Dagur - 25.03.1970, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Ályktun í Laxárvirkjunarmálinu
MÁNUDAGINN 16. marz 1970,
var haldinn fjölmennur fundur
áhugamanna úr Reykjadal,
Að.aldal og Reykjahverfi.
Boðað var til fundarins til
þess að ræða um og taka afstöðd
til framkomins frumvarps til
laga um takmarkaða náttúru-
vernd á vatnasvæði Mývatns og
Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu,
svo og hinna fyrirhuguðu virkj
unarframkvæmda við Laxá við
Brúar.
Fundinum stýrði Þrándur
Indriðason bóndi Aðalbóli, en
fundarritarar voru þeir Benóný
Arnórsson bóndi Hömrum og
Oskar Sigtryggsson bóndi
Reykjarhóli. — Eftirfarandi til-
lögur voru samþykktar:
1. Fundur áhugamanna hald-
inn í Aðaldal 16. marz 1970 skor
ar á Alþingi að fella framkomið
frumvarp til laga nr. 366 um
náttúruvernd á vatnasvæði Mý
vatns og Laxár. Teljum við að
frumvarpið feli í sér óeðlilega
mikið vald óviðkomandi manna
á athafnalíf héraðsbúa. Sam-
þy.kkt með 42 samhljóða at-
kvæðum.
2. Fundur áhugamanna um
virkjun Laxár, haldinn í Aðal-
dal 16. marz 1970 skorar á Al-
þingi að leyfa þegar fullvirkjun
Laxár. Samþykkt með 41 sam-
hljóða atkvæði.
3. Fundur áhugamanna um
virkjun Laxár, haldinn í Aðal-
(Framhald á blaðsíðu 7)
........... ..... ■.-------------------
- ' , . ' ' • ' ' 'N t
Flugumýrarkirkja var endurvígð
Á SUNNUDAGINN var Flugu-
mýrarkirkja í Skagafirði endur
vígð. Hún var byggð 1931, úr
Málverkasýning
á Húsavík
Húsavík 23. marz. Fjórir mál-
arar ha-fa sýningu á verkum sín
um í Barnaskólanum í Húsavík
dagana 26.—31. marz n. k. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 16 á skír
dag og verður síðan opin kl.
16—22 sýningardagana. Málar-
arnir eru: Benedikt Jónsson,
Húsavík, Hreinn Elíasson, Akra
nesi, Snorri Sveinn Friðriksson,
Reykjavík og Björgvin Sigur-
•geir Haraldsson, Reykjavík. —
Sýnir hver þeirra 6 myndir eða
samtals 24 myndir. Þetta er í
fyrsta skipti, sem efnt er til sam
sýningar á Húsavík, en málar-
arnir fjórir voru samtíða í
Handíða- og myndlistarskólan-
um fyrir 10 árum. Allar mynd-
irnar eru til sölu. Þ. J.
timbri nema útveggir steyptir,
og var nú endurbyggð. Yfir-
smiður nú var Guðmundua-
Márusson, Þormóðsholti, en
teikningar gerði Jón Geir
Ágústsson. Viðgerðin mun hafa
kostað um 600 þús. kr. en sókn-
in er lítil, telur innan við 60
gjaldendur á 12 bæjum. Gréta
og Jón Björnsson önnuðust
málningu.
Séra Pétur Sigurgeirsson
vígslubiskup á Akureyri endur
vígði kirkjuna en vígsluvottar
voru fjórir prastar, auk sóknar-
prestsins, séra Sigfúsar J. Árna
sonar í Miklabæ. Kirkjukór
Miklabæjarkirkju og Flugu-
mýrarkirkju sungu sameigin-
lega við vígsluna. Kirkjusókn
var mikil að þessu sinni og að
lokinni guðsþjónustu var öllum
kirkjugestum boðið til rausnar-
legra veitinga á Flugumýri.
