Dagur - 22.10.1969, Qupperneq 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
„I sjávðrháska"
Á LANDSFUNDI Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík flutti forsætisráð-
herrann, Bjami Benediktsson, mikla
ræðu. Hann sagði, að stjórn sín hefði
verið „þolinmóð“ stjórn og fleira
hefði liún til síns ágætis. „Við höf-
um því sannarlega unnið til trausts
þjóðarinnar", sagði hann. Samt hefði
Sjálfstæðisflokkurinn misst fylgi í
kosningunum 1967, enda væri kosn-
ingagæfa völt og alltaf yrði einhver
fyrir vonbrigðum. Þetta og fleira í
sarna tón sagði forsætisráðherrann
við flokksmenn sína og rakti raunir
sínar og bætti síðan við:
„Mér er að nokkru á sama veg far-
ið og manni, sem lent liefur með
skip sitt í sjávarháska“.
Hann sagði, að það hefði orðið að
sitja fyrir öllu öðru í seinni tíð, að
bjarga stjórnarskútunni úr sjávar-
háska. Enginn efast heldur um, að
það hafi verið reynt, og ekki aðeins
með því að troða í glufurnar með
því sem fyrir hendi var, heldur
einnig fengnir öflugir dráttarbátar
austan og vestan um haf, hinu nauð-
stadda skipi til lijálpar.
En forsætisráðherrann virðist ekki
hafa gert sér grein fyrir því, hvers
vegna skip hans lenti í sjávarháskan-
um og hvers eðlis sá sjávarháski er,
sem að honum steðjar.
Skútan hans hefur ekki lent í
sjávarháska vegna stórviðris. Sjó-
veðrið undanfarið hefur ekki verið
verra en gengur og gerist hér um
slóðir. Sá sem vill sigla verður alltaf
að gera ráð fyrir úfnum sjó öðm
hverju. Og hann má ekki telja sér
trú um, að öldugjálfur sé sama og
stórsjór.
Forsetisráðherrann er staddur í
sjávarháska vegna þess, að skútan
hans var ekki sjófær. Henni tókst að
vísu að komast leiðar sinnar og sýnd
ist jafnvel ganga greitt í spegilslétt-
um sjó góðærisins. En um leið og
fyrsta skvettan kom inn á þiljur,
sýndi það sig, sem mörgum var ljóst
í öndverðu, að fleytan sú hefði aldrei
átt að fá neitt haffæruskírteini.
Það er alveg sama þótt kapteinn-
inn sé þolinmóður og þrár og vilji
að skipi sínu sé treyst. Flestir aðrir
sjá, að svona skipi á ekki að sigla.
Það er ekki ófyrirsynju að forsætis-
ráðherrann óttast nú, að þjóðin fari
að afskrá fúakláfinn og setja nýtt
skip á flot. □
Greinaroerð um Laxárvirkjunarmálið - frá stjórn
náttúruvernd á!
armálið frá stjórn Samtaka um
náttúruvernd á Norðurlandi
ÞESS hefur verið farið á leit,
að við gerðum opinbera grein
fyrir afstöðu hinna nýstofnuðu
náttúruverndarsamtaka til fyrir
hugaðra virkjunarframkvæmda
í Laxá í Þingeyjarsýslu. Okkur
er vissulega ljúft og skylt að
verða við þessari beiðni, og von
um að okkur auðnist að túlka
sjónarmið félagsins og allra
náttúruverndarmanna í þessu
mikilvæga máli.
1. Það er einróma sjónarmið
stjómarinnar, að Laxá í Þing-
eyjarsýslu, sé með allra mestu
gersemum íslenzkrar náttúru,
og þótt víðar sé leitað. Það værl
því óbætanlegt glapræði, ef
henni eða næsta umhverfi henn
ar yrði spillt á einhvern hátt.
Sama gildir og að sjálfsögðu um,
Mývatn og umhverfi þess. Við
teljum því að virkjunarkostn-
aður megi fyrir engan mun vera
ráðandi um gerð þessara virkj-
unar, heldur verði þar einnig að
taka verulegt tillit til náttúru-
verndarsjónarmiða.
