Dagur - 18.02.1970, Side 4

Dagur - 18.02.1970, Side 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Síniar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. FRÆÐSLU ER ÞÖRF FYRIR fimmtíu og fjórum ánini var eftirfarandi samþykkt á Onguls- stöðum í Eyjafirði, um markmið Kaupfélags Eyfirðinga: Að útvega félagsmönnum góðar vömr og ná hagfelldum kaupum á þeim. Að efla vömvöndun og koma inn- lendum vömm í sem hæst verð. Að spoma við skuldaverzlun og óreiðu í viðskiptum. Að safna fé í sjóði til tryggingar fyrir framtíð félagsins. Að stuðla að útbreiðslu og eflingu samskonar félaga hér á landi og koma sér í samvinnu við þau. Að efla þekkingu manna á sam- vinnufélagsskap og viðskiptamálum. Hér eru margir meginþættir í starfsemi kaupfélaganna skýrt mark- aðir og það vom eyfirzkir bændur, sem þannig mótuðu stefnuna í upp- hafi. Segja má, að starfsemi Kaup- félags Eyfirðinga og fleiri kaupfélaga liafi frá upphafi til þessa dags verið sú, að bæta lífskjör fólksins. Enginn innflutt félagsmálastefna hefur bor- ið betri eða meiri árangur í barátt- unni fyrir bættum lífskjörum. I öðm lagi var samvinnustefnan frá upp- hafi einskonar félagsmálaskóli alþýð unnar í landinu og hefur áhrifa hans hvarvetna gætt í þjóðfélaginu og borið góða ávexti á fjölmörgum sviðum. Með samvinnustefnunni var horfið frá hinum fmmstæðu sam- skiptum, þar sem vald fjármagns ræður lögum og lofum, inn á braut samhjálpar og samábyrgðar. Atök þessara afla standa enn yfir í flestum þjóðfélögum og má segja, að sam- keppnin milli þeirra hafi leitt til stórbreytinga í viðskiptaháttum og mannlegum samskiptum yfirleitt, og í jákvæða átt. Hér í blaðinu liefur verið að því vikið oftar en einu sinni, að einn þátturinn í stefnu eyfirzku bænd- anna hafi verið vanræktur um of, en hann er, eins og segir í ofanritaðri ályktun frá 1906: „Að efla þekkingu manna á samvinnufélagsskap og við- skiptamálum.“ Undirstöðu hinna margháttuðu framkvæmda kaupfé- laganna og síðar Sambands ísl. sam- vinnufélaga má m. a. rekja til ársins 1919, þegar Hallgrímur Kristinsson fékk það samþykkt, að verja mætti fimmta hluta hreinna tekna Sam- bandsins til fræðslu og andlegrar valtningar um samvinnumál. Og í þessu sambandi er vert að minnast Samvinnuskólans. En þrátt fyrir þetta, er almennur þekkingarskortur samvinnustefnunni e. t. v. mestur f jötur um fót nú, og því er nauðsyn- legt að finna fleiri færar leiðir til almennrar fræðslustarfsemi eins fljótt og unnt er. □ - Frá Félagsráðsfundi KEA — (Framhald af blaðsíðu 8). Þakkaði hann kaupfélagsstjór- anum fyrir hönd kaupfélags- manna, fyrir þá velvild, að verða við þessum eindregnu óskum kaupfélagsstjórnar. Þá tilkynnti stjórnarfarmað- Urinn einnig, að Valur Arnþórs son, sem verið hefur fulltrúi kaupfélagsstjóra að undanförnu, hefði nú verið ráðinn aðstoðai*- kaupfélagsstjóri og bauð hann velkominn til starfa í þeirri stöðu. Þessi tíðindi munu fagn- aðarefni samvinnufólks á félags svæði KEA, því hinn aldni kaup félagsstjóri virðist enn hafa fulla starfsorku og býr yfir meiri þekkingu og reynslu en