Dagur - 07.01.1970, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
VIÐ ÁRAMÓT
ÞEGAR sól nýja ársins rann upp í
fyrsta sinn, var búið að skipta stjóm-
arráðinu í þrettán ráðuneyti, sam-
kvæmt lögum frá í fyrra. Ekki þarf
mikið ímyndunarafl til að láta sér
detta í hug, að ráðherramir geti líka
orðið þrettán er tímar líða. Hverj-
um ráðherra er heimilt að taka sér
persónulegan aðstoðannann, launað-
an, sem kemur og fer með ráðherran-
um og er það nýmæli. Lögmál
Parkinsons lætur ekki að sér hæða.
En forsætisráðherrann var daufur
í dálkinn á gamlárskvöld. Sem reynd
ur maður í þjóðmálum, veit hann,
að nýja árið verður erfitt fyrir ríkis-
stjórn, sem ekki nýtur trausts og hef-
ur setið við völd, lengur en sæmilegt
er. Hafa mun hann í huga, að órói
er á vinnumarkaðinum, og bæjar- og
sveitarstjórnir verða kosnar í vor.
Fyrir jólin gekk Alþingi frá fjár-
lögum nýja ársins. í þeirn eru ríkis-
titgjöldin áætluð nokkuð á níunda
þúsund milljónir króna en voru inn-
an við eitt þúsund milljónir þegar
núverandi valdJtafar tóku við. Um
sama leyti var á Alþingi samþykkt
innganga í EFTA 1. marz n. k. Al-
menningur í landinu hefur að von-
um átt erfitt með að átta sig á þessu
máli á skömmum tíma. Það sýnist út
af fyrir sig álitlegt, að mega selja
ýmsar íslenzkar vörur tollfrjálst til
EFTA-landa þótt sölumöguleikar
séu þar litlir eins og nú standa sákir.
En böggull fylgir skammrifi. Ekki
má telja það útilokað, að EFTA-
samningurinn geti orðið þjóðinni að
gagni ef vel er á haldið. En sum
ákvæði samningsins eru þannig, að
þau auka mjög á þá nauðsyn, sem á
því er, að hér komi sem fyrst til valda
ríkisstjóm, sem ekki er eins veik fyr-
ir útlendum áhrifum og útlendum
atvinnurekstri og sú, sem nú situr.
Þetta hljóta menn að gera sér ljóst
nú þegar.
Þótt innganga í EFTA hafi verið
samþykkt, er málið ekki útrætt á
Alþingi. Eftir er að fjalla um lækk-
un tolla á innfluttum vömm frá
EFTA-löndum, og eftir er að fjalla
um 45% hækkun söluskattsins, sem
á að bæta upp tolltekjutap og skapa
drjúgar tekjur að auki. En söluskatt-
urinn innheimtist illa og kemur
þyngst niður á láglaunafólki.
Forsætisráðherran mun ennig hafa
í huga hina miklu skuldasöfnun er-
lendis og þá óheillaþróun innan-
lands, að verðbólgan heldur áfram
að vaxa. Hinu hefur hann e. t. v.
ekki eins mklar áhyggjur af, að kaup
máttur launa heldur áfram að
minnka á íslandi á sama tima og
kaupmáttur launa vex í öllum ná-
lægum löndum. □
fyrir mannfjöldaþróun á Norðurlandi
r
Ur ræðu Bjarna Einarssonar, bæjarstjóra, við
fyrstu umræðu fjárliagsáætlunar Ak. 1970
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Aíkureyrar kemur nú til
afgreiðslu bæjarstjórnar. Það
frumvarp, sem bæjarráð leggur
fram er í ýrrusu áþekkt fjárhags-
áætlunum tveggja undangeng-
inna ára. Það sem fyrst og
fremst einkennir þetta frum-
varp, eins og reyndar síðustu
áaetlanir, er hve þröngur stak'k-
ur er sniðinn öilum framkvæmd
um bæjaiáns. Framkvæmdaþörf
in er grfurleg en getan grátlega
lítil. Á blaði, sem ég vona, að
bæj-arfulltrúar hafi fengið með
d-agiskránni, er sýnd hiutfallsleg
skipting níu fjárhagsáætlana og
þessa frumvarps á rekstrar- og
fjánmunamyndunarliði. Nú er
okikiar reikningshaldi þannig
háttað, að hrein skipting á milli
refastrar og fjánnunamyndunar
er erfið. í þessari töálu eru -lagð-
ir sam-an, í neðstu línu, liðirnir
gatna-gerð og skipulagsmál.