Við viljum einnig vekja at-
hygli á því, að vatnakerfi þetta
er svo verðmætt og arðgæft í
núverandi mynd sinni, að fram-
leiðsla ódýrrar raforku getur
naumast réttlætt skemmdir,
enda byggist afkoma fólks í
fjölbyggðu liéraði nú þegar að
verulegu leiti á því.
Sérstaða vatnakerfisins, Laxá
—Mývatn, birtist okkur í óvana
legu auðugu og ríkulegu lífi
jurta og dýra í því og umhverfis
það, lífi sem á fáar eða engar
hliðstæður í svo norðlægum
löndum, og jafnvel ekki í allri
Evrópu. Þetta mikla lífsmagn
leiðir svo aftur af sérstöðum
eðliseiginleikum þess; vatnið er
mjög næringarríkt lindavatn,
sem síast undan hraununum
suður og austur af Mývatni, og
blandast við laugarvatn, frá
Námafjallssvæðinu. Sem lindar
vatn, er bæði vatnsmagn og hita
stig mjög stöðugt, en þó hitnar
vatnið allmikið á sólríkum sum
ardögum, á leið sinni gegnum
Mývatn, vegna þess hve það er
grunnt. Vegna hins stöðuga
vatnsborðs, eru bakkar vatn-
anna algrónir, og næringar-
auðgi vatnsins eykur grósku
þess gróðurs að miklum mun.
Er þetta eitt augljósasta ein-
kenni vatnakerfisins og það sem
flestum finnst sérlega fagurt.
Næringarkeðja lífsins í vatn-
inu, gengur frá kísilþörungum
og öðrum smásæjum þörung-
um, gegnum smákrabbadýr,
skordýr (mýlirfur) og fiska til
fugla, sem á vatninu lifa. Þessi
næringarkeðja er þó engan veg
inn nógu vel þekkt, né heldur
sjálft eðli vatnsins, og ekki er
þekkingin heldur mikil á íbúum
þess. Þess má geta, að hið fræga
bitmý, klekst einkum í efsta
hluta Laxár, en ekki í sjálfu
Mývatni.
Það lætur að líkum, að lifríki
vatnakerfisins muni vera við-
kvæmt fyrir hvers konar breyt-
ingum á því. Enginn hlekkur
næringarkeðjunnar má bila, þá
eru hinir í hættu. Gildir þetta
að sjálfsögðu um öll vötn, en
hér er óvenju mikið í húfi, ef
illa tekst til.
2. Stjórn náttúruverndarsam-
takanna er grundvallarlega
ekki mótfallin nýjum virkjun-
um í Laxá, enda telur hún að
vel hafi tekizt til með þær, sem
þegar eru komnar. Hins vegar
teljum við augljóst, að hinum
fyrirhuguðu mannvirkjum og
breytingum á Laxá, í sambandi
við svonefnda Gljúfurversvirkji
un, eins og hún er nú áætluð,
og samþykkt af Laxárvirkjunar
stjórn, fylgi svo mikil röskun á
eðli árinnar, að lífi hennar geti
stafað veruleg hætta af því. Það
er skoðun okkar, að ekki beri
að taka þá áhættu, án undan-
genginnar rannsóknar, þ. e.
áður en vitað sé í hverju hætt-
an sé fólgin og hve mikil hún
sé.
Við leyfum okkur að vísa hér
til kynningarfundar, er Laxár-
virkjunarstjórn boðaði til á
Breiðumýri sl. vor, þar sem
m. a. kom fram, að á lokastigi
þessarar virkjunar er áætluð
um 50 m há stífla í Laxárgljúfr-
um, en við hana myndast uppi-
stöðulón, sem nær inn í miðjan
Laxárdal. Lóni þessu er ætlað
margs konar hlutverk, þar á
meðal að miðla vatni milli árs-
tíða, svo og milli tímabila mis-
munandi álags (topþmiðlun).
Toppmiðlunin myndi hafa í för
með sér dagssveiflur á vatns-
borði árinnar, neðan lónsins, en
slíkar dagssveiflur eru nú eng-
ar. Árstíðamiðlun myndi hins'
vegar breyta vatnsborði lónsins
afar mikið, líklega allt að sjö
metrum. Vegna þess hve lónið
er djúpt, myndi það kæla vatn-
ið verulega á sumrum, en auka
hitastig þess framan af vetrin-
um. Það myndi ennfremur taka
við mestum hluta þess fok-
sands og þess slýs, sem Laxá
ber nú með sér. Slýið, sem er
að mestu leiti grænir þörungar,
myndi rotna í lóninu, en nokk-
ur hætta gæti stafað af ófull-
kominni þess (myndun brenni-
steinsvetnis). Sama er að segja
um gróður þann, sem fer á kaf
í lóninu.
