Dagur - 01.10.1969, Qupperneq 8
&MÁTT & STÓRT
Á SUNNUDAGINN kemur,
þann 5. okt. n. k., er Berkla-
varnardagurinn, verða þá sem
endranær seld merki dagsins
og blaðið Reykjalundur, til
styrktar starfsemi SÍBS.
En samkvæmt samþykkt, sem
gerð var á 16. þingi SÍBS haust
ið 1968, þá eiga nú sambands-
deildirnar á Kristneshæli, Vífil-
stöðum og Reykjalundi að njóta
sjálfar þess fjár, sem inn kemur
á Berklavarnardegi nú í haust
— og eftirleiðis.
Sjálfsvörn, félag berkla- og
brjóstholssjúklinga í Kristnes-
hæli, hefur á liðnum árum ann-
azt um sölu blaðs og merkja á
Berklavarnardaginn, á nokkr-
um svæðum s. s. í hælinu og
nágrenni þess, hreppunum
þremur framan Akureyrar, svo
og í Kræklingahlíð, Hörgárdal
og Öxnadal og hin síðustu ár
einnig í Fnjóskadal og Ljósa-
vatnsskarði. Hafa undirtektir
yfirleitt verið góðar og víða hin
ar prýðilegustu. Margir hafa
Þórshöfn 29. sept. Féð er ágæt-
lega vænt að þessu sinni. Meðal
vigt það sem af er sláturtíð
nokkuð á 17. kg. Hér var 420
dilkum frá Svalbarði lógað og
var meðalvigtin 16.2 kg. 250
dilkar frá Syðra-Álandi jöfn-
uðu sig upp með tæp 18 kg. og
HEYRNIN DAPRAST
LOKS virðist hávaði á vinnu-
stöðum talinn hættulegur heilsu
xnanna hér á landi. Ileilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur telur menn
farna að tapa heyrn eftir
tveggja ára nám í vélsmíði og
plötusmíði. Þá eru hljómsveitir
ekki hættulausar í þessu efni,
og er furðulegt, að ærandi og
óþolandi hávaði þeirra, skuli
'leyfður ár eftir ár. □
„BÓRN yngri en 12 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 20 á tímabilinu frá 1. októ
ber til 1 maí og ekki seinna en
kl. 22 frá 1. maí til 1. október
nema í fylgd með fullorðnum
vandamönnum.
Börn frá 12—14 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 22 á tímabilinu frá 1. októ
ber til 1. maí og ekki seinna en
sýnt málefninu, sem verið var
að vinna fyrir mikinn skilning
með myndarlegum framlögurh
og þá einnig með hlýrri alúð í
garð sölufólks. Ennfremur hafa
margir innt af höndum mikla
vinnu í sambandi við söluferðir
o. fl. Öllum þeim, sem þannig
hafa við brugðizt, skulu fluttar
beztu þakkir.
Innan fárra daga mun enn
fetað í hina sömu slóð — og nú
til þess að safna fé, sem ekki
rennur út úr héraðinu, heldur
gengur beint til góðra hluta inn
an þess, Uppbygging vinnustofa
í Kristnesi er aðkallandi — og
hafa unnendur þess máls fullan
hug á að söínunarfé Berkla-
varnardagsins, sem inn kemur
á vegum deildarinnar í Krist-
nesi, verði vísir að því, sem
koma verður. Gott málefni er
þess verðugt að því veitist sig-
ur. Það væri vel, að þessa yrði
minnzt sem víðast, og nú að því
er næst liggur — á sunnudag-
inn kemur, þegar sendimenn
fór aðeins einn skrokkur í ann-
an flokk. Þá er þess enn að
geta, að á föstudaginn var 500
dilkum lógað frá Ytra- og
Syðra-Álandi og var 21 kropp-
ur með 23 kg. þunga.
Nú standa yfir aðrar göngur
á sumum stöðum en er lokið á
öðrum.
Slátrun lýkur 16. október.
Sláturfjártalan er alls 10456.
45—50 manns vinna við slátur-
húsið.
Heyskaparlok urðu mjög hag
stæð hér um slóðir og heyforð-
inn viðunandi. — Nú er aðeins
föl á jörðu.
Nýr kaupfélagsstjóri er hing-
að kominn í stað Gísla R. Pét-
urssonar, sem óskaði að hætta
og fluttist suður. Nýi kaup-
félagsstjórinn er Bjarni Aðal-
geirsson frá Húsavík. Ó. H.
kl. 23 frá 1. maí til 1. október,
nema í fylgd með fullorðnum
vandamönnum.
Þegar sérstaklega stendur á
getur bæjarstjórn sett til bráða
birgða strangari reglur um úti-
vist barna allt að 16 ára aldri.
Foreldrar og húsbændur barn
anna skulu að viðlögðum sekt-
um sjá um, að ákvæðum þess-
um sé framfylgt.“ Q
frá Sjálfsvörn, Kristneshæli
kveðja dyra með blaðið Reykja
lund og merkin, sem á er letruð
sú eggjun að „styðja sjúka til
sjálfsbjargar.“ Það mun hverj-
um gæfa að ganga þar til liðs.
Kristneshæli, sem var stórvirki
sinnar tíðar var reist fyrst og
fremst fyrir skilning og fórnir
fjöldans. Látum sjá, að enn sé
fyrir hendi skilningur og örlæti
þegar þessi stofnun á í hlut. —
Kvöl hins hvíta dauða brenn-
ir ekki lengur. Það var hún sem
öllu framar knúði fram hin
stóru tök, sem reistu Kristnes-
(Framhald á blaðsíðu 5).