F ramík'v æm d asj óðu r og fjár-
munamyndunarliðir á eigna-
breytingareikningi, en lántökur
sem tilgreindar eru í fjárhags-
áætlun eru dregnar frá. Við get
um kaJlað þetta framkvæmdafé
eða eitthvað þvíumlíkt, þó hér
sé eíkki um hreina framkvæmda
hði að ræða. Þetta framkvæmda
fé nam 38.9% af fjárhagsáætlun
1965, en lækkar síðan ár frá ári
niður í 26.3% samkvæmt því
frumvarpi, sem fyrir hggur. Ef
við þrengjum þessa mvnd dá-
lítið og -teljum einungis til þann
hluta gatnagerðar-fjárins, sem
rennur til lagningar nýrra
gatna og endurbyggingar og
malbikunar eldri gatna ásamt
Framkvæmdasjóði og fjármuna
myndunarhðum á eignabieyt-
ingareikningi var hutfahið tæp
34% 1965, en um 17% 1970.
Eins og áðurnefnd tafla sýnir
hafa liðir, svo sem félagsmál,
menntamál, íþróttamál, eldvam
ir, hreinlætismál og stjóm bæj-
arins telkið þetta fé til sín. í
krónutölu munar langmest um
félaigsmóhn og menntamálin.
Stjórn bæjarins er reyndar svip
að hlutfall af tekjum bæjarsjóðs
og verið hefur. En þróun sú,
sem þessar tölur lýsa er dæmi-
gerð fyrir þjóðfélagsástandið.
Nútíminn kxefst vaxandi og
batnandi þjónustu opinberra
aðila, sem ekki má draga úr þó
á móti blósi í efnahagslegu til-
liti, og á krepputímum er ein-
mitt afar sterk tilhneiging til
aukningar á hverskyns almanna
tryggingum Gg meiri þörf fyrir
ma-rgháttaða lýðhjálp. Hin háa
fæðingartala áranna fyrir 1960
gerh' og stórkostlegai' kröfur til
skólaikerfisins, eins og við höf-
um orðið vör við hér í Gagn-
fræðaskólanum, og mikil nauð-
syn örari hagþróunar eykur
þörf á vaxandi gæðum mennta-
kerfisins og aukinni menntun
kennai'a. Við þetta bætist svo sú
verðlagsþróun, sem allir þek'kja.
Verulegum hluta af þeim fjár
hagsbyrðum, sem þessi þróun
hefur valdið, hefur ríkisvaldið
velt yfir á sveitarfélögin, og það
án þess að teljandi þætur k-æmu
á móti í formi nýrra eða betri
tekjustofna. Þær umbætur, sem
gerðar hafa verið á því sviði
hafa fjrrst og fremst komið sveit
a-rfólögum höfuðborgarsvæðis-
ins að gagni. Á ég þar við hina
frægu hækkun eígnaútsvars hér
um árið, sem tvöfölduðu tekj-ur
Reykjavikurborgar af þeirn
tekjustofni, hækkaði tekjur
Akureyrar af honum um 20—
25%, en lækkaði tekjur margra
sveitarfélaga, þeirra sem búa
v-ið lágt fasteignamat. Þess
vegna m. a. hefur ha-gþróunin í
þjóðfélaginu komið misjafnlega
niður á hinum ýmsu sveitar-
félögum.
Ég get elcki, eins og borgar-
stjórinn í Reykjavík, þeg-ar
hann fylgdi fjárhagsáætlun
borgarinnar úr hlaði, gef-ið yfir-
Bjarni Einarsson.
lýsingair um stórbættan fjárhag
og mikinn vöxt framkvæmda.
Reykjavík hefur landið a-llt að
skattlandi, en Akureyri lítið
annað en sjálfa sig. Ef við ber-
um tekjur Reykjavíkur og Akur
eyrar saman er fyrsta atriðið,
sem taka verður til greina að
með-altekjur í Reykjavík e-ru
talsvert hærri en á Akureyri.
1968 voru -m-eðaltekjui’ fram-
teljenda 195.203 kr. í Reykjavík
en 186.212 kr. á Akureyri. Þá
var landsmeðaltalið 186.314 kr.
Mismunur meðaltekna á Akui'-
eyri og í Reykjavík er um 4.8%.
Þetta veldur m. a. því, vegna
þess hvemig útsvarsstiginn er
gerðua', að með að nafninu til
svipaðri eða jafnvel læ-gri álagn
ingu en á Akureyri nær borgin
til sín hærri hluta af heildar-
tekjum borgai'búa. 1968 námu
tekjuútsvör einstaklinga, þau
sem innheimt voru það ár, (af
tekjum 1967) 7.93% af heildar-
brúttótekjum fi-amteljenda í
borginni en á Akureyrí 7.36%.
