Dagur - 17.12.1969, Blaðsíða 1
BLAÐ I
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sfmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Ylirvöldin koma í fjósin
:...........................................................................■............................................................. ............................................................................................................................................................................................................................................................ ................................................................ ................................................................................................................................................................................................................
BLAÐIÐ hafði í fyrradag tal af
Stefáni Jasonarsyni í Vorsabæ.
Sagði hann m. a. þetta:
Snjór kom óvenju snemma og
jarðbönn víða um sveitir. Og nú
er naumast nokkursstaðar jörð,
nema snöp fyrir hross. Og aldrei
hafa sunnlenzkir bændur verið
eins illa undir veturinn búnir
og þeir voru að þessu sinni. Það
TVO DAUÐASLYS
A L F R E Ð FINNBOGASON
skipstjóri á Jóni Kjartanssyni,
kunnur aflamaður, lézt af slys-
förum á Eskifirði 10. þ. m. Hann
var 48 ára gamall og átti heimili
og fjölskyldu á Akureyri.
JÓN KJARTANSSON, 17 ára
piltur frá Viðarholti í Glerár-
liverfi, Akureyri, háseti á Helga
felli, drukknaði er skipið var á
heimleið um lielgina. Q
vantaði þriðjung fóðurs á haust
dögum. En slátrun í haust svar-
ar ekki til þeirrar fækkunar á
bústofni, er nauðsynleg var.
Kjarnfóðurkaupin eru dýr og
einnig takmöi’k fyrir því, hvað
búpeningur þarf minnst af heyi,
til að halda heilsunni. Dæmi er
til þess, að yfirvöld hafi gengið
í fjós, þar sem hlöður eru nær
tómar, og fyrirskipað niður-
skurð hið bráðasta. Kann að
vera, að þetta sé á ýmsum stöð-
urn alveg nauðsyn, þótt hart sé
aðgöngu. Ásetningurinn er án
efa djarfur, miðað við fóður og
þetta virðist allt hanga á blá-
þræði hjá okkur.
Við emm þakklátir þeim á
Norðurlandi sem gátu hjálpað
okkur með hey í sumar og
haust. Og blessaður láttu mig
vita, ef þú veizt af einhvei-jum,
sem vill selja hey, sagði Stefán
Jasonarson að lokum. □
Hitaveita á Húsavík næsta Iiaust
Fyrsta leyfið til minkaræktar
LANDBUN AÐARRÁÐUNEYT
IÐ hefur gefið út fyrsta leyfið
til ræktunar minka. Féll það
Húsvíkingum í skaut, en þeir
stofnuðu fyrir nokkru hluta-
félag með minkaeldi fyrir aug-
um og eru hluthafar átta tals-
ins, en formaður er Skúli Skúla
son, Kópavogi.
í vetur verða smíðuð búr, og
hús með vorinu. Reiknað er
með, að hefja búskapinn með
eitt þúsund laíðum, fá hvolpa í
Baguk
kemur næst út á laugardaginn,
20. desember.
sumar eða hvolpafullar læður í
haust, helzt frá Noregi.
Hið nýja félag heitir Hús-
minkur h.f. □
í VIÐTALI er blaðið átti við
Björn Friðfinnsson bæjarstjóra
á Húsavík, sagði hann m. a.
þetta, efnislega:
í síðustu viku kom Hafþór
hér inn og fiskifræðingamir
Jón Jónssoon og Guðni Þor-
steinsson, héldu þá fund með
sjómönnum um nýju rækjumið
in, er fundust skammt frá
Grímsey. En leiðangursmenn
Miklir möguleikar í niðursuffu
IÐNÞRÓUNARSTOFNUN Sam
einuðu þjóðanna hefur, fyrir for
göngu Hannesar Kjartanssonar
sendiherra, látið fara fram rann
sókn á því, hvort markaður
væri fyrir niðursuðuvörur frá
íslandi. Tók fyrirtæki eitt í
Kanada að sér rannsókn þessa
og hefur nú gefið út álitsgerð
sína um málið. Pétur Thorsteins
son ráðuneytisstjóri hefur skýrt
frá niðurstöðunni í stórum drátt
um. En hún er í stuttu máli á
þessa leið:
Góður markaður er fyrir ís-
lenzkar niðursuðuvörur og ættu
íslendingar að geta selt slíkiar
vörur fyrir 10 millj. dollara á
ái'i næstu 3—5 árin og ætti ágóð
inn að geta orðið 2—3 millj.