nokkur annar starfsmaður fé- lagsins og hinn nýi aðstoðar- kaupfélagsstj óri hefur getið sér gott orð í fulltrúastarfinu og er nú orðinn kaupfélagsmálum all vel kunnugur. Mun stjórn fyrir tækisins því í öruggum höndum í næstu framtíð og enginn blá- þráður myndast við snögg skipti í framkvæmdastjóm. Jakob Frímannsson fram- kvæmdastjóri flutti skýrslu um afkomu hinna ýmsu verzlunar- deilda og fyrirtækja kaupfélags ins, ræddi ástand og horfur, og svaraði fyrh-spurnum félagsi-áðs manna. Á hinum árlegu félagsráðs- fundum KEA eru fyrstu opin- berar fréttir sagðar af félags- starfi liðins árs og mikilvægar upplýsingar gefnar um rekstur og hag, þótt reikningum sé ekki að fullu lokið. Senn hefjast svo fundir í hinum ýmsu félags- deildum KEA, sem alls eru tuttugu og fjórar og telja hálft sjötta þúsund félaga samtals. Á þeim fundum mæta að venju kaupfélagsstjórinn og nokki'ir deildarstjórar, til nánari um- ræðna og gagnkvæmra upplýs- inga. í fjölritaðri skýrslu fram- kvæmdastjórans, er félagsráðs- menn fengu í hendur á fund- inum í gær, segir: Árið 1969 var okkur Eyfirð- ingum og Akureyringum að mörgu leyti hagstætt ár. Þótt tíðarfar væri hér norðanlands ærið risjótt framan af árinu, retyndist sumarið fremur hlýtt, grasspretta í góðu meðallagi og spretta garðávaxta sömuleiðás. Heyskapur víðast hvar í hérað- inu dágóður og margir bændur gátu selt meiri og minni hey til óþurrkasvæðanna fyrir sunnan og vestan. Verðlag landbúnaðarvara 'hækkaði innanlands, eins og lög gera ráð fyrir og útflutningur á kjöti og gærum gekk mjög greiðlega. Smjörsala innanlands fer stöðugt minnkandi og um útflutning á smjöri er ekki að ræða. Ef mjolkurframleiðslan fer aftur vaxandi, sem útlit er fyrir nú, er mjög hætt við að smjörbirgðir hækki meira en góðu hófi gegnir. Um sl. ára- mót voru smjörbirgðir KEA um 85 tonnum hærri en í ársbyrjun 1969 og horfir til vandræða ef þær aukast enn á yfirstandandi ári. Þorskveiði var góð hér í firð- inum sl. sumar og mikil fram- leiðsla á báðum frystihúsum KEA þar til í októberbyrjun, en þá dró úr afla og lítið framleitt af fi-ystum fiski 3 síðustu mán- uði ársins. Verðlag hefur farið nokkifð hækkandi á erlendum markaði og sala á hraðfrystum fiski gengur vel á Ameiiku- markaði og nú nýlega var gerð- ur samningur við Rússa á dá- góðu verði. Vörusala í búðum félagsins hér á Akureyri og í útibúunum við fjörðinn, hefur aukizt mikið að krónutölu og mun láta nærri, að söluaukningin samsvari lækk un krónunnar við gengisfelling una 11. nóv. 1968. Heildarvörusalan hefur auk- izt að meðaltali um ca. 27% í verzlunardeildunum en vöru- sala verksmiðjanna og ýmissa söludeilda um nálægt 30%. Sam svarandi tölur fyrir árið 1968 voru í verzlunardeildunum 6% en í verksmiðjunum og ýmsum söludeildum 14%. Þótt rekstrarkostnaður hafi aukizt mjög verulega, sem má að mestu rekja til gengisfell- inganna 1967 og 1968, virðist þó mega ætla að heildarafkóma félagsins ætti að verða nokkru betri 1969 en varð 1968. Þó er mjög hæpið að áætla nokkuð . um væntanlegan rekstrarafgang ársins fyrr en fyrir liggja