Sam sagt, það ár tók Reykja-
vík til sín 7.93% af tekjum
borgai'búa, en Akureyrarbær
7.36%. Mig minnir að afsláttur
frá skala hafi verið 6% þetta ár
í Reykjavík en 5% hér. Annað
atriði, sem miklu máli skiptir
er hv-e miklu meiri þýðingu
eignaútsvör hafa fyrir Reykja-
vík en fyrir Akuireyri, vegna
hins mikla munar á faisteigna-
mati. 1969 námu tekjur Reykja-
vík-ur af eiignaútsvörum einstakl
inga og félaga 88.1 m. kr., sem
mér reiknast að hafi verið 6.6%
af tekjum borgarsjóðs, settum
upp á sama hátt og gert er í
reikningum • Akureyrarbæjar.
Tekjur bæjarsjóðs af þessum
tékjustofni námu hinsvegar
ekki nema 3.5 m. kr., eðá 2.9%
af tekjum bæjarsjóðs. Þriðja
atriðið, sem ég vil nefna í þess-
um samanburði er, að Reykja-
vík befur hlutfallslega meiri
tekjur af sínu atvinnulífi en
Akureyri. Tekjur borgarinnai'
af útsvörum og aðstöðu-gjöldum
félaga námu 1969 233.3 m. kr.
eða 17.3% af heildartekjum, en
á Akureyri 19.2 m. kr. eða
15.8%.
Að síðustu sakar ekki að geta
þess, að verulegur hlu-ti af dýr-
asta bluta gatnakeiifis borgar-
innar eru abnennir þjóðvegir,
'hraðbrautir, en hór nær þétt-
býlisþjóðvegur út fyrir byggð
beggja vegna bæjarins, og bær-
inn hefu-r nú framkvæmt fyrir
12.2 m. -kr. umfram framlög í
þessum vegi.
Akureyri hefur orðið illa fyr-
ir barðinu á kreppunni. Hvort-
tveggj-a virðist ver-a, að veruleg
ar veilur hafa komið fram í at-
vinnulífi bæjarins, o-g hitt, að-
stæ-rð bæjarins er óhagkvæm og
ástand hvað snerti-r magn og
gæði hinna ýmsu opinberu fjár-
muna, gatna, vatnsveitu, hafn-
ai', Skólakerfis, o. s. frv. h-efur
verið í lakara lagi. Því er fram-
fara og framkvæmdaþörf hér
mjög rnikil. Það er m. a. skylda
bæjarstjórnar að le-i-tast við að
fullnægja þessum þörfum svo
sem vei'ða má. Slíkt virðist ekki
vera auðvelt eins og sakir
standa nú, ef við einungis lít—
um á frumvarp, sem liiggur hér
fyrir. En hollt er að gera sér
grein fyrir aðstæðum í víða-ra
samhengi. Við þurfum að gera
okkur grein fyrir hvort horfur
eru á breytingum, sem geta gert
þróunina hagstæðari íbúum
þessa bæjar en verið hefur. Það
-sem mestu rnáli skiptir í þessu
samba-ndi er annarsvegar hvort
horfur eru á að stað-a sveita-r-
félaganna almennt innan ríkls-
heildarinnar verði lagfærð en
hinsvegar hvort búast megi við
—að -aðstaða Akureyrar sérstak-
lega batni frá því sem hún er.
Verkefnaskipting ríkis og
sveitarfélaga.
Á vegum Samband-s íslenzkra
sveitarfélaga hefur að undan-
förnu verið unnið allmikið starf
við að byggja upp fræðilegan og
hagnýtan grundvöll fyrir um-
i'æður við ríkisvaldið um breyt-
ingar á verkefnaskiptingu ríkis
og svei-tarfélag-a. Nefnd sú, sem
að þessu hefur unnið, hefur
m-aiikað þá stefnu, að samskipti
ríkis og sveitarfólaga skuli ein-
földuð til muna frá því, se-m nú
er. Minna verði um sameigin-
l'egar framkvæmdir og sameigin
lega þjónustu ríkis og sveitar-
félaga en nú er, en ríki annist
suma þætti að fullu og giæiði af
þeim allan kostnað, en sveitar-
félögin aðra. Sveitarfélögin ann
ist alla þá þjónustu, -sem telja
má, að sé hlutfallslega jöfn þörf
fyrir í hverju byggðarlagi og
krefst meiri beinni tengsla við
borgarana heldur en þjónusta
ríkisins.