í sambandi við Gljúfurvers-
virkjun er fyrirhugað, að veita
Suðurá í Kráká og auka þar
með vatnsmagn Laxár um allt
að þriðjung. Af því leiðir að
sjálfsögðu vatnsborðshækkun,
sem nemur allt að 20 sm. í Aðal
dal, og straumhraði árinnar
eykst einnig nokkuð.
Af þessari upptalningu verð-
ur ljóst, að nokkrum meginein-
kennum árinnar verður breytt
við fyrirhugaða Gljúfurvers-
virkjun, svo sem hitastigi, vatns
borði og sennilega einnig efna-
samsetningu vatnsins. Einnig er
nokkur hætta á að bakkar og
botn árinnar grafist.
Varla verður hjá því komizt,
að álykta, að sú Laxá, sem verð
ur til eftir þessa breytingar er
önnur, en sú sem við þekkjum
í dag, hvað sem annars má
segja um kosti þess nýja vatns-
falls.
3. Það er samdóma álit okkar,
að gera verði ýtarlegar vatns-
fræðilegar (limnologiskar) og
líffræðilegar rannsóknir á vatna
kerfi Laxár og umhverfi þess,
áður en ákvörðun verður tekin
um framhaldsvirkjun í því
formi, sem nú er fyrirhugað,
eða a. m. k. áður en lokastig
þeirrar virkjunar verða ákveð-
in.
Rannsóknir þessar ættu að
miða að tvennu: Annars vegar
að kanna núverandi ástand vatn
anna og lífsins í þeim, hætti líf—
veranna, og samskipti þeirra
innbyrðis og við umhverfi sitt.
Hins vegar, að reyna að finna
út, hvaða áhrif fyrirhugaðar
framkvæmdir hafa á lífsskilyrð
in, og þar með á lífið í vatna-
kerfinu og umhverfi þess. Verði
þar einnig stuðst við reynslu frá
öðrum svipuðum virkjunum,
t. d. úr Fljótum, svo og við sam
bærilegar virkjanir erlendis.
Við teljum að hér sé um svo
mikið verkefni að ræða, að það
verði naumast leyst, nema með
sérstakri rannsóknastöð, er stað
sett yrði við Laxá eða Mývatn.
Niðurstöður þessara rann-
sókna og annarra, er kunna að
verða gerðar, eða hafa þegar
farið fram, ættu síðan að skera
úr um það, hvort ráðist verður
í Gljúfurversvirkjun, eða þau
stig hennar, sem mestri röskun
valda.
Við viljum í þessu sambandi
vísa á tillögu, sem samþykkt
var á ráðstefnu samtakanna á
Laugum sl. vor, og send hefur
verið hlutaðeigandi aðilum. Til-
lagan er efnislega alveg sam-
hljóða því sem hér er rakið.
Það kom greinilega fram á
áðurnefndum kynningarfundi á
Breiðumýri, að rannsóknir slík-
ar sem hér er talað um, hafa
til þessa, engar verið gerðar.
4. Við viljum benda á, að
verði haldið fast við áætlaða.
stífluhæð í Laxárgljúfrum, fer
mikið nytjanlegt land, svo og
ýmis merk náttúrufyrirbæri for
görðum.
Um skemmdii' á ræktuðu og
ræktanlegu landi, svo og á
mannvirkjum öðrum, þarf ekki
að ræða frekar hér, þótt það sé
að okkar dómi eitt alvarlegasta
málið, en ljóst er að aðrir eru
færari til að gera því máli glögg
skil. Þó skal það skýrt fram
tekið, að náttúruvernd nútím-
ans stefnir yfirleitt að skynsam-
legri og hóflegri nytjun lands,
en ekki að eyðingu byggðar eða
búskapar. Þá aðferð Laxár-
vii'kjunarstjórnar, að kaupa
upp jarðirnar í Laxárdalnum,
verðum við því að telja var-
hugarverða, þar sem hún stefn-
ir augljóslega að eyðingu byggð
arinnar þar. Þar sem ekki verð-
ur annað séð, en dalurinn a. m.
k. innri hluti hans, verði þrátt
fyrir lónið allvel byggilegur, og
skilyrði til fiskveiða o. s. frv.,
nokkur, virðist fátt mæla með
réttmæti þessarar stefnu.