upp- vík og Hrísey, en á miklu velt- gjör hraðfrystihúsanna í Dal- ur að þeirra afkoma verði ekki lakari en hún varð 1968. Verzl- unai-álagning hefur aldrei verið eins lág, prósentvís, eins og sl. ár og fram að þessu. Er því enn nær vonlaust að smásöluverzl. standi undir raunverulegum kostnaði, og tel ég enn, að ekki verði hjá því komizt, að breyta hámarksálagningu þannig að smásöluverzlun, rekin á heil- brigðum grundvelli, geti borið sig og veitt neytendum góða þjónustu. Eins og á undanfömum árum hefi ég látið taka saman eftir- farandi skýslu uni afurðafram- leiðslu og vinnslu á liðnu ári: Innlögð nijólk nam samtals 19.645.370 Itr., eða um 1.11% lækkun frá fyn-a ári. Útborgað var til framleiðenda á árinu kr. 154.774.555.90, sem er um 22 millj. kr. hærra en 1968 og sem næst 787.84 aurar á ltr. Á sláturhúsum félagsins var slátrað 48.027 kindum og nam kjötþunginn 690.883 kg. eða 0.078% minna en árið áður. Slátrað var 1.902 kindutm fleira en 1968. Meðalvigt lækkaði um 0.604 kg. Gæruinnlegg nam 53.024 st. — 162.770 kg., eða 1.508 kg. meiri þunga en 1968. Ullarinnlegg nam 41.699 kg., eða 15.084 kg. minna en árið áður. Kjötvinnslustöð tók til vinnslu og sölumeðferðar 50.000 kg. af dilkakjöti, 113.500 kg. ærkjöt, 111.700 kg. nauta- kjöt, 28.600 kg. svínakjöt, 36.700 kg. kálfakjöt, 21.000 kg. slög, 41.000 kg. mör, 17.400 kg. svið, 7.500 kg. vambir, hjörtu og lif- ur, 1.100 kg. blóð, 28.000 kg. egg, 800 kg. nautalifur, 4.300 kg. kindalifur, 1.100 kg. svínalifulr, 1.200 svínamör, 79.386 kg. ýmis- legt grænmeti, 3.300 kg. kjúkl- inga,r 3.200 búnt lambagarnir, 4.600 metrar svínagarnir, 2.600 kg. svínaspekk, 700 kg. svína- hausar, 69.000 kg. reykt kjöt. Framleiðslan nam 180.416 dós um af niðursuðuvörum og 331.291 kg. af unnum matvæl- um. Heildarsala kjötiðnaðar- stöðvarinnar í krónum nam um 56V2 millj. kr., en 1968 um 41 millj. kr. Jarðepli. Teknar hafa verið 2.307 tunnur af jarðeplum til sölu, sem er mjög svipað og tek ið var til sölumeðferðar 1968. Freðfiskur unninn á hrað- frystihúsum á Dalvík og í Hrís- ey alls 2.084.276 eða 5% aukn- ing frá fyrra ári. Saltfiskur framleiddur í Hrís ey, Árskógsströnd, Hjalteyri, Grímsey og Akureyri, og flutt- ur út, alls 388.400 kg., eða um 40% minna en 1968. Skreið framleidd á Dalvík og Árskógsströnd 15.450 kg., eða aðeins meira en 1968. Fiskimjöl unnið í Hrísey og Dalvík, alls 776.400 kg., eða uím 5% minna en 1968. Hrogn frá Dalvík, Árskógs- strönd, Hjalteyri og Akureyri, alls 695 tunnur, eða um 5% aukning frá 1968. Refafóður framleitt á Dalvík og í Hrísey, 261.400 kg., eða um 60% aukning frá 1968. Framkvæmdir 1969. Enn hefur verið dregið úr verklegum framkvædum og fjár festingum svo sem frekast var unnt. Það helzta sem lagt var í af fjárfestingarframkvæmdurn á sl. ári, var sem hér segir: Á Akureyri. Breytingar og endurbætur á Brauðgerð félagsins. — íbúðar- stækkun og viðgerð í Brekku- götu 47. — Innrétting 3ju hæð- ar húseignar félagsins við Ráð- hústorg. — Stækkuð áburðar- geymsla við Glerárósa. — Nýj- ar vélai' í Ketilhús og endur- ‘bætur. — Ýmsar vélar