Sveitarfélögin fái tekjustofna,
sem samsvara verkefnum betur
en nú er, og verði í minna mæli
háðir ha-gsveiflum en verið hef-
ur og hefðu ekki félaglsleg mark
mið sem slíkir. Hver árangur
verður af þessu starfi er enn
ekki vitað enda árangur að
mestu 1-eyti kominn undir við-
brögðum ríkisins.
Norðurlandsáætlun.
Hvað Akurey-ri sjálfa varðar
skiptir miklu máli að stefna sú,
sem sett hefur ve-rið f-ram í svo-
nefndri Norðurlandsáætlun
verði framkvæmd. Þar er því
haldið fram, „'að vöxtur og við-
gangur Akureyrar hafi megin-
þýðingu fyrir alla mannfjölda-
þróun á Norðurlandi,“ sem um
leið hafi úrslitaáhrif á by-ggða-
þróun landsins sem heildar. Ef
við lítum á þær skýrslur, sem
■fram ha-fa komið sem stefnuyfir
lýsingu ríkisvaldsins í byggða-
málum ætti allur vandi Akur-
eyrar að vera leystur þegar
fram í sækir, ef þessari stefnu
verður framfylgt. Markmiði í
byggðaþróun, sem stefnt er að.
fremst m-eð alhhða eflingu at-
vinnu'lífs á þeim stöðum aða-1-
lega, sem bera ei-ga uppi þá
byggðaþróun, sem stefnt er ð.
Og meginás þeirrar þróunar er,
sa-mikvæmt því sem sagt er,
Akureyri.
Bæjarstjórn Akureyrar hlýt-
ur -að faHia-st á þessi sjónamiið
og hlýtur því að taka upp stefnu
þá, sem fram kemur í Norður-
andsáætlun, sem sína stefnu o.g
haga sér eftir því. Frá sjónar-
miði bæjarstjórnar hlýtur því
að skipta meginimáli að Norður-
landsáætlun verði framfylgt, og
bæjai'stjórn hlýtur að gera sitt
til að svo megi verða. Því er
m. a. nú rétti tíminn til að gena
einhvei'skonar framtíðarspá og
framkvæmdaáætlun fyrir bæ-
inn, sem byggð verði á sörnu
forsendum og Norðurlandsáætl
un. Hef ég þeg-ar gert nokknair
í'áðstafanii' til að afla grund-
vallarupplýsinga, sem nauðsyn.
leg-air eru, og tel ég rétt að unn-
ið verði að þessu verki á fyrstu
mánuðum næsta árs.
Annars er orðið áætlun orð-ið
svo útþvælt -af margs konar mis
notkun og misskilningi, að
varla er hægt -að nota það len-g-
ur, og æskil-egt að kalla það sem
hingað til hefur verið kallað
-framkvæmda-áætlun fyrir bæ-
inn einhverju öðru nafni.
En í þessu sambandi verðum
við að -ge-i'a okkur Ijóst, að það
er vöxtur og viðgangur atvinnu-
lífs bæjarins sem öllu ræður um
framvindu rnála. Atvinnulífið
er okkar akur, og ber bæjar-
stjórn að rækta hann svo sem í
hennar va-ldi stendur.
Staða bæjarsjóðs nú.
Vegna hins takmarkaða
rekstrarfjár bæjarins er afai’
þýðingarmiliið að fjárhagsásetl-
im -sé raunhæf. Að undanski-ldu
því, að á sl. ári var ekki áætlað
fé til þeirra bygginga, sem -fóru
fram úr áætlun 1968, hefur áætl
un líðandi árs reynzt tiltölulega
raunhæf og hefur staðizt betur
en fyrri áætlanir. Samkvæmt
reikningsyfirliti síðustu mánað-
armóta virðast fáir Idðir munu
fara fram úr áætlun. Þeir helztu
eru, hlutfallslega, íþróttamál,
fyrst og fremst vegna halla-
reksturs Skíðahótels og íþrótta-
skemmu svo og rekstur fast-
eigna og sennile-ga ga-tnagerðin.