Tvö hraun hafa runnið niður
eftir Laxárdal, hið yngra fyrir
um tvö þúsund árum. Þess sjást
hvarvetna merki, að hraunið
hefur runnið niður dalinn líkt
og straumþung elfur, ekki ósvip
að og Laxá nú, þótt hægar hafi
farið, enda rennur áin nú víða
í farvegi eldárinnar, eða í svo-
nefndum hrauntröðum. Munu
þær traðir óvíða fegurri eða til-
komumeiri, en í neðanverðum
Laxárdal. Um miðbik dalsins er
nokkuð af hinum sérkennilegu
gervigígum, sem eru einkenn-
andi fyrir þetta hraun. Volgar
laugar eru á nokkrum stöðum,
neðantil í dalnum, og mun sá
jarðhiti lítt eða ekki kannaður.
í ánni er fjöldi eyja og hólma
með ríkulegum gróðri og ýms-
um sjaldgæfum tegundum, en í
sumum þeirra er fjölbreytt
andavarp.
Annars er lífríki þess svæðis,
sem áætlað er að sökkva, frem-
ur lítið þekkt. Virðist því sjálf-
sögð krafa, að Laxárvirkjun
láti gera sérstaka líffræðilega
rannsókn á svæðinu, og kosti þá
rannsókn að öllu leyti.
5. Veiting Suðurár í Svartár-
vatn og þaðan í Kráká, gæti
haft veruleg áhrif á Laxá,
Skjálfandafljót og Mývatn, og
viljum við því taka sérstakan
vara á þeirri framkvæmd. Um-
fram allt yrði að tryggja það,
að slík aukin Kráká, hlaupi
ekki í Grænavatn og Mývatn,
eins og Kráká gerir nú stund-
um.
Þar sem Suðurárveitan er
ekki áætluð fyrr en að 10—15
íslcnzkur liundur, Píla frá Ólafsvöllum.
Frá Hundaræktarfélagi íslands
Tonleikar Olav Erikson á Akureyri I
Samtaka um
árum liðnum, sýnist okkur
óþarft að ræða hana meira hér.
6. Stjórn náttúruverndarsam-
takanna telur, að í svo mikil-
vægu og víðfeðmu máli, sem
þessu, verði ekki hjá því kom-
izt, að taka fullt tillit til óska
og álits íbúanna í viðkomandi
héraði. Vötnin sem hér um ræð
ir, eru fyrst og fremst þeirra
eign, og þeirra er landið um-
hverfis. Þeir eiga því mest í
húfi, að vel takizt til um alhliða
nytjun vatnanna. Aðrir hafa þar
lítið meira en tillögurétt. Allar
eignarnámsheimildir breyta
litlu, um þetta grundvallareðli
málsins.
Siðferðislega skoðað á þó þjóð
in og raunar allt mannkynið,
eina kröfu á hendur eigendun-
um, en hún er sú, að þeir varð-
veiti þann fjársjóð, sem þeir eru
bornh' til, fyrir öllum hugsan-
legum skemmdum. Við getum
ekki betur séð, en að Þingey-
ingar hafi gert sér þá skyldu
Ijósa. Til þess eiga þeir alla að-
stoð skylda.
Rafmagnsverð er stundlegt
fyrirbæri, en skemmdir á nátt-
úrunni eru oftast óafturkræfar.
Vill Laxárvirkjunarstjórn bera
ábyrgð á þeim?
Höfum við ekki ráð á að velja
næstódýrustu aðferðina, ef með
því verður landskemmdum forð
að?
Akureyri, 7. október 1969.
Helgi Hallgrímsson,
Hjörtur E. Þórarinsson,
Árni Sigurðsson,
(Framhald af blaðsíðu 8).
Þeir, sem verða fulltrúar á
kirkjufundinum eru allir prest-
ar landsins, sóknarnefndir, safn
aðarfulltrúar, meðhjálparar og
formenn kristilegra félagssam-
taka.