og áhöld iðnfyrirtækja. — Vélar til Sam- lagsins og annarra vinnslu- stöðva afurðareikninga. — Vél ar og tæki á skrifstofur. — Bifreiðar, langferðabíll o. fl. — Stórgripasláturhús. — Innrétt- ing starísmannasalar. Á Dalvík. Breytingar á verzlunarhúsi og innréttuð kjörbúð. — Breyt- ingar á Byggingavörudeild. — Kjörbúð við Skíðabraut. — Kauverð íbúðarhúss að Sogn- túni 2 og breytingar. Á Grenivík. Endurbætur á sláturhúsi. — Endurbætur á frystigeymslu. Á Raufarhöfn. Keypt hálft verbúðarhús á móti K. N.-Þ., Kópaskeri. Framkvæmdir 1970. Á yfirstandandi ári eru engar stærri fi'cimkvæmdir fyrirhug- aðar, en þó verður sennilega hafizt handa nú fljótlega með byrjunarframkvæmdir við fóð- urbirgðastöð á Oddeyrartanga. Sömuleiðis er framundan endur nýjun á vélakosti „Sjafnar11 og þegar búið að festa kaup á vél- um til málningarframleiðslunn- ar. Þá er búið að kaupa lyftu) í hótelið vegna sameiningar á eldhúsum hótelsins og Matstof- unnar. Búið er að festa kaup á stórum olíuflutningabíl fyrir Olíusöludeildina. Verið er að ganga frá kaupum á gufukatli til gufuframleiðslu fyrir Slátur- hús, beinamjölsverksmiðju og garnastöð. Enn er ársuppgjör ekki það langt á veg komið, að nokkuð verði sagt um afkomu einstaki'a deilda á árinu. Útlit er fyrir, að verksmiðjureksturinn gefi félag inu ekki lakari tekjur en á ár- inu 1968 og vonir standa til að um verulega minni taprekstutr verði að ræða hjá þeim deild- um, sem reknar voru með halla á því ári. Vörubii'gðir aðfluttra Vara hafa aukizt að krónutölu sökum hækkaðs verðlags, en að magni til eru vörubirgðir sízt meiri í árslok 1968, en þær voru í ársbyrjun. Vörubirgðir sauðfjárafurða urðu talsvert minni nú í árs- lokin 1969 sökum mjög aukins útflutnings á kjöti og gærum. □ Frá Sj ómannafélagi Akureyrar AÐALFUNDUR Sjómanna- félags Akureyrar var haldinn sunnudaginn 8. febrúar. Formaður flutti skýrslu stjórn ar um félagsstörfin á liðnu ári og rakti einkum afskipti félags- ins af kjaramálum, en félagið stóð tvívegis á árinu að gerð nýrra bátakjarasamninga og einnig að samningum um kjör togarasjómanna. í byrjun árs- ins átti félagið í löngu verkfalli vegna samninga um kjör á báta flotanum. Félagsmenn voru 224 í byrjun ársins, en eru nú eftir aðalfund 234. Reikningar félagsins sýndu góða afkomu og var rekstrar- hagnaður 384 þúsund krónur, en eignir í árslok töldust nærri 1.9 milljónii'. Samþykkt var að hækka ár- gjlad félagsmanna úr kr. 1000 í 1200. Þá var samþykkt til síðari um ræðu tillaga er felur í sér þá breytingu á félagslögum, að - Úíilegumaðurinn afhjúpaður Þessar stúlkur voru duglegastar að safna fyrir Rauða krossinn á öskudaginn. — Frá vinstri: Hugrún Stefánsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Svanlaug Finnbogadóttir. (Ljósm.: E. D.) - Prófkjör Framsoknarmanna á Ak. - (Framhald af blaðsíðu 1). 7. 5. Kjósa skal mest 8 menn, og alls ekki fleiri, enda er kjör- 8. seðill þá ógildur. Eigi má kjósa færri en 6 9. menn, enda er kjörseðill þá an hátt (þ. e. merkja má við 10. einnig ógildur. 