dollara samkvæmt lauslegum
áætlunum. Sölumöguleikarnir
virðast hagstæðir í Bandaríkj-
■unum, en sæmilegur markaður
fyrir þessai' vörur vh'ðist einnig
. í Kanada, Bretlandi, Þýzkaíandi
og Frakklandi.
Þai'f naumast að orðlengja,
hvaða þýðingu þetta getur haft,
ef möguleikarnir eru notaðir.
Þjóðin má ekki við því, að halda
lengur að sér höndum í þessu
efni, og hér þarf ríkisvaldið að
leggja hönd að og ber margt til.
Samkvæmt reynslunni rís þessi
atvinnugrein ekki verulega á
legg hjálparlaust. Markaðsleit
þarf til að koma, uppbygging og
samræming í framleiðslu. □
Jóhannes Vigfússon.
BÚSKAPUR í Ólafsfirði hefur
heldur dregizt saman, því jarðir
hafa farið í eyði, sagði Nývarð
Jónsson bóndi í Garði, blaðinu
í fyrradag. Búendur eru ék'ki
nema 14 talsins hér innfrá, auk
þriggja á Kleifum.
JÓLATÓNLEIKAR
Aðrir tónleikar Tónlistarfélags Akureyrar
JOHANNES VIGFÚSSON
píanóeikari leikur á 2. tónleik-
um Tónlistarfélags Akureyrar í
Borgarbíói laugardaginn 27. des.
•kl. 5 síðdegis.
Jóhannes er ungur Akureyi'-
ingur sem nú stundar nám í
eðlisfræði og píanóleik í Sviss
og eru þelta fyrstu opinberu
tónleikar hans.
Miðasala verður í Bókabúð-
inni Huld frá n. k. fimmtudegi
18. des. og við innganginn.
TLl viðbótar þessari frétt Tón
listarfélags Akureyrar, vill blað
ið eindregið hvetja fólk til að
kynnast hinum unga tónlistar-
manni, fjölmenna á tónleikana,
örva hann til dáða og styðja
hann á erfiðri námsbraut. □
höfðu með sér ágætlega væna
rækju þaðan. Sýndu Húsvík-
ingar mikinn áhuga á máinu.
Nú er það svo, að rækjuveið-
in gefur sjómönnum ekkert sér-
lega miklar tekjur. Hins vegar
skapar rækjuveiði mjög mikla
og kærkomna vinnu í landi.
Bæjarfélagið ætlar nú að
kaupa eiria rækjuvörpu, en hún
kostar fullbúin um 200 þús. kr.
og leggja hana til við rækju-
veiðarnar. En við eigum von á,
að rækjan komi nær landi í
febrúar, upp í Kantana. Höfum
við nú sótt um leyfi til kaupa
á þessu veiðarfæri. Rækjan, sem
Hafþór fann við Grímsey var
upp í 8 grömm, sem er mjög
mikil stærð, en meðalstærð er
tæp 6 grömm.
Aðspurður um hitaveitu á
Húsavík, sagði bæjarstjóri:
Beðið er eftir lokasvörum um
fjármögnun, en áætlað er, að
hitaveitan kosti 56 millj. kr.
Vegalengd er 18.5 km. og þarf
enga dælustöð. Fólksfjöldi á
Húsavík er 2 þús. manns. Stefnt
er að því, að hitaveitan komi í
gagnið fyrir næsta vetur. Byrj-
að er að leita tilboða i efni til
hitaveitunnar.
Bátar eru nú með net en afli
er fremur lítill. Beitan er svo
dýr, að það borgar sig ekki að
róa með línu nema í góðan fisk.
Ársaflinn á Húsavík er mjög
góður og tekjur sjómanna því
einnig góðar.