Gert er ráð fyrir mörgum
fulltrúum úr öllum landshlut-
um og munu þeir gista hjá
ýmsum borgurum bæjarins.
Hér fer á eftir dagskrá kirkju
fundarins:
Föstudagur 24. október.
Kl. 5 e. h. Fundarsetning í
kapellu Akureyrarkirkju, kjör-
in allsherjarnefnd, fundarstjór-
ar og ritarar. — Umræðuefni
fundarins: „Störf og verksvið
sóknarnefnda. Almennt safnað-
arstarf". Frummælendur: Hjört
ur E. Guðmundsson forstjóri,
Reykjavík, Sigurjón Jóhannes-
son skólastjóri, Húsavík og syst
ir Unnur Halldórsdóttir, Reykja
vík.
Kl. 9 e ,h. Almennur fundur í
Akureyrarkirkju. Ræður: Dr.
Robert A. Ottósson söngmála-
stjóri, Jórunn Ólafsdóttir frá
Sörlastöðum. Gígjukórinn syng
ur, söngstjóri Jakob Tryggva-
son. Almennur söngur, helgi-
stund.
Laugardagur 25. október.
Kl. 9.30 f. h. Morgunbænir.
Umræðuhópar taka til starfa.
Kl. 2 e. h. Lagabreytingar.
Kl. 4 e. h. Formenn umræðu-
hópa skila álitum. Almennar
umræður.
Kl. 9 e. h. Almennur fundur í
Akureyrarkirkju. Ræður: Séra
Óskar J. Þorláksson dómkirkju
prestur, frú Dómhildur Jóns-
dóttir formaður Kvenfélagasam
HINN 4. þ. m. komu um 30
áhugamenn um hundarækt sam
an í Bændahöllinni og stofnuðu
með sér félagsskap, er ber nafn
ið Hundaræktarfélag íslands.
Fundarstjóri var Birgir Kjaran,
alþingismaður.
Markmið félagsins er að vera
landssamtök um ræktun ís-
lenzka hundsins, sem er í bráðri
hættu að verða aldauða vegna
iblöndunar annarra kynja.
Jafnframt vill félagið vinna
að sérræktun annarra hunda-
kynja sem til eru í landinu.
Á stofnfundinum var sam-
þykkt, að sýna íslandsvininum
Mark Watson þá virðingu að
gera hann að heiðursstofn-
félaga, en hann hefur m. a. haft
frumkvæði að verndun íslenzka
fjárhundsins og skrifað um
hann bók.
Á fundinum voru samþykkt
lög fyrir félagið og kosin stjórn.
Formaður er Guðlaugur
Skúlason, dýralæknir, ritari frú
bands Norðurlands. Tóna-
kvartettinn frá Húsavík syng-
ur. Almennur söngur, helgi-
stund.
Sunnudagur 26. október.
Kl. 9.30 f. h. Morgunbænir.
Tillögur um mál fundarins
ræddar og bornar upp til sam-
þykktar. Önnur mál. Kosningar.
Kl. 2 e. h. Guðsþjónusta í Ak_
ureyrarkirkju. Biskupinn, herra
Sigurbjörn Einarsson, prédikar.
Altarisganga.
Einnig verður messað á 9
öðrum kirkjum samtímis, svo
sem sjá má á öðrum stað í blað-
inu. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
svarsmaður fjölskyldunnar
greiðir fullt fargjald en aðrir
fjölskylduliðar sem ferðast með
honum greiða hálft gjald.
Þá verða áfram í gildi hóp-
f marz 1968 sendu húsráðendur
og húseigendur við Oddeyrar-
götu bæjarstjórn Akureyrar
bréf, þar sem skorað var á hana,
„að láta nú þegar hefja undir-
búning að endurbótum á Odd-
eyrargötunni, þannig, að ak-
brautin verði gerð úr varanlegu
efni, og að gangstétt verði lögð
a. m. k. annars vegar við hana.“
Greinargerð fylgdi.
Ekkert formlegt svar hefir
Sigríður Pétursdóttir, Ólafsvöll
um á Skeiðum, gjaldkeri Jón
Guðmundsson, Fjalli, meðstjórn
endur Ólafur Stefánsson, ráðu-
nautur og Magnús Þorleifsson,
viðskiptafræðingur.