6. Atkvæði má greiða á tvenn 11. nöfn frambjóðenda á tvennan hátt): 12. a) Með því að setja X framan við nöfn þeirra, sem kjósandinn 13. vill að skipi 8 efstu sæti listans. b) Með því að tölusetja nöfn 14. þeirra, sem kjósandinn vill að Slripi 8 efstu sæti listans. 15. 7. Allar upplýsingar um skoð- anakönnunina eru veittar á 16. skrifstofu Framsóknarflokksins í Hafnarstræti 90. Sími 2-11-80. 17. KYNNIÐ YKKUR ÞESSI MINNISATRIÐI SEM BEZT. 18. Prófkjörsnefnd. jg PRÓFKJÖRLISTI » FRAMSÓKNARFL. 21 1. Jónas Oddsson, læknir, 22. Álfabyggð 16. 2. Svavar Ottesen, prentari, 23. Brekkugötu 8. 3. Erlingur Davíðsson, ritstjóri, 24. Lögbergsgötu 3. 4. Ingvi Rafn Jóhannsson, raf- 25. virkjam., Löngumýri 22. 5. Hafliði Guðmundsson, skrif- 26. stofum., Sólbafcka. 6. Valur Amþórsson, fulltrúi, 27. Höfðahlíð 1. Karl Steingrímsson, útibús- stjóri, Kringlumýri 3. Jón Aspar, skrifstofustjóri, Byggðaveg 134 A. Arnþór Þorsteinsson, verk- smiðjustj., Bjarmastíg 11. Sigurður Óli Brynjólfsson, kennari, Þingvallastr. 24. Haukur Árnason, bygginga- fræðingur, Hamarsstíg 31. Tryggvi Helgason, flugm., Álfabyggð 4. Erlingur Pálmason, lögreglu varðstj., Aðalstræti 24. Hákon Hákonarson, vélvirki Þingvallastræti 26. Sigurður Jóhannesson, fram kv.stjóri Norðurbyggð 1 A. Kristín Aðalsteinsdóttir, kennari, Kafnarstr. 7. Páll Garðarsson, iðnverkam. Höfðahlíð 17. Haraldur Sigurðsson, íþr.- kennari, Byggðaveg 91. Hallgrímur Skaftason, skipa smiður, Norðurgötu 45. Sigurður Karlsson, verkam., Bjarmastíg 11. Auður Þórhallsdóttir, hús- móðir, Hamragerði 10. Ingimar Eydal, hljómlistar- maður, Byggðaveg 101 B. Stefán Reykjalín, bygginga- meistari, Holtagötu 7. Ámi Jónsson, bókavörður, Gilsbakkaveg 11. Bjöm Guðmundsson, fram- færslufulltr., Holtagötu 4. Bjarni Jóhannesson, skipstj., Þingvallastræti 28. Páll Magnússon, bílstjóri, Langholtá 6. Framhaldsdeild í Hjalfeyrarskóla EINS og mörgum er kunnugt, var séra Þórhallur Höskulds- son kosinn prestur til Möðru- valla haustið 1968. En vegna fyrirhugaðra brejriinga á húsi prestsetursins,. bjó hann síðast- liðinn vetur á Akureyri. í sum- ar var svo unnið við 'húsið, og fluttu þau hjónin í haust á stað inn. Kona séra Þórhallar, frú Þóra Steinunn Gísladóttir, réð- ist svo í haust skólasttjóri við barnaskólann á Hjalteyri. En kennarar við skólann auk henn ar eru séra Þórhallur og Jó- 'hann Hermannsson, Kambhóli, sem gegnt hefur starfi skóla- stjóra að undanfömu. Nú í desember var sú ákvörð- un tekin á fjölmennum sveitar- fundi, og með yfirgnæfandi at- kvæðamun, að koma upp fram- haldsdei'ld við skólann fyrir unglinga, það er, fyrsta og annars bekkjar og er fyrir- hugað að hún taki til starfa á þarf að gera nokkrar breyting- ar í skólhúsinu. Með ákvörðun þessari er hafnað aðild að Þela- merkurskóla. Gera margir sér góðar vonir um hina fyrirhug- uðu unghngadeild, og þykir mörgum rnikils ufn vert, að þurfa ekki að senda börn sin í burtu í framtíðinni, strax að loknu fuldnaðarprófi. Heiilsufár hefur verið allgott það sem af er vetrarins, við sluppum að mestu við flensuna, hún kom aðeins á stöku heimili svo vitað sé með vissu. Góð færð hefur verið hér að heita má í allan vetur og sam- göngur greiðar. Snjór er lítill, en svellalög töluverð á láglendi, einfcum í norðanverðum hreppn um, og eklri laustt við að sumir bændur séu uggandi um tún sín í vor vegna kalhættu af þeim sökum, ef ekki tekur upp fyiT en seint. 