Hvað rekstursfé snertir er ha-g-
Ur bæjarsjóðs mun betri nú en
í fyrra og betri horfur á sæmi-
'legri stöðu um áramót. Inn-
heimta bæjargjalda stóð nokkuð
betur, en 30. nóvember höfðu
verið innheimt 79.3% útsvara
og aðstöðugjalda, en 76.7% á
sama tíma í fyrra. Meiri hörk-u
hefur verið beitt í ár við að
'halda fjárhagsáætlun en áður,
og síðast n ekki sízt, mikl-ar lán
tökur á árinu hafa ha-ft hagstæð
áhrif á rekstrarfjárstöðu bæjar-
ins. Ef fjárhaigsáætlun næsta ái's
verðui’ a. m. k. álíka raunhæf
og áætlun þessa árs tel ég góðar
horfur á, að fjárreiður bæjarins
komist í skaplegt horf á næsta-
ári, bærinn nái sér eftir koll-
steypuna 1966—1967. Megin-
ata-iði í þessu sambandi er að
Hjartans kveðja
frá börnimum, Árhvammi, Öxnadal
Elsku- .afi, nú kærleiks böndin bresta,
er burt þú flytur, frá okkur uni sinn.
Við biðjum þér, þess fegursta og bezta,
og biðjum Guð að lýsa veginn þinn.
Þó við sorgir ekki ennþá skiljum,
og sigur lífsins alltaf mikill er.
Ó, vertu sæll, við klökkvum huga kveðjiun,
og kærleiks friður ætíð fylgi þér.
okkur takist að greiða vanskila-
skuldir bæjarins við Tryggin-ga
stofnun ríkisins og Sjú'krasam-
lag bæjarins á næsta ári.
Höfuðdrættir fjárliagsáætlunar.
1 fyrirHggjandi frumvarpi eir
gert ráð fyrir að rekstrargjöld
bæjarins hækki um 14.5%, en
tekjurnar alls um 15.3%. Þessi
hlutföll geta breytzt eitthvað á
milli umræðna, þar eð upplýs-
ingar um suma tekjusto-fna eru
enn ófullnægjandi, og víst má
telja, að þýðingannikill útgjalda
Hður, aknannatryggingar,
hækki um 5—6% frá því sem
hann er áætlaður í frumvarp-
inu. Til þess að fjárhagsáætlun
vei-ði sem raunhæfust tel ég
rétt að önnur u-mræða um fjár-
hagsáætlun fari ekki fram fyrr
en þessar upplýsingar liggja
fyrir.
Tekjuáætlun.
í yfirliti því, sem fylgir frum-
varpinu, sjást áætlaðar breyt-
ingar tekjustofna í krónutölu og
í hlutfalli. Þær veruleigu hæ-kk-
anir, sem þar koma fra-m, byggj
ast á verðla'gshækkunum vegna
gengisfellinganna og á þe-im
'hcekkunum launataxta, sem af
þeim hefur leitt. Efraahagsstofn-
unin reiknar með um 13% hækk
un brúttótekna landsmanna og
20—25% hækkun söl-uskatts-
skyldrar veltu. Samkvæmt þe-im
upplýsingum, sem ég hef nú,
virðast þessar hækfcanir svip-
aðar hér og í landinu almennt.
Æskilegt er að nánai'i upplýs-
ingar um þessi atriði liggi fyrir
áður en fjárhagsáætlunin verð-
ur afgreidd endanlega, og mun
ég reyna a-ð afla þeirra. Mikl-u
máli skiptir í þessu sambandi
að fólksfjölgun í bænum er enn
mikil Samkvæmt upplýsingum
á m-anntali ok-kar fluttu 88 fleiri
‘ "til bæjarins 1969“ én fra"honum,
sem er talsvert meira en 1968.
Bendir þetta til þess að íbúa-
fjölgun verði nú aftur yfir 2%.
Við vitum hins vegar ekki hvort
meðaltekjur bæjai'búa hafa
hækkað meira eða minna en
nemur landsmeðaltah. Tekju-
skiptingu í bænum er þannig
háttað, að hver % ti'l eða frá
skiptir bæja-rsjóð mjög miklui
fjárh-agslega. Ég vil geta þess, til
að sýna hve mikla þýðingu
þe-tta g-etur haft, að frá 1967 til
1968 fækkaði gjaldendum út-
svara úr 3249 í 3245, þrátt fyrir
allmikla fjölgun íbúa, enda
(Framhald á blaðsíðu 7)
num stíl aí þoka
\
JOHANNES VÍGFÚSSON, PÍANÓLEIKARI,
SVARAR NOKKRUM SPURNINGUM BUÐSINS
Nemandi Skrifar:
Menn læra af öðrum. „Maður
verð'ur manni líkur í samfélagi
við aðra menn“. Alist hann upp
•meðlal úlfa, apa eða þursa, verð
ur hann úlfum, öpum og þurs-
um líkur í hátterni sínu og
breytni. í dag er hraðinn að
gera hvern mann vitskertan.