í sóknarnefnd Flugumýrar-
sóknar eru Konráð Gíslason,
Jón Ingimarsson og Stefán Jóns
son, og safnaðarfulltrúi er Jón
Eiríksson, Djúpadal. Q
Mörg hinna eldri liúsa á Akureyri hafa sinn aérstaka svip.
(Ljósm.: E. D.)
Sjálfsfæðismenn þvo hendur sinar
1 SÍÐASTA tölublaði íslend-
ings-ísafoldar er mikil grein
með yfirskriftinni: „Rógburð-
urinn um Slippstöðina h.f.“ Er
þar látið líta svo út, að greinin
sé skrifuð til vamar Slippstöð-
inni. Hitt mun þó sönnu nær,
að hún sé vamargrein fyrir
ýmsa Sjálfstæðismenn, er af-
skipti hafa haft af málefnum
þessa fyrirtækis.
Sannleikur þessa máls er sá,
að Akureyringar hafa staðið vel
saman við hlið Framsóknar-
manna og samvinnumanna að
uppbyggingu og rekstri Slipp-
stöðvarinnar h.f., þessa myndar
lega og þarfa fyrirtækis og það
er bæjarbúum til sóma, en
óþokkaverk að reyna að rjúfa
þá samstöðu. Má fullvíst telja,
að' undir þessi orð geta allir
hugsandi menn tekið og gert að
sínum orðum.
En það vill svo til, að nýleg
blaðaskrif, einkum í blöðum
Alþýðuflokksins, em sprottin af
þeirri afstöðu Sjálfstæðisflokksí
manna, að troða Jóni G. Sólnes1
bankaútibússtjóra í stjóm SIipp
stöðvarinnar og það er gagn-
rýnt liarðlega.
Dagur vill benda þessum
„stríðsaðilum“ á það, að nú og í
framtíðinni er meiri þörf góðr-
ar samstöðu um Slippstööina
h.f., en að hefja deUur inn róg
eða ímyndaðan róg, eins og fs-
lendingur-ísafold heimskar sig
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fleiri þotuferðir milli landa -
Sumaráætlun F.I. gengur í gildi 1. apríl næstk.
RÁÐHERRANN FELLDI
STJÓRNARFRUMVARPID
ÞAU tíðindi urðu í efri deild
Alþingis á mánudaginn, að
stjórnarfrumvarpið um verð-
gæzlu og verðlagsmál var fellt
með jöfnum atkvæðum, og réði
atkvæði Eggerts G. Þorsteins-
sonar sjávaiútvegsmálaráðherra
úrslitum, en hann greiddi at-
kvæði á móti frumvarpinu.
324 TONN Á SEL-
VOGSBANKA
AKUREYRARTOGARAR hafa
aflað sæmilega að undanförnu
og sótt eifla sinn suður fyrir
land, og landað í heimahöfn.
Kaldbakur landaði 16. marz
218 tonnum.
Svalbakur landaði 19. marz
170 tonnum.
Ilarðhakur lauk við 324 tonna
löndun í gær.
Sléttbakur landaði 171 tonni
11. marz. Q
Á fundi í neðri deild, sem
slóð yfir um sama levti, var
þessi atburður ræddur og gerð
fyrirspurn um það, ‘hvort ekki
mætti ganga út frá því, að
stjórnin segði af sér, eftir slík-
an atburð, eða a. m. k. sá ráð-
herra, sem flutti stjórnarfrum-
varpið. En það var Gylfi Þ.
Gíslason. Gylfi gaf þau svör, að
fall stjórnanfi-umvarpsins mundi
ekki í neinu breyta störfum
stjórnarinnar og ráðherrarnir
myndu sitja áfram, eins og ekk-
ert hefði í skorist. Sagði hann,
að Alþýðuflokkurinn hefði ver-
ið klofinn í málinu. Hann
komst svo að orði m. a., að í
þessu máli hefði afturhaldið
sigrað og þótti ýmsum þetta grá
lega mælt í garð meðráðherra
og flokksbróður, að kalla hann
afturhald.