28. Þóroddur Jóhannsson, skrif- stofum., Byggðaveg 140 A. 29. Baldur Halldórsson, bóndi, Hhðarenda. 30. Jónína Steinþórsdóttir, hús- móðir, Hvannavöllum 8. (Framhald af blaðsíðu 8). ar á bakið, barn þeirra ber hann við brjóst sér og hundur- inn fylgir. Hann er á leið með konu sína til greftrunar í vígðri mold. Höggmyndina, Útilegumann- inn, gerði Einar Jónsson um aldamótin, sýndi hana á Char- Jottenborg í Kaupmannahöfn árið 1900 og hlaut hún frábæra dóma. Með Útilegumanni Einars Jónssonar hefur höfuðstað Norð urland hlotnazt mikil og góð gjöf, er þakka ber að verð- leikum. Undir höggmyndinni er 20 tonna bjarg, flutt framan úr Eyjafirði, talið framhrun úr Möðruf ellsfj alli. Sérstakar þakkir senda íbúar höfuðstaðar Norðurlands fm Onnu Jónsson fyrir þetta mikJa listaverk, sem um langa fram- tíð mun setja svip á Suður- Brekkuna. 10. febrúar 1970. S. F. HVERJIR MEGA SELJA MJÓLK? Nýlega voru mjólkursölumál mjög á dagskrá í blöðum og fleiri fjölmiðlum. Ástæðan var dómur, sem upp var kveðinn yáir verzlunarfyrirtæki í Ólafs- firði. Hlaut verzlunin sekt fyrir að flytja mjólk frá Akureyri til Ólafsfjarðar og selja hana þar, og þótti mörgum, sem ókunn- ugir eru máLavöxtum, harðir kostir. Með mjólkurlögimum, sem samþykkt voru á Alþingi 1934 —1935 var ákveðin grundvaJJar stefna, sem allar ríkisstjórnir hafa síðan virt og viðurkennt, þrátt fyrir ýmsar breytingar þeirra lagta siðan. Sú grundvall arstefna var m. a. fólgin í því, að skipta landinu í mjólkursölu svæði, og mjólkurvinnslustöð eða stöðvum á hverju svæði gert skylt að annast dreifingu og sölu mjólkurafurða á sínu svæði, samkvæmt nánari fyrir- mælum þar um, svo og í sam- ræmi við reglur heilbrigðiseftir lits i. s. frv. Öðrum var sú sala óheimil og er enn, og flutning- ur mjólkur til sölu af einu svæði á annað einnig óheimill, án leyfis. Leyfisveiting til slíks er í höndum Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Þar með voru mjólkursölumálin óumdeilan- lega í höndum bændanna eða vinnslustöðva þeirra. Þeim var, jafnframt þessari aðstöðu, Skylt að hafa á boðstólum góðar mjólkurvörur til handa neyt- endum, á sem lægstu verði og skila framleið'endum eins hag- sttæðu verði og unnt reyndist. Þ. e. dreifingar og sölukostnaði varð að halda niðri, með hag framleiðenda og neytehda fyrir augum. Hvernig hefur svo þetta 'hlut- verk verið rækt? Á þann veg, að þessir kostnaðarliðir eru langt um lægri hér á landi en í nokkru nágrannalandi okkar, og er það atriði óumdeilanlegt eftir samanburð, sem gerður var og fyrir liggur. Mjólkur- vinnslustöðvar hafa ótví- rætt gegnt vel þeirri' skyldu sinni í höfuðdi'áttum, sem lög- gjafinn lagði þeim á herðar. Um hin einstöku framkvæmda- atriði má þó ætíð deila og hefujr það verið gert alla tíð. Mjög hefur t. d. verið rætt um