Stjórnin hefur ákveðið, að
þeir, sem ganga í félagið fyrir
næstu áramót, verði taldir stofn
endur.
Þeir, sem æskja upptöku í
félagið, snúi sér til ritara þess.
Stjórnin.
- FRÁ LAUGASKÓLA
(Framhald af blaðsíðu 8)
heimavistarhúsi því, sem tekið
var í notkun sl. haust. Er það
hús þá komið í fulla notkun.
Húsmæðraskólinn á Laugum
var settur 28. september. Setn-
ingarathöfn hófst með guðsþjón
ustu að viðstöddum skólanefnd
armönnum, öðrum gestum og
nemendum. Skólinn má heita
fullskipaður. Forstöðukonu-
skipti verða nú. Jónína Á. Hall-
grimsdóttir hverfur frá skólan-
um eftir þriggja ára starf. Við
tekur Jónina Bjarnadóttir, sem
vreið hefur matreiðslukennari
við Húsmæðraskóla Reykjavík-
ur sl. 9 ár. En við hennar starfi
syðra tekur Guðrún Guðmunds
dóttir, sem lætur af störfum á
Laugum eftir jafnlangan tíma.
Ný kennslukona er Hjördís
Stefánsdóttir frá Húsavík og
aðstoðarkennari Sveininna Ásta
Bjarkadóttir, Siglufirði. G. G.
(Framhald af blaðsíðu 1)
fyrir einstæðar mæður og ýmis
heimili. Hefur verið rætt um í
félaginu að auka þessa starf-
semi, en fjárskortur hamlað,
þar sem byggingarkostnaður
ferðafargjöld á innanlandsleið-
um en þau eru 10% til 20%
ódýrari en venjuleg fargjöld og
fara eftir stærð hóps og tilhög-
un ferðar.
borizt við þessu erindi. Hins veg
ar lét bæjarstjóri snemma í sum
ar þau orð falla við einn þeirra,
sem stóðu að þessari áskorun,
„að næsta gata“, sem tekin yrði
til malbikunar væri Oddeyrar-
gatan. Svipuð orð lét hann falla
við annan íbúa götunnar fyrir
skömmu.
í sumar hefir allmikið verið
malbikað í bænum. Hins vegar
hafa engin svör borizt við því,
hvernig bæjarstjórn ætlar að
bregðast við þessari áskorun, og
STARFSÁR Tónlistarfélags Ak
ureyrar hófst að þessu sinni
með tónleikum norska baryton-
söngvarans Olav Erikson, en
hann söng í Borgarbíói 6. okt.
sl. við undirleik Árna Kristjáns
sonar.
Þetta er í annað skipti, sem
Olav Erikson kemur til íslands.
Hið fyrra skipti söng hann
einnig á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar og voru þetta
ánægjulegir endurfundir í tón-
leikasal við hinn ágæta lista-
mann.
Olav Erikson stundaði nám í
Kaupmannahöfn og Stokkhólmi
og síðar framhaldsnám í Róm.
Þar kom hann fyrst fram á
óperusviði. Hann hefur sungið í
fjölmöi'gum óperuhlutverkum
bæði í Þýzkalandi og í Vínar-
borg. Ennfremur hefur hann
komið fi'am á tónlistarhátíðum
og haldið tónleika víða um
Evrópu, og er mjög rómaður
sem oi-atorium og ljóðasöngv-
ari. Hann er nú búsettur í
Belgíu og var á dögunum að
leggja upp í hljómleikaför um
Bandai'íkin.
Efnisskrá sú, sem Olav Erik-
son hafði sett saman var frá-
bæi'lega vönduð, mikil að um-
fangi og innihaldi, og náði allt
frá barok aríum 17. aldar til
sönglega nútímahöfunda, frá
gleðivísum til dýpstu trúarlegr-
ar alvöru. Þá var einn kafli
efnisskrár helgaður Edv. Grieg,
en Olav Erikson hefur einmitt
hlotið mikið og óskipt lof gagn-
rýnenda fyrir frábæra túlkun á
vei'kum þessa fi'æga landa síns.
Olav Erikson er í í'íkum mæli
gæddur þeim fágæta eiginleika
að geta tjáð umsvifa og vafn-
ingalaust hugblæ hinna ólík-
ustu verka, hitta beint í mark.
