Garðar Arthúrsson.
endur, kennarar og annað starfs
fólk, svo og vinir og velunnarar
skólans. Er þess vænzt, að fjöl-
menni verði og gefst þá væntan
lega tækifæri til að hitta gömul
skólasystkin og starfsfélaga og
eiga með þeim góða stund. Q
ALLA VIKUNA
ódýrt í matinn:
-K KJÖTBÚÐINGUR
-K KJÖTFARS
* FISKFARS
-K NAUTAHAKK
Seinna í vikunni:
-K Nýtt ÆRHAKK
-K Léttsaltað DILKA-
KJÖT
-K GULRÓFUR
-K Söltuð RÚLLU-
PYLSA
-K ÁLEGG
-K SALÖT
K j ötmarkaðsverð.
STJARNAN
KJÖTMARKAÐUR
Lundargötu( rétt við
Strandgötu),
sími 2-16-47.
(Ljósm.: G. P. K.)
(Úr fréttabréfi frá ÆSK)
- ALÞÝÐUSKÓLINN Á EIÐUM FIMMTÍU ÁRA
komnir allir gamlir og nýir nem