mjólk- urumbúðirnar, hreinlætið, fjölda útsölustaða í þéttbýli, mjólkurtegundir, heimsendingu og sitthvað fleira, og sýnist sitt hverjum. Það er æskilegt að veita sem mesta þjónustu, en hún kostar peninga, sem ein- hverjir verða að greiða. Sumir vilja greiða hana og geta það, en aðrir ekki. Með þetta og rauriar margt fleira í huga, verðulr að vega og meta það mál, sem upp reis í Ólafsfirði, svo og mjólkursölu- málin í heild. Ólafsfjörður er sérstakt mjólkursölusvæði, sam kvæmt þeim reglum sem í gildi eru. Brot gegn þeim reglum varðar sektum og hlaut því svo að fara sem fór í Ólafsfirði þegar kom til kasta dómstól- anna. Hvort lögiri eru réttlát eða ekki, má eflaust um deila og einnig má eflaust um það deila, hvort mjólkursölumál landsmanna 'hefðu verið betur komin í annarra höndum en þau eru, eða betur hefði reynzt framleiðendum og neytendum, að löggjafinn hefði haft önnujr sjónarmið í huga er hann grund vallaði lög og reglur um þenn- an þátt afurðasölunnar. Það geta menn hugleitt. En skylt er að meta að verðleikum það framúrskarandi starf, sem bændasamtökin hafa unnið í þessu máli fyrir almenning í landinu. í klausu einni í íslendingi- fsafold fyrir skömmu þýkir greinarhöfundi við hæfi, að jafna saman einum árangurs- ríkasta þætti nútíma afurðasölu og þjónustu, við Brimarhólms- vist og húðstrokur á dimmasta tíma íslandssögunnar. Þó að þessi barnalega samlíking missi algerlega maiiks, minnir hún vel á það tvennt, hvernig ís- lendingar 'hófu sig upp úr feni erlendrar einokunar og kúgun- ar með félagslegum samtökúm í eigin málum, en því miður minnir hún einnig á það, hve illa sumh’ þekkja gamla og nýja sögu þjóðar sinnar og hve sú vanþekking verður þeim mikill fjötur um fót, er þeir rita um mál líðandi stundar. □ ORÐ í TÍMA TÖLUÐ Nú er mikið rætt ig skrifað um mengun lofts og lagar og ráð til úrbóta. En lítið eða ekkert um mengun lofts í húsum inni, en þar er ástandið ekki betra. Þar er mengunarvaldurinn fyrst og fremst tóbaksreykurinn sem alla ætlar að kæfa. Jafnvel heimili þar sem enginn reykir komast elriri hjá honum. Gestir koma og reykja þar eins og heima 'hjá sér, og það þó þeir viti vel að enginn heimilismað- ur reyki. Að heimsókn þeirra lokinni þarf að opna alla glugga og dyr, til þess að hreinsa loftið aftur. Á heimilum þar sem foreldr- arnir reykja, verða börnin sí- fellt að anda að sér tóbaks- menguðu lofti hvort þeim líkar betur eða ver. Mengun af tóbaksreyk er orðin svo víðtæk að það er ekki hægt að fara á skemmtanir, sækja fundi eða ferðast með hópferðabíl án þess að hafa tóbaksreyk í nösunum allan timann. í verksmiðjum gengur sumt starfsfólkið um reykjandi hvar og hvenær sem er, þótt á veggjum hangi skilti með áletrun „Reykingar bann- aðar“. Hér þarf að verða breyt- ' ing á. í flestum kjarasamning- um er ákvæði um að hreint loft skuli vera í vinnusölum. Hér þurfa trúnaðai’menn fólksins og ráðamenn fyrirtækja að sjá um að reglum sé fylgt. Við sem viljum anda að okk- ur reýklausu lofti höfum fullan rétt til þess og það er engin ókurteisi af okkar hálfu þó við mótmælu(m