Dagur - 17.12.1969, Blaðsíða 8

Dagur - 17.12.1969, Blaðsíða 8
8 tS$ÍSÍSÍ5SÍ55SSí$55ÍSíSÍS5SÍ3a5SS5SSS: ISS5SÍJSSSSSSSS3SÍSSSÍ5SSSSÍSÍSSÍSÍSSSSÍSSSSSÍ5SSSSÍSSSSSSSSSSSSSS55SSS Haugstiga sú, er þessi mynd er af, er smíðuð á Búvélaverkstæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar og kostar 125 þús. ltr. Innfluttar haugsugur eru miklu dýrari. Þessi tæki eru handhæg til að taka mykju í haughúsum og dreifa henni og lienta vel sem sameign nágranna. (Ljm.: G. P. K.) : esssssssssssssssssssssssssssssssssss* sbsrinn kominn í Lau SMATT & STORT ÞRÁTT fyrir véfengingu stjórn ar Legatssjóðs Jóns Sigurðsson- >ar á samningi sjóðsins við bæjar stjórn Akureyrar um hitavatns- réttindi á Laugalandi á Þela- mörk, er undirbúningi borunar haldið áfram. Norðurlandsborinn hefur ver ið fluttur á borstað á Lauga- landi, margi'r bílfarmar, síðasta flutningabifreiðin með þennan farm mun hafa farið á mánudag inn. Borstaður hafði verið ákveð- inn niður við Hörgá, rétt hjá gamalli tilraunaborholu, er þar var fyrrum gerð. Er búist við, að uppsetningu borsins ljúki fyrir jól og að borun geti hafizt strax upp úr áramótum. Eins og fyrr segir, fengust við dælingu 1968 um 18 sek.lítrar af nær sjóðandi vatni úr aðal bor- holunni þar. En það vatnsmagn nægir til að hita 3500—4000 manna bæ eða bæjarhluta. Er líklegt, að virkjun þess vatns- magns og hitaveita fyrir ein- hvern hluta Akureyrar, sé hag- kvæm, hvað þá ef meira heitt vatn næst úr iðrum jarðar. Jafnframt framkvæmdum á Laugalandi verður svo að sjálf- sögðu gengið frá þeim samning- um að fullu við Legatssjóð, sem er grundvöllur hitaveitunnar og sjóðstjórnin telur ekki fullgilda nú. □ REYKINGAR BANNAÐAR í Búlgaríu hefur hanu verið lagt við reykingum í öllum opinber- um fyrirtækjum og skrifstofiun, ef einhver fyrirfinnst þar, sem ekki reykir. Og þar sem þung- aðar konur vinna er þó bannið enn strangara, jafnvel þótt kon- urnar hafi ekki á móti tóbaks- reykingum. Þetta er til mikillar fyrirmyndar. DUGLEGIR SÖLUMENN Áhugi og dugnaður hverskonar sölumanna hefur löngum beinzt að því að selja vörur með við- unandi hagnaði — innanlands. Kaupsýslumenn þyrftu í ríkara mæli að beina áhuga sínum út fyrir landsteinana, ekki aðeins til að gera þar góð innkaup vara, er síðar eru seldar hér á landi, heldur til að leita mark- aða fyrir íslenzkar vörur er- lendis. En aukinn útflutningur iðnvara verður til að koma, ef þjóðin á ekki að dragast lengra aftur úr en orðáð er, í lífskjara- baráttnnni. UMBÚÐIRNAR Kanadamenn þeir, sem rann- sökuðu möguleika á sölu ís- lenzkra niðursuðuvara í mörg- um löndum, ráðlögðu, að þær vörur yrðu allar seldar undir sama vörumerki. Þeir bentu á, að nú væri unnt að selja niður- lagða síld á fimm sinnum liærra verði í smekklegum umbúðunt en ntiður smekklegum. Umbúð- irnar hafa því ntikla þýðingu. SÁL OG LÍKAMI Ef menn reiðast ofsalega eða komast í aðrar sterkar geðs- hræringar, liætta meltingarfær- in að starfa. Stundum myndast þá eitur í blóðinu. Sagt er, að í Austurlöndum séu þessi áhrif notuð til að koma upp um glæpd menn. Grunaðir rnenn eru þá látnir ltafa heit hrísgrjón í rnunni sér. Hjá þeim seka ntynd ast ekkert munnvatn og grjónin eru þurr í munni hans, þegar síðar er að gætt. Komið hefiu: fyrir, að ungbörn sýkjast af móðurmjólkinni, ef móðirin hef ur áður komizt úr andlegu jafn- vægi. Mæður þurfa því að gæMl skapsmuna sinna öðrum fremur. ÁLYKTUN Fulltrúafundur Landssambands ins gegn áfengisbölinu, haldinn að Fríkirkjuvegi 11 í Reykja- vík 6. des. 1969, skorar á fræðslumálastjórnina