Bezt er að hafa augun opin,
helzt allan sólarhringinn því
alltaf er eitthvað að gerast.
Menn fara til vinnu sinnar, börn
og unglingar í skóla o. s. frv. En
alllir eiga sínar frístundir. Það
eru þær sem þú skalt nota vel.
Hefii'ðu anna-rs veitt því athy-gli
að flest stórmenni sögunnar
hafa einmitt unnið sín mestu
afr-ek í frístundum sínum (Edi-
son, Lincoln o. fl.).
í bænum eru starfandi nokkr
ir félagsskapar æskufólks. Þeir
viniia a'Hir góðverk á sínu sviði.
Er efcki hægt að mynda ein-
hvei-ja samvinnu meðal þessara
félaga? Það yrði ódýrara heldur
'en að hvert félag starfi í sínu
hoi-ni.
Hvað á 15 ára unghngur sem
ieiðist hekna hjá sér (því víða
cr pottur brotinn) að gera?
Hann hefur ef til viH e'kki
áhuga á neinum félagsskap í
foænum en langar samt að
skemmta sér með jafnöldrum
sínum. Svarið er auðvelt:
ÞVÆLAST um göturnar eða
fara inn á t. d. H. A. en þangað
má ekki stígia fæti inn nema
kaupa eitthvað og auk þess þarf
viðkomandi að vera orðinn 16
ára til að fá þar inngöngu ef-tir
kl. 8 á kvöldin. Kvikmyndahús-
in eru oft og iðulega með bann-
laðar myndir og þá er sá draum-
ui' búinn. Sem sa-gt ekkert hægt
að gera. Og efckert er óheppi-
legna fyrir fjörmikinn athafna-
sarraan ungling er að hafa ekk-
ert fyrir stafni. Æiskulýð'sráð er
starfandi í bænum en er lítils-
megnugt vegna fjárhagsvand-
ræða. Hvemig verður ástandið
þegar Akureyri verðux borg? f
stórborgum Bandai'íkjanna eru
innbrot og glæpir svo tíðir að
allur almenningur er -hættur að
fylgjast með því. Við verðum að
varna því að iðjulausir ungling-
ar fari út í þjófnað, skemmdar-
v-erk og óreglu. En hver er leið-
in til að bæta þetta áður en
Akureyri verður borg?
Frá mínum bæjardyrum séð
er brýn nauðsyn á að fá féla-gs-
heimili sem Æskulýðsráð hefði
umsjón með. Ætti þar að vena
opið hús fyrir alla 14 ára og
eldri nokfcur kvöld í viku frá
kl. 8—11. Til skemmtunar mætti
hafa t. d. diskótek, sjónvarp, út-
varp -og leikstofur af alls kyns
gei-ðum (sam'anber Tónabæ í
Reykjavík).
Einnig tel ég að bærinn þurfi
að ráða sálfræðing og félagsráð-
gjafa sem hver og einn gæ-tí.
leitað tiil í sínum vandræðum.
„Æskulýðurinn er einn okkar
mestu fjársjóða“, segja þeir full
orðnu og munið: „Maðurinn
verð-ur manni líkur í samfélagi
við aðra menn“. Reynum því að
búa erfingjum bæjarins góðan
samastað og félagsskap stnax.
Virðingafyllst.
H. H. nemandi G. A.
HÉR á dögunum. nánar tiltekið
á þriðja í jólum, efndi ungur
Akureyringur, Jóhannes Vig-
fússon, ttí píanótónleika í Borg-
arbíói á Akureyri, og var þetta
frumraun hans á tónleikapal-li.
Af þessu tilefni fer hér á eftir
htið spjall við Jóhannes.
Hann er borinn og barnfædd-
ur hér á Akureyri, sonur Huld-
ar Jóhannesdóttur og Vigfúsar
Jónssonar og á þegar að baki
sér óvenju glæsUegan náms-
feril. Jóhannes lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akui'eyri vorið 1965 með ágætis
einkunn og hélt utan sama ár
til náms í stærð- og eðlisfræði
við háskólann í Ziirich.
Hann stundaði einnig nám
við Tónlistarskóla Akureyrar
og lau-k prófi þaðan vorið 1964,
og jafnhliða háskólanámi hefur
hann numið við tónlistarháskól
ann í Ziirich með píanóleik sem
aðalnámsgrein.
í fyrsta lagi, livað gætirðu
Jóhannes sagt okkur af þeirri
ágætu stofnun, sem þú stundar
tónlistarnám við?