að reykt sé ofan í okkur. Þeir sem reykja verða að skilja að það er e'kki einka- mál þeirra sjálfra svo lengi sem þeir neyða aðra til að taka þátt í því með sér. Það ættu að vera til sölu stór og falleg skilti með smekklegri áskorun um hreint loft, sem hægt væri að hengja upp á hehnilum. Það gæti verið góð áminning fyrir hlutaðeigandi. S. Sig. félagssyæðið nái einnig yfir Ólafsfjai'ðarkaupstað. Eftir tillögu félagsstjómar var samþykkt mikil hækkun sjúkra bóta og útfararstyrkja og há- marksbótatímabil í veikindum lengt úr 135 dögum í 150 daga. í stjórn sjúkrasjóðs voru kosnir: Tryggvi Helgason, Karl Kristjánsson og Jón Hannesson. Fulltrúar félagsins í Sjó- mannadagsráð voru kisnir: Pét- ur Kristjánsson, Jón Hannes- son og Ármann Sveinsson. Endurnýjun togaranna. Með tilliti til brýnnar nauð- synjar á endurnýjun skipastóls Utgerðarfélags Akureyringa h.f. var eftirfarandi áskorun til stjórnar Utgerðarfélagsins og bæjarstjómar Akureyrar ein- i'óma samþykkt: „Aðalfundur Sjómannafélags Akureyrar, haldinn 8. febrúar 1970, beinir þeirri áskorun til stjórnar Utgerðarfélags Akur- eyi'inga h.f. að hefjast nú þegar 'handa um endurnýjun togara- flota félagsins. Jafnframt skor- ar fundui'inn á bæjarstjórn Akureyrar að veita félaginu þann fjárhagsstuðning, sem nauðsynlegur kann að reynast til að hrinda þessu mikilvæga vei'kefni í framkvæmd. Fundurinn álítur, að endur- nýjun togai'aflotans sé ein mik- ilvægasta og mest aðkallandi ráðstöfun, sem nú bíður úrlausn ar, fyrir atvinnulíf Akui'eyi'ar og þá um leið fyrir eðlilegan vöxt bæjarins. Er því bx'ýnna, að ekki dragist lengur að liafizt sé handa í þessu efni, að tog- ararnii' eru allir oi'ðnir gömul og aflóga skip, eða um 21 árs að meðaltali, og fer því viðhald á skipunum og búnaði þeirra stói'hækkandi ig tafir frá véið- um af þeim sökum vaxandi með hverju ári sem líður. Þá vill fundurinn að gefnu tilefni leggja áhei-zlu á þá skoð- un sína, að nýir togarar fyrir útgerð frá Akureyri verði ekki mimii en 800 rúmlestir að stærð, svo að hin nýju skip vei'ði vel fær um að stunda veiðar hvar sem afla er helzt að fá við land- ið og á öðrum ekki mjög fjar- lægum veiðislóðum — þ. e. utan íslandsmiða. í því efni ber að 'hafa í huga, að með nýjum skip um er verið að byggja fyrir all- langa framtið, jafnvel 20 til 25 ár, ef vel tekst til um stærð og gei'ð skipanna.11 Stjórnarkjör. í byrjun desember var aug- lýst eftir framboðslistum til stjórnarkjörs og var framboðs- frestur til 20. desember. Aðeins einn listi barst, frá fi-áfarandi stjórn og txúnaðai'mannaráði, og vai’ð því sjálfkjörinn. Er stjói'nin þannig skipuð: Tryggvi Helgason, formaður, Jón Helgason, v ar afo nn að u r, Ólafur Danfelsson, ritari, Guð- jón Jónsson, gjaldkeri og Ragn- ar Árnason, meðstjómandi. (Úr fréttatilkynningu) RICHARD BECK: KVEÐJA til Eyjafjarðar Brúar djúpið hlýjuð hönd heillaóskum mínusn. Traust mig ættar tengja bönd tignum dölum þínum. (Soffía Þoi'valdsdóttir fi'á Stói-a-Eyrai'landi var amma (móðir föður) höfundar). Q

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.