Honum tekst að tjá tóninn
hverju sinni á sannfærandi, lát-
lausan hátt þannig að hinn list-
ræni boðskapur ratar rétta boð-
leið beint til áheyrandans. Alls
staðar er að verki sama hár-
næma stílkenndin. Ég minnist
þess varla, að öllu samstilltari
og einlægari hrifning hafi ríkt
hér á tónleikum en þessa kvöld
stund í Borgarbíói.
hefur mjög hækkað.
Um þetta leyti á Leikskólinn
10 ára afmæli. Hann var vígður
þann 24. okt. 1959. Fyrsta for-
stöðukona hans var frú Dóró-
thea Daníelsdóttir en núvei'andi
forstöðukona er frú Erla Böðv-
arsdóttir. Framkvæmdastjóri
Leikskólans er Páll Gunnars-
son, yfirkennari.
Þess er fastlega vænst, að
bæjarbúar minnist afmælis þess
arar ungu stofnunax', þegar
böi'nin leita til þeirra á laugar-
daginn.
ekki liggur heldur Ijóst fyrir,
hvað bæjarstjóri á við með
„næstu götu“.
Er þeim tilmælum hér með
eindregið beint til bæjarstjórn-
ar, að hún láti ekki lengur drag
ast að gefa skýr svör við því,
hvenær hafizt verður handa við
undirbúning að malbikun Odd-
eyrargötu og hvenær áætlað er
að verkinu Ijúki.
Einn af þeim, sem
undirrituðu bréfið.
Þar átti snilldarundirleikur
Áirna Kristjánssonar stóran
hlut að máli, en hann var söngv
ai'anum hinn ágætasti förunaut
ur um öll þau ólíku svið söng-
listarinnar, sem Olav Erikson
leiddi okkur um að þessu sinni.
Ekki dreg ég dul á það, að mér
þótti mestur fengur að því að
heyra „Vier ernste Gesánge"
(Fjögur alvaideg ljóð) eftir Joh.
Brahms við texta úr biblíunni
svo og „Þrjá hebreska söngva“
eftir M. Ravel. Brahms samdi
þetta dýi'lega verk árið 1896, er
hann átti einungis skammt eftir
ólifað. Það er fremur sjaldan
flutt, enda ekki á allra færi.
„Þrír hebreskir söngvar" eftir
Ravel hafa ekki heyrzt hér fyi'r
mér vitanlega og eru örsjaldan
fluttir eftir því sem ég kemst
FRÚ Sigríður Davíðsdóttir er
dáin. Hún lézt 30. sept. sl. Þó
hún væri búin að vera mjög
heilsulítil í mörg ár og ég vissi,
að hún hafði legið á sjúkrahús-
inu, kom lát hennar mér á
óvart.
Fyrir skömmu var ég stödd
á gangi handlækningadeildar
Fjórðungssjúkrahússins, þá var
kallað til mín úr austurenda
gangsins. Þetta var þá Sigríður
vinkona mín Davíðsdóttir, sem
sat þar í stól og var Davíð Þór
sonur hennar hjá henni. Ég
settist hjá þeim og við röbbuð-
um saman stundarkorn. Sigríð-
ur var hress eins og ævinlega.
Hún sagði mér að þetta væri
ekki stói'vægilegt, sem að sér
væri. Næsta sunnudag skrapp
ég uppeftir og ætlaði að líta inn
til hennar, en af einhvei'jum
ástæðum fann ég hana ekki og.
engan til að leiðbeina mér. Hélt
ég að hún væri farin heim af
sjúkrahúsinu og fór heim við
svo búið. Seinna frétti ég, að þá
var búið að flytja hana á lyf-
lækningadeildina.
Tveim dögum síðar frétti ég
lát hennar.
Sigríður Davíðsdóttir var
fædd 22. september 1902, í Aðal
stræti 54, dóttir hjónanna
Davíðs timburmeistara Sigurðs
sonar og frú Þórdísar Stefáns-
dóttur, sem voru, sem kunnugt
er, meðal beztu og mei'kustu
borgara þessa bæjar, um lang-
an aldur.