ÞRÍR barnaskólar bæjarins
hófu starf urn miðjan september
af fullum krafti og eru þar 1340
börn, er skiptast þannig milli
skólanna: í Barnaskóla Akur-
eyrar eru 740 börn, í Oddeyrar-
skóla 470 börn og í Glerárskóla
130 börn.
Menntaskólinn og Gagnfræða
skólinn verða báðir settir í dag.
í Menntaskólanum verða mikið
LfTIÐ UM GÆSIR
Úr Þjórsárverum, aðal varp-
stöðvum gæsanna hér á landi,
berast þær fregnir og hafðar
eftir gangnamönnum, að þar
hafi mikið verið af dauðum gæs
arungum. Veldur eflaust ill
veðrátta fæðuskorti og er talið,
að gæsirnar hafi bókstaflega
hrunið niður. Berast nú litlar
fregnir af ágangi gæsa í tún og
akra, svo sem verið hefur und-
anfarin ár.
KVEÐJA DANÍEL
Vinir Daníels læknis á Húsa-
vík hafa nú haldið honum skiln
aðarhóf. Er blaðinu tjáð, að
læknirinn flytji til Neskaupstað
ar og sé ráðinn sjúkrahúslækn-
ir þar. Er eftirsjá að góðiun
lækni úr Þingeyjarsýslu, en
enn verra að búa lengur við
óleyst deilumál um þennan
sama lækni, er staðið liafa um
hríð og verið h&rð. Er þess nú
að vænta að þetta skarð verði
fyllt með ráðningu nýs skurð-
læknis og sár af harðri baráttu
grói sem fyrst.
NÝR HÆTTUSTAÐUR
Ný umferðarhætta hefur skap-
azt við Glerárbrú. En þar hefur
nú verið malbikað bæði norðan
og sunnan og eru akreinar tvö-
faldar að brúnni. En aumingja
Glerárbrú, þetta þarfa og mynd
arlega mannvirki, stendur eins
og illa gerður hlutur — skökk
á sjötta hundrað nemendur og
í Gagnfræðaskólanum er nem-
endatalan komin yfir 800.
En auk þessara skóla er Iðn-
skóli, Tónlistarskóli, tækni-
skóla- og vélskóladeildir. Virð-
ist fjölga verulega í skólum
bæjai'ins, og er þar hin sama
þróun o gundanfarin ár í skóla-
bænum Akureyri. Q
við umferðina. Þetta sorgar-
merki um skipulagsleysi í fram
kvæmdum verður að laga hið
allra fyrsta, sennilega með
nýrri brú eða með því að breyta
brúnni til bráðabyrgða, áður en
slys hljótast af nú í haust og
vetur.
UNGBARNABÓKIN
Út er komin hjá Kvöldvökuút-
gáfunni Ungbarnabókin, sem
fyrst kom út í Noregi og hlaut
vinsældir. Um íslenzku útgáf-
una sáu, Halldór Hansen yngri,
Þorgeir Jónsson og Bergsveinn
Ólafsson og hefur slíkrar bókar
verið vant. Bókinni er skipt í
þessa kafla: Vöxtur og þroski,
matarhæfi, meðferð ungbarna,
klæðnaður, leikir og leikföng,
sjúkdómar, heilsugæzla, börn
fædd fyrir tímann, augnsjúk-
dómar, sálarþroski, bólusetning
ar, slys og slysavarnir.
Bók þessi er fróðleg og ætti
ekki að þurfa að minna mæður
og verðandi mæður á, hverjir
hafi hennar helzt not.
ER ÞETTA HÆGT?
Þrír tónlistarmenn hafa nýlega
heimsótt Akureyri og leikið á
hljóðfæri fyrir bæjarbúa. Lék
einn á sembal, annar á orgel og
sá þriðji á píanó. Aðsókn sam-
tals var 150 manns. Ef dæma
má tónlistaráhuga fólks sam-
kvæmt þessu, verður að telja
hann mjög lítinn á þessum svið
um og jafnvel svo, að undarlegt
er, og auk þess dregur það úr
áhuga listamanna að koma hing
að til að flytja tónlist.
S AMTÍNIN GUR
Á nýlokinni hvalveiðivertíð
veiddust 423 hvalir á 120 dög-
um. Gott verð er á afurðunum
og þær veittu 200 manns at-
vinnu.
Hafnfirðingar höfðu skoðana-
könnun um það, hvort leyfa
ætti vínveitingaleyfi í bæ sín-
um. 57% atkvæða studdu vín-
veitingarnar.
Guðmundur G. Hagalín, Thor
Vilhjálmsson, Þorbergur Þórð-
arson, Hannes Pétursson og
Guðmundur Halldórsson hlutu
125 þús. kr. hver úr Rithöfunda
sjóði íslands.
SÍS og Fóðurblandan h.f. hafa
ákveðið kaup á 7 þús. tonnumi
korns frá Frakklandi og lestar
Mælifell farminn bráðlega. Við
þetta lækkar verðið um 10%.
Bygging kornhlöðu er hafin við
Sundahöfn.
Fyrstu tónleikar
T ónlistarf élagsins
Á MÁNUDAGINN KEMUR
verða fyrstu tónleikar Tónlistar
félags Akureyrar í Borgarbíói
á þessu starfsári og hefjast þeir
kl. 9. Þar syngur norski óperu-
söngvarinn Olav Eriksen, einn
kunnasti söngmaður Noregs.
Undirleikari verður Árni Krist-
jánsson.
Styrktarfélagar eru beðnir að
vitja skírteina sinna og aðgöngu
miða í Bókabúðinni Huld og
hefst aðgöngumiðasalan á föstu
daginn. □
Olav Eriksen óperusöngvari.
Góð heyskaparlok og vænt fé
Fjölmennt í skólum bæjarins