„Tónlistarháskólinn ber hið
langa nafn „Konservatorium
und Musifchochschule Ziirich".
Deild sú, er ég stunda nám
við heitir „Konzert-ausbildungs-
klaisse“ og skiptist í ýmsar grein
ar.
Námstilhögunin miðast við
það að mennta verðandi atvinnu
fólk á hinum ýmsu sviðum tón-
listar. Þar e-r t. d. kennaradeHd,
sömul-eiðis deild fyrir þá, sem
foyggja á kammermúsik sem sér
svið og svo einleikaradeild og
hef ég valið bana.
Kennari minn, Sava Savoíf,
er búlgarskur að þjóðerni og
nam á sínum tíma í Þýzkalandi,
en hefur um aUlangt skeið verið
búsettur í Sviss.
A-uk hljóðfæraleiksins eru all
margar skyldunámsgi'einar og
nefni ég þjálfun í almennri tón-
heyrn, þá hljómfræði, kontra-
punkt, analysu og foiTnfræði.
Þá er tónhstarsaga, tónlistar-
fagurfræði og kórsöngur, sem
býsna ríkt er gengið eftir að
menn ástundi.
Það er víst óþarft að taka
fram, að eigi að fylgja þessu
öhu eftir, útheimtir það mifcla
tímasókn.
í Ziirich er einnig Tónlistar-
a-kademía (Musikakademe) þar
sem námstilhögun er næsta
frjálsleg. Stendur til, að aka-
demían og tónlistarháskólinn
verði lögð saman í eina stofnun,
og í því sambandi eru fyrirhug-
að’ar verulegai' breytíngar á
námstilhögun og skipan allri.
Þetta mun að ö-Uum líkindum
koma til framkvæmda þe-gar á
næsta ái'i.“
Hver er nú næsti áfangi í nám
inu?
„Enn sem komið er hef ég
ekki séð mér fært að sækja tíma
í öU.um þessum aukagreinum,
sem ég tilgreindi, hvað sem síð-
ar kynni að verða.
Annars stendur til nú í janú-
ar, að ég komi fram í Zúrich á
tónleikum, sem haldnir eru á
vegum skólans.
Jóhannes Sigfússon.
Innan skólans er nokk-uð
stefnt að því að gefa ungu tón-
hstarfólki tækifæri til að koma
fram opinberleg-a, og er kennari
minn einmitt mHtill áhuga- og
fra-mkvæmdamaður í þdfm efn-
um.
A þessum tónleikum verður
efnisskráin sú sama og hér á
Akur-eyri.“
Hvað efnisskránni viðkeniur,
geí ég skriftað það, að hún kom
mér nokkuð á óvart. í fyrsta
lagi flaug mér í hug, hvort þér
hefði eklti óað það að byrja þína
fyrstu tónleika á Mozart sónötu,
langri og vandasamri. í annan
stað átti ég fastlega von á, að
tónlist frá 20. öld myndi skipa
nokkurt rúm þar sem ég veit,
að þú ert áhugamaður um nú-
tímatónlist.
„Það vantaði ekki, að mér
vor-u gefin góð ráð og leiðbein-
ingar og bent á það, sem ég
raunar vissi, að Mozart er mjög
erfiður að fást við, ekki sízt
svona í upphafi tónleika, en
hvorttveggja var, að ég hef dá-
læti á þessu verki, og svo er
lærdómsríkt að spreyta sig á
því á sviðinu.
Það er rétt, að nútímatónlistin
varð afskipt, þegar ég setti sam-
an efnisskrána, og ég vona, að
mér takist að bæta það upp
síðair.
Þessi efnisakrá er fi'emur í
hefðbundnum stH. Allt eru þetta
vel þekkt og dáð verk. Ef til vill
hef-ur hátíðleiki jólahaldsins ein
hvemveginn haft sín áhrif
þarna, en þá leita-r hugurinn
gjarnan aftur til hin-s vel
þefckta, til meistaraverka lið-
inna tíma.“
Ég hef iðulega hugleitt það,
hvort hið gamalkunna tónleika-
form sé ekki að syngja sitt síð-
asta, livort þetta sé raunar ekki
að verða úrelt fyrirkomulag,
sem lengi hefur tíðkazt, þ. e.
með virtuos einn eða fleiri uppi
á sviði og meira eða minna
óvirka áheyrendur úti í sal.
Sjást þess engin merki úti „í
hiinuii stóra heimi“, að í þess-
um efnum sé einliverra breyt-
inga áð vænta?