Framsóknarmenn í efri deild
lögðu fram rökstudda dagskrá
þar sem lögð var áherzla á, að
óeðlilegt væri að setja ný lög
hálfu öðru ári áður en þau ættu
að koma til framkvæmda, og að
án setningar nýrra laga væri
hægt að breyta í framkvæmd
ýmsu, er miður hefði farið við
ákvörðun verðlags undanfarið.
í neðri deild minntu menn á að
umbót á framkvæmd væri á
vaidi ráðherra þar sem ráðu-
neytisstjóri hans væri oddamað
ur í verðlagsnefndinni. Q
SUMARÁÆTLUN millilanda-
flugs Flugfélags íslands gengur
í gildi 1. apríl n. k. og verða þá
að vanda verulegar breytingar
á millilandaflugi félagsins. Sum
aráætlunin gerir ráð fyrir meira
flugi en nokkru sinni áður og
verða flognar 13 þotuferðir á
viku milli íslands og annarra
landa yfir háannatímann. Að
auki verður Færeyjarflugið
framkvæmt með Fokker Friend
ship flugvélum. Frá gildistöku
sumaráætlunar um næstu mán-
aðarmót mun ferðum fjölga
fram að háannatímanum, sem
hefst raunverulega síðari hluta
júnímánaðar og stendur fram í
byrjun september. í september-
mánuði og þó sérstaklega í októ
ber fækkar ferðum aftur unz
vetraráætlun tekur við að nýju
hinn 1. nóvember.
FRAMSOKNARFÉLAG Dal-
víkur hefur ákveðið að gangast
fyrir skoðanakönnun meðal
kjósenda, hverja þeir teldu
æskilegast að skipuðu efstu sæti
á lista Framsóknarmanna við
sveitarstjórnarkosningarnar í
vor. Kosið verður fimmtudag
26. marz og laugardag 28. marz
kl. 14—22 báða dagana. Kjör-
staður verður í Bifreiðastöð
Gunnars Jónssonar. Þeir sem
óska, geta fengið kjörseðla heim
senda. Þátttakendur geta allir
orðið, sem kosningarétt hafa og
eru ekki flokksbundnir í öðrum
stj órnmálaf lokkum.
Eftirtaldir menn eru í kjöri
við skoðanakönnunina:
Aðalsteinn Oskarsson verzl-
unarmaður, Árni Óskarsson
(Framhald á blaðsíðu 7)
Ferðum til einstakra borga
erlendis verður samkvæmt sum
•aráætluninni hagað sem hér
segir: Til Kaupmannahafnar
verða 8 þotuferðir á viku. Þar
af tvær á miðvikudögum og ein
ferð aðra daga. Til London
verða 4 'beinar ferðir á viku
hverri, þ. e. á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og
sunnudögum en aðra daga vik-
unnar geta Lundúnafarþegar
ferðast þangað með viðkomu í
Glasgow. Til Oslo verða tvær
ferðir í viku, á fimmtudögum og
sunnudögum. Til Oslo verða 4
(Framhald á blaðsíðu 2).
FRUMSÝNING
Húsavík 23. marz. Leikfélag
Húsavíkur sýndi í gærkveldi
sjónleikinn, Þið munið hann
Jörund eftir Jónas Árnason
fyrir fullu húsi og mikinn fögn-
uð leikhúsgesta, sem tóku þátt
í leiknum með því að syngja
viðlögin með leikfólkinu. Höf-
undurinn, sem kom norður og
sat sýninguna, var í leikslok
kallaður fram ásamt leikstjór-
anum, Jónasi Jónassyni, og
þeim nöfnum og leikurum þakk
að með löngu lófataki.
Næsta sýning verður í kvöld,
og' mun vera uppselt á hana, en
síðan vexður hlé á sýningum
þar til eftir páska. Þ. J.