að gera ráðstafanir til þess, að fylgt sé fast fram ákvæðuin Iaga og reglugerða um bindindis- fræðslu, m. a. með því, að skip- aður verði sérstakur fulltrúi bindindisfræðslu. Jafnframt verði efnt til endur skoðunar gildandi reglugerðar um bindindisfræðsh; í því skyni að hún geti orðið rækilegri og haldkvæmari en verið liefur. Sérstakega er bent á, að í því efni mundi aukin bindindis- fræðsla og æfingakennsla í því sambandi í Kennaraskóla ís- lands verða mikils virði. Landssambandið gegn áfengisbölinu. LEGATSSJÓÐUR JÓNS SIGURÐSSONAR Jón Sigurðsson frá Böggvisstöð um stofnaði 1830 sjóð þann er ber nafn hans. Sjóðnum gaf hann bæði lausaíé og jarðeigniíi m. a. Laugaland á Þelamörk, Kristnes, Sílastaði, Efri- og Neðri-Vindheima, Hvanim o. fl. Legatssjóðurinn var stofnaður sem fátækrasjóður fyrir norður- og austuramt, en hann á að styrkja fátæka í Eyjafjarðar- sýslu, eftir nánari reglum. Frið- rik konungur VI staðfesti skipu lagsskrá þessa sjóðs 14. okt. 1831. Upphaflega skipuðu amt- maður og prófastur stjórn sjóði ins en síðar sýslumaður og pró- fastur þegar amtsmannsembætt ið var niður lagt. VIÐ AUSTURVÖLL Samþykktir á fjórðungsþingi Norðlendinga „SKAMMDEGISNÓTTIN er skuggalöng". Til höfuðborgar- innar streyma orkulindirnar miklu frá Sogi og Þjórsá og þar loga Ijósin glatt. í Alþingishús- inu loga þau stundum langt fram á nótt þegar líður að jól- um, því þar er þá verið að ganga frá skattheimtu næsta árs og fjárlögunum í heild. Talið er, að nú nálgist sú stund, að ríkis- stjórnin leggi fyrir þingið til- lögu sína um inngöngu íslands í fríverzlunarsamtök 8 Evrópu- ríkja og breytingar á löggjöf, einkum í skattamálum er gera þarf, ef af inngöngu verður. Því án efa telur fjármálaráðherr- ann sig þurfa að fá uppbót fyrir lækkun tolla á eríendum iðn- aðiarvörum. Byrjað er að ræða lagafrum- varp stjórnarinnar um nýjan samning við svissnesika álfélag- ið, þar sem gert er ráð fyrir, að stækka verksmiðjuna, sem nem ur 40 þús. tonnum í stað 30 þús. tonna, sem áður var um samið, til viðbótar því, spm nú er. í sambandi við þetta hefur enn á ný verið rætt um orkuverðið, en það er nú talsvert lægra en FRÁ HAPPDRÆTTI FRAMSÓKNARFL. ÞAR sem drætti var frestað til Þorláksdags, er enn liægt að kaupa miða. Þeir eru til sölu A skrifstofu flokksins, Hafnar- stræti 90, Akureyri, og á af- greiðslu Dags. Þeir, sem eiga efíir að gera skil á lieimsendum miðum eru minntir á að gera það í tíma á sömu stöðum. □ til samskonar stóriðju í Noregi. Hér nyrðra þykir það e. t. v. fréttnæmt, að komið er fram á þingi frumvarp um að leggja Flatey á Skjálfanda undir Húsa víkurkaupstað. Sameiningar- nefnd sveitarfélaga samdi þetta frumvarp en lýsti samt yfir í útvarpi, að hún hefði ekki ósk- að eftir flutningi þess á Alþingi. Bæjarstjórn Húsavíkur hefur samþykkt að taka við eynni, ef það stæði til boða og ekki fylgi skuldir hafnarinnar, en sýslu- nefnd S.-Þing. vill að sýslu- manni verði falin umsjón eyjar- innar næstu fimrn árin, ef byggð eflist ekki á þeirn tíma og er andvíg sameiningu að svo stöddu. Jafnframt er í þinginu til- laga uppi um, að leggja Loð- mundarfjarðarhrepp undir Séyð isfjarðarkaupstað. Loks hefur svo þingið fengið til meðferðar stjórnarfrumvarp frá samein- ingarnefndinni almenns efnis um sameiningu sveitarfélaga. Samkvæmt því á að skipa nýj- an embættismann (erindreka) á vegum félagsmálaráðuneytis- ins til að stuðla að sameiningu sveitarfélaga. Er fyrir liggja til- lögur hans um þetta efni, má ríkisstjórnin leggja niður þau sveitarfélög, er hafa færri íbúa