Dagur - 14.01.1970, Síða 1
Dagur
LIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 14. janúar 1970 — 2. tölubL
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Mb. Sæiari irá Talknaiirði
týndur með sex mönnum
BÁTSINS Sæfara frá Tálkna-
firði, sem var í fiskiróðri í
vondu veðri, er saknað síðan á
laugardag. En til hans heyrðist
síðast kl. 2.30 á laugardagsnótt.
Síðan hefur víðtæk leit staðið
yfir á sjó og í lofti, og gengið
hefur verið með fjörum, en
leitin hefur ekki borið árangur.
Á Sæfara, sem er 100 toonn,
eign Hraðfrystihúss Tálkna-
fjarðar, voru sex menn. □
Skoðanakönnun í
Norðurlandskjördæmi v.
HINN 6. janúar lau'k talningu
atkvæða og stigaútreikningi í
Skoðanakönnun Framsóknai--
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra en skoðanakönnunin fóir
fram dagana 28. nóv. til 18. des.
síðastliðinn. Urslit könnunar-
inntar fara nú til 10 manna fram
boðsnefndar, sem síðan leggur
tillögur um framboðslista í
næstu alþingiskosningum fyrir
kjördæmisþing Framsóknar-
manna í kjördæminu. Er könn-
unin ráðgefandi.
Þeir, sem þátt tóku í skoðana-
könnuninni, áttu að velja fimm
menn og raða þeim síðan í tölu-
röð eftir því í hvert af fimm
efstu sætum listans viðkomandi
skyldi vera. Við útreikning gilti
síðan eftirfarandi stigatafla: Sá
sem settur var í 1. sæti féfck 1
stig. Fyrir annað sæti var 44 úr
stigi, fyrir þriðja sæti % úr
stigi, fyrir fjórða sæti % úr stigi
og fyrir fimmta sæti 44 úr stigi.
Samkvæmt þessu voru úrslit
skoðanakönnunarinnar sem hér
segir:
1. Ólafur Jóhannesson, alþing-
ismaður, 1257 stig.
2. Björn Pálsson, alþingismað-
ur, 654 stig.
3. Magnús Gíslason, bóndi,
Frostastöðum, 478 stig.
4. Stefán Guðmundsson, bygg-
ingarmeistari, Sauðárkróki,
405 stig.
5. Björn Fálsson, stud. scient.,
Syðri-Völlum, 348 stig.
(Framhald á blaðsíðu 5)
i :
' '
Á Austurlandi eru hreindýr kornin til byggða, svo sem á ýmsum stöðum á Fljótsdalshéraði.
VerÖa ,seríuMogarar smíðaðir á Akureyri
Alþingi kom saman á mánudag
ALÞINGI kom saman að nýju
á mánudaginn eftir jólahlé. All-
margir þingmenn voru fjarver-
andi vegna inflúensu, samgöngu
erfiðleika og af fleiri ástæðum.
Tveir varaþingmenn mættu,
þeir Kristján Thorlacius í stað
Einars Ágústssonar, sem varð
fyrir slysi og liggur í sjúkra-
húsi, og Eyjólfur Konráð Jóns-
son í stað Pálma Jónssonar,
sem er veikur.
Þrj ár þingsály ktunartillögur
voru teknar til umræðu. Sú
fyrsta var tillaga um að gerð
verði heimildarkvikmynd af A1
þingi. Onnur var varðandi kaup
lausafjár með afborgunarkjör-
um, sú þriðja um læknaþjón-
ustu í strjálbýli, þess efnis, að
athugaðir vei’ði möguleikar á
að fá hingað til lands erlenda
lækna til að þjóna hinum ýmsu
læknishéruðum, sem ekki fást
■FENGU VERÐLAUN
Á GAMLÁRSKVÖLD var út-
hlutað þi-em styi’kjum úr Rit-
höfundaiisjóði Ríkisútvarpsins.
Styinkinn hlutu, Einar Bragi,
Jakobína Sigurðardóttir og Ós'k
ar Aðalsteinn, 50 þús. kr. hvert.
Jaikobína er húsfi-eyja í Mý-
vatnssveit og fyrsta konan, e,r
vei'ðlaun hlýtur úr þessum
sjóði.
Úthlutunin var sú fjórtánda
úr Rithöfundarsjóði Ríkisút-
varpsins og afhenti þau Stein-
grímur Þorsteinsson prófessor,
formaður sjóðsstjórnai’. □
skipuð innlendum læknum.
Fjái’hagsnefndir komu saman
í gær, þriðjudag, til þess að
ræða um nýju tollskrána og
45% hækkun söluskattsins. □
TOGARAFLOTI landsmanna
hefur dregizt sarnan síðasta ára
tuginn. Flestir voru togaramir
47 en eru nú um eða innan við
tuttugu talsins og flestir þeirra
mjög komnir til ára sinna, enda
enginn nýr bætzt í hópinn síð-
ustu 10 árin. Hins vegar hafa
aðrar fiskveiðiþjóðir sótt mjög
fram á þessu sviði, en við dreg-
izt afturúr að sama skapi.
Ýmsir útgerðarstaðir á Norð-
urlandi hafa undanfarin ár
reynt að eignast togara eða hlið
stæð veiðiskip til hráefnisöflunJ
ar fyrir hraðfrystihús staðanna
og fiskverkunarstöðvar, en af
togarakaupunum hefur ekkert
orðið. Á sama tíma hefur
nefnd á nefnd ofan unnið að
athugun á gerð væntanlegra
BjargaBi tnanni við Togarabryggju
ÞAÐ bar til á Akureyri 8. janú-
ar, á fjórða tímanum, að lög-
reglunni bai-st sú tilkynning frá
Ú. A., að maður hefði lent í sjó-
inn við Togarabryggjuna. Brá
lögreglan við og kom innan
lítillar stundar á slysstaðinn, en
þá flaut maðurinn í sjónum 15
—20 m. fi-aman við bryggju-
hausinn.