Atvinnuleysi er nokkurt og
eru um 20, sem njóta atvinnu-
leysisbóta.
Svartfugl er farinn að sjást,
útflutningur kísilgúrs er tölu-
vert mikill og munu tveir farm-
ar fara fyrir áramót, sagði bæjar
stjórinn að lokum. □
Snjór að hverfa cg greiðfært
Þyrffum að framleiða meiri mjólk
Féð varð léttara til frálags í
haust en árið áður, en oftast er
féð hér fremur vænt. Sjálfur
fékk ég 17.4 kg. meðalvigt og
átli aðeins einn einlembing, en
í fyri’a var meðalvigtin 18.41.
Fé hefur heldur fækkað í sveit-
inni, og kúm fjölgar ekki og
vantar rnikla mjólk, sem þarf
að flytja að til kaupstaðarbúa.
Vegir eru góðir nú, en stund-
um hefur þurft að flytja mjólk-
ina á beltavélum.
Mannlíf er rólegt hér í sveit
og tíðindalítið. Fátt fólk er víð-
ast á bæjum og vinnandi menn
uppteknir við bústörf mestan
hluta dagsins.
Veiðar stunda menn ekki á
vatninu, enda ekki tími til þess.
Þó hefur ungur drengur eitt net
undir ísnum og veiðir svolítið.
Silungurinn er hreinasta lost-
æti. ,
Verið er að flytja nokkra bíl-
farma af heyi til Suðurlands. □
Raufarhöfn 16. des. Skamm-
degið er nú að nálgast hámark-
ið, enda verður naumast full
bjart um hádegið.
Sjónvarpið sést allvel hér.
Fáum við sjónvarpsgeislann frá
lítilli stöð á Heiðarfjalli. Nokkur
tæki voru hér áður til, er menn
höfðu keypt, en svo komu fleiri
oog eru ein 25 tæki og bætist
stöðugt við.
Þrír bátar hafa róið ofurlítið
að undanförnu, þegar gefið hef-
ur á sjó, en aflinn hefur verið
fremur lítill. Kristinn var með
línu, Vilborg var með færi og
Þorsteinn er með troll. Jökull
er nýlega kominn úr söluferð
og kom svo núna með 8 tonn.
Snjór er að hverfa og sæmi-
lega fært á jeppum og vörubíl-
um, nema til Þórshafnar.
Við eigum olíu til 4 mánaða.
Fiskiðjusaml. sýknað
LOKIÐ er mcð dónii Hæsta-
réttar máli Ásgeirs Kristjáns-
sonar o. fl. á Húsavík gegn Fiskl
iðjusamlaginu þar, út af fisk-
verði, er sjómenn töldu van-
reiknað. En þetta mál var injög
á dagskrá austur þar í síðustu
bæjarstjórnarkosningum, hita-
mál og óspart notað.
Með dómi Haistaréttar er
Fiskiðjusamlagið sýknað af öll-
um kröfuan stefnenda. □
Bilreiðir lækka í verði
LEYFISGJÖLD af bifreiðum
verða felld niður snemma á
næsta ári. Verður það til þess
•að bifreiðir lækka mikið í verði
frá því sem nú er. Lækkar
a. m. k. ein tegund bifreiða um
120 þúsund krónur, en aðrai'
tegundii' minna.
Sem dærni um lækkunina,
Volkswagen 1300 um 35 þúsund,
Volvo um 65—100 þúsund, Ford
Cortina um 20 þúsund, Chevro-
let um 120 þúsund, Mercedes
Benz um 115 þúsund, Skoda
1000 um 30 þúsund, Simca um
50 þúsund, Opol Rekord um 70
þúsund, Landrover um 10 þús-
und. Er þetta áætluð verðlækk-
un hjá bifreiðaumboðunum.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra skýrði frá niðurfellingu
leyfisgjalda á Alþingi. Leyfis-
gjöld eru nú 60fó af innkaups-
verði fólksbíla, en 15% af inn-
kaupsverði jeppa. Á móti niður
fellingu leyfisgjaldanna kemur
hækkun í formi söluskatts, en
hann hækkar úr 7% í 11%. □