en 50, þ. e. sameina þau öðrum. Slík sveitarfélög eru 10, þar af 4 á Vestfjörðum. Um þetta mál eru sagðar mjög skiptar skoð- anir. Ingvar Gíslason flutti fyrir nokkru, ásamt tveim varaþing- mönnum, er þá sátu á þingi, Kristjáni Ingólfssyni og Helga Seljan, tillögu um að skipa milli þinganefnd til að endurskoða (Framhald á blaðsíðu 6). Orkurannsóknir á Norðurlandi. Á Fjórðungsþingi Norðlend- inga var samþykkt svohljóðandi ályktun: Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Sauðárkróki 22. og 23. október 1969, felur Fjórðungs- ráði og Fjórðungsstjórn að vinna að því við viðkomandi ríkisstofnanir að orkurannsókn um á Norðurlandi verði flýtt. Fjórðungsráði er falið að fylgj- ast gaumgæfilega með áætlun- um um skerðingu fallvatna á Norðurlandi og beita sér fyrir að slík skerðing verði ekki fram kvæmd nema norðlenzkra hags muna sé gætt í hvívetna. Því lýsir þingið fullum stuðningi við frumvarp, sem lagt var fram á síðasta Alþingi um Norð-vestur landsvirkjun. Stóriðja á Norðurlandi. Á Fjórðungsþingi Norðlend- JÓLABLAÐ DAGS er komið út. Það' er án auglýsinga, eins og jafnan áðitr, 32 blaðsíður að stærð í sama broti og fyrr, prent að með fremur smáu letri til að koma þar sein mestu efni. Af efni þess má nefna: Viðtöl við Ólaf Tryggvason frá Hamra borg, Jón Kristjánsson frá Hellu, nær níræðan og Ilallfreð Órn Eiríksson þjóðfræðing. Jón bóndi Vigfússon á Arnarstöðum inga á Sauðárkróki var svohljóð andi ályktun samþykkt: Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Sauðárkróki 22. og 23. október 1969, telur að verði áframhald á stóriðjufram- kvæmdum á íslandi sé nauðsyn legt að hluta þeirra frarn- kvæmda verði beint til Norður lands. Telur þingið nauðsynlegt frá sjónarmiði byggðaþróunar að staðsetning væntanlegrar NÝLOKIÐ er úrtökumóti í skák er haldið var á vegum Skáksambands íslands og Skák félags Akureyrar. Þátttakendur voru 8, þar á meðal Freysteinn Þorbergsson, Varmahlíð, sem tefldi sem gestur, Hjálmar Theo segir frá hálfrar aldar atviki, Morgunn einstæðingsins er frá- sögn, skrifuð undir dulnefni, Hólmsteinn Helgason á Raufar- höfn skrifar greinina Hjásetan og Sigurður Tómasson oddviti á Barkarstöðum segir frá því, er Markarfljóti voru settar skorð- ur, Margrét í Laugaseli á í blað inu ævintýrið Máttur bænar- innar, Gunnar Finnbogason skrifar um skógrækt, og fleiri greinar eru í Jólablaðinu 1969. stóriðju á Norðurlandi verði byggð á hlutlausri fræðilegri at- hugun, og felur þingið Fjórð- ungsráði og Fjórðungsstjórn að vinna að framgangi þessa máls. Samgönguáætlun fyrir Norður- land. Á Fjórðungsþingi Norðlend- inga á Sauðárkróiki var svohljóð andi ályktlin samþykkt: (Framhald á blaðsíðu 6). eyringar, einn úr Hörgárdal og einn úr Oxnadal. Þetta mót veitti þátttökurétt- indi á stórmót (Reykjavíkur- mótið), sem haldið verður í janúar n. k. með 6 erlendum skákmeisturum, ásamt beztu skákmönnum okkar íslendinga. Freysteinn Þorbergsson sigr- aði með 514 vinning, tapaði einni skák fyrir Hauk Jónssyni, Hörgárdal. Efstir og jafnir urðu þeir Hall dór Jónsson, Akurevri, og Ólaf- ur Kristjánsson, Akureyri, með 5 vinninga hvor, og tefldu þeir síðan fjögurra skáka einvígi um efsta sætið. Lauk því mið sigri Ólafs Kristjánssonar, 3 vinning ar gegn 1. Hlaut því Ólafur þátt tökuréttindin. Nú stendur yfir Haustmót Skákfélags Akureyrar með 13 þátttakendum. Efstur er þar Júlíus Bogason en annar Örn Ragnarsson. (Aðsent) dórsson, Húsavík, fjórir Akur- JÓLABLAÐ DAGS Úitökuicóii i skðk er nú I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.