Ég man fyrst Siggu litlu
þi'iggja ára, ljósa og bi-osmilda
með rauða hekluðu hettuna og
í rauði'i kápu. Hún var alltaf
inni í garðinum heima hjá sér í
Aðalstræti 54. Við stelpurnar,
sem eldri vorum, voi'kenndum
næst. Þarna voru komin helgi-
Ijóð og lofsöngvar allt annarrar
gerðar með sérkennilegum,
framandi blæ. Þau voru flutt á
jyddísku og hebresku, og flutti
söngvarinn skýringar á efni
þeirra á undan. Hann á miklar
þakkir skildar fyrir að hafa
flutt okkur þessi andríku tón-
verk og með svo fögru svip-
móti og tígulegu. Áheyi'endur
fögnuðu listamönnunum inni-
lega, og voru flutt tvö aukalög.
Ekki verður annað sagt en að
starfsemi Tónlistarfélags Akur-
eyi'ar hafi farið vel af stað að
þessu sinni. Er hér með borin
fram sú fróma ósk, að henni
megi verða fram haldið við
traustan stuðning áhugafólks.
Á því veltur, hvernig til tekst.
S. G.
henni af því hún mátti ekki fara
út úr garðinum (En þetta var
talsverður siður á Akureyri eft-
ir aldamótin). Stönzuðum við
þá oft hjá Siggu litlu og spjöll-
uðum við hana, enda fannst
okkur hún svo indæl lítil stúlka
og langaði að hafa hana með
okkur.
Svo liðu árin. Sigga slapp úr
garðinum og fór í skóla, en um
það leyti fór ég til náms í
Reykjavík og kom ekki í möi-g
ár til Akurevrar. En einn góðan
veðurdag er Sigga Davíðs kom-
in á Landssímastöðina í Reykja
vík, glæsileg ung stúlka. Þessar
tvær myndir af Siggu Davíðs
standa mér ætíð skýrar fyrir
hugai'sjónum. Báðar fallegar
myndir og hugþekkar.
1937 fluttum við móðir mín
aftur heim til Akureyrar. Þá
endurnýjuðust gömul kynni við
fjölskylduna í Aðalstræti 54,
okkur mæðgum til mikillar
ánægju. Og ekki spillti það,
þegar Sigi'íður giftist Zophoní-
asi Árnasyni, þeim ágæta
manni og góðum vini bi'æðra
minna. Enda hefi ég ætíð talið
þau hjón meðal okkar beztu
vina.
Á seinni árum hafði Sigríður
fastan áfangastað í vinnustof-
unni minni, þegar hún fór í bæ-
inn, svo kunningsskapurinn
hélzt alltaf fei'skur, mér til
óblandinnar ánægju.
Á heimilinu í Aðalstræti 54
var um fjölda ára einstök ágæt-
iskona, Elínborg Sigurðardóttir,
ættuð af Vestfjörðum. Hún
kom þangað ung og batt .rofa
tryggð við heimilið. Hafa þær
Sigríður verið sem beztu systur
alla tíð. Hefir Ella verið heimili
Sigi'íðar og Zophoníasar ómet-
anleg.
1949 þegar Zontaklúbbur Ak-
ureyrar var nýlega stofnaður,
ákváðu Zontur, að gera allt,
sem í þeirra valdi stæði til að
halda í heiðri minningu séra
Jóns Sveinssonai' — Nonna. Því
til áherzlu var stofnaður Nonna
sjóður og haft happdrætti á
hverjum fundi sjóðnum til efl-
ingar.
1952 voru tvær Zontasystur
svo stórhuga, að koma með
uppástungu um, að Zontaklúbb
ur Akureyrar fengi keypt
gamla svai’ta húsið á bak við
Aðalstræti 54, þar sem séra Jón
Sveinsson — Nonni — hafði átt
heima sem drengur og setja þar
á stofn Nonnasafn í Nonnahúsi.
(Framhald á blaðsíðu 6)
Jóliann Skaptason,
EgiII Bjarnason.
- Alm. kirkjufimdur
- Nýmæli í flugfargjöldum FÍ
(Fréttatilkynning) Eiríkur Sigurðsson.
BÆJARSTJÓRN BEÐIN
UM SVAR
- LEIKSKÓLINN „IÐAVÖLLUR4410 ÁRA
Frú Sigríður Davíðsdóttir
NOKKUR KVEÐJUORÐ