Ófeigur Baldursson lögreglui-
þjónn (friá Ófeigsstöðum) setti
á siig bjarghx-ing, kastaði sér til
sunds og náði manninum. Frost
var 19 stig. Varð hvorugum
meint af þessu volki. Fór Ófeig-
ur strax til vinnu sinnar, er
hann hafði farið í þurr föt, en
'hinn maðurinn, sem dvalið
hafði á Akureyri um jólán, var
fluttur í sjúkrahús til aðhlynn-
ingar.
Seint á laugai'dagskvöldi'ð,
10. janúar, kom eldur upp í svo_
kölluðum verkstjóraskúr ó norð
anverðri Togarabryggju, austan
við bílavogina. Slö'kkvilið bæjar
ins kom á vettvang og slökkti
öldinn, en skúrinn er ta'linn
ónýtur að mestu eftir brunann.
Þarna var kaffistofa. Um elds-
upptök er ókunnugt.
Ólvun var lítil um helgina en
árekstrar nokkrir, eða alls sex
síðan á fimmtudag.
skipa á vegum hins opinbera,
en árangur liggur ekki ljós fyr-
ir. íslendingar verða nú að feta
í fótspor annarra um gerð tog-
ara og veiðitækja, og þeir verða
eiunig að vakna af tíu ára dvala
og endurnýja skipastól sinn
eins og aðrir og á þann veg, að
henti til veiða í sama sjó.
Sauðárkróksbúar, Skagstrend
ingar, Siglfirðingar, Akureyr-
ingar og Norðfirðingar hafa
hver í sínu homi reynt að Ieysa
gátuna um „hið fullkomna
skip“, en e. t. v. eru að verða
þáttaskil í því máli. Seint á
liðnu ári fóru nokkrir forystu-
menn útgerðar frá sumum þess
um stöðum til Noregs til þess
m. a. að skoða togara nýja tím-
ans, sem íslendingar þekkja að-
eins af afspurn. Þar skoðuðu
þeir sérstaklega grænlenzkan,
nýjan togara, sem er einn af
nýjustu skuttoguruonum og
hann er einmitt af þeirri stærð,
sem kann að vera hagstæð hér
við Norðurland og af þeirri
stærð a. m. k., sem Sauðárkróks
búar hafa látið teikna og boðið
út. Smíðalýsing af þessu nýja
skipi hefur undanfamar vikur
verið til athugunar í Slippstöð-
inni á Akureyri og Stálsmiðj-
unni í Reykjavík. Teikning
þessi er af 500 tonna skipi, og
af þeirri stærð er grænlenzki
togarinn.
í Noregsferðinni var hið græn
lenzka skip vel skoðað, og gagn
legar upplýsingar fengnar hjá
færeyskum skipstjóra þess, en
(Framhald á blaðsíðu 4)
Hekla í reynsiu-
ferð í dag
I GÆR var ráðgert, að fara árn
degis í dag, miðvikudag, reynslu
ferð á nýja strandferðaskipinu
Ileklu, sem nú liggur fullsmíðað
við Togarabryggjuna á Akur-
eyri. Ennfremur er ráðgert að
afhenda hinum nýju eigendum,
Skipaútgerð ríkisins, Heklu áí
laugardaginn. En þann dag
verður siglt um Eyjafjörð með
ýmsa boðsgesti, og að afstað-
inni þeirri siglingu mun verða
boðið til veitinga á KEA. □
Nálfúruverndarár 1970
Ófeigur Baldursson,
lögregluþjónn.
Hinn 8. janúar varð 5 ára
telpia fyrir bifreið í Stekkjar-
gerði. Hlaut hún höfuðhögg og
skrámaðist lítilisháttar -— og fé'll
í götuna. En meiðsl hennar eru
ekki alvarieg.
(Saankvæimt viðtali við lög-
regluna).
EVRÓPURÁÐIÐ í Strasbourg
hefur samþykkt, að árið sem nú
er að byrja, skuli helgað bar-
áttunni fyrir verndun náttúr-
unnar og hinni náttúrulegu auð
linda og mælizt til þess að svo
verði gert í öllum aðildarríkjum
ráðsins.
Félög og stofnanir, sem haifa
náttúruvernd á stefnuskrá
sinni, munu að því tilefni efna
til sérstakra aðgerða, hvert á
sínu svæði, svo sem með fund-
um, sýningum, útgáfu eða „her-
ferðum“ af ýmsu tagi.
Mjög er mikilvægt, að al-
menningur kynni sér þessi mál
og taki afstöðu til þeirra.
Samtök um náttúruvemd á
Norðurlandi, munu bráðlega
senda út ávarp í tilefni að nátt-
úruverndarárinu, þar sem mál-
efni náttúruverndar verða ýtar_
lega kynnt.
(Fréttatilkynning frá stjórn
Samtaka um náttúruvemd á
Norðurlandi). ,
Bcrun er hafin
BORUN hófst á Laugalandi á
Þelamörk á mánudaginn, á veg-
um Akureyrarbæjar vegna
væntanlegrar hitaveitu kaup-
staðarins. Vinna tíu manns við
borunina, á vöktum og er borað
ailan sólarhringinn.
Talið er, að hver 6—700 m.
djúp boihola muni kosta 3
milljónir króna.
□