„Því er ekki að neita, að
margt bendir til þess, að tón-
leikaform sé mjög að færast í
nýstárlegra horf, og tekur það
einkum og sér í lagi til tónverfca
nútímahöfunda.
Þeir miða margir hverjir veúk
sín við nýtt fyrirkomulag á
flutningnum og stefna greini-
lega að því að rjúfa markalín-
una milli flytjenda og áheyr-
enda. Það er vel hugsanle-gt, að
tónleikar í hefðbundnum stH
muni að einhverju leyti þoka
fyrir nýjum háttum.
Þessi þróun, sem raunar gæt-
ir einnig og ekki síður í leiklist,
beinist fyrst og fremst í þá átt)
að gera hinn almenna áheyr-
anda að sem allra virkustum
þátttakanda í listinni, fá hann
til að leggja fram sinn skerf til
þess sem fram fer, með öðrum
orðum vera með á nótunum.“
Að Iokum Jóhannes, hvað
hyggstu fyrir á næstunni?
„Það fer nú senn að síga á
seinni hluta eðlisfræðinámsins.
Hvað síðar tekur við er óráðið.
Tónlistarnámi mun ég náttúr
lega halda áfram eftir föngum.“
Dagur þakkar Jóhannesi
spjallið og árnar honum heiUa.
S. G.
Tónleikar Jóhannesar Yigíússonar
- Fréttir úr Reykjadal
(Framhald á blaðsíðu 5)
66 ára að aldri. Hann hafði farið
út til gegninga um morgunin
og -komið inn frá þeim, en veikt
ist þá snögglega og var látinn
éður en læknir kom á vettvang.
Stefán var fæddur að Þórodd-
stað í Kinn, en ólst upp að Brett
ingsstöðum í Laxárdal. Hann
'bjó aH'an sinn búskap í Reyk-
dælahreppi, síðustu 30 ár á
Hjalla. Stefán var vinsæll mað-
ur og glaðlyndur, áhugasamur
og fengsæU stangveiðimaður.
Má ótvn-ætt rekja það til upp-
vaxtar hans á bakka Laxár;
liinnar rómuðu veiðiár.
Hann lætur eftir sig ek-kju,
Fjólu Hóbng-etísdóttur, og 4
uppkomin börn. □
LAUGARDAGINN 27. des. sl.
fóru fram í Borgarbíói aðrir tón
leikar Tónlistarfé-lags Akureyr-
ar á yfirstandandi starf-sári.
Jóhannes Vigfússon lék á
píanó, og voru þetta fyrstu sjálf
stæðu tónleikar hans.
Ekki skal það endurtekið hér,
sem getið er á öðrum stað í
blaðinu um námsferH hans fram
að þessu, en afköst h-ans í námi
hafa alla tíð verið slík, að stóra
undrun og Sdáun vekur.
Á efnisskrá voru verk eflir
Moza-rt, Beethoven, Brahm-s og
Chopin, og var þungamiðjan hin
stórbrotna „LebewohT* sónata
Beeithovens.
Það fer ekki miUi mála, að
Jóhannes hefur náð miklum og
góðum árangri og tekið alhliða
framförum.
Leikur h-ans ber það ekld með
sér, að tónlistamámið sé ein-
ungis a-ukastarf eða tómstunda-
gamian. Hann tekst á við við-
fangsefnin af fuHri alvöru og er
á góðri leið með að ná öruggri
tækni.
Mér virðist flutningur hans á
vei'kum Chopins mjög bera af,
með skýru-m heildarsvip, og leik
ur hans yfirleitt hefur fengið
aukinn blæ léttleika og mýktar.
Var honum vel fa-gnað og inni
lega, færð blóm og lék hann að
lokum aukal'ag, Etude efttí
Chopin.
Nú hefur Jóhannes staðizt
sína frumraun á tónleik'asviði
svo sem hans vai' von og víisa.
Hann á enn námsbraut fram,-
undan, og er ekki að efa, að
hann gengur hana með glæsi-
brag.
Hann á einnig eftir að í'eyna
enn frekar örðugleifca þá, sem
því eru samfara að þjóna tveim
herniim.
Um það skal engu spáð, hvor
yfir-sterkari verður, er fram í
sækir, einungis vildi ég me-ga
bera fram þá ósk, að eð-lisfræðin
nái ekki alveg að yfirskyggja
frú músíku.
Ég er þess fuUviss, að ég mæli
fyrir munn fjölmargra, er óg
segi „mættum við fá meira að
heyra“, og árna honum farar-
lieilla og -